Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 29

Morgunblaðið - 13.03.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 29 TH^r VELVAKANDt SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI Ekki er gert ráð fyrir stöðvun Álversins í nýjustu orkuspá, en greinilega tekið fyrir stækkun þess. Það ætti þó að vera öllum ljóst, að stórhagur er að stækkun þess, bæði fyrir þjóðina og ísal. Áreiðanlega gengur verr, eða verður jafnvel vonlaust, að fá fram hækkun orku- verðs til Álversins, ef það á hættu orkuskömmtun langtímum saman á hverjum vetri og verður auk þess neitað um stækkun, sem áreiðanlega myndi opna leið til stórhækkunar orkuverðs. Ingjaldur Tómasson Stöðugt hækk- andi olíuverð Eins og ég benti á í blaðagrein nýlega, eru nú fjölmörg fyrirtæki neydd til að nota rándýra og stöðugt hækkandi olíu, sem svo orsakar sífellt hækkandi vöruverð. Og hvað- an á svo hin nýja íslenska iðnvæðing að fá orku? Svo ekki sé nú talað um rafknúin samgöngutæki, vinnuvélar og margt fleira, sem ég hefi marg- sinnis bent á. Nei, olía skal það vera, segja orkuyfirvöld, með allt orku- sparnaðarnefndafarganið í taglinu. Tökum bara stöðugt vaxandi erlend lán (þar er sko stóriðja sem blífur) og kærum okkur kollótta, þótt þjóðin verði algerlega ósjálfbjarga efna- lega, táknrænt við fuglinn í fjörunni sem lendir í olíubrák. Alltaf öðru hvoru sendir olíuauðvaldið út lyga- fregnir um miklar nýjar olíulindir víðs vegar um heim. Og alltaf er verið að boða verðlækkun olíuvara. Staðreyndin er að olíuverð fer stöð- ugt hækkandi, nú síðast heimtar íslenska olíuauðvaldið stórhækkun olíuverðs (svartolía: 30% hækkun). Til óútreiknanlegs skaða fyrir þjóðina Eins og ég hefi bent á, tel ég að Sultartangavirkjun sé ekki besta lausnin, en hún er þó skárri en engin lausn, og hefur líklega meirihluta- fylgi á Alþingi, og stöðvar þar með neitunarstefnu Alþýðubandalagsins gegn allri innlendri orkuöflun. Hefj- ið því undirbúning að Sultartanga- virkjun af fullum krafti þegar á næsta vori. „Þar þarf hvorki að óttast Pál Pétursson né kindur hans,“ eins og eitt dagblaðið komst svo hnyttilega að orði nýlega. Talað er um að ýmsir frammámenn þjóð- arinnar hafi misst niður um sig í sambandi við togarakaup. Þeir eru þó líklega öllu fleiri, sem hafa misst buxurnar í virkjunarmálunum, til óútreiknanlegs skaða fyrir þjóðina um mörg ókomin ár.“ „Samtal var við Hjörleií Gutt- ormsson orkuráðherra í Morg- unpósti fyrir skömmu. Þar fannst mér hann gefa mjög loðin svör. Hann talaði um að ná „samheillegri uppistöðu" og að ná sér inn á „sléttferli” í orku- málum!“ Tilfinn- ingamál hjá öllum Margrét Sigurðardóttir skrifar: „Ég las grein Sigurðar Þorbjarnarsonar frá Geita- skarði í Morgunblaðinu 17. febrúar. Þar skýrir Sigurð- ur frá barnsfæðingu og heldur því fram, að lækn- um hafi orðið á hörmuleg og vítaverð mistök, eins og það er orðað í greininni. Ég skil vel tilfinningar Sigurðar og hans fjöl- skyldu, þar sem systir mín varð fyrir svipaðri reynslu á sama spítala hjá sama lækni. Hún leið mikið fyrir það og það verður alltaf opið sár. Þetta er tilfinn- ingamál hjá öllum, sem verða fyrir svona lífs- reynslu. Systir mín spurði mig oft að því, og einnig manninn sinn: „Af hverju gerðuð þið ekkert til þess að hjálpa mér?“ Það bera allir mikla virð- ingu fyrir læknum og við treystum þeim. En í þetta skipti fæddist drengur eftir 3—4 sólarhringa barning. Drengurinn hefur ekki þá heilsu, sem allir óska sér.“ Þessir hringdu... Hver hefur svikið hvern? Opið allan sólarhringinn Hafsteinn Þorsteinsson símstjóri hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Því var haldið fram í dálkum þínum á miðvikudaginn, að lokað væri fyrir skeytamóttöku hjá okkur kl. 20. Þetta er ekki rétt. Í 06 er afgreiðslan opin til kl. 21 á hverju kvöldi, en eftir það er stillt inn til símritaranna, sem svara alla nótt- ina. Hins vegar getur það auðvitað dregist nokkuö að svarað sé, ef mikið er að gera. G.St. hafði samband við Velvak- anda og kvaðst hafa lært þulu af ömmu sinni eða föður skömmu eftir aldamót: — En það er nú svo, að ég man orðið aðeins bláupphafið. Þul- an er upptalning á öllum þeim hlutum, sem búandi maður í sveit þarf að hafa. Byrjunin er svona: Fáta-k* þeK»r byrja bú bresta vtll efnln flest, jörðina, stúlku, ker og kú. kvikfénað. reipi or hest. Ég er ættaður úr Rangárvalla- sýslu, en veit ekkert um uppruna þulunnar. Ég hef ekki rekist á neinn sem hefur kunnað hana og treysti því á liðsinni þitt við að fá fram- haldið og vitneskju um höfundinn. Húnvetningur skrifar: „Það er mikið talað um Blöndu- virkjun þessa dagana. Hér fyrir norðan er safnað undirskriftum og síðan þeysa menn suður og taka hús á þeim í Alþingi. Svo er öllu ballinu sjónvarpað okkur hér til mikillar ánægju. í ræðustólnum birtust jafnvel menn, sem við vorum búnir að gleyma að sætu á þingi fyrir okkur. Heldur fannst mér Ingólfi Guðnasyni, sem hóf umræðuna utan dagskrár, farast óhönduglega. En þetta er líklega fyrsta ræðan hans í þinginu, svo ósanngjarnt er að ætlast til meira af honum. Kosinn með meira atkvæðamagni en nokkru sinni fyrr Svo er að sjá, að sumir fram- sóknarmenn ætli að nota þetta mál til að berja á Páli á Höllu- stöðum og hafa jafnvel gefið ótvírætt í skyn að þingmannsferill hans væri senn á enda. En Páll svarar fyrir sig, og vekur hógvær- lega athygli á því að skoðanir hans á Blönduvirkjun nú eru þær sömu og fyrir síðustu kosningar, og sem hann þá gerði heyrum kunnugt. Út á þær skoðanir var Páll m.a. kosinn með meira atkvæðamagni en nokkru sinni fyrr, á sama tíma og fylgið hrundi af Pálma á Akri, sem álitinn var fylgismaður Blönduvirkjunar. Þetta setur þá framsóknarmenn, sem hugðust grípa tækifærið og losa flokkinn við Pál í eitt skipti fyrir öll, í hinn mesta vanda. Það kemur sem sagt í ljós, að Páll á Höllustöðum er sjálfum sér samkvæmur í þessu máli og hefur engan svikið. Hvað skyldu íhaldssálirnar á Norðurlandi vestra segja, sem kusu Pálma á Akri síðast í fullvissu þess að hann berðist fyrir hugsjónum Sjálfstæðis- flokksins á næsta kjörtímabili, en fáum vikum síðar svíkur flokk sinn og stefnu og sér enga lausn vænlegri fyrir þjóðina, en leiða kommúnista til vegs og valda í landinu?" 53^ SlGeA V/öGA í 1/LVtíWW Utsala á efnum Ullarefnum, terelyneefnum, fóöurefnum og flaueli. Verksmiðjusalan, Skipholti 7. ARBÆJAR- MARKAÐURINN ROFABÆ 39 Kaffikynning ,rV-3eiat^arKa Fjorar odyrar tegundir Gæðaklassi 1 NOATUN Nóatúni 12 Z£KÍ \tytö ÉG „ m sm ávtmw, smýíNAt LVfó \iVAQ Fá s m ávmozl s vft m\ mt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.