Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 31

Morgunblaðið - 13.03.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1981 31 NM í golfi ’80 á Akureyri? EFTIR ÞVÍ sfin Morgunblaðið þeim hiutum flestum í lai? strax kcmst næst, er á því möguleiki að Norðurlandamótið í golfi verði haldið á golfvellinum á Akureyri árið 1982. GSÍ mun hafa óskað eítir því við Golfkiúbb Akureyrar, að hann taki mót þetta að sér. Ef þetta má takast, þarf að gera ýmsar endurbætur á golfvelli GA að Jaðri og verður þá að kippa í sumar. því nú er jú 1981. Völlurinn að Jaðri er 9 holu völlur, en verið er að stækka hann í 18 holur, hann er 2945 metrar á lengd og þykir erfiður á íslenskan mælikvarða. í þessu sambandi má minna á, að Evr- ópumót unglinga fer fram á Grafarholti í sumar. Kraftlyftinga- jötnar vilja keppa hérlendis Lyftingasambandi íslands hafa borist skilaboð frá nokkrum þekktum kraftlyftingamönnum þess eðlis, að þeir hafi áhuga á því að koma til íslands i sumar og keppa við fremstu kraftlyft- ingamenn landsins. Hér er m.a. um Bndges nokkurn að ræða. sem átti réttstöðulyftuheimsmet- ið sem Skúli sló, og Larry Paci- fico, kappi sem keppir í 100 kg flokki og hefur lyft í samanlögðu yfir 900 kg. Ekki er útséð hvort að LSÍ getur tekið á móti mönnum þessum fjárhagsins vegna, en víst er þó, að sambandið hefur fullan hug á að reyna allar leiðir í þeim efnum. Tapar Fram gegn KR I KVÖLD verður í Laugardals- höll annar leikurinn i fallkeppni HSÍ. Leika þar Fram og KR og hefst leikurinn kl. 19.00. Framliðið verður að sigra i þeim leik tii þess að forða sér frá falli. Strax á eftir leika ÍR og Ármann í 2. deild karla og á eftir þeim ieik verða tveir leikir i 1. deild kvenna. Annar á milli Fram og Hauka en hinn á miili Vajs og KR. Á Akureyri leika svo Þór Ak. og HK í 2. deild karla og að Varmá leika i sömu keppni UBK og UMFA. Báðir leikirnir hefjast kl. 20.00. Vafasamt víti bjargaði Val MIKIL var heppni Valsmanna. þegar þeir léku við FH í bikar keppninni á miðvikudagskvöldið var. Þegar ein mínúta var til leiksloka skoraði Sæmundur Stefánsson 22. mark FH og virt- ist allt stefna i sigur þeirra. Valsmenn hófu leikinn aftur, en FH-vörnin gaf hvergi færi á sér. En þegar 4 sek. voru til leiksloka gerði Stefán Halldórsson örvænt- ingarfulla tilraun til þess að brjótast inn úr horninu, en lenti beint í íanginu á Guðmundi Árna Stefánssyni og ekkert annað en aukakast gat komið til greina. En viti menn. Lélegir dómarar leiksins, þeir óli Olsen og Jón Friðsteinsson, dæmdu öllum til undrunar vítakast. Úr því skor- aði Brynjar Ilarðarson og tryggði þar með Val framleng- ingu sem þeir sigruðu nokkuð örugglega. En litum þá á gang leiksins. Valsmenn byrjuðu leikinn með miklum krafti og eftir 13 mín. var staðan orðin 6—1 þeim í vil. Valsmenn léku vel og yfirvegað og Þorlákur í markinu varði eins og berserkur, þar af tvö vítaköst. En FH-ingar gáfust ekki upp og breyttu stöðunni á stuttum tíma í 6—4 með glæsilegum mörkum. En Valsmenn svöruðu fyrir sig með þremur mörkum í röð og þegar 7 mín. voru til hálfleiks, var staðan orðin 9—4, þeim í vil. En leikur liðsins hrundi þá eins og spilaborg og þeir skoruðu ekki í heilar 6 mín., en FH-ingar skoruðu hins vegar 5 mörk í röð og voru búnir að jafna, áður en Valsmenn vissu af. í síðari hálfleik voru FH-ingar mun betri og voru ávallt 2—3 mörkum yfir, en undir lok leiksins minnkuðu Valsmenn muninn og þeim tókst að jafna með áður- greindum hætti. Framlengt var í 2x5 mín. og var eins og doði hefði færst í leik FH-inga, því Vals- menn sigruðu þá í framlenging- unni örugglega, 5—3. Lokatölur urðu því 27—25, Val í vil. Leikur Valsmanna var mjög misjafn og unnu þeir leikinn mest á einstaklingsframtaki þeirra Stefáns Halldórssonar og Brynj- ars Harðarsonar, en þeir skoruðu öll mörkin utan tveggja í seinni hálfleik og framlengingunni. Þor- lákur markvörður og Bjarni byrj- uðu vel, en döluðu er leið á leikinn. FH-ingar voru óheppnir og vant- aði þá aðeins herslumuninn til að sigra í þessum leik. MÖRK VALS: Stefán 8, Brynjar 8,, 6 v, Bjarni 5, Þorbjörn G. 3, Steindór 2, Jón P. og Þorbjörn J. eitt hvor. MÖRK FH: Sæmundur 7, Hans 6, Kristján 4, 2 v, Valgarður 3, Guðmundur Árni 2, Pálmi, Theo- dór og Óttar eitt mark hver. BROTTVÍSANIR: Þorbjörn G. og Þorbjörn J. hjá Val og Hans hjá FH, allir í 2 min. MISLUKKUÐ vítaköst: Þorlákur varði frá Kristjáni og Sveini í f.h. Tveir ungir piltar, sem eru í starfskynningu á iþróttadeild Morgunblaðsins, skrifuðu um leik FH og Vals. Þeir heita Gunnar Már Sigfinnsson og Gylfi Birgisson. Friðrik Þór óskarsson (t.v.) og Oddur Sigurðsson. Afrek Odds lofar góðu „ÉG ER ánægður með þennan árangur, þetta var erfitt mót,“ sagði Oddur Sigurðsson sprett- hlaupari i spjalli við Mbl., en á frjálsiþróttamóti í Texas um sið- ustu helgi náði hann sínum bezta árangri i ár i 400 metra hlaupi, hljóp á 47,1 sekúndu. „Æfingarnar miðast ekki við toppárangur fyrr en með vorinu, og því finnst mér ég vera þungur á mér, en það á eftir að breytast. Mótið var erfitt, hljóp þrjú hlaup sama daginn, fyrst undanrásir á 48,33 sekúndum um morguninn, þá úrslitahlaupið, og loks einn sprett í 4x400 metra boðhlaupi, þar sem ég var á um 48 sekúndum. Við vorum slakir í boðhlaupinu, hlupum aðeins á 3:09 mínútum," sagði Oddur, en um fyrri helgi náði sveit skólans 3:06 í þeirri grein. Oddur varð í fjórða sæti í úrslitahlaupinu, sigurvegarinn hljóp á 46,2 sekúndum. Hann var þó eini hlauparinn frá Texashá- skóla sem komst í úrslitin, sem er athyglisverður árangur hjá Oddi, því í skólanum eru a.m.k. fjórir hlauparar sem náð hafa betri árangri en hann í 400 metra hlaupi. Vonandi er þetta til marks um að í sumar verði hann enn sterkari en áður. „Það horfir betur með hnéð, og góðar líkur á að ég þurfi ekki að fara undir hnífinn. Það kemur í ljós eftir hálfan mánuð," sagði Oddur, en eins og fram kom í Mbl. í síðustu viku var óttast að Oddur þyrfti að gangast undir skurðað- gerð til að fjarlægja fituhnúð úr hné. Hnúðurinn hefur minnkað, og vonast læknar til að komast megi hjá skurðaðgerð, sem þó er lítilsháttar. Á mótinu, sem fram fór í bænum Loredo, keppti Friðrik Þór Óskarsson, sem einnig er við nám í Texasháskóla, og varð annar í þrístökki, stökk 14,96 metra. „Friðrik stóð sig vel,“ sagði Oddur, „atrennubrautin var eins og mal- bik eða steypustétt, og því eins erfitt að stökkva og hægt er. Hann getur miklu betur.“ _ Dr. Hook Greatest Hits Eftirfarandi lög eru á plötunni: Sylvia’s Mother Cover of the Rolling Stone Everybody’s Making it Big But Me You Make My Pants Want to Get Up and Dance Sleeping Late Only Sixteen Walk Rlght In The Millionaire More Llke The Movies When You’re in Love With a Beauti- ful Woman Sexy Eyes Iff Not You A Little Ðit More Sharing The Night Together I Don’t Want to be Alone Tonight Better Love Next Time In Over My Head Years From Now FÆST í ÖLLUM HLJÓMPLÖTUVERSLUNUM Suöurlandsbraut 8 — sími 84670 Laugavagi 24 — sími 18670 Austurvsri — sími 33360.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.