Morgunblaðið - 16.04.1981, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
Dómkirkjan
í Reykjavik:
Kirkjukvöld
Bræðrafé-
lagsins í kvöld
KIRKJUKVÖLD Bræðra-
félags Dómkirkjunnar í
Reykjavík verður haldið í
kvöld, Skírdag, og hefst
það í Dómkirkjunni
klukkan 20.30. Kvöldið er
í umsjá Oddfellowreglunn-
ar á íslandi.
Á efnisskránni er orgelleikur
Marteins Hunger Friðrikssonar
dómorganista, en hann leikur
orgelmúsik (preludium, choral
und fuge) eftir Jón Þórarinsson.
Því næst flytur séra Þórir Steph-
ensen dómkirkjuprestur ávarp, og
að því loknu syngur Söngsveit
Oddfellowa. Stjórnandi er Snæ-
björg Snæbjarnardóttir, með und-
irleik Marteins Hunger Friðriks-
sonar. Flutt verða: Bæn eftir
Þórarinn Guðmundson, Fræ í
frosti sefur, franskt lag í radd-
setningu Þorkels Sigurbjörns-
sonar við texta hr. Sigurbjörns
Einarssonar.
Þá er ræða: Trú og menning,
sem Jón Sigtryggsson heldur.
Loks er einsöngur, Steinn Guð-
mundsson syngur við undirleik
Smyrill á veiðum í Reykjavik
SMYRILL var á veiðum í miðborg Reykjavíkur í gærdag, og gafst ekki upp fyrr en hann hafði banað
dúfu, er hann síðan gæddi sér á af bestu lyst. Dúfuna hremmdi hann á flugi yfir Lækjargötu, og síðan
dró hann hana aðeins út úr skarkala Umferðarinnar og settist að snæðingi. Meðfylgjandi mynd tók
John Gústavson fyrir Morgunblaðið. og sýnir hvar smyrillinn situr með bráð sína. og hefur þó
vakandi auga með umhverfinu.
Eftirlitsmaður BÚR um nýja Stálvíkurtogarann:
Vextir af
orlofsfé
34% á ári
AÐ IIÖFÐU samráði við
Alþýðusamband íslands,
Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands, Póst-
KÍróstofuna og Seðlabanka
lslands, hefur félagsmála-
ráðherra í dag tekið
ákvörðun um vexti af
orlofsfé launþega hjá Póst-
gíróstofunni. Verða vextir
þessir nú 34%.
Með þessari vaxtahækkun nú er
næstum að fullu stigið skref til
hæstu sparisjóðsvaxta á orlofsfé.
Á síðastliðnu orlofsári voru vextir
af orlofsfé 24%, 11,5% árið áður,
en 5% árið þar áður.
Félagsmálaráðherra hefur náð
samkomulagi við Seðlabanka ís-
lands, sem er vörsluaðili orlofs-
fjár, um verulega bætta ávöxtun
orlofsfjár, sem mun tryggja það
að á næsta ári og eftirleiðis verði
mögulegt að greiða hæstu spari-
sjóðsvexti á orlofsfé til launþega,
eins og þeir eru á hverjum tíma.
Atvinnumálakönn-
un í Rangárþingi
Marteins Hunger Friðrikssonar,
Vertu góði guð hjá mér, eftir
Jónatan Ólafsson. Textinn er eftir
Einar M. Jónsson og er þetta
frumflutningur verksins.
Því næst syngur Söngsveit
Oddfellowa undir stjórn Snæ-
bjargar Snæbjarnardóttur og við
undirleik Marteins Hunger, Helgi-
söng eftir Jónatan Ólafsson við
texta Einars M. Jónssonar.
Þá er ræða séra Árelíusar
Níelssonar: Skírdagskvöld. Að því
loknu syngur söngsveit Oddfell-
owa aftur, Dona nobis pacem, eftir
Eyþór Stefánsson og Jubelate eft-
ir F. Hándel. Þá flytur séra Hjalti
Guðmundsson dómkirkjuprestur
bæn, og Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir syngur einsöng við undir-
leik Marteins Hunger Friðriksson-
ar: Faðir vor.
Loks leikur Marteinn Hunger
Friðriksson sálmaforleik á orgel,
eftir Joh. Seb. Bach, en það er
síðasta verk Bachs, er hann gerði
blindur á banasæng.
Minnka þarf olíubyrði
vegna viðbótarkjölfestu
Furðu lostinn yfir greinargerð-
inni, segir forstjóri Stálvikur
OTTÓ N. Þorláksson, nýi togari Bæjarútgérðar Reykjavíkur sem
Stálvík hf. f Garðabæ smíðar, var hallaprófaður sl. sunnudag. Þess
vegna hefur Bárður Ilafsteinson. skipaverkfræðingur. sem hefur eftirlit
með smíði skipsins fyrir hönd BÚR. sent útgerðarráði Bæjarútgerðar-
innar greinargerð. þar sem segir, að samkvæmt hráðabirgðaútreikning-
um af hallaprófum skipsins þurfi um 60 tonna viðbótarkjölfestu í
togarann. Bárður segir einnig að þess vegna þurfi að stórminnka
olíugeymana og breyta fyrirkomulagi ferskvatnsgeyma. Jón Sveinsson,
forstjóri Stálvíkur. sagði í samtali við Mbl., að hann væri furðu lostinn
yfir þessari greinargerð. Það hefði alltaf verið vitað. að það þyrfti
ballest á móti því nýtískufyrirkomulagi, að hafa splittvindur togarans í
2.3 metra hæð yfir þilfarinu, en það hefði ekki verið hægt að ákveða þá
hallest fyrr en eftir hallaprófun skipsins. En hugmyndir Bárðar um
stórfellda minnkum oiíugeyma hefði aldrei komið til álita.
í greinargerð Bárðar Hafsteins-
son til útgerðarráðs BÚR sem lögð
var fram á fundi ráðsins í fyrra-
dag, segir eftirfarandi: „Skipið var
hallaprófað sl. sunnudag. Bráða-
birgðaniðurstöður útreikninga
sýna að það þurfti um 60 tonn í
viðbótar kjölfestu. Því yrði komið
fyrir undir keðjukössum og í
botngeymum skipsins. Ferskvatns-
geymar skipsins voru fyrirhugaðir
í skut, en til að fá rétta legu á
skipið verður að breyta því.
Breyta verður olíugeymum undir
íbúðum (framan viðlest) í fersk-
vatnsgeyma. Við þessar breytingar
minnkar ferskvatnsforði skipsins
úr 67 tonnum í um 40 tonn, sem að
mínu áliti er nægjanlegt. Olíu-
birgðir skipsins minnka við þetta
Gosið í Heklu óbreytt
Landleiðir með ferðir á gosstöðvarnar
GOSIÐ í Heklu virtist með svipuðum hætti og síðustu daga, er
hlaðamaður Morgunblaðsins ræddi við menn við Ilrauneyjarfossvirkj-
un og ísakot í gærkveldi. Hraunrennsli er talsvert úr fjallinu, og ekki
lát á gosinu að því er virðist. Litils háttar öskufalls varð einnig vart i
gær. svo sást vel á snjófönnum og bílrúðum
Landleiðir hf. hafa nú ákveðið oft komið að gosstöðvum, en sjald-
að hefja ferðir að gosstöðvunum á
langferðabílum, og verður lagt af
stað í fyrstu ferðina klukkan 14 í
dag, frá Umferðarmiðstöðinni, og
síðan á sama tíma daglega um
páskahelgina, daglega ef áhugi
reynist fyrir ferðunum hjá al-
menningi. Ágúst Hafberg forstjóri
Landleiða sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann hefði
an hefði hann séð eins tilkomu-
mikla sjón og gat að líta við Heklu
í fyrrakvöld. Mikill hraunfoss
hefði steypst niður fjallið, og 300
metra fallhæð, og geysifallegt að
sjá. Sagði Ágúst Landleiðir myndu
aka það nálægt gossvæðinu, að
ekki væri nema um klukkustund-
argangur að hraunrennslinu.
útgerðarráðs Reykjavíkurborgar
öllum viðstöddum til hrellingar og
sjálfum sér til lítils sóma vilji hann
láta taka mark á sér.“
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum 9. apríl sl. að láta gera
úttekt á atvinnulífi í Rangárvalla-
sýslu. í tilkynningu ríkisstjórnar-
innar til Framkvæmdastofnunar
um málið segir að gera skuli
„úttekt á atvinnuhorfum og at-
vinnuþróun í Rangárvallasýslu og
lagðar fram tillögur til úrbóta.
Verði höfð hliðsjón af aðstæðum
og horfum á aðliggjandi svæðum
og líklegum sveiflum við orku-
framkvæmdir á Suðurlandi á
komandi árum.“
úr um 192.000 lítrum í um 135.000
lítra.
Einnig þarf að breyta olíugeym-
um þannig, að um 35.000 lítra rými
verði fyrir dieselolíu og þá um
100.000 lítrar fyrir svartolíu. Þetta
mun taka einhvern tíma að fram-
kvæma."
Mbl. hafði samband við Jón
Sveinsson og fara svör hans hér á
eftir:
„Eg er furðu lostinn yfir þeirri
greinargerð sem hér um ræðir.
Greinargerðin inniheldur fullyrð-
ingar sem ekki standast og hefði
Bárður Hafsteinsson betur borið
bréfið undir mig áður en hann
sendi það inn á fund útgerðarráðs
BÚR — útgerðarráðsmönnum til
hrellingar. Ég var að frétta af
þessari greinargerð rétt í þessu og
fékk afrit af henni frá forstjóra
BÚR, Einari Sveinssyni, en honum
létti greinilega verulega þegar ég
leiðrétti staðhæfingar þær sem
fram koma í bréfi Bárðar, sem mér
er tjáð að hann hafi sagt á
fundinum, að væri ákvörðun Stál-
víkur hf. til breytingar.
Staðreyndirnar eru hins vegar
eftirfarandi: 1. Engum olíugeymum
í skipinu verður breytt í vatns-
geyma. 2. Ferskvatnsgeymar verða
um 50 þúsund lítrar í stað 40
þúsund lítra. 3. Sjór fyrir ísvél í
höfn verður um 30 þúsund lítrar. 4.
Olíugeymar verða samtals um
181,400 lítrar í stað 135 þúsund
lítra, þar af svartolíugeymar um
158.900 lítrar í stað 100 þúsund
lítra, eins og staðhæft er í bréfi
verkfræðingsins. Þetta hefði hann
fengið að vita, ef hann hefði borið
fullyrðingar sínar undir mig í stað
þess að hlaupa með þær á fund
JHtfgtlttllIftMfr tac --- rrra: JUrpmMaki* —
y ^,1 gijr Þorgeirs
anmp ”
B' B
þáttur JÓHeCssrHiar
100 11(
PétgggR
Páskablað Morgunblaðsins:
Athafnamenn
PÁSKABLAÐ Morgunblaðsins er 112 síður að þessu sinni og er
skipt i 3 blöð. Athygli lesenda er vakin á því að eitt þessara þriggja
blaða var btæið út með blaðinu í gær. Meginefni páskablaðsins að
þessu sinni fjallar um islenzka athafnamenn og birtast i blaðinu
viðtöl við fjölmarga athafnamenn viðs vegar um land.
Blaðl
Pálmi Jónsson í Hagkaup o.fl..................... io
Guðrún Vigfúsdottir ............................. 12
Jósep Benediktsson og Anna Björgvinsdóttir....... 16
Ólafur O. Johnson ............................... 22
Þórir Jónsson .................................. 42
Ásmundarstaðabræður, Garðar, Gunnar og Jón Jóhannssynir .... 44
Blað II (borið út miðvikudag)
Þorgeir Jósefsson ............................. 49
Örlygur Hálfdanarson ............................ 56
Jóakim Pálsson................................... 60
Snorri Halldórsson .............................. 66
Blað III
Stefán Pétursson................................. 81
Haraldur Sturlaugsson ........................... 88
Guðrún og Guðmundur Guðmundsson.................. 92
Jón Egili og Ingimar Sveinssynir................. gg
Eyþór Tómasson...................................100
Sigurður Einarsson ...............................
Þjónustuliðir og upplýsingar i blaði I
Messur............................................ 4
Minnisblað...................................5—8—21
Dagbók (sjúkrahús, söfn o.fl.).................... 6
Kvikmyndir um páskana............................ 18
Hvað er að gerast í bænum .....................34—36
Fermingar .....................................38—39