Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 Páskamyndir kvikmyndahúsanna á Stór-Reykjavíkursvæðinu KRAMER GEGN KRAMER Stjörnubíó sýnir stórmyndina Kramer gegn Kramer (Kramer vs, Kramer) um páskana. Þetta er víðfræg mynd sem hlaut 5 Óskarsverðlaun árið 1980. Hún var kosin besta mynd ársins, Dustin Hoffman, sem fer með aðalhlutverkið, besti leikarinn, Meryl Streep besti leikarinn í aukahlutverki, handritið þótti hið besta og leikstjórinn Robert Benton var kosinn besti leik- stjórinn. Auk þeirra Hoffmans og Streep fer Justin Henry með eitt af helstu hlutverkum myndarinnar. Kvikmyndahandritið er eftir Robert Benton, gert eftir sögu Avery Corman. Kvikmyndun annaðist Nestor Almendros en tónlistin er eftir Henry Pudcell. Framleiðandi er Stanley R. Jaffe. Myndin greinir frá hjónunum Ted og Joanna Kramer sem eiga 6 ára gamlan son, Billy. Joanna er ekki sátt við hlutskipti sitt sem eiginkona og húsmóðir en Ted vill ekki að hún vinni úti og lýsir vanþóknun á framagirnd konu sinnar. Joanna óttast geðheilsu sína og ákveður að yfirgefa Ted og Billy. Ted gengur í fyrstu illa að sætta sig við hlutverk uppal- anda en smám saman verður honum það meira virði en nokkuð annað. Að 18 mánuðum liðnum snýr Joanna heim og hyggst á ný taka við uppeldi sonar síns. En Ted er ekki á þeirri skoðun og þeirra bíða réttarhöld þar sem allt er dregið fram í dagsljósið. WALT DISNEY í GAMLA BÍÓI Gamla Bíó heldur þeirri hefð að sýna Walt Disney myndir á stórhátíðum og sýnir fjöl- skyldumyndina Geimkötturinn (Cat from outer Space) um páskana. Með aðalhlutverkin fara Ken Berry, Sandy Duncan og McLean Stevenson. Handrit er eftir Ted Key, leikstjóri er Ron Miller en leikstjóri Nor- man Tokar. Myndin segir frá kettinum Jake sem nauðlendir geimskipi sínu á jörðinni. Hann hefur aðeins 36 klukkustundir til að gera við skipið og hverfa á brott. Ef það tekst ekki verður hann að vera um kyrrt á jörðu. ÁSTIR OG NÁTTÚRUIIAMFARIR Háskólabíó frumsýnir mynd- ina Fellibylurinn (Hurricane) eftir ítalann Díno de Laurentis. Með aðalhlutverkin fara Jason Robards, Mia Farrow, Max von Sydow, Trevor Howard og Da- yton Ka’ne. Handritið er eftir Ijorenzo Semple jr. og er það samið eftir sögu Charles Nord- hoff og James Norman Hall. Myndatökumaður er Sven Mykvist, tónlistin eftir Ninu Rota en leikstjóri er Jan Troell. Myndin gerist á bækistöð flota Bandaríkjamanna í Kyrrahafinu upp úr 1920. Landsstjórinn þar nefnist Bruckner og á hann dóttur sem heitir Charlotte. Á eyjunum gilda ýmsir fornir siðir eyjaskeggja. Charlotte fellir hug til innfædds stórhöfð- ingja, Mitangi að nafni sem vill hafa einhver afskipti af honum eru drepnir eftir á samkvæmt skipun konungs. Málin æxlast þó þannig að María hittir Filip er hún er á leið til Spánar á ný, orðin leið á kónginum. Með þeim takast ástir en þau eru handsömuð og flutt sem fangar í höll Loðvíks. SÖMU MYNDIR í REGNBOGANUM í Regnboganum verða áfram sömu myndir um páskana. I sal A verður kvikmyndin Times Square. Það er nýjasta mynd Roberts Stigwoods sem gerði m.a. myndirnar Saturday Night Fever, Grease og Xanadu. Með aðalhlutverk fara Tim Curry, Truni Alvarado og Robin John- son. Leikstjóri er Alan Moyle. í sal B verður sýnd kvik- myndin Hin langa nótt sem byggð er á sögu Agöthu Christi. Með aðalhlutverkin fara Haley Mills og Hywell Bennett. í sal C halda áfram sýningar á Fílamanninum. Mynd þessi var tilnefnd til ýmissa Óskars- verðlauna í ár en fékk engin. Hún er byggð á sönnum heim- ildum um mann sem var af- skaplega mikið vanskapaður líkamlega séð en hafði til að bera stórbrotna persónu. Með aðalhlutverkið fer John Hurt. í sal D verður endursýnd myndin Átta harðhausar. Christoper George leikur aðal- hlutverkið. Da.vton Ka'nc og Mia Farrow leika aðalhlutverkin í _FellibyInum“. Úr kvikmyndinni „Maðurinn með stálgrímuna". SÓLARLANDAFERÐ í Bæjarbíói í Hafnarfirði hefjast sýningar á sænsku gam- anmyndinni Sólarlandaferðin á annan páskadag. Mynd þessi var áður sýnd í Regnboganum í Reykjavík. REDFORD, HITCIICOCK OG ÁGÚST GUÐMUNDSSON Hafnarfjarðarbíó sýnir 3 kvikmyndir um páskana. Bru- baker með Robert Redford í aðalhlutverki verður sýnd kl. 21. Mynd þessi var áður sýnd í Nýja Bíói í Reykjavík og segir frá átökum innan fangelsis. Kl. 19 verða sýningar á ís- lensku kvikmyndinni Land og synir. Myndin er gerð eftir sögu Indriða G. Þorsteinssonar en kvikmyndahandritið er eftir Ágúst Guðmundsson sem jafn- framt er leikstjóri. Kvikmynda- taka var í höndum Sigurðar Sverris Pálssonar. Með aðal- hlutverkin fara Sigurður Skúla- son og Guðný Ragnarsdóttir. Framleiðandi er Jón Her- mannsson. Sakamálamyndin 39 Þrep sem byggð er á bókinni „The Thirty Nine Steps" eftir Alfred Hitchcock veður á sýningum kl. 17. Aðalhlutverkin eru í hönd- um Roberts Powell, Davids Warner og Erics Porter. TÓNLIST Borgarbíóið í Kópavogi sýnir bandarísku gamanmyndina Mökkur og dómarinn (Smokey and the Judge) um páskana. Þetta er tónlistarmynd sem greinir frá viðureign þriggja dómara við diskótríó smábæjar- ins. Með aðalhlutverkin fara Gene Price, Joe Marno, Gwen Owens og Juanita Gurile. Leik- stjóri er Dan Seeger. Á barnasýningu kl. 15 á annan páskadag verður haldið áfram að sýna gamanmyndina Undrahundurinn. að þau gifti sig að fornum sið eyjaskeggja. En það getur Charlotte ekki hugsað sér. Mitangi og Bruckner eru ekki beinlínis vinir og síðar vill það þannig til að Bruchner dæmir Mitangi í 4 ára fangelsi. Char- lotte hjálpar honum að strjúka en skömmu síðar skellur á fellibylur. ÓBYGGÐALÍF Páskamynd Tónabíós heitir Húsið í óbyggðunum (The Wild- erness Family). Aðalhlutverkin eru í höndum Roberts F. Logan og Susan Damante Shaw. Leik- stjóri er Stewart Raffill. Mynd þessi er gerð eftir sönnum atburðum. Fjölskylda nokkur er orðin leið á stórborg- arlífinu og ákveður að setjast að í óbyggðum. strákinn Andra. Sögusviðið er Reykjavík á árunum 1947 til 1963. Mað aðalhlutverkin fara Pétur Björn Jónsson, Hallur Helgason, Kristbjörg Kjeld og Erlingur Gíslason. Leikstjóri er Þorsteinn Jónsson, kvikmyndun annaðist Sigurður Sverrir Pálsson, leikmynd er eftir Björn Björnsson og búningar eftir Fríði Ólafsdóttur. Tónlistin við myndina er eftir Valgeir Guð- jónsson og The Beatles. Fílamaðurinn. IIEIMSENDIR Austurbæjarbíó heldur áfram sýningum á ensk-ítölsku myndinni Helför 2000 (Holo- caust 2000) um páskana. Með aðalhlutverk fara Kirk Douglas, Simon Ward og Agosina Belli. Myndin greinir frá manni að nafni Robert Caine sem ætlar að koma þriðja heiminum til bjargar með því að reisa stórt kjarnorkuver. Ýmsir válegir atburðir taka að gerast samhliða byggingu versins og Caine kemst loks á þá skoðun að Anti-Kristur sé að verki og að í ljós séu að koma spádómar Opinberunarbókar Biblíunnar um endalok heims- ins. PUNKTURINN í LAUGARÁSBÍÓI íslenska kvikmyndin Punkt- ur, punktur, komma, strik verð- ur sýnd áframhaldandi í Laug- Dustin Hoffman og Justin Ilenry i hlutverkum sinum i myndinni „Kramer gegn Kram- er“. Úr kvikmyndinni „Punktur. punktur. komma. strik“. Ilallur Helgason (fyrir miðju) í hlutverki Andra. Geimkötturinn Jake. arásbíói yfir páskana. Kvik- myndin er byggð á samnefndri bók Péturs Gunnarssonar um myndahandritið er eftir David Ambrose. Leikstjóri er Ken Annakin en framleiðandi er Ted Richmonde. Með aðalhlutverkin fara Beau Brigdes, Syivia Kristel, Cornel Wilde og Jose Ferrer. Auk þeirra fara með hlutverk í myndinni fleiri nafnkunnir leikarar svo sem Rex Harrison, Olivia de Havilland og Ursula Andress. Myndin gerist á tímum Loð- víks 14. Frakkakonungs og er tekin í Austurríki. Samið hefur verið um það að Loðvík gangi að eiga Maríu Theresu Spánar- prinsessu. Með henni fær Loð- vík, sem situr með tóman ríkis- kassa, mikinn heimanmund og einnig verður það þá tryggt að friður komist loks á milli Frakka og Spánverja. En er María er á leið til Frakklands er ungur maður settur í hald í Bastilluna. Maður þessi heitir Filip og er farið með hann á sérstakan hátt. Smíðuð er á hann stálgríma og þeir sem ÁSTIR OG LEYNDAR- MÁL LOÐVÍKS 14 Nýja Bíó heldur áfram sýn- ingum á kvikmyndinni Maður- inn með stálgrímuna (Behind the Iron Mask). Myndin er byggð á samnefndri sögu eftir Alexandre Dumas en kvik-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.