Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 19
Alusuisse sækir um einkaleyfi á uppfinningu verkstjóra hjá Isal:
„Hugmynd-
in einf öld
og sniöir4
- segir yfirmaður
á einkaleyfisskrif-
stofu Alusuisse
ÍSLENZKA álfélasið hf. í
Straumsvík hefur fyrir milli-
göngu Alusuisse sótt um einka-
leyfi í mörgum löndum á súr-
álsskammtara. sem Guðmundur
Bjarnason verkstjóri á vélaverk-
stæði ÍSAL hefur fundið upp. Að
sö>?n Heinz Breiter, yfirmanns á
einkaleyfisskrifstofu Alusuisse,
er huKmynd Guðmundar snjöll
ok einföld. „É>? tel að þessi
uppfinning muni koma að mjöK
tíóðum notum eins or allar
einfaldar lausnir á vandamálun-
um," sagði Breiter.
Breiter var hér á landi fyrir
skömmu til að kynna sér uppfinn-
ingu Guðmundar og afla gagna,
sem leggja þurfti fram með einka-
ieyfisumsókninni til ýmissa Evr-
ópulanda. Jafnframt kynnti hann
sér tvær aðrar uppfinningar, sem
álversmenn hafa verið að þróa á
undanförnum misserum og einnig
verður sótt um einkaleyfi á, aðferð
til að hrista ál úr gjalli sem
myndast á kerjunum og notkun
íslenzkrar eldfjallaösku í einangr-
un kerjanna, en hingað til hefur
einangrun í kerin verið flutt inn
Frá Skotlandi. Starfsmenn álvers-
ins hafa frá fyrstu tíð lagt kapp á
hagræðingu og endurbætur í verk-
smiðjunni en þetta eru hins vegar
fyrstu einkaleyfin, sem sótt er um
í rúmlega 10 ára starfssögu ál-
versins.
Morgunblaðið fylgdist á dögun-
um með tilraunum á súráls-
skammtaranum sem Guðmundur
fann upp og ræddi þá stuttlega við
hann. Guðmundur var fyrst að því
spurður að því hvernig hugmyndin
hefði fæðst:
— Þegar byrjað var að setja
upp nýju hreinsitækin í verk-
smiðjunni varð sú grundvallar-
breyting að kerunum var lokað og
þeim miðjuþjónað sem kallað er,
en var áður hliðarþjónað. Þetta
þýddi að súrálið var sett í kerin
mið. í fyrra kom upp smá vanda-
mál hjá okkur með loka á kerjun-
um og tókst mér að finna upp loka
sem voru alveg þéttir. Ég fór nú að
leiða hugann að nýrri aðferð til
þess að skammta súrál í kerin, en
það þarf að gerast á 8 mínútna
fresti. Ég smíðaði fyrst súrálstank
og setti undir hann skúffu með
svokölluðu súrálsgjafarhúsi, sem
tók nákvæmlega þann skammt,
sem fara á í kerið hverju sinni. I
verksmiðjunni er sérstakt þrýsti-
Ljósm. Mhl. Kristján.
Fylgst með tilraunum á álskammtaranum. Talið frá vinstri: Pálmi
Stefánsson, forstöðumaður nýbyggingadeildar ÍSAL, dr. Heinz
Breiter, yfirmaður á einkaleyfisskrifstofu Alusuisse. Bragi Erlends-
son, rekstrarstjóri ÍSAL, dr. Alwis Franke, tæknilegur framkvæmda-
stjóri, Einar Guðmundsson framleiðslustjóri og Ragnar Halldórsson,
forstjóri.
Vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins:
Fjórar bifreiðar
m.a. í vinninga
Vorhappdrætti Krabhameinsfé-
lagsins hefur nú verið hleypt af
stokkunum og miðar sendir um
allt land. Allir íslendingar fá
senda happdrættismiða Krahha-
meinsfélagsins á aldrinum 23 ára
til 67 ára. Dregið verður í vor-
happdrætti Krabbameinsfélagsins
17. júni.
Að þessu sinni er aðalvinningur-
inn Dodge Aries-bifreið að verð-
mæti meira en 150 þúsund krónur,
og einnig eru þrír vinningar bifreið
að eigin vali að upphæð 100 þúsund,
80 þúsund og 70 þúsund krónur, þar
að auki eru 8 vinningar þannig að
hver um sig er tvö tíu gíra reiðhjól,
samtals að verðmæti 5000 krónur.
Vinningarnir eru því tólf og heild-
arverðmæti þeirra um 440 þúsund
krónur. Miðaverð er 17 krónur.
I frétt frá Krabbameinsfélaginu
segir, að happdrættið hafi frá
upphafi verið ómissandi stoð fyrir
krabbameinssamtökin í landinu:
„Er svo enn að veigamestu þættirn-
ir í starfsemi þeirra byggjast að
verulegu leyti á happdrættistekjun-
um og þar með stuðningi þeirra
fjölmörgu einstaklinga sem miðana
kaupa.“
Guðmundur Bjarnason við álskammtara í smækkaðri mynd, sem notaður var til tilrauna.
loftskerfi og prófaði ég að nota
þrýstiloft til að tæma súrálið úr
gjafarhúsinu niður í kerið. Sér-
stakur loftloki, sem stjórnast af
tímaliða, sér um að súráls-
skammturinn, 2,4 kíló, fer niður í
kerið á nákvæmlega 8 mínútna
fresti. Rétt áður en þetta gerist
hefur hamar brotið gat á skurn-
ina, sem myndast á kerjunum, svo
súrálið á greiða leið niður í kerið.
Allur þessi búnaður er svo tengd-
ur tölvukerfi verksmiðjunnar, sem
stjórnar kerfinu. Við prófuðum
okkur áfram og í dag er komin á
þetta nokkur reynsla og hún hefur
verið mjög jákvæð. Þessi búnaður
hefur þegar verið settur upp í 30
kerjum og og nýl'ega var sú
ákvörðun tekin að setja búnaðinn
upp í öllum 320 kerjum álversins.
Eftir að Guðmundur kom fram
með þugmynd sína hefur hún
verið þróuð í samstarfi ýmissa
tæknimanna álversins og má þar
einkum nefna Þorstein Eggerts-
son, deildarstjóra verkáætlunar-
deildar.
Guðmundur hefur starfað hjá
ÍSAL frá 1968 og hann hefur
unnið að margvíslegum endurbðt-
um á búnaði þar. Þetta er þó að
hans sögn sú hugarsmíð, sem er
lang mikilvægust. Þetta er það
jákvæðasta sem komið hefur fram
hérna og losar menn við óþrifaleg
störf, sagði Guðmundur.
Reyndar má segja að atvik á
brautarstöð í Þýzkalandi fyrir
allmörgum árum hafi verið
kveikjan að lausn Guðmundar.
Hann var staddur á brautarstöð-
inni í Duisburg og fylgdist með því
þegar sandur var borinn á hála
brautarteinana. Það var einmitt
gert með þrýstilofti.
Súrálskammtarinn, sem Guð-
mundur fann upp, kemur í stað
annars, sem byggður var sam-
kvæmt hugmyndum erlendis frá.
Hann var allt að sex sinnum
þyngri og byggðist á allt öðru
kerfi. I honum voru að auki
margir hreyfanlegir hlutir og
þeim samfara bilunar- og slit-
hætta. I búnaði Guðmundar eru
hins vegar engir hreyfanlegir
hlutir.
Á þessu stigi er ekki hægt að
segja um það hvort búnaður Guð-
mundar verður settur upp í verk-
smiðjum úti í heimi, það mun
skýrast seinna. En ummæli Heinz
Breiter benda óneitanlega til þess
að svo verði.
Fegurðarsamkeppni
Ungfrú UTSYN 1981
Kynntar verða 10—12 fegurð-
ardísir, sem dómnefnd hefur
valið í úrslitakeppni.
■
• Húsiö opnað kl. 20.00.
— lystauki og happdrætti.
• Veizlumatur
— verð aðeins kr.
85.00
• Spennandi spurningakeppni
— frábær skemmtiatriði.
• Danssýning
Nýjustu
diskó-lögin
Þorgeir
Ástvaldsson
stjórnar
diskótekinu.
Stjórnandi:
Ingólfur Guöbrandsson
Hin vinsæla, fjöruga hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar ásamt söng-
konunni Maríu Helenu halda uppi
fjörinu til kl. 03.00.
Missið ekki af skemmtun í sérflokki.
— Sjá nánar í auglýsingu í Morgunblaðinu
miðvikudaginn 22. apríl.
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN