Morgunblaðið - 16.04.1981, Side 22

Morgunblaðið - 16.04.1981, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1981 fltofgtiiilifftfrtfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Þjóðin, landið og trúin Fyrir 200 árum, vorið 1781, þegar íslendingar vóru aðeins 50.000, féll fólk úr hor og vesöld hér á landi, einkum í Vestmannaeyjum, á Suðurlandi, í Borgarfirði og á Snæfellsnesi, segir í samtíma heimildum. Fyrir 100 árum, veturinn 1881, fyllti hafís hvern fjörð og hverja vík á Norðurlandi og fraus saman í eina hellu. Fárviðri með rofalausum stórhríðum og yfir 20 stiga gaddi gekk yfir landið dögum saman. Faxaflóa lagði út fyrir eyjar, svo ganga mátti á ís frá Akranesi til Reykjavíkur. Fyrir 40 árum rúmum, vorið 1940, var ísland hernumið, þrátt fyrir yfirlýst hlutleysi. Söm urðu örlög Danmerkur og Noregs, og öllu verri, í skjóli hinnar sömu hlutleysisstefnu. Þessar þrjár svipmyndir úr sögu þjóðar, sem hér hefur verið brugðið upp, færa okkur heim sanninn um nauðsyn fyrirhyggjunnar. Sagan, hin samansafnaða reynsla, er bezti vegvísir samtímans inn í framtíðina. Þeir lærdómar, sem draga má af mannlífi á þessari ægi girtu eyju okkar í bráðum 12 aldir, eru fyrst og fremst þeir, að nýta þarf auðlindir lands og sjávar af hyggindum en harðfylgni. Lífsbarátta lítillar þjóðar á mörkum hins byggilega heims krefst og þess að hún tileinki sér þá menntun, þá þekkingu, þær tækniframfarir og þá þjóðfélagsgerð, sem mestum árangri og arðsemi hafa náð í veröldinni. Hún þarf á hverjum tíma að vera undir það búin að mæta þeim aðstæðum, sem hnattstaða landsins og náttúra þess geta leitt af sér. Hún þarf að tryggja öryggi sitt, bæði hvað snertir afkomu þjóðar og þegna og stjórnarfarslegt sjálfstæði í viðsjárverðri veröld. En maðurinn lifir ekki á brauðinu einu saman. Kristin menning hefur sett svip sinn á íslenzkt þjóðlíf í þúsund ár. Hún hefur mótað þá siðfræði og það mat á réttu og röngu, sem er bezti vegvísirinn í lífi hvers einstaklings, hornsteinar persónulegrar hamingju. Hún hefur sett svip sinn á flest það sem mestum þroska hefur náð í menningu og heilbrigði þjóðarinnar. Hátíðir kristninnar, jól og páskar, falla í táknmáli sínu að hinum íslenzku árstíðum. Fæðingarhátíð Krists ber upp á þá tíð í hringrás ársins er dag tekur að lengja, sól að hækka á lofti og myrkrið að þoka fyrir birtunni. Páskarnir, upprisuhátíðin, fellur að því eilífa kraftaverki í umhverfi okkar er náttúra landsins rís upp til nýs lífs af vetrarsvefni og gróandinn haslar sér völl. Þetta táknlega samspil lands og kenningar gerir boðskapinn, sem að baki er hátíðahaldinu, ljósari og skýrari í hugskoti okkar. Og raunar er táknmál náttúrunnar, hvort heldur sem skoðað er lítið blóm eða hálendi öræfanna, vitnisburður um fegurð og almætti hins mikla höfuðsmiðs. Páskarnir eru sigurhátíð lífsins yfir dauðanum eða þannig koma þeir fyrir í leikmannshuga. Þeir túlka dauðann sem fæðingu til nýs lífs. Jafnvel hinir breyzku, sem við flest tilheyrum, eiga vonarveg. Kristur sagði á krossinum við brotlegan samferðarmann: Sannlega segi ég yður að í dag skuluð þér vera með mér í Paradís. Kristin menning stendur djúpum rótum í íslenzkri þjóðarsál. Áhrif hennar á samskipti okkar innbyrðis og út á við mættu þó vera virkari. Við mættum hafa meira umburðarlyndi og meiri' virðingu fyrir skoðunum og viðhorfum annarra. Þeir, sem hafa aðrar meiningar en við, hafa sama lýðræðislega rétt til sinna skoðana og við til okkar. Það er kjarninn í því borgaralega þjóðskipulagi skoðana- og tjáningarfrelsis sem við viljum standa trúan vörð um. Arðsemi hagkerfis í samkeppnisþjóðfélögum hefur ekki sízt gildi fyrir þá staðreynd, að öll samfélagsleg þjónusta, menntakerfi, öldrunarþjónusta, heilbrigðisþjónusta og aðstoð við þá er minna mega sín í samfélaginu, svo örfá dæmi séu nefnd, er auðveldari og árangursríkari fyrir áhrif öruggra þjóðartekna. Velmegunarþjóðfélög mega heldur ekki gleyma skyldum sínum við svokölluð þróunarlönd. Sú aðstoð þarf að byggjast á hjálp til sjálfshjálpar, jafnframt skyndihjálp. Því miður stöndum við Islendingar langt að baki nágrannaþjóðum í aðstoð við þróunarlöndin, ef mælt er í hlutfalli af þjóðartekjum. Sá kapítuli í þjóðarsögunni er ekki ýkja langt að baki er Islendingar féllu úr hor og vesöld. Þann lærdóm megum við draga af þeirri reynslu að við skuldum forsjóninni velsæld á líðandi stund, sem bezt verður greidd með aðstoð við þurfandi þjóðir. Á þessum árstíma vors og páska eiga bjartsýni og þakklátsemi að ráða viðhorfum okkar. Hvort sem við verjum páskafríi í heimaranni eða við útivist skulum við helga hluta af þankagangi okkar boðskap hátíðarinnar. Morgunblaðið óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar. Hornsteinar Þeirri reglu er fylgt nú sem áður, að um páska er Morgunblaðið helgað einstöku viðfangsefni. Að þessu sinni kynnir blaðið fulltrúa íslenskra athafnamanna, ævi þeirra og störf. Dregnir eru fram höfuðþættir í baráttu þeirra og því lýst, hvernig dugur og framtak einstaklinga hefur megnað að leggja grunninn að hagsæld fjölda fólks um land allt. Þjóðfélag, sem drepur borgarana í dróma ríkisforsjár, lendir fyrr eða síðar í ógöngum vegna stöðnunar. Atburðirnir í Póllandi eru skýrasti vitnisburðurinn um það nú um stundir. Við þurfum ekki að líta út fyrir landsteinana til að sannfærast um skaðsemi ríkisíhlutunar, opinber umsvif hér á landi hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár samhliða samdrætti í þjóðarframleiðslu. Líf og störf þeirra manna, sem Morgunblaðið kynnir um páskahelgina, er brýn áminning um nauðsyn þess að standa vörð um frjálst einstaklingsframtak, forsendu hagsældar hér sem annars staðar. Hef alla tíð gætt þess vel að dreifa áhættunni „Nei. Ég get ekki sagt, að ég hafi borið neinn sérstakan kvíðboga fyrir því að taka við stjórn fyrirtækisins. Það gerðist heldur ekki á einni nóttu og bæði var ég lengst af með Magnúsi Andréssyni og svo get ég til dæmis nefnt, að skrifstofustjórinn okkar, Jóhann Möller, hefur unnið lengur hjá fyrirtækinu en ég. Þannig stóð ég síður en svo einn upjii, þegar af því varð að ábyrgðin og ákvarðanatakan komu. Ég vissi líka af því, að skjótt getur veður skipzt í lofti í viðskiptum sem öðru, þannig að þótt ég settist við stjórnvölinn á sæmilega traustu og grónu fyrirtæki, þá var ekki um það að ræða að halla sér aftur á bak í stólnum og horfa á hlutina rúlla af sjálfu sér. Þetta er dagleg hólmganga við ríkjandi aðstæður, stöðuga samkeppni, nýjungar og hraða framþróun. Og það þarf ekki mikið út af að bera til þess að allt geti farið í handaskolum." Það er ólafur ó. Johnson, forstjóri 0. Johnson & Kaaber hf., sem hefur orðið. Frá tveimur til tuttugu hluthafa. „Faðir minn, Ólafur Johnson, stofnaði O. Johnson & Kaaber með dönskum manni, Ludvig Kaaber, 23. september 1906, þannig að fyrirtækið verður 75 ára síðar á þessu ári,“ segir Ólafur. „Kaaber varð svo bankastjóri og þá keypti faðir minn hans hlut, en þegar hann fór til Bandaríkjanna vegna matvælakaupa í heimsstyrjöldinni fyrri, fékk hann Arent Claessen til að reka fyrirtækið fyrir sig. Hann seldi honum svo hlut í fyrirtækinu að styrjöldinni lokinni. Árið 1935 varð fyrirtækið svo að hlutafélagi, þegar Friðþjófur bróðir minn, Jean Claessen og Magnús Andrésson komu til skjal- anna. Ég fluttist til Bandaríkj- anna með foreldrum mínum 1939, þegar pabbi fór aftur vestur um haf til starfa við Innflytjendasam- bandið, en kom heim aftur í lok ársins 1952, þá tæplega 22ja ára að aldri. Foreldrar mínir bjuggu hins vegar áfram vestanhafs og pabbi kom ekkert nálægt daglegri stjórnun O. Johnson & Kaabers meira." „Ég var eiginlega alltaf staðráð- inn í að koma heim aftur. Það var Friðþjófur, sem hafði mest áhrif á mig til þess og vitneskja um veikindi hans hraðaði heimferð minni meira, en ef til vill hefði orðið að öðrum kosti. Þegar ég kom heim, byrjaði ég sem sölumaður í matvörudeildinni og siðan bauðst mér að taka við rafmagnsdeildinni og vefnaðar- vörudeildinni af Jean Claessen, sem tók að sér verksmiðjurnar; kaffibrennsluna og kaffibætis- verksmiðjuna, sem báðar eru sér- stök fyrirtæki. Eftir andlát Frið- þjófs 1955 varð ég svo einn af forstjórum O. Johnson & Kaaber og tók sæti í stjórn fyrirtækisins. Magnús Andrésson lézt svo 1968, en í millitíðinni hafði rafmagns- deildin vaxið svo gífurlega, að eina lausnin varð að stofna um hana sérstakt fyrirtæki; Heimilistæki, sem fyrst var sameignarfyrirtæki, en var breytt í hlutafélag í fyrra. Þannig hefur nú tognað úr þessu öllu saman og hluthafar nú eru um 20 talsins." Frelsið varð hvorki algjört né fullkomið. „Það hefur margt breytzt á tíma þessa fyrirtækis. Áður fyrr var megnið af vörunum skammtað; smjör var skammtað og ávextir komu einu sinni á ári. Það var alltaf mikil pressa og mikill handagangur í öskjunni, þegar sendingar komu, en svo rólegra þess í milli. Fyrirtækið var til húsa í gömlu húsunum við Hafn- arstræti, sem voru orðin mjög óhentug. Þá fengust til dæmis ekki leyfi fyrir nýjum bílum svo bílafloti fyrirtækisins var þetta 12—15 ára gamall og kostaði orðið meira í varahlutum á hverju ári en nýir bílar. Ég kem inn í endi þessa tíma. Síðan hefur frjálsræðið aukizt til

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.