Morgunblaðið - 16.04.1981, Page 29

Morgunblaðið - 16.04.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRIL 1981 29 un samtaka skipaiðnaðarins á þá leið, að árið 1971 munu nálega 1100 manns hafa starfað við skipaiðnaðinn, en fram til 1975 hafi þeim fækkað um 266 menn. Eins og fyrr segir hefur þrjá síðustu áratugi eða allt frá stríðs- lokum, er stríður straumur skipa- innflutnings hófst, hinn mikli fiskiskipafloti okkar að langmest- um hluta verið erlend iðnaðar- framleiðsla, líkt og að hætti van- þróaðra ríkja með lélega tækni- þekkingu, er flytja inn þróaðan iðnað, en byggja atvinnu sína á hráefnisöflun. Skipastóll landsmanna er óumdeilanlega stærsta og öflug- asta atvinnutæki þjóðarinnar og gæti því verið langstærsti hluti málmiðnaðar á Islandi. Auk þess höfum við það umfram hin Norð- urlöndin að neysluþörf okkar varðandi skip byggist fyrst og fremst á innlendum markaði. Þrátt fyrir þessa sérstöðu hefur skipaiðnaður okkar dregist langt aftur úr skipaiðnaði nágranna- þjóðanna, fyrst og fremst að því er virðist vegna vanrækslu stjórn- kerfis okkar varðandi þessa at- vinnugrein, en þess í stað hefur verið flutt inn atvinnuleysi ná- grannaþjóðanna í formi skipainn- flutnings. Að því er best er vitað hefur meira að segja sókn Færeyja á þessu sviði verið hraðari en okkar frá stríðslokum. Hér á norður- hjara Atlantshafsins munu það aðeins vera Grænlendingar, sem ekki hafa enn skotist fram úr okkar hjarðmennsku- og veiði- mannaþjóðfélagi á þessu sviði. Nú mun eflaust einhverjum koma í hug, hvort innlendur skipaiðnaður, hvað viðkemur verði og gæðum, sé sambærilegur er- lendum. Þessu vil ég svara á eftirfarandi hátt. Ég dreg mjög í efa, eftir nokkra könnun, að bátar af sömu stærð og hér er verið að afhenda, fáist ódýrari erlendis. Einnig má benda á að lengingar á stálskip- um, sem hér hafa farið fram inni í verkstæðishúsi, hafa ekki orðið dýrari en erlendis og næsta ótrú- leg dæmi eru til um það gagn- stæða, en aðstöðu vantar bæði hér í Bátalóni og líklega í flestum innlendum skipasmíðastöðvum varðandi aðstöðu, þegar komið er út úr verkstæðishúsi, þ.e. hag- kvæma viðlegukanta fyrir frágang á nýsmíði og viðgerðir. Hefur LÍU bent réttilega á þann veikleika í innlendum skipaiðnaði. Ég vil leggja áherslu á að þessi veiki þáttur stafar þó ekki af því að við höfum lakari iðnaðarmenn en nágrannalöndin eða getum ekki smíðað jafngóð skip. Heldur er endurnýjun og þróun tæknilegrar aðstöðu of víða okkar vandamál. Þar sem skattfé almennings hefur meir farið til þess að byggja upp hafnaraðstöðu fyrir sjósókn og flutninga en skipaiðnað. Þess skal þó getið að bæjar- stjórn Hafnarfjarðar hefur þegar samþykkt að byggja viðlegu- bryggju við Bátalón. Tími endurskoðunar og breyttr- ar stefnumörkunar í fjárstreymi til iðnaðaruppbyggingar er því vissulega tímabær og þótt fyrr hefði verið, þegar litið er á stöðu hinna hefðbundnu undirstöðu at- vinnuvega, þolir það enga bið að gera skipaiðnaðinn hið bráðasta að innlendri framleiðslu. Eftir 3 ár er talið að um 450 bátar undir skuttogarastærð verði komnir á endurnýjunaraldur. Væri það óheillavænleg þróun ef innlendar skipasmíðastöðvar væru þá ekki í stakk búnar til að taka að sér endurnýjun bátaflot- ans. Mér sýnist það spá góðu, að nú þegar horfur eru á að ýmsa útgerðaraðila virðist vanta fleiri báta, kemur fram jákvæð afstaða stjórnvalda um stuðning við sam- starfsverkefni í bátasmíði. Þarna er vissulega um gífurlega stórt verkefni að ræða er skiptir veru- legú máli fyrir margar iðngreinar. Að lokum vil ég færa Bakka- fjarðarmönnum þakkir fyrir ánægjuleg viðskipti. Skipasmíða- stöðin óskar heimabyggð, eigend- um og áhöfnum bátanna til ham- ingju með þessa nýju farkosti. Dr. Björn Jóhannesson: Um áhrif veðurfars á laxagengd og laxastærð Inngangsorð Til þess að silfrast og öðlast hæfnina og löngunina að hverfa úr fersku vatni í sjó á tilteknu sumri, þurfa laxaseiði að hafa náð lág- marksstærð eða lágmarkslengd haustið áður. Þessi lágmarks- lengd mun vera nálega 10 cm. Þau seiði sem smærri eru að hausti dveljast a.m.k. eitt sumar til viðbótar í uppvaxtaránni, eða þartil þau hafa náð umræddri lágmarksstærð. Áhrif veðurfars á vaxtarhraða Efnið í töflu 1 er sótt í grein eftir Þór Guðjónsson, er birtist í tslenskum iandbúnaðarrann- sóknum, 2. hefti 1978. Það sem einkum vekur greindri lágmarksstærð (10 cm) að hausti, taka að silfrast og búa sig undir göngu til hafs að vori þegar hiti ánna hefur náð tæplega 4 gráðum. Eftir að slíku hitastigi er náð, taka silfrunar- og aðlögunar- breytingarnar þeim mun skemmri tíma sem hiti árvatnsins er hærri. í meðalsumrum munu gönguseiði jafnan hverfa til sjávar í júní- mánuði, þegar vatnshitinn er 8— 10 stig. Én séu vor og fyrri hluti sumra mjög köld, með snjóaiögum og frosti í jörðu fram eftir sumri svo sem var hafísvorið 1979 — þá silfrast sjógönguseiði seint og verða síðbúin til sjávargöngu. I slíkum tilfellum er og sjór jafnan kaldur og átusnauður, þannig að vaxtarskilyrði eru einnig óhag- stæð eftir að seiðin eru komin í sjó. Þetta getur haft þær afleið- ingar, að smálax, þ.e. lax sem Björn Jóhannesson Hve mörg uppvaxtarár það tekur laxaseiði að ná sjógöngustærð: Hundraðshlutar eftir 2, 3 og 4 ár í fersku vatni. Meðaltöl fyrir neðangreind vatnasvæði. Laxár á árunum: Fjöldi sýna 2 ár. % 3 ár, 5 4 ár, 5 2 ár + 3 ár, % 1911-1914 1) 1149 4,0 55,6 38,0 59,6 1938,1939 2) 1026 25,1 70,6 L6 95,7 1946-1965 3) 1799 5,6 85,6 8,6 91,1 1) Könnunarvötn: Elliðaár, Hvítá í Borgarfirði, Norðurá, Laxá í Aðaldal, Ölfusá. 2) Könnunarvötn: Elliðaár, ölfusá, Stóra-Laxá, Litla-Laxá. 3) Könnunarvötn: Elliðaár, Laxá í Kjós, Grímsá, Þverá, Norðurá, Miðfjarðará, Víðidalsá, Laxá í Aðaldal, Sog. athygli er, hve vaxtarhraði seið- anna hefur verið miklum mun minni árin 1911—1914, en á tíma- bilinu 1946—1965 og þó sérstak- lega á árunum 1938 og 1939. Auk arfgengra vaxtareiginleika, ráða átu- og hitaskilyrði vaxtarhraðan- um. í hlýjum sumrum verður til meiri áta í laxám, með því að rotnun lífrænna efnasambanda í jarðvegi á vatnasvæðum ánna leysir úr læðingi meira frjóefna- magn, en það er undirstaða alls lífs í afrennslisvatninu (ánum). Því meiri áta, þeim mun meiri vaxtarhraði að öðru jöfnu. Einnig eykur hækkandi vatnshiti vaxtar- hraða í þeim tilvikum, þar sem átuskilyrði eru tiltölulega góð. Sumrin 1911—1914, munu hafa verið köld, en sumrin 1938 og 1939, einkum hið síðarnefnda, voru mjög hlý. Þessi hitamunur skýrir án efa að mestu leyti þann mikla mun á vaxtarhraða er taflan sýnir. Síðustu áratugina hefur notkun tilbúins áburðar farið ört vaxandi, en við það eykst frjóefna- magn og átumagn ánna, einkum þar sem víðlend tún liggja á vatnasvæði tiltekinnar laxár. sækir á bernskustöðvarnar einu ári eftir að hann hvarf til hafs (1-árs-lax-í-sjó), nær ekki nægi- legum þroska til að snúa „heim“ á venjulegum tíma: Hann verður að dveljast tvö ár í sjó til að ná kynþroska. Þetta var orsök þess, að sumarið 1980 veiddist ekkert af smálaxi á Norður- og Norð-Aust- urlandi, og mér skilst einnig lítið á Suður- og Suð-Vesturlandi. Af- leiðingar slíkra aðstæðna skulu skoðaðar nokkru nánar. Lifsferill laxins Við skulum reikna með því, að langmestur hluti laxaseiða þurfi að dveljast í ferskvatni í 3 ár áður en þau hverfa til sjávar, eins og átti sér stað á árunum 1946—1965. Einnig, að nokkur hluti laxanna hafi þá erfðanáttúru að dveljast í hafi aðeins eitt ár (smálax), en hinn hlutinn hafist þar við sam- fellt í tvö ár áður en snúið er „heim“ (stórlax). Við skulum kalla ártal þess vors er pokaseiði verða til X og setja saman töflu 2 á þessum grundvelli. Grcinarhöíundur vek- ur athygli á mikilvægi umhverfisins, veðrátt- unnar, á laxagengd í islenskar ár. Segir hann að sumarið 1981 megi vænta sæmilegrar veiði talið í laxaf jölda. Segja má, að með þrennum hætti hafi mjög köld sumur mik- ilvæg áhrif á lífsferil laxins, eins og hér verður lauslega rakið: 1. Á því sumri sem fer næst á eftir mjög köldu sumri, gengur smálax ekki í árnar. Sem fyrr getur, skeði þetta sumarið 1980, en sumarið 1979 var mjög kalt (ísa- sumar). Þessi síðbúni „smálax" mun ganga í ár sumarið 1981, og verður hann þá bersýnilega stór- vaxnari en smálax er venjulega í Áhrif vatnshita á silfrun laxaseiða og sjógöngu Laxaseiði sem náð hafa fyrr- Lifsferill lax Meðalárferði, Mjög köld sumur, Ártal Ártal Laxaklak haustið X-1 Pokaseiði verða til vorið X Seiði ganga til sjávar sumarið X + 3 Smálax (1-ár-í-sjó) gengur í ár sumarið X + 4 Stórlax (2-ár-í-sjó) gengur í ár sumarið X + 5 X + 5 X + 5 Útgáfunefnd AA-samtakanna: „12 reynsluspor og 12 erfða- venjur44 komin út á íslenzku AA48AMTÖKIN hafa gefið út á íslenzku bókina „12 reynsluspor og 12 crfðavenjur“. t fréttatilkynn- ingu frá útgáfunefnd AA-samtak- anna segir eftirfarandi um innihald hókarinnar: „Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn áfengi og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi.“ Segja má, að þessi orð, sem AA-menn kalla „fyrsta reynslu- sporið", sé kjarninn í því sem þessi bók hefur að bjóða. Alls eru reynslu- sporin 12 talsins og á þau má líta sem grundvöll þeirra hugmynda eða þess hugmyndakerfis, sem AA-fólk — alkóhólistar — byggir líf sitt og lífshamingju á. Bókin er skrifuð til að reyna að skilgreina þær hug- myndir og þann boðskap sem í reynslusporunum felst. Sé bókin lesin opnum huga, kemur í ljós, að hún á ekki aðeins erindi til alkóhólista, heldur og til allra þeirra sem eiga við sálræn eða hugarfars- leg vandamál að stríða. Allir þekkja orðtækið „guð hjálpar þeim, sem hjálpar sér sjálfur". Mörgum er illa við þetta orðtæki vegna þess, að þeim finnst, að þar með sé verið að lýsa einskonar vantrausti á guð almáttugan. AA- menn líta öðruvísi á málið. Þeir finna til „samábyrgðar“ með sér æðri mætti og reyna að lifa sam- kvæmt því. Það er þeirra söngur til lífsins: vertu trúr og reyndu allt, sem í þínu valdi stendur, til að vera hamingjusamur sjálfur, samkvæmt besta skilningi á rökum lífsins. Með því einu er unnt að stuðla að hamingju og velferð annarra —, fjölskyldu, vina og vinnufélaga. Bókin fjallar um baráttu einstakl- ingsins við sjálfan sig. Hún vísar veginn á margvíslegan hátt: hvernig er reynandi að bregðast við, þegar áfengislöngun sækir á þig — hvað áttu að gera þegar þú ert altekinn gremju í annarra garð — hvað geturðu tekið til bragðs þegar ástríö- viðkomandi á. Sennilegt er, að sá stórlaxastofn er gekk til sjávar kalda sumarið 1979 muni halda „áætlun" og skila sér sumarið 1981, og er þetta atriði þó ókann- að. Því má búast við því að torvelt verði að greina á milli „smálax“ og „stórlax" er gengur í ár þetta sumar. Án efa verður lítið um mjög væna laxa, en hinsvegar nokkuð jafnstóra, ef til vill á bilinu 7—11 pund. Veiðist eitthvað af stórum löxum (15 pund eða meira), má ætla að um sé að ræða annaðhvort fiska sem eru að ganga öðru sinni í ár ellegar laxa sem dvalist hafa samfellt 3 ár í hafinu. Sumarið 1981 munu og veiðast fiskar af þeim smálaxa- stofnum er gengu til sjávar „ sumarið 1980. Því má vænta sæmilegrar veiði, talið í laxa- fjölda, sumarið 1981. 2. Ætla má, að magn gönguseiða sumarið 1980 hafi verið tiltölulega lítið, þar eð vaxtarhraði seiðanna hefur verið óvenju hægur sumarið áður (1979) og því hafi færri seiði en ella náð 10 cm lágmarkslengd og þess vegna þurft að dveljast eitt sumar í ánni til viðbótar áður en haldið yrði til hafs. Sé þessi tilgáta rétt, kemur þetta fram sem léleg veiði á smálaxi sumarið 1981 og á stórlaxi sumarið 1982. Það gefur og auga leið, að í mjög köldum sumrum verða afföll seiða í ánum tiltölulega mikil vegna átuskorts. 3. Hrygningarfiskurinn haustið 1980 mun að langmestu leyti hafa verið stórlax (2ja-ára-lax-í-sjó). Þar eð vænta má að kynblöndun milli smálax og stórlax í íslensk- um ám sé allmikil, má ætla að út af stórlaxa-foreldri komi talsvert af smálaxi (úr þessu mætti auð- veldlega bæta með kerfisbundnu úrvali). Eigi að síður má telja fullvíst, að klakið 1980 muni gefa af sér miklu hærri hundraðshluta af stórlaxi en „normalt" má telj- ast, og því er hér um að ræða ábatasamt náttúrulegt úrval á laxastofnum. Vegna slíks „stór- laxaklaks“ haustið 1980 má búast við litlu magni af smálaxi í árganginum 1985, eða 4 árum eftir að pokaseiði urðu til vorið 1981 (frá haustklaki 1980, sjá töflu 2). Lokaorð í greinum í FREY (nt. 4, 1978), VEIÐIMANNINUM (nr. 101,1979) og ÆGI (nr. 11,1979) hefi ég vakið athygli á mikilvægi laxakynbóta með úrvali og á vörnum gegn vargi er eyðir laxaseiðum. Með þessum greinarstúf vildi ég minna á mik- ilvægi umhverfisins, veðráttunn- ar, fyrir laxgengd í íslenskar ár. Hér er að sjálfsögðu ekki um að ræða fullnaðarsvör eða fullnað- arskýringar. Þessum athugasemd- um er fyrst og fremst ætlað að minna á nauðsyn þess að beina ríkari athygli og rannsóknum að líffræðilegum atriðum og um- hverfisatriðum, sem eru ráðandi um laxagöngur í íslenskar ár. Á þessum vettvangi er margt óunn- ið. urnar eru að leiða þig á villigötur Svör eru veitt við ótrúlega mörgum viðkvæmum vandamálum og spurn- ingum. Sá hluti bókarinnar, sem nefndur er „Re.vnslusporin tólf“, höfðar til einstaklingsins, sem er að glíma við sitt stóra vandamál. „Erfðavenjurn- ar tólf“ fjalla um það samfélag, sem AA-menn hafa skapað sér og vilja standa vörð um. Samfélag þetta er einstakt í sinni röð og er mörgum hin mesta ráðgáta. Hvernig í ósköp- unum er hægt að stjórna samtökum, sem hafa enga eiginlega stjórn? Því sú er raunin. Enginn hefur vald, en allir eru ábyrgir. Hvernig getur svona lausbeislað samfélag lifað? Bókin veitir svörin við því og að loknum lestri hennar sannfærast menn um að samfélag AA-manna sé, þrátt fyrir allt, grundvallað á áþreifanlegum og raunhæfum stað- reyndum." Bókin fæst á skrifstofu samtak- anna í Reykjavík og einnig í AA- deildum um allt land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.