Morgunblaðið - 16.04.1981, Síða 34

Morgunblaðið - 16.04.1981, Síða 34
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HATIÐINA? 34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 Fprminnarborn úr Víðistaðasókn við æfinxu fyrir páskavökuna. lijósm.: Kristján. Páskavaka í Hafnarfjarðarkirkju Páskavaka verður haldin í Hafnarfjarðarkirkju næstkom- andi laugardag og hefst kl. 20.30. Báðir þjóðkirkjuprestarnir í Hafnarfirði sr. Sigurður H. Guð- mundsson og sr. Gunnþór Ingason og vígslubiskup, sr. Sigurður Pálsson taka þátt í vökunni auk fermingarbarna úr Víðistaðasókn og kórs Víðistaðasóknar. „Páskavaka er að formi til ein elsta afhöfn kristninnar," sagði sr. Sigurður í samtali við Mbl. „Hún er svo gömul að Nýja testamentið var ekki til við upphaf hennar svo allar lexíurnar eru í Gamla testa- mentinu." Sr. Sigurður sagði að páskavök- urnar væru svipaðar hjá öllum kristnum kirkjudeildum. Þó munu þær ekki tíðar hér á landi. „Þetta er í fyrsta sinn sem páskavaka er haidin á Reykjavík- ursvæðinu í lútherskri kirkju en þær munu vera hefð bæði á Eskifirði og Selfossi," sagði hann. Athöfnin hefst með því að sunginn er sálmur og flutt ávarp um páskavökuna. Því næst er kerti tekið og gengið með það út að dyrum þar sem það er helgað og kveikt á því. Dimmt er í kirkjunni meðan á því stendur. Allir vökugestir fá kerti við inn- ganginn og frá kerti því sem kveikt er á við dyrnar breiðist út ljós á öll hin kertin. Látið er loga á þeim meðan lesið er úr ritning- unni. Að því loknu verður skírn en í frumkristninni var páskahátíðin aðal skírnartíminn. Vakan endar svo með nokkrum atriðum úr hefðbundinni messu, meðal ann- ars altarisgöngu. Listahátið fatlaðra í Alftamijrai'skóla: Fjölbreytt sýning og skemmtiatriði JUNIOR Chamber-hreyfingin á Islandi hefur á yfirstandandi ári helgað sig málefnum fatlaðra og hefur í því sambandi ýmislegt verið á döfinni að hálfu hreyf- ingarinnar. Byggðalagsnefnd JC-Breiðholts hefur undanfarið starfað að verkefni er hlotið hefur heitið „Listahátíð fatlaðra" og hefst hún í Alftamýrarskóla í Reykjavík. Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt en henni líkur á annan í páskum, 20. apríl. Á sýningunni gefst fólki kostur á að skoða hluti og verk sem fatlaðir hafa unnið og eru að vinna að. Meðal þess sem til sýnis verður er myndlist, handavinna, hoggmyndir, gull- og silfurmunir, körfugerð og margt fleira. Enn- fremur verða á hátíðinni ýmis skemmtiatriði er fatlaðir standa að s.s. tónlist, brúðuleikhús o.fl. Kaffiveitingar verða á staðnum. Eftirtalin félög taka þátt í þessari sýningu auk margra ein- staklinga innan félaganna, sem sýna þar verk sín: Blindravinafé- lagið, Geðvernd, Heyrnleysingja- skólinn, Landsamtökin Þroska- hjálp og Sjálfsbjörg. Tilgangurinn með „Listahátíð fatlaðra" er fyrst og fremst sá að vekja fólk til umhugsunar um málefni fatlaðra og hvers fólk getur verið megnugt þrátt fyrir fötlun sína. Aðgangseyrir að sýn- ingunni er kr. 10 en börn og fatlaðir fá ókeypis aðgang. Verð- ur þeim peningum er safnast varið til að standa straum af kostnaði við hátíðina. Ef ágóði verður af hátíðinni mun hann renna til þeirra félagssamtaka er þátt taka í sýningunni. Frá sýningu fatlaðra. Mbl. mynd KH»tján. Kjarvalsstaðir: Blaðaljósmyndarar sýna yfir 200 myndir í DAG opna blaðaljósmyndarar sýningu í kjallara Norræna húss- ins á verkum sínum. Þetta er þriðja sýning þeirra, hin fyrsta var á sama stað 1979. Á sýningu þessari verða yfir 200 Ijósmyndir, flestar fréttamyndir. í fyrsta sinn sýna blaðaljósmyndar- ar íþróttamyndir. Sýningin stend- ur til 21. apríl og verður opin frá kl. 14 til 22 daglega, alla daga páskahelgarinnar. I tilefni sýningarinnar í kjallara Norræna hússins hefur bókaútgáf- an Örn og Örlygur gefið út vegg- mynd, eða „plagatt" eftir Gunnar V. Andrésson, fréttaljósmyndara á Vísi. Myndin ber heitið „Skag- firsk vornótt“ og var hún tekin í Skagafirði síðastliðið vor og „túlk- ar vel þann lífskraft sem felst í íslenzka vorinu, þegar menn jafnt sem málleysingjar og gróður vakna úr vetrardróma", eins og það er orðað í fréttatilkynningu útgáfunnar. Ragnar Axelsson. Kristján Einarssun og Emiiia Björnsdóttir með nokkur verka sinna. Kjaltari Norræna hússins: Líður að lokum sýningarinnar á safni Grethe og Ragnars SENN líður að lokum sýningar- innar á safni Grethe og Ragnars Ásgeirssonar að Kjarvalsstöðum. Síðasti sýningardagurinn er ann- ar í páskum, 20. apríl. Ekki verður hægt að framlengja sýninguna, þar sem ákveðin er næsta sýning strax á sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Þá opnar Eiríkur Smith sýningu í Kjarvalssal. Sýningin á safni Grethe og Ragnars Ásgeirssonar hefur hlot- ið mikið lof gagnrýnenda og gesta, og eru menn á einu máli um það að hér sé um mikinn listviðburð að ræða, sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. T.d. segir Bragi Ásgeirsson í Morgunblaðinu 15. mars sl.: „Það telst fátítt, að sýningar komi undirrituðum svo mjög á óvart og sýning sú, er um þessar mundir og fram að páskum, stendur yfir að Kjarvals- stöðum" ... „Aldrei datt mér í hug að safn þeirra hjóna væri jafn merkilegt og fram hefur komið, og raunar hámenningarlegt á allan hátt“ ... „Að fara að tlunda sýn- inguna í heild og minnast á hrifmikil verk yrði mikið lesmál enda uppgötvar maður eitthvað nýtt við hverja heimsókn og það er sama hve oft maður lítur þangað inn. Gesturinn heldur jafnan rík- ari á brott.“ Og Jónas Guðmundsson skrifar í Tímanum 8. mars: „Um einstak- Eitt verkanna á sýningunni — „Lítil stúlka“, eftir J.S. Kjarval. ar myndir er ógjörningur að fjalla, því slíkur urmull dýrgripa er þarna, að seint væri upp talið. Þessi sýning er merkur listvið- burður, — það er kátt í höllinni, getur maður sagt. Þetta er sýning sem alls ekki má fram hjá neinum fara, er áhuga hefur á myndlist, og hún er einnig til vitnis um það, hversu menningarmenn fá áorkað, ef áhugi og þekking er fyrir hendi." Og Aðalsteinn Ingólfsson skrif- ar í Dagblaðið 19. mars: „Sýning að Kjarvalsstöðum er sérstaklega mikilvæg fyrir það ljós sem hún bregður yfir mótunarskeið Kjar- vals, árin 1918—30.“ Sýningin er lokuð á föstudaginn langa en annars opin daglega frá kl. 14 til 22. Henni lýkur sem fyrr segir annan í páskum, 20. þ.m. Einar í Rán Einar Logi Ein- arsson hefur að und- anförnu skemmt gestum veitinga- hússins Ránar í há- degi, kaffinu og á kvöldin, við góðar undirtektir. Hann mun skemmta gest- um Ránar yfir pásk- ana á orgel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.