Morgunblaðið - 16.04.1981, Side 35
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HATIÐINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
35
Tónleikar
í Festi
Skólahljómsveit Grindavikur heldur tónleika i Festi
í daif. skírdan. kl. 14. Alls koma 29 hljóófa‘raleikarar
fram og leika í fyrsta sinn í nýjum Klæsilegum
húninKum sínum.
Efnisskráin er fjölbrcytt ok m.a. koma fram
einleikarar. Janet WarinK leikur undir á píanó. Eftir
tónleikana verður kaffisala til styrktar starfsemi
hljómsveitarinnar.
„Stef frá öðrum heimi“
DAGANA 16.-25.
apríl 1981, heldur
Ketill Larsen mál-
verkasýninifu að
Fríkirkjuveifi 11.
Sýninifuna nefnir
hann „Stef frá oðr-
um heimi“. I>etta er
10. einkasýning
hans. A sýninnunni
eru 60 myndir. —
olíu- ok acrylmynd-
ir. EinnÍK nokkrar
myndir málaðar á
stein. Sýnintfin
verðnr opin alla
daifana frá kl. 14 til
22. Á sýninifunni
verður leikin tónlist
af sciíulhandi «k
hefur Ketill samið
hana.
Myndir
frá Kúbu
l>ann 11. apríl siðastliðinn hóf
VináttufélaK íslands oi? Kúbu
sýninKU í Ásmundarsal á ljós-
myndum. veKKspjöldum ok eftir-
prentunum í tilefni þess að þann
19. apríl verða liðin 20 ár frá
Svínaflóaárásinni. SýninKunni
lýkur 20. april.
í Höllinni
Þjóðleik-
húsið um
páskana
Á SKÍRDAG verður 25. sýninK á
Oliver Twist eftir Charles Dickens
í leikgerð Árna Ibsen og hefst
sýningin kl. 15.00. Það sama kvöld
verður sýning á Sölumaður deyr
eftir Arthur Miller á stóra svið-
inu, en á Litla sviðinu verður
sýning á Haustið í Prag, tveim
tékkneskum einþáttungum sem
nýlega voru frumsýndir og eru
eftir Václav Havel og Pavel Ko-
hout.
Á annan páskadag verður síðan
sýning á óperunni La Bohéme kl.
20.00.
Síðasta vetrardag verður Sölu-
maður deyr á stóra sviðinu kl.
20.00, en Haustið í Prag á Litla
sviðinu kl. 20.30.
Sumardaginn fyrsta verður
Oliver Twist síðan á dagskrá kl.
Úr Oliver Twist.
15.00 og óperan La Bohéme um
kvöldið kl. 20.00.
Sigrún opnar sýningu
Sigrún Jónsdóttir, myndlistar-
kona, opnar í dag, skírdag, sýn-
ingu á verkum sínum í Hótel
Borgarnesi.
Sigrún sýnir að þessu sinni 33
myndir, olíumálverk á striga. Efni
myndanna er landslag, fantasiur
og myndir úr atvinnulífinu. Þetta
er 4 einkasýning Sigrúnar. Sýn-
ingin verður opin daglega 4—10
e.h. til 22. þessa mánaðar.
Sigrún Jónsdóttir
BÍLASÝNING Kvartmíluklúbbs-
ins opnaði í gær í Laugardalshöll,
og verður sýningin opin til 20.
apríl.
Margar rennilegar bifreiðir
verða á sýningunni, m.a. sérhann-
aður kvartmílubíll frá Noregi, sá
sneggsti á Norðurlöndum. Bifreið-
in er í eigu Ludwigs Björnstads
Sigurður Sólmundarson
sýnir í Hveragerði
Sigurður M. Sólmundarson,
myndlistarmaður í Hveragerði,
heldur sýningu á verkum sínum í
Félagsheimili Ölfusinga í Hvera-
gerði dagana 16. til 23. apríl.
Sýningin verður opin frá kl. 14 til
22 alla dagana. Sýnd verða 32
verk, unnin úr íslenzkum jarðvegi,
svo sem gosefnum hverasvæða og
mislitu grjóti, ásamt timbri, járni
og ýmiss konar gróðri.
Sigurður smíðar alla sína
ramma sjálfur og annast allan
frágang myndanna. Flest verk-
anna eru til sölu. Þetta er þriðja
einkasýning Sigurðar en hann tók
einnig þátt í samsýningu sunn-
lenskra myndlistarmanna á Land-
búnaðarsýningunni á Selfossi
1978. Sérstaka athygli vakti þar
hin stóra mynd hans, er stóð við
aðalinnganginn. Þá mynd keypti
Borgarneskauptún til að prýða
byggðasafn sitt. Sigurður M. Sól-
mundarson er fæddur 1/10 1930 í
Borgarnesi og ólst þar upp. Hann
er húsgagnasmiður að mennt og
hefur unnið við smíðar í Hvera-
gerði og einnig kennt handmennt
við skólana. Eiginkona hans er
Auður Guðbrandsdóttir. Að lokum
má geta þess, að á sýningunni fást
kaffiveitingar og þar mun einnig
gefa að líta blómaskreyitngar eft-
ir Sigurð en blómin eru frá
Garðyrkjustöðinni Álfafelli.
Sigrún
frá Osló og hefur náð 360 km
hraða.
Þá getur að líta verklegustu
kvartmíluhíla landsins ásamt
skrautmáluðum sendiferðabílum,
rallybílum, fornbílum, mótorhjól-
um o.fl. Veitingar verða í höllinni,
einnig barnagæzla og sérstakar
videosýningar.
Frá bilasýningunni.
Mynd Mbl. Kristján.
Latigardalshöll:
Bílasýning
Stúdentakjall arinn:
Ingibjörg Friðbjörnsdóttir sgnir
Ingibjörg V. Friðbjörnsdóttir hef-
ur opnað sýningu á vatnslita- og
olíumyndum í Stúdentakjallaranum
við Hringbraut. Þetta er fyrsta
einkasýning Ingibjargr. Hún hefur
stundað nám við Myndlista- og
handíðaskóla ísl., Myndiistaskóla
Reykjavíkur, Akademiuna í Árósum
og Grafiska verkstæðið í Nuuk
(Gódth&b) í Grænlandi. Og mynd-
efnið í mörgum verkanna er sótt til
Grænlands. Sýningin er opin alla
daga frá kl. 11.30—23.30 og lýkur 30.
apríl.
Borgarnes:
Fjórir kirkju-
kórar syngja
í Bolungarvík
í TILEFNI af kristniboðsári
syngja fjórir vestfirskir kirkju-
kórar saman við guðsþjónustu á
föstudaginn langa í Hólskirkju í
Bolungarvík, m.a. lag Eyþórs Stef-
ánssonar „Ég kveiki á kertum
mínurn" við sálm Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi.
Kórarnir eru Súðavíkur-, Hnífs-
dals-, Súgandafjarðar- og Bolung-
arvíkurkirkjukórar. Séra Jakob
Hjálmarsson á Isafirði les píslar-
söguna, en sóknarprestur predikar
og tónar Litaníu sr. Bjarna Þor-
steinssonar.
Söngstjórar eru Jakob Hall-
grímsson, Guðrún Eyþórsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir og Sigríður J.
Norðkvist.
Leikfélag
Segðisfjanhir:
Stalín á
Seyðisfirði
Á 2. páskadag frumsýnir Leikfé-
lag'Seyðisfjarðar leikritið „Stalín
er ekki hér“, eftir Véstein Lúð-
víksson. Leikendur eru: Emil Em-
ilsson, Ólafía Stefánsdóttir, Ingi-
björg Gísladóttir, María Klemens-
dóttir, Guðmundur Lúðvíksson og
Hermann Guðmundsson. Leik-
stjóri er Margrét Óskarsdóttir.
Fyrirhugað er að 2. sýning verði
á miðvikudag, síðasta vetrardag.
Leikfélagið hefur ákveðið að fara
með verkið til sýninga víðar á
Austfjörðum.
Nú er öld liðin síðan leiklistar-
starf hófst á Seyðisfirði og hefur
það oftast staðið með miklum
blóma. Síðasta verkefni leikfélags-
ins var Sagan af Leifi Ijónsöskri,
sem sýnt var í fyrra.