Morgunblaðið - 16.04.1981, Síða 36
HVflÐ ER AÐ GERAST UH HATIÐIMA?
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
Nemendaleikhúnió:
„Peysufatadagur-
inn" í síðasta sinn
NEMENDALEIKHÚSIÐ mun
halda eina aukasýningu á verkefni
vetrarins, „Peysufatadagurinn"
eftir Kjartan Ragnarsson. Leikrit-
ið hefur nú verið sýnt í 2 mánuði
við góða aðsókn. Síðasta sýning
fer fram í dag, 16. apríl.
Nú er verið að æfa síðasta
verkefni Nemendaleikhússins á
þessu ári og því verður „Peysu-
fatadagurinn" að víkja. Næsta
verkefni verður Marat/Sade eftir
þýzk/sænska leikskáldið Peter
Weiss og verður áætlað í maíbyrj-
un. Leikstjóri er Hallmar Sigurðs-
son.
Klassík d Hlíðarenda
Á annan í páskum verður síð-
asta klassíska tónlistarkvöldið á
Hlíðarenda. Manuela Wiesler, sem
hóf vetrardagskrá Hlíðarenda,
leikur fyrir gesti Hlíðarenda. Að
sögn forráðamanna, þá verður
efnt til klassískra tónlistarkvölda
á vetri komanda.
Tónleikar á Breiðu-
mýri og Húsavík
UM páskahátíðina halda þau Kat-
rín Sigurðardóttir sópran, og Viðar
Gunnarsson, bassi, tónleika á
Húsavík og Breiðumýri. Undirleik-
ari þeirra verður Jónína Gísladótt-
ir.
Tónleikarnir verða í Húsavíkur-
kirkju á páskadag klukkan 17 og að
Breiðumýri annan dag páska
klukkan 16.
Á efnisskrá tónleikanna verða
bæði innlend og erlend sönglög,
meðal annars eftir Pál ísólfsson,
Sigvalda Kaldalóns og Árna
Thorsteinsson. Þá munu þau Kat-
rín og Viðar flytja þýsk ljóð eftir
Hugo Wolf og Schumann og einnig
aríur og dúetta úr óperum þar á
meðal úr Don Giovanni, Brúðkaupi
Fígarós og Töfraflautunni.
Katrín er fædd á Húsavík. Hún
lauk tónmenntakennaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
1978 og hefur síðan stundað nám í
Söngskólanum í Reykjavík undir
handleiðslu Þuríðar Pálsdóttur.
Viðar er fæddur í Odense í
Danmörku en ólst upp í Ólafsvík.
Hann hefur lagt stund á söngnám í
Söngskólanum í Reykjavík frá því
haustið 1978 hjá Garðari Cortes og
Kristni Hallssyni. Viðar hefur
sungið í Kór Langholtskirkju og
fleiri kórum undanfarin ár.
Jónína hefur komið fram sem
undirleikari hjá einsöngvurum og
kórum á fjölmörgum tónleikum
bæði innanlands og utan.
Katrín Sigurðardóttir og Viðar
Gunnarsson ásamt undirleikara
sínum. Jónínu Gísladóttur.
Bátur og búnaður
Nú stendur yfir bátasýning í
sýningahöllinni að Bíldshöfða.
Sýningin nefnist „Bátur og búnað-
ur“ og hefur Snarfari veg og
vanda að sýningunni. Sýningin
hófst þann 11. síðastliðinn og
stendur til 20. apríl. Fjöldi sýn-
ingardeilda er í sýningahöllinni að
Bíldshöfða.
Meðal annars má sjá á sýning-
unni bát smíðaðan á staðnum,
bátavél í gangi, gúmmíbát í heim-
ilissundlaug, og margt fleira. Þá
eru tízkusýningar, sérstök leik-
svæði fyrir börn og á sýningunni
er stærsta páskaegg á íslandi.
bessa mynd tók Ijósmyndari Mbl. Emilía úr fyrstu umferð í
landsliðsflokki.
Skákþing Islands
SKÁKblNGI íslands fram heldur um páskahátíðina. Keppni í
landsliðsflokki fcr fram á Ilótel Esju og hefst kl. 14 á skirdag.
föstudaginn langa. laugardag og annan i páskum og hiðskákir
verða tefldar sömu kvöld frá klukkan 20.30. Sjöunda umferð
verður tefld klukkan 19 þriðjudaginn 21sta apríl, en alls verða
tefldar 11 umferðir i landsflokki og keppninni lýkur 26. april.
Flestir sterkustu skákmenn
okkar eru mættir til leiks, en
Friðrik Ólafsson þurfti til
Moskvu í erindum FÍDE og
teflir Bragi Kristjánsson í hans
stað.
Úrslit í fyrstu umferð í lands-
liðsflokki urðu þessi: Guðmur.d-
ur Sigurjónsson vann Braga,
Elvar Guðmundsson vann Jó-
hann Þóri Jónsson, og Ingi R.
Jóhannsson og Jón L. Árnason
gerðu jafntefli, einnig þeir Jó-
hann Hjartarson og Ásgeir Þ.
Árnason og Karl Þorsteinsson
og Björn Þorsteinsson. Skák
Helga Ólafssonar og Jóhannes-
ar Gísia Jónssonar fór í bið.
Önnur umferð var tefld í gær-
kvöldi og var skákum ekki lokið
er Mbl. fór í prentun.
I áskorendaflokki var Ágúst
Karlsson efstur eftir 4 umferðir
með 3‘á vinning og í opnum
flokki var Arnór Björnsson
efstur eftir 4 umferðir með fullt
hús vinninga.
SA TT- tónl eikar
á laugardaginn:
Grýlurnar og
fjórar „karla-
hljómsveitir“
SAMTÖK alþýðutónskálda- og
tónlistarmanna, SATT, gangast
fyrir tónleikum í Austurbæjarbíói
á laugardaginn kemur, hinn 18.
apríl, og munu þeir hefjast klukk-
an 19. Allur ágóði, sem kann að
verða af tónleikunum, mun renna
til félagsheimilis Samtakanna, en
þau eru í þann mund að taka í
notkun húsnæði að Vitastíg 3 í
Reykjavík.
Margar kunnar hljómsveitir
munu koma fram á tónleikunum,
hljómsveitirnar Þeyr, Utan-
garðsmenn, Start, Fræbbblarnir
og síðast en ekki síst hin nýja
„kvennarokkhljómsveit" Ragn-
hildar Gísladóttur, Grýlurnar.
Verður það í fyrsta skipti sem
Grýlurnar koma fram opinber-
lega, eins og áður hefur verið sagt
frá í Morgunblaðinu.
Kynnir á tónleikunum verður
Egill Ólafsson, en skipulagningu
þeirra og undirbúning annast
Óttar Felix Hauksson, en hann
var einnig helsti hvatamaður ann-
arra tónleika í Austurbæjarbíói
fyrir skömmu; minningartónleik-
ii«Knhildur Oisla- EkíII Ólalssun. som
dúttir sem krmur vcrúur kynnir á tún-
fram mcrt (irýlunum leikunum.
í fyrsta skipti á tón-
leikunum.
anna um hinn látna bítil, John
Lennon.
Á blaðamannafundi, sem efnt
var til í tilefni tónleikanna, kom
fram að hálft annað ár er nú liðið
frá stofnun SATT. Sagði Egill
Óiafsson tilefni stofnunarinnar
hafa verið það, að halla hefði þótt
á „lifandi" tónlist á síðari árum,
og einnig hefði reynslan sýnt að
þeim er fást við flutning og
samningu alþýðu- eða dægurtón-
listar, væri nauðsyn á samtökum
er gættu réttar þeirra. Nú væri
svo ætlunin að koma Samtökunum
upp húsnæði sem gæti í senn orðið
athvarf tónlistarmanna og ann-
arra listamanna, og tónleika- og
sýningarsalur. Húsnæðið er keypt
hefur verið er við Vitastíg 3 eins
og áður sagði, en Egill sagði þó
möguleika á að keypt yrði í þess
stað húsnæði J. Þorlákssonar og
Norðmanns við Skúlagötu, sem
gæfi möguleika á tónleikahaldi
utan dyra sem innan. Þessi mál
kvað Egill skýrast á næstunni, en
tónleikarnir í Austurbæjarbíói
eru fyrsta framkvæmdin til fjár-
öflunar vegna þessa verkefnis.
Óttar Felix sagði á blaðamanna-
fundinum að nú æfðu hljómsveit-
irnar af kappi, og væri hægt að
reikna með góðum tónleikum.
Miðaverð er nýkr. 50 en forsala
aðgöngumiða er þegar hafin í
Austurbæjarbíói.
Ilásavík:
Páskasýning
í Safnahúsinu
Ingvar Þorvaldsson opnar mál-
verkasýningu í dag, skírdag, í
Safnahúsinu á Húsavík. Á sýning-
unni eru 40 vatnslitamyndir. Sýn-
ingin verður opin daglega frá
klukkan 16—22, og lýkur henni á
öðrum degi páska, 20. apríl.