Morgunblaðið - 16.04.1981, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
41
Salome Þorkelsdóttir:
Þjóðin verður að
lif a í sátt við landið
Frumvarp sjálfstæðismanna um umhverfismál
Minning:
Hinn 17. febrúar 1981 andaðist
Guðrún Sigurðardóttir, fædd 19.
júní 1897. Foreldrar hennar voru
Kristín Kristjánsdóttir og Sigurð-
ur Þórðarson frá Stóra-Fjarðar-
horni, ólst hún þar upp í stórum
systkinahópi. Maður Guðrúnar
var Torfi Sigurðsson, hófu þau
búskap í Hvítadal 1921 og bjuggu
þar til ársins 1972. Eignuðust þau
7 mannvænleg börn, Sigvalda,
bifreiðarstjóra á Blönduósi, Sigur-
karl, skrifstofustjóra hjá Olíufé-
laginu h/f, Sigurjón, bónda í
Hvítadal, Guðbjörgu, húsfreyju í
Reykjavík, Sigurrós, húsfreyju í
Kópavogi, Svavar Fanndal, raf-
vélavirkja, Sighvat, kennara á
Sauðárkróki.
Heiðurskonunni Guðrúnu Sig-
urðardóttur kynntist ég eftir að
hún varð eldri kona og mér þótti
mikið til um dugnað hennar og
myndarbrag. Hún var mikil móðir
og húsmóðir, það kom svo
skemmtilega fram er hún talaði
við börnin sín, þó öll væru þau
orðin fullorðið fólk. Hún var
grínfull og skemmtileg. Við sátum
oft og spjölluðum saman, þá bar
margt á góma, sagði hún mér frá
veru sinni á Húsmæðraskóla
Blönduóss. Skólastýra þar var
Sigurrós föðursystir hennar, einn-
ig fékk ég margar sögur frá hinni
löngu veru hennar í Hvítadal,
þeim stað sem hún dáði mest, það
kvað hafa verið mjög gestkvæmt á
þeim stað enda heyri ég alla lofa
þessi merku hjón, Guðrúnu og
Torfa, fyrir framúrskarandi gest-
risni. Hún flutti í Kópavog eftir
lát manns síns en þar festi hún
aldrei rætur því hugurinn var
allur heima við búskapinn í Hvíta-
dal. Henni leiddist fyrir sunnan,
þótt börnin væru henni mjög góð
og reyndu á alla lund að gera
henni ævikvöldið sem skemmtileg-
ast. Gestir komu oft á Meðal-
brautina, þá naut hún þess að
fylla borðin af mat og drykk því
enginn mátti svangur frá henni
fara. Lengi naut hún þess á eftir
ef sveitunga bar að garði, þá var
hægt að fá fréttir að heiman. Svo
kom að því að líkamlega heilsu
þvarr. í 3 ár lá hún á Landakoti.
Þá uppskar hún það sem hún sáði
með allri sinni móðurást. Börnin
hennar sýndu það er þau heim-
sóttu hana hvern einasta dag öll
þessi 3 ár. Þetta verða fátækleg
orð um þessa greindu og myndar-
legu heiðurskonu. Hún var mér og
mínum með þeim eindæmum góð.
Það var og verður aldrei fullþakk-
að. Minning hennar verður mér
gott veganesti. Ættingjum votta
ég samúð mína. Blessuð sé minn-
ing hennar.
G.S.S.
Salome Þorkelsdóttir malti
nýlega í efri deild Alþingis fyrir
frumvarpi sjálfstæðismanna til
laga um umhverfismál. en frum-
varp þetta var áður flutt á
vorþingi 1978 af rikisstjórn Geirs
Hallgrimssonar.
Tilgangur frumvarpsins er að
efla alhliða umhverfisvernd, varn-
ir gegn hvers konar mengun og
öðrum skaðlegum umhverfisáhrif-
um og vinna að varðveizlu nátt-
úrugæða landsins. Frumvarpinu
er ætlað, verði það samþykkt, að
stuðla að sem beztri sambúð lands
og þjóðar með því að vernda þau
lífgæði, sem felast í óspilltri
náttúru, hreinu lofti og tæru
vatni.
Þann 4. marz 1975 skipaði ríkis-
stjórn Geirs Hallgrímssonar
nefnd til að endurskoða og sam-
ræma ákvæði laga um umhverfis-
og mengunarmál í því skyni að
sett yrði heildarlöggjöf um þau
efni, sagði Salome, og var Gunnar
G. Schram, prófessor, formaður
nefndarinnar. Nefndin lauk við
samningu frumvarps og gerð til-
lagna um stjórnsýsluþátt um-
hverfismála í apríl 1976. Frum-
varpið var síðan sent allmörgum
stofnunum og félagasamtökum.
Umsagnir bárust frá eftirtöldum
aðilum: Ferðamálaráði Islands,
Heilbrigðiseftirliti ríkisins, Nátt-
úruverndarráði, Hafrannsókn-
arstofnun, Iðnþróunarstofnun,
Landvernd, RARIK, Rannsókn-
arstofnun byggingariðnaðarins,
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins, Sementsverksmiðju ríkisins,
Skógrækt ríkisins, Skipulags-
stjórn og Vegagerð. í ljósi um-
sagna og athugasemda var frum-
Afmælis-
fundur AA-
samtakanna
27. afmælisfundur AA-samtak-
anna verður haldinn í Háskóla-
bíói á föstudaginn langa. Fund-
urinn er öllum opinn og hefst kl.
20.30.
Fundurinn er að þessu sinni í
umsjá Samstarfsnefndar Reykja-
víkurdeilda AA-samtakanna. Að
venju verða kaffiveitingar að
loknum fundi.
Patreksfjörður:
Feður safna
í ferðasjóð
barna sinna
PatrcksíirAI. 11. apríl.
FEÐIIR nemenda í 8. bekk í
grunnskóla Patreksfjarðar fóru í
róður um helgina til að afla í
ferðasjóð harnanna. Farið var á
MB Vestra og var farið með 40
hjóð og fengust um 20 tonn af
rígaþorski í sjóferðinni, sem mun
vera nála'gt því að vera metafli.
Skipstjóri á Vestra er Kristinn
Guðjónsson og meðal áhafnar í
þessum túr voru sýslumaður
Barðastrandarsýslu og slökkviliðs-
stjórinn á Patreksfirði ásamt fleiri
góðum mönnum.
I fyrra fóru nemendur í Norður-
landaferð en í ár á að ferðast innan
lands. Árshátíð skólans var jafn-
framt haldin á sunnudaginn og
voru tvær sýningar fyrir fullu húsi.
Páll
varpið síðan endanlega unnið og
lagt fram í lokagerð.
. Salome kvað mjög nauðsynlegt
að setja heildarákvæði í íslenzka
löggjöf um umhverfis- og mengun-
armál. Hún rakti þau lagaákvæði,
sem eru á víð og dreif í gildandi
löggjöf, þetta mál varðandi, en
taldi margs vant, sem kallaði á
heildarlöggjöf og reglugerðir um
einstök framkvæmdaatriði, eftir
því sem þörf verður á talin hverju
sinni í samræmi við þróun búsetu,
iðnaðar og annarra umsvifa.
Þessu frumvarpi, sem væri vel
unnið og grundað, væri ætlað að
bæta úr brýnni þörf.
Meginefni frumvarpsins er tví-
þætt, sagði Salome. I fyrsta lagi er
þar að finna ýmis ákvæði um
umhverfis- og mengunarvarnir,
m.a. ákvæði, sem áskilja starfs-
le.vfi til atvinnu- og iðjureksturs,
sem telja má hættulegan um-
hverfinu. I annan átað er yfir-
stjórn umhverfismála sameinuð í
höndum eins stjórnsýsluaðila. Er
gert ráð fyrir því að þar yerði um
sérstaka stjórnardeild að ræða,
sem með þau mál fari, umhverf-
ismáladeild. Hér er um málefni að
ræða, sagði Salóme, sem verður æ
þýðingarmeira, eftir því sem iðn-
þróun vex og þéttbýli eykst. Sjálf-
stæðismenn vilja stemma á að ósi
með þessum frumvarpsflutningi,
efla alhliða umhverfisvernd og
koma á virkum vörnum gegn
hvers konar mengun og öðrum
skaðlegum umhverfisáhrifum. Sú
reynsla sem til staðar er í ýmsum
iðnríkjum á að vera okkur víti til
varnaðar og kenna okkur að nýta
auðlindir lands okkar þann veg að
sambúð lands og þjóðar verði sem
bezt. Salome rakti síðan löggjöf
um þetta efni í nágrannalöndum,
einkum á Norðurlöndum. Hún
vænti þess að frumvarp þetta
fengi góðar undirtektir í þinginu.
+
Þökkum samúð og vináttu viö andlát og úttör
PÉTURS MATTHÍASSONAR,
Hamrahlíð 5.
Guöbjörg Jóhannesdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innilega
jarðarför.
auðsýnda samúö og vináttu viö andlát og
GUDFINNS ÞORBJORNSSONAR,
Víðimel 38.
Marta Pétursdóttir,
Pétur Guðfinnsson, Loftur J. Guöbjartsson,
Vigdis Guðfinnsdóttir, Stella Sigurleifsdóttir,
Þorbjörn Guðfinnsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vináttu við hið sviplega
fráfall sonar okkar og dóttursonar,
HRAFNKELS HJARTARSONAR,
Hœnuvík.
Pálmey Gróa Bjarnadóttir, Hjörtur Kristinsson,
Dagbjörg Ólafsdóttir, Bjarni Sigurbjörnsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
EINARS JÚLÍUSSONAR,
Skólavegi 34,
Kaflavík.
Lina Sverrisdóttir,
Sverrir Mikael Einarsson,
Svanhildur Elentinusdóttir, Einar Hjaltested,
Margrét Theodora Hjaltested, Einar Kristinn *d.
Jörð til sölu
Jörðin Saurar í Helgafellssveit er til sölu og laus til
ábúðar í næstu fardögum. Tilboð óskast.
Upplýsingar gefnar í síma 33827 og hjá Leif Kr.
Jónannessyni í síma 93-8371 eða 93-8137.
Borðið á Aski
um páskana
Allir staðir opnir á skírdag,
laugardaginn 18. apríl og annan í
páskum.
Lokað föstudaginn langa og
páskadag.
ASKUK
Sæng og koddi
það er lausnin.
Sængur stærðir:
140x200
120x160
100x140
90x110
Sængurfatagerðin
Baldursgötu 36, sími 16738.
(Áður Hverfisgötu 57a).
Koddar stærðir:
55x80 40x50
50x70 35x40
45x60
Tilvalin gjöf við flest tækifæri.
Eigum einnig sængurverasett.
Sendum gegn póstkröfu.
Geymið auglýsinguna.
Guðrún Sigurðar
dóttir Hvítadal