Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 Þórir Jónsson, framkvæmdastjóri Sveins Egilssonar hf. Áræðið vantar hjá unga f ólkinu „Upphafið að stofnun Þ. Jónsson & Co var að ég seldi forkunnar fallegan og skemmtilegan Chrysler- sportbíl, sem ég átti í þá da«a. Andvirði bílsins rann i fyrirtækið sem þegar í upp- hafi sérhæfði sig í vélavið- Kerðum og endurbyggingu véla,“ sagði Þórir Jónsson, forstjóri Sveins Egilssonar hf., og aðaleigandi vélaverk- stæðisins I>. Jónsson, í sam- tali við Mbl. — „Annars var þetta ekki í eina skiptið, sem ég neyddist til að selja undan mér bíl. til þess að geta haldið áfram. Aðeins fjórum árum síðar seldi ég annan bíl, til þess að geta greitt lóð, sem ég hafði keypt undir verk- staíðið í Brautarhoiti. Þetta var enginn dans á rósum á þeim tíma, sem allt var í viðjum hafta. Það þýddi að vísu ekkert að vera að kveinka sér og ég hélt upp- byggingu fyrirtækisins áfram og á árinu 1960 kom svo Sveinn Egilsson hf. inn í dæmið. Okkur var boðin meirihluti fyrirtækisins til kaups og það varð úr og við keyptum það og þremur ár- um síðar hvarf ég úr dagleg- um rekstri hjá Þ. Jónsson og gerðist framkvæmdastjóri Sveins Egilssonar hí., sem ég hef verið síðan,“ sagði Þórir Jónsson ennfremur. Hvernig voru skilyrði til at- vinnurekstrar á þeim tíma, sem þú ýtir úr vör? — Ástandið var nú ekki upp á það bezta, frekar en það er í dag. Á þessum tíma voru öll viðskipti svo rígbundin í alger- lega vonlausu haftakerfi, sem gerði lítið annaö en að setja fótinn fyrir menn sem vildu brjótast áfram. Ég fékk fyrir náð og miskunn leyfi til að kaupa einföld- ustu vélar til að geta komizt af stað, en fyrsta verkstæðið var til húsa í Borgartúni 25. Þetta var á þessum tíma eina verkstæðið, sem sérhæfði sig í endurnýjun véla, sem er nú hjarta bílsins. Því er ekki hægt að neita því, að maður var svolítið ánægður með sinn hlut. Gkki hægt að kaupa það, sem hentugast var Eins og ég sagði áður var ástandið heldur bágborið, menn gátu alls ekki keypt þá hluti, sem hentugastir voru í hverju tilviki. Allt var þetta háð því hverjir höfðu leyfi til innflutnings. Það var kvótakerfi við lýði, sem gerði m.a. ráð fyrir því, að þeir sem höfðu stundað innflutning áður en það var sett á, fengu að gera það áfram. Auk þess, sem nánast öll bíla- og varahlutaviðskipti á árun- um 1950—1960 voru við Austur- Evrópu, en þróunin var óneitan- lega ekki meðal þeirra þjóða, heldur í Bandaríkjunum, Þýzka- landi og Bretlandi, svo einhver lönd séu nefnd. Byrjuðum smátt Nú við byrjuðum frekar smátt, eða í um 80 fermetra húsnæði, sem var við Borgartún eins og ég sagði og við störfuðum þrír við reksturinn. Vera okkar í Borgar- túni fékk mjög snöggan endi, því á árinu 1955 brann húsið og skemmdist verkstæðið mjög mik- ið. í kjölfar brunans byggðum við mjög gott húsnæði í Brautarholti og var fyrirtækið þar til húsa til ársins 1968, að það flutti starfsemi sína í núverandi húsnæði hér í Skeifunni. Hlutverkið hefur lítið breytzt Það hljóta að hafa orðið miklar breytingar á verkstæðinu þessi liðlega 30 ár, sem liðin eru frá stofnun 'þess? — Hlutverk verk- stæðisins hefur nánast ekkert breytzt, þ.e. þar fer aðallega fram endurnýjun véla. Tæknibúnaður hefur auðvitað breytzt í gegnum árin og starfsmönnum hefur fjölg- að mikið, en í dag starfa hjá Þ. Jónssyni 18 manns að staöaldri. Það sem kannski er ennþá sér- stæðara er, að Þ. Jónsson er ennþá eitt örfárra verkstæða sem sér- hæfir sig svo mikið sem raun ber vitni. Ford-nafnið kitlaði Þóri var síðan boðinn til kaups meirihluti í Sveini Egilssyni hf. á árinu 1960, en að sögn Þóris hafði verið mikil lægð i bílainnflutningi vegna haftanna. — En nafnið Ford kitlaði óneitanlega. Það er ekki á hverjum degi, sem mönnum býðst að taka að sé\- ur.iboð fyrir Ford. Það varð ’ ’í úr, að við keyptum meirihl , , Sveini Eg- ilssyni. Þessi kaui) fóru fram á mjög heppilegum tíma, því um svipað leyti tóK Viöreisnarstjórnin við völdum hér á landi. Hennar fyrsta verk var að afnema öll höft og koma á algjöru viðskiptafrelsi, sem í raun var lífgjafi íslenzks athafnalífs á þessum tíma. Ára- tuginn þar á undan hafði ríkt hálfgerð eymd og eimyrja yfir öllu athafnalífi. Fyrstu dieselbílarnir Fljótlega eftir að bílainnflutn- ingur var gefinn frjáls fórum við að flytja inn Trader-vörubílana, sem nutu mikilla vinsælda í mörg. ár, en vörubílainnflutningur hafði iegið niðri um árabil. Þeir voru fyrstu dieselbílarnir, sem eitthvað kvað að á þessum árum, og ekki má gleyma Cortinunni, sem kom á markaðinn á svipuðum tíma, en hún naut þegar mikilla vinsælda hér sem erlendis. Þá kom fram á sjónarsviðið á þessum tíma í Vestur-Þýzkalandi Taunus 12 M, sem átti eftir að njóta mjög mikilla vinsælda eins og Cortinan. Það er því ekki hægt að neita því, eins og ég sagði áðan, að ég kom inn í þessi bílaviðskipti á réttum tíma, áratuginn á undan hafði ríkt algjör lognmolla í þessu vegna haftanna. Það má kannski skjóta því inn í, að við fengum líka til lands litla ameríska bíla um svipað leyti, en það voru Cometinn og Falconinn. Tók við framkvæmdastjórn hjá Sveini Egilssyni Árið 1963 tók Þórir við fram- kvæmdastjórn hjá Sveini Egils- syni og hætti daglegum rekstri hjá Þ. Jónssyni eins og áður sagði. Aðspurður um ástæður þess, að hann hætti daglegum rekstri hjá Þ. Jónssyni, sagði Þórir, að það hafi einhvern veginn legið beinast við, þar sem umfang starfsemi Sveins Egilssonar hafi verið orðið mun meira en hjá Þ. Jónssyni. Ekki haldinn veru- legri bíladellu Óneitanlega freistast maður til að álíta, að þú hafir verið haldinn ólæknandi bíladellu, þar sem þú hreinlega hefur alizt upp í bílum, hvað segir þú um það? — Ég vil nú ekki meina, að ég sé haldinn neinni verulegri bíladellu. Ég hef auðvitað mikinn áhuga fyrir bíl- um, en ég held að einungis þrisvar hafi hjartað kippt eitthvað veru- lega við sér vegna bíls. Fyrir það fyrsta var ég mjög hrifinn af Chrysler-bílnum mínum, sem var eins og ég sagði mjög glæsilegur sportbíll. Það var óhemju- skemmtilegur vagn. Frá þeim tíma, að ég seldi hann á árinu 1949 til að stofna verkstæðið, held ég að enginn bíll hafi höfðað verulega til mín, þar til Ford Mustanginn kom á markaðinn 1965. Hann var alger bylting frá því sem maður átti að venjast, enda keypti ég sjálfur fyrsta bílinn, sem kom hingað til lands og átti í nokkur ár. Nú, ég nefndi þrjá bíla. Sá þriðji, sem ég hafði í huga er nýi Escortinn, sem kom á markaðinn í fyrra og var kjörinn bíll ársins í Évrópu í ár. Það er virkilega skemmtilegur bíll. Hann er að vísu heldur dýr ennþá fyrir okkar markað, en ég geri mér góðar vonir um að ná samningum um lækkun verðs frá verksmiðju. Broncoinn hentar í sportmennskuna Hvaða bíl ekur þú í dag? — I dag ek ég á Bronco-jeppa, en hann hentar mér mjög vel vegna sport- mennskunnar. — Það er einmitt atriði, sem mig langaði að koma inn á, þinn mikli íþróttaáhugi, í gegnum árin. Sérstaklega í sam- bandi við skíðamennskuna, sem þú hefur lagt mikla rækt við. Hvenær ferð þú að stunda íþróttir fyrir alvöru? — Ég fékk snemma mikla bakteríu fyrir skíðaíþróttum og var farinn að fara reglulega til fjalla um tólf ára aldur og síðar þróaðist það út í keppni. Ég er KR-ingur eins og þú kannski veizt. Ég held að ég hafi verið 16 ára gamall þegar ég tók þátt í minni fyrstu alvörukeppni. Stundaðir þú eingöngu hinar svokölluðu Alpagreinar, eða varstu kannski í öllu saman, eins og tíðkaðist mun meira á þessum árum? — Ég var engin undan- tekning frá reglunni í þessu. Við tókum þátt í öllum greinum skíða- íþrótta, Alpagreinum, göngu og stökki, en í dag er ég nánast eingöngu í Alpagreinum. Nú hljóta aðstæður að hafa verið frekar bágbornar á þessum árum, t.d. í sambandi við lyftur og fleira. — Jú, því er ekki að neita, að aðstæður voru að sjálfsögðu ekkert í líkingu við það sem gerist í dag. Heita mátti, að engar lyftur væru í gangi hér á Suðurlandinu fyrr en árið 1948, þegar ég setti upp fyrstu toglyftuna við Skíða- skálann í Hveradölum. Þessi fyrsta lyfta var reyndar gamall Weapon-bíll, sem ég lét standa þarna uppfrá allan veturinn og reyndist með ágætum. Til nánari skýringar, þá dró bíllinn lyftu- bandið hringinn. Ári síðar smíð- uðum við svo heimatilbúna lyftu, sem stóð í mörg ár, en hún eyðilagðist síðar i bruna. Ekki hægrt að keppa og reka íyrirtæki En hvað varst þú iengi í keppni? — Ég hætti alveg að keppa árið 1951, það gekk einfaldlega ekki að reka fyrirtæki og æfa eins og keppnismaður. Maður varð að vera heilskiptur í starfinu. Það þýddi hins vegar ekki, að ég væri hættur skíðaiðkunum. Það var bara nauðsynlegt að sníða sér stakk eftir vexti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.