Morgunblaðið - 16.04.1981, Qupperneq 48
^Síminn á afgreiðslunni er
83033
JW«rOunbIflbi*
Síminn á afgreiöslunni er
83033
JB«r0tinbIflhib
FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981
bessir tveir. Lúðvík Jóhannesson o*r Geir Reynisson. sem eru 12 ára, hafa séð um londun úr Helgu Jó. VE i
aflahrotunni að undanförnu, en SÍKurgeir tók þessa mynd í Eyjum í fyrradag, en þá var landburður af fiski
(>K komu bátar með allt upp i 90 tonn af þorski i troll eftir sólarhrinninn. Sumir áttu i erfiðleikum með að
taka netin upp á réttum tima vegna þess hve aflinn var mikill.
Fundi Verðlagsráðs
frestað að beiðni for-
sætisráðherra í gær
FUNDUR í Verðlagsráði hafði
verið boðaður i gær klukkan 15,
þar sem taka átti tii umfjöllunar
ýmsar umbeðnar hækkanir á
vörum og þjónustu, en fjöldi
erinda liggur fyrir ráðinu og
hefur ekki fengizt afgreiddur.
Rétt fyrir hádegi í gær var fundi
ráðsins frcstað, samkvæmt heim-
ildum Mbl., að ósk Gunnars
Thoroddsens forsætisráðherra.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er fjöldi hækkunar-
beiðna, sem ekki hefur fengizt
afgreiddur, allt að 30, og hafa
sumar beiðnir legið fyrir ráðinu
frá því snemma á árinu. Meðal
erinda, sem taka átti fyrir í gær,
er beiðni Sementsverksmiðjunnar
um hækkun á sementi, sem nú er
selt á 75% kostnaðarverðs og
nemur taprekstur verksmiðjunnar
nú a.m.k. einni milljón króna á
mánuði.
Framkvæmdastofnunin:
Ríkisstjórnin neitar
um vaxtahækkun lána
STJÓRN Framkvæmdastofnunar
fór fram á það við ríkisstjórn
íslands að fallist yrði á beiðni
stjórnar Framkvæmdastofnunar
til þess að hækka vexti af lánum
stofnunarinnar. en ríkisstjórnin
hefur neitað slíkri hækkun, en
gefið í skyn að hugsanlega megi
ra’ða um verðtryggingu lánanna.
Einn af talsmönnum Fram-
kvæmdastofnunar sagði í samtali
við Mbl. að Framkvæmdastofnun
væri langt á eftir með vexti, en
ríkisstjórnin hefði óskað eftir því
að umbeðin vaxtahækkun næði
ekki fram að ganga. Kvað talsmað-
urinn að Framkvæmdastofnun
væri með ódýrt fé á boðstólum
þegar það næði að brenna upp
miðað við það hvernig aðrir sjóðir
tryggðu fjármagn sitt. Til stendur
að ræða þessi mál nánar eftir
páska.
Páskahelgin:
Færð á vegum góð
Spáð mildu og góðu veðri
GÓÐ F/ERÐ er nú víðast hvar um
landið og allir aðalvegir færir, að
því er Iljörleifur ólafsson vcgaeft-
irlitsmaður hjá Vegagerð rikisins
sagði í samtali við Morgunhlaðið í
gær. Hjörleifur sagði að vísu vera
kafla i vegum sem væru ekki í góðu
lagi, cn hvergi væri þó um ófærð að
ræða. Fært væri því norður i land,
austur á Firði og vestur um land,
en heiðar ýmsar þó ófærar.
Meðal þeirra nefndi hann Þorska-
fjarðarheiði, Dynjandisheiði,
Möðrudalsöræfi, Klettháls, Mý-
vatnsheiði og Lágheiði. Jeppabif-
reiðum er á hinn bóginn orðið fært
um Vaðlaheiði, og þessa dagana er
unnið að lagfæringum á vegum víða
um land, þar sem aurbleytu er nú
tekið að gæta um leið og snjóa leysir
og klaki fer úr jörðu.
Knútur Knudsen veðurfræðingur
hjá Veðurstofu Islands sagði í gær,
að veðrið um páskana yrði að
líkindum svipað og verið hefur
síðustu daga, milt og gott veður
miöað við árstíma. Suðlæg átt yrði
ríkjandi, og vætusamt á Suður- og
Vesturlandi, en þurrt á Norður- og
Austurlandi. Sagði Knútur að búast
mætti við að besta veðrið um
helgina yrði norðaustanlands, þar
sem líklega yrði bjart og sólríkt.
*
Starfsmaður ISAL fann upp nýja
gerð súrálsskammtara:
Sótt um einkaleyfi
í mörgum löndum
Islenzka álfélagið hcfur fyrir
milligöngu Alusuisse sótt um
einkaleyfi í mörgum löndum á
súrálsskammtara. sem Guð-
mundur Bjarnason verkstjóri á
vélaverkstæði ÍSAL hefur fund-
ið upp.
Búnaður Guðmundar sér um
að skammta súráli í ker álvers-
ins með ákveðnu millibili og er
hann knúinn þrýstilofti en
stjórnað af tölvubúnaði verk-
smiðjunnar. Hann leysir af
hólmi erlendan búnað, sem
notaður hefur verið til þessa.
Tilraunir með hinn nýja bún-
að hófust sl. haust. Þær tókust
mjög vel og hefur verið ákveðið
að setja búnað Guðmundar í öll
ker Álversins, 320 að tölu. Á
þessu stigi er ekkert hægt að
segja um það hvort hinn nýi
búnaður verður settur upp í
álverksmiðjum erlendis en það
má telja líklegt. Dr.Heinz Breit-
er, yfirmaður á einkaleyfis-
skrifstofu Alusuisse sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að hug-
mynd Guðmundar væri snjöll og
einföld og hann teldi að hún
kæmi að mjög góðum notum eins
og allar einfaldar lausnir á
vandamálunum.
Dr.Breiter var staddur hér á
landi fyrir skömmu til að kynna
sér uppfinningu Guðmundar og
afla gagna til að leggja fram
með einkaleyfisumsókninni til
Guðmundur Bjarnason við súrálsskammtarann. | ),,sm Mbl Kris,iin
ýmissa Evrópulanda. Hann
kynnti sér jafnframt tvær aðrar
uppfinningar, sem Álversmenn
hafa verið að þróa og einnig
verður sótt um einkaleyfi á. Er
þar um að ræða aðferð til að
hrista ál úr gjalli, sem myndast í
kerum og notkun íslenzkrar eld-
fjallaösku í einangrun keranna.
Sjá nánar á bls. 19.
Friðrik Ólaís-
son á förum
til Moskvu
FRIÐRIK Ólafsson, stórmeistari í
skák og forseti Alþjóða skáksam-
bandsins, mun eftir helgi halda til
Moskvu, í boði skákyfirvalda i
Sovétrikjunum. Þar verður hann
viðstaddur lokaumferð alþjóðlegs
skákmóts, sem nú er haldið i
Moskvu, og verður gcstur í hófi að
því ioknu.
Friðrik sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann myndi
einnig nota ferðina til að ræða ýmis
mál varðandi heimsmeistaraeinvíg-
ið í skák, þar sem þeir munu eigast
við Victor Korchnoi og Anatoly
Karpov. Friðrik vildi ekki segja
hvort rætt yrði um fjölskyldu
Korchnois, og leyfi henni til handa
að flytja úr landi, en kvaðst þó ekki
vilja útiloka að það mál bæri á
góma.
Friðrik er nýkominn frá FIDE-
fundi í Túnis, en þessar tvær ferðir
hans gera það að verkum að hann
getur ekki tekið þátt í Skákþingi
Islands eins og vonir höfðu staðið
til.