Morgunblaðið - 16.05.1981, Page 1
48SÍÐUR OGLESBÓK
108. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 16. MAÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hægri menn
styðja F álldin
Stokkhólmi. 15. mai. AP.
HÆGRIMENN. sem srtjíðu sig úr stjórn borgaraflokkanna í síðustu
viku, iofuðu í daK að koma Thorbjorn Fálldin fráfarandi forsætisráð-
herra aftur til valda i mikilva'Kri atkvæðagreiðslu í næstu viku ou
styðja minnihlutastjórn Miðflokksins ok frjálslyndra undir forystu
hans.
Hægrimenn munu sitja hjá við
atkvæðagreiðslu um traustsyfirlýs-
ingu á minnihlutastjórn Fálldins.
Sósíaldemókratar undir forystu
Olofs Palme og kommúnistar munu
áreiðanlega greiða atkvæði gegn
myndun nýrrar borgaraflokka-
stjórnar.
Vinstri flokkarnir hafa saman-
lagt 174 þingsæti af 349, en 175
atkvæði þarf á þingi til að koma í
veg fyrir myndun fyrirhugaðrar
minnihlutastjórnar. Hægri menn
hafa 73 þingsæti eða fleiri en
Miðflokkurinn og frjálslyndir til
samans.
Gösta Bohman, leiðtogi hægri-
manna, sagði á blaðamannafundi
að Fálldin hefði ábyrgzt að stjórn
undir hans forystu mundi fram-
fylgja stefnu fyrrverandi þriggja
flokka stjórnar og því mundu
hægri menn ekki leggjast gegn
ríkisstjórn Miðflokksins og frjáls-
lyndra.
Stjórnarsamvinnan fór út um
þúfur í síðustu viku þar sem
Fálldin og Ola Ullsten, leiðtogi
frjálslyndra, sömdu við sósíal-
demókrata um breytingar á skatta-
lögum. Bohman var mótfallinn
samkomulaginu og kallaði það svik.
Þar með stóðu aðeins 102 þing-
menn á bak við stjórnina (64 úr
Miðflokknum og 38 frjálslyndir) og
stjórn Fálldins sagði af sér.
Deilurnar um skattabreyting-
arnar hafa komið af stað vanga-
veltum um nýjar kosningar, en
Bohman sagði i dag að víðtækar
breytingar yrði að gera á kosn-
ingalögunum ef kosningar ættu að
fara fram fljótlega, eða 28. júní
eins og talað hefur verið um. Hann
sagði líka að Svíar hefðu ekki efni á
að búa við valdalitla bráðabirgða-
stjórn eins og ástatt væri i efna-
hagsmálum.
Byssu (i hringnum til vinstri) miðað á páfann úr mannf jöidanum á Péturstorgi á miðvikudaginn. ítalska
fréttastofan ADN Kronos komst yfir þessa mynd sem óþekktur maður tók á 8 mm filmu.
Kenningarnar um
samsæri styrkiast
Róm. 15. maí. AP.
JÓHANNES PÁLL páfi II gat
hreyft handleggi og fætur í dag,
48 timum eftir tilræðið, og lækn-
ar töldu „greinilega betri“ horfur
Drógu til baka
verkfallshótun
Varsjá. 15. maí. AP.
VERKAMENN i Bialystok aflýstu í dag boðuðu verkfalli eftir brottvikn-
ingu þriggja iögreglumanna, sem voru sakaðir um barsmíðar á fötluðum
manni. og vitnuðu til „alvörunnar“ i kjölfar tilræðisins við páfann, sem
pólskir fjölmiðlar skýra itarlega frá.
Stjórnarnefnd hefur ákveðið að
gera áætlun um að „lögum og reglu
verði" framfylgt með meiri festu og
nefnd óháðra sérfræðinga hefur ver-
ið falið að semja skýrslu um bágbor-
ið efnahagsástand Póllands.
Verkfallið sem var boðað í Bialy-
stok hefði getað leitt til nýrrar ólgu
verkamanna og bundið endi á til-
tölulega rólegt ástand sem hefur ríkt
síðan í viðvörunarverkfallinu 27.
marz.
Innanríkisráðuneytið tilkynnti í
dag að á síðustu fjórum mánuðum
hefði glæpum fjölgað um 24%,
ránum um 32%, innbrotum og þjófn-
uðum um 60% og skrílsiátum ein-
staklinga um 10%. Flest brotin
fremur drukkið fólk segir ráðuneyt-
ið.
á fullum bata. En læknar töldu of
snemmt að spá um langtímabata-
horfur páfa vegna möguleika á
smitun.
Páfi blessaði lækna, hjúkrun-
arkonur og tæknistarfsfólk. At-
höfnin var áhrifamikil og flestir
viknuðu. „Ég veit að allur heimur-
inn óskar mér vel,“ sagði páfi, sem
verður 61 árs á mánudaginn.
ítalskir saksóknarar sögðu í dag
að grunur léki á að Tyrkinn
Mehmet Ali Agca hefði ekki verið
einn að verki er hann skaut páfa,
en fullyrtu ekki að árásin hefði
verið alþjóðlegt samsæri. Þeir
báðu um aðstoð Interpol við rann-
sókn á ferðum Agca, sem, mun
hafa verið í Þýzkalandi, Spáni og
e.t.v. fleiri löndum auk Sikileyjar
og Perugia á Mið-Italíu síðan
hann flúði úr fangelsi í nóvember
1979.
Luciano Infelisi kvaðst telja að
rannsóknin tæki langan tíma og
ólíklegt að réttarhöld hæfust
fljótlega. Hann sagði í sjónvarps-
viðtali að hann væri ekki sann-
færður um að um alþjóðlegt sam-
særi væri að ræða, þótt gefnar
hefðu verið út tilskipanir um
handtökur á „óþekktum mönnum"
sem kynnu að hafa hjálpað Tyrkj-
anum.
Bróðir sakborningsins, Adnan,
sagði í viðtali í Ankara að Agca
hefði skotið páfann vegna þess að
„kristnir menn væru hefðbundnir
óvinir múhameðstrúarmanna".
Agca hefur sagt lögreglu að hann
sé trúleysingi og á honum fannst
miði þar sem sagði að hann vildi
myrða páfann til að mótmæla
„heimsvaldastefnu".
Móðir Agca sagði í dag að hún
„bæði til Allah fyrir skjótum bata
páfa“ og kvaðst vona að „sonur
minn yrði ekki hengdur“. Hún
kvað hann hafa fært miklar fórnir
á unglingsárum til að sjá fjöl-
skyldunni farborða eftir dauða
föðurins og unnið í byggingar-
vinnu unz hann fékk óþekktan
sjúkdóm.
„Við gátum ekki farið með hann
til læknis af því við áttum ekki
peninga,“ sagði móðirin. Hún telur
veikina hafa skaðað andlega
heilsu hans og gert hann tauga-
óstyrkan, tortrygginn og árásar-
gjarnan.
Sýrlendingar sagðir
„tilbúnir tn ormstu
66
Tel Aviv. 15. maí. AP.
SENDIMAÐUR Bandarfkjaforseta,
Philip C. Habib, átti annan fund i
dag með israelskum leiðtogum og
Sýrlendingar lýstu því yfir að þeir
væru tilbúnir til orrustu ef ís-
Mitterrand tekur
við á fimmtudag
Paris. 15. maí. AP.
FRANCOIS Mitterrand. nýkjörinn íorseti Frakklands, lagði til i bréfi
til Valery Giscard d’Estaings forseta i dag að sjö ára valdatimi hans
hæfist á miðvikudaginn, en það varð að samkomulagi i kvöld að
valdatimi hans hæfist á fimmtudaginn.
Giscard d’Estaing hafði áður
lagt til að Mitterrand tæki við á
þriðjudaginn.
Stjórnlagaráðið úrskurðaði í
dag að valdaskiptin skyldu fara
fram eigi síðar en 24. maí. Búizt er
við að Giscard d’Estaing sam-
þykki að Mitterrand taki við á
miðvikudaginn.
Athygli stjórnmálaflokkanna
beinist í vaxandi mæli að þing-
kosningunum og skipun ríkis-
stjórnar Mitterrands, sem hefur
stöðugt neitað að svara því hvort
hann verður við kröfu kommún-
ista um ráðherrastóla. Kommún-
istar hafa tjáð sig fúsa til við-
ræðna um hlutverk í nýrri ríkis-
stjórn „hvenær sem er“ og sér-
fræðingar segja að sósíalistar
muni ekki geta stjórnað með
árangri án að minnsta kosti þegj-
andi stuðnings kommúnista.
Hægri flokkar Giscard d’Esta-
ings og Jacques Chiracs, borgar-
stjóra gaullista í París, tilkynntu í
dag að samkvæmt samkomulagi
Francois Mitterrand, nýkjörinn forseti Frakkiands, rabbar við
vegfarendur og ferðamenn sem söfnuðust saman í rue de Biévre þar
sem hann á heima.
milli flokkanna yrði aðeins einn
hægriframbjóðandi í kjöri þar
sem kommúnistar og sósíalistar
standa sterkir að vígi og tveir
hægriframbjóðendur yrðu aðeins í
kjöri þar sem vinstrisinnar hefðu
enga sigurmöguleika.
Enn var óróasamt í dag í
kauphöllinni og orðrómur er uppi
um yfirvofandi gjaldeyriseftirlit
og aðrar ráðstafanir til að draga
úr þrýstingnum á frankann, sem
þó var stöðugur gagnvart dollar í
dag.
raclsmcnn vcldu hcrnaðarlcgar að-
gcrðir í dcilunni um sýrlcnzku
loftvarnacldflaugarnar i Libanon.
Flotastyrkur Bandarikjanna á
Miðjarðarhafi efldist í dag við komu
flugvélamóðurskipsins Independ-
ence, 76.000 lestir, og eldflaugabeiti-
skipanna Harry E. Yarncll og Charl-
es F. Adams. Fréttir hermdu að
sovézka þyrlubcitiskipið Moskva
væri á siglingu undan strönd Líban-
on á sama tíma og ástandið versnar.
Habib verður í Tel Aviv í nótt og
ekkert bendir til þess enn að hann
fari í þriðja sinn til Beirút eða
Damaskus. ísraelska útvarpið segir
að Habib fari til Saudi-Arabíu, þótt
það fengist ekki staðfest. Saudi-
Arabar hafa veitt Sýrlendingum
fjárhagsstuðning til að efla varnir
sínar, þótt utanríkisráðherra Sýr-
lands muni hafa sagt að aðstoðinni
hafi verið hætt.
Menachem Begin forsætisráð-
herra sagði eftir fundinn með Habib
að Sýrlendingar neituðu enn að
verða við kröfu Israelsmanna en gaf
í skyn að Habib fengi meiri frest.
„Tilraununum til að finna friðsam-
lega lausn verður haldið áfram,“
sagði hann fréttamönnum. Aðstoð-
armaður hans sagði: „Svo lengi scm
Habib er kyrr er engin ástæða til að
ætla að hernaðarleiðin verði valin.“
Þar sem Habib er þögull er talið
^ð hann telji sig ekki hafa náð
árangri.