Morgunblaðið - 16.05.1981, Síða 32
32
KJARVALSSTAÐIR:
Batik-myndlistar-
sýning Katrinar
I dag kl. 14 opnar Katrín H. Agústsdóttir myndlistarsýningu í austursal
Kjarvalsstaða. A sýningunni eru 70 batikmyndir sem allar eru unnar á
síðustu árum, flestar þeirra landslagsstemmningar.
Katrín hefur áður haldið fjórar einkasýningar — þrjár í Bogasal
Þjóðminjasafnsins og í Safnahúsinu á Selfossi. Hún er handmennta-
kennari að mennt og hefur verið við nám í batiklist í Danmörku.
Sýningin mun standa næstu tvær vikur en henni lýkur um
mánaðamótin.
Katrin II. Ágústsdóttir við eitt verkanna á sýningunni. L)<>Nm RAX
Jónas Guðmundsson við eitt verkanna á sýningunni.
NORRÆNA HÚSIÐ:
Sýning Jónasar Guðmundssonar
Málverkasýning Jónasar Guðmundssonar í Nor-
ræna húsinu verður opnuð í dag kl. 14. Á
sýningunni eru rúmlega 60 verk, olíumálverk og
vatnslitamyndir, flestar málaðar á síðustu tveimur
árum en nokkrar eru þó eldri. Jónas hefur haldið
fjölda einkasýninga, þ.á m. í Norræna húsinu fyrir
tveimur árum en síðasta sýning hans var í Gallery
Concord í París, þar sem hann sýndi með Valtý
Péturssyni.
„Þetta er svona þessi sama lína og ég hef verið í,“
sagði Jónas í spjalli við blm. Mbl. „Myndefnið er
sjórinn og bátarnir, gamli bærinn og ýmsar
manneskjur — myndir bæði frá Reykjavík og frá
Eyrarbakka þar sem ég hef verið að yrkja og
mála.“
Sýningin verður opin daglega frá kl. 14—22, en
henni Iýkur sunnudaginn 24. þ.m.
DJÚPIÐ:
Síðasta
sýning-
arhelgi
Anne Tirr
Á miðvikudaginn lýkur
sýningu Catherine Ánne
Tirr í Djúpinu við Hafnar-
stræti. Þar sýnir hún graf-
íkmyndir og eru flest
verkin unnin í sáldþrykk
(serigrafíu), sem hún hefur
sérhæft sig í.
Myndirnar á sýningunni
spanna fjögurra ára tíma-
bil. Eldri verkin eru tengd
goðsögum, en nýjustu
verkin eru heldur meira
abstrakt.
„Hlýja handa
þinna“ sýnd í
MÍR-salnum
í dag verður kvikmynda-
sýning í MÍR-salnum, Lind-
argötu 48, 2. hæð, og hefst
hún kl. 15. Er það síðasta
reglulega laugardagssýning
MIR á þessu vori.
Sýnd verður sovéska
kvikmyndin „Hlýja handa
þinna", frá Grúsía-film,
gerð árið 1972. Leikstjórar
Sjota Mamagadze og Nodar
Mamagadze. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Steinunn Marteinsdóttir leirkerasmiður opnar í
dag sýningu á Kjarvalsstöðum. Rúmlega 100 verk eru
á sýningunni, steinleir, postulín, vasar, lágmyndir,
skálar og fleira og einnig sýnir Steinunn teikningar
þær sem hún gerði í viðhafnarútgáfu AB á Stjörnum
vorsins eftir Tómas Guðmundsson. Sýningin stendur
til mánaðamóta.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
„Sölumaður
deyr“ í kvöld
— fdar sýningar eftir
SÖLUMAÐUR deyr, eftir Arthur
Miller, hefur nú verið sýndur
þrjátíu sinnum hjá Þjóðleikhús-
inu, við mjög góða aðsókn og
verður ein sýning á leikritinu í
kvöld. Miller hlaut hin eftirsóttu
Pulitzer verðlaun fyrir þetta leik-
rit á árinu 1949 þegar það var
frumsýnt í New York. Síðan þá
hefur verkið verið sýnt um mest
allan heiminn og hvað eftir annað,
enda af mörgum talið eitt af
klassískum verkum þessarar
aldar. Sýning Þjóðleikhússins nú
hefur fengið mjög góðar viðtökur
almennings.
I aðalhlutverkunum eru Gunnar
Eyjólfsson, Margrét Guðmunds-
dóttir, Hákon Waage, Andri Örn
Clausen, Róbert Arnfinnsson,
Árni Tryggvason, Randver Þor-
láksson og Bryndís Pétursdóttir.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son, leikmyndin er eftir Sigurjón
Jóhannsson, tónlist eftir Áskel
Másson, en dr. Jónas Kristjánsson
þýddi leikinn.
Gustur nálgast
írumsýninguna
Nú á miðvikudaginn, 20. maí,
verður söngleikurinn Gustur, saga
af hesti, frumsýndur. Verður þá
jafnframt minnst 30 ára leikaf-
mælis Bessa Bjarnasonar. Gustur
er byggður á sögu eftir Tolstoj og
hefur þessi söngleikur farið sigur-
för um heiminn á undanförnum
árum.
Aukasýningar á
Ilaustinu í Prag
Enn verða tvær aukasýningar á
tékknesku einþáttungunum
Haustið í Prag og verða þær á
þriðjudag og fimmtudag.