Morgunblaðið - 16.05.1981, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAI1981
41
fclk f
fréttum
Tndíánar mótmæla í London
+ Óvanaleg sjón þótti þetta í London, Indíánar reykjandi friðarpípur tóku sér sæti á flöt í
námunda við bresku þinghöllina á dögunum. Indíánarnir af Kríættbálki eru þetta, en þeir fóru
til London til að mótmæla þeim áformum Pierre Trudeaus forsætisráðherra Kanada að gera
breytingu á stjórnskipunarlögum landsins. — Þau eru reyndar allt frá því á árinu 1867 og
heita á ensku „The British North America Act of 1867“. — Mál þetta er talsvert hitamál
vestur í Kanada um þessar mundir.
Stytta
afKGB'
manni
+ Sovétmenn hafa reist
styttu til minningar um
einn helsta njósnara Sov-
étríkjanna, fyrr og síðar,
en hann hét Richard
Sorge. — Styttan var
afhjúpuð fyrir skömmu í
Baku, höfuðborg Sovét-
Azerbaijan. Þar var hann
á uppvaxtarárum sínum.
Sovétstjórnin hefur ekki
heiðrað aðra úr njósnaliði
sínu á svo veglegan hátt
enn sem komið er. Meðal
gesta sem viðstaddir voru
athöfnina, sem tengd var
minningarathöfn um sig-
urinn yfir innrásarliði
nazista, var fyrrum yfir-
maður KGB-leyniþjón-
ustunnar í þessu sovét-
lýðveldi. Richard Sorge,
sem var af þýsk-rússn-
esku foreldri starfaði sem
njósnari á sviði hernað-
arnjósna í Tokyo á árun-
um 1933 til 1941 og varð
mjög vel ágengt í að
safna uppl. um hernað-
aráætlanir Þjóðverja,
segir í fréttum af þessu.
Sorge var handtekinn af
japönskum leyniþjón-
ustumönnum og tekinn af
lífi.
Erkibiskupnum
var gefið svín
+ Erkibiskupinn af Kantaraborg, Robert Runcie biskup, fór
fyrir nokkru í heimsókn til Bandaríkjanna (frá því höfum við
sagt hér). Erkibiskupinn, sem stundar það m.a. í frístundum
sínum að rækja svín, heimsótti þá m.a. svínaræktarbónda
einn á ferð sinni um Iowa-fylki. Bóndinn gaf erkibiskupn-
um eitt svínanna í búi sínu, en þau eru af svonefndu
Berkshire-kyni. Þetta gladdi erkibiskupinn mjög, hann tók
svínið í fang sér og fréttaljósmyndararnir voru fljótir til.
Smávörur
í bílaútaerðina
09 feiðalasið!
-saek|um við i bensinstöðvar ESSO
Olíufélasið hf
Suóurlandsbraut 18
Vinnupallar
úr áli
og stáli
Húsbyggjendur og aörir
verktakar. Sparið timbur,
fé og fyrirhöfn, notið
vinnupalla úr áli eöa stáli.
Hentar vel fyrir úti og
innivinnu, hús,
skipasmíðastöðvar, virkj-
anir og aðrar stórfram-
kvæmdir. Ennfremur
bjóðum við stálundirstöð-
ur fyrir loftplötur og brú-
argerð.
Atlas hf
(.rofinni !. — Simi 2fi”.V>.
Póstholf I9:t. Rcykjavík.