Morgunblaðið - 16.05.1981, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MAÍ1981
Knötturinn þcnur út netmöskvana hjá Fram, eftir hörkuskalla Hákonar Gunnarssonar. Ljósm. Kristján.
n4 ^ jPMHÞ / <
IWÍ , 1!
Framarar sluppu naumlega
FRAMARAR sluppu sannarleKa
með skrekkinn i 1. deild Is-
landsmótsins i knattspyrnu i
Kærkvöldi, er liðiö mætti UBK á
Melavellinum. var yfirspilað, en
slapp samt heim með annað
stÍKÍð. Lokatölur urðu 1—1 ok er
fjarri þvi að þær tölur xefi
nokkra mynd af xangi leiksins.
SérstakleKa i siðari hálflciknum,
óðu Blikarnir inn ok út um vörn
Fram, marksúlurnar nötruðu,
markvörðurinn varði hvað eftir
annað, auk þess sem Blikarnir
brenndu nokkrum sinnum af
Kt’Wium færum. Er vissuleKa
ástæða til þess að biða með
óþreyju eftir að sjá lið UBK ieika
á Krasi. Læðist að sá Krunur að
þar verði liðið illstöðvandi.
Framarar fengu eitt færi í
leiknum, en nýttu það ekki, Guð-
mundur Blikamarkvörður varði
skalla nafna síns Torfasonar. Hins
vegar skoraði Pétur Ormslev beint
úr hornspyrnu á 22. mínútu og
náði vægast sagt óvænt forystu
fyrir Fram. Vindurinn kom í veg
fyrir að Blikarnir jöfnuðu í fyrri
hálfleik, Guðmundur Baldursson
hálfvarði þrumuskot Jóhanns
Grétarssonar, knötturinn skopp-
aði að markinu, en vindurinn varð
þess valdandi að Guðmundur náði
honum aftur í tæka tíð.
Hákon Gunnarsson skallaði
glæsilega i netið hjá Fram á 52.
mínútu eftir hornspyrnu og eftir
það fór allt í gang. Guðmundur
markvörður sló skalla Helga
Bentssonar í stöng, Hákon átti
þrumuskot í þverslá, annað
þrumuskot sem Guðmundur varði.
Markvörðurinn hélt síðan ekki
hárri fyrirgjöf og Jón Einarsson
potaði knettinum fram hjá opnu
markinu og þannig mætti lengi
telja. í stuttu máli hafði UBK
umtalsverða yfirburði og lék liðið
oft stórgóða knattspyrnu. Fram-
arar hins vegar þungir og undir
lokin meira en ánægðir með annað
stigið. Það var meira en liðið átti
skilið.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild: UBK —
Fram 1—1 (0—1)
Mark Fram: Pétur Ormslev 22.
mín.
Mark UBK: Hákon Gunnarsson
52. mín.
Áminningar: Engin.
Dómari: Kjartan Ólafsson. —gg.
Svíar lágu
DANIR sigruðu Svía 2—1 i vin-
áttulandsleik i knattspyrnu sem
fram fór í Stokkhólmi i fyrra-
kvöld. Lars Bastrup og Preben
Eikjær skoruðu fyrir Dani, en
gamla kempan Bo Börjeson
minnkaði muninn fyrir Svia und-
ir lok leiksins.
Mikko Hame stigahæstur
í víðavangshlaupunum
MIKKO Hame, finnski hlaupar-
inn úr ÍR, varð hlutskarpastur i
keppni langhlaupara um sæmd-
arheitið víðavangshlaupari vetr-
arins. með því að hljóta flest stig
i stigakeppni vetrarhiaupa víða-
vangshlauparanna, sem víða-
vangshlaupanefnd FRÍ hleypti af
stokkunum á siðastliðnu hausti.
Mikko hlaut 145 stig af 150
möKulegum. en keppni var með
þvi sniði, að fyrir síkut i ákveðn-
um víðavangshlaupum i vetur
hlaut viðkomandi 15 stig, annar
maður hlaut 14 stig, og þannig
koll af kolli. Alls höfðu hlaupar-
arnir 14 hlaup til að spreyta sig i.
en tíu beztu hlaup þeirra reikn-
uðust með i stigakeppninni. í
samsvarandi keppni i kvenna-
flokki sigraði Guðrún Karlsdótt-
ir UBK, hlaut 120 stig í átta
hlaupum, eða fullt hús stÍKa. en
engin kona hljóp þó þau niu
hlaup sem voru tilskilin. í
drengjaflokki sÍKraði Einar Sig-
urðsson UBK, hlaut 123 stig.
I öðru sæti í stigakeppninni
varð félagi Mikkos úr IR, Ágúst
Ásgeirsson, sem hlaut 144 stig,
eða aðeins einu stigi minna en
Mikko, og enn einn ÍR-ingurinn
var skammt undan í þriðja sæti,
Gunnar Páll Jóakimsson, sem
hlaut 138 stig. Gunnar Páll vann
það afrek einn allra hlaupara, að
taka þátt í öllum vetrarhlaupun-
um 14, en Mikko og Ágúst hlupu
12 hlaup hvor. Ef stig úr öllum
hlaupum hefðu verið reiknuð
hefði, hefði Gunnar Páll verið
efstur með 190 stig, Mikko í öðru
sæti með 171 stig og Ágúst í þriðja
sæti með 168 stig.
Mikko sigraði oftast í vetrar-
hlaupunum, eða fimm sinnum,
Ágúst fjórum sinnum og Gunnar
Páll þrisvar'. Sigurður Pétur Sig-
mundsson, sem dvalið hefur í
Edinborg undanfarna vetur við
Mikko Háme með verðiaunin.
nám, kom heim í jólafrí, og sigraði
í tveimur hlaupanna þá.
Jafnan var talsverð spenna í
stigakeppninni allan veturinn í
gegn. Gunnar Páll hafði forystuna
framan af, en Mikko dró hann
uppi á miðjum vetri. Ágúst sótti
síðan í sig veðrið undir lokin, og
gat sigrað í keppninni, með því að
sigra í síðasta hlaupinu. Mikko
sýndi hörku í síðasta hlaupinu og
tryggi sér hins vegar sigur í
stigakeppninni. Hópur hlaupara
lauk a.m.k. 10 hlaupum, en hér á
eftir fer listi yfir stigahæstu
menn. Getið er fjölda hlaupa hjá
þeim, sem ekki luku 10 hlaupum:
KARLAR stÍK
1. Mikko Háme |R 145
2. ÁKÚst ÁNKeinwin ÍR 144
3. Gunnar P. Jóakimsson |R 138
4. MaKnus IlaraldsHon FIl 114
5. Kinar SÍKurðsson UBK 103
6. Óskar (>uómundsson FH(8) 83
7. Ciunnar Kristjánsson Á(9) 67
8. Gudmundur Gislason Á 67
9. Jóhann II. JóhannsHon lK(9) 66
10. Leiknir Jónsson Á 65
11. Stefán FriÓKeirsson ÍR(8) 60
KONUR stiic
1. Gudrún Karlsdóttir UBK (8) 120
2. Linda B. Loftsdóttir FII(6) 77
3. Herdis Karlsdóttir UBK(6) 71
i. Linda B. Uftsdóttir FII(6) 71
5. Ilrónn GuAmundsdóttir UBK(5) 69
6. Laufey Kristjánsdóttir HSI*(4) 57
DRENGIR stifc
1. Einar SiicurÓHson UBK 123
2. Gunnar BirKÍsson ÍR(9) 52
3. Johann Svoinsson UBK(4) 35
ÍBV og Þór leika
á grasvellinum
í DAG fer fram fyrsti leikurinn i
Vestmannaeyjum í 1. deildar-
keppninni i knattspyrnu. Heima-
menn fá Þór frá Akureyri i
heimsókn. Leikur liðanna fer
fram á grasvellinum við Helga-
fell. Þetta er fyrsti leikurinn sem
fram er á grasi i sumar i 1.
deildinni. Völlur þeirra Eyja-
manna kom nokkuð vel frá vetr-
inum og er i allgóðu ásigkomu-
lagi. Leikurinn hefst kl. 16.00.
Margir leikir á
dagskrá um helgina
ÞAÐ VERÐUR nóg að gera i
knattspyrnunni um helgina. Þrir
leikir fara fram i 1. deild, einn
meira að segja á grasi eins og
greint er frá i annarri smáfrétt
hér á siðunni. Hinir tveir fara
hins vegar fram á harðara
„KÓlfi“, eða á möi. Leikirnir fara
allir fram i dag, á Akureyri
mætast KA og ÍA klukkan 14.00
og á sama tima mætast á Mela-
vellinum Valur og KR.
Þá fara fram fimm leikir í 2.
deild áður en næsta íþróttasíða
skýtur upp kollinum. Fjórir fara
fram í dag. Haukar mæta Völs-
ungi á Hvaleyrarholtsvelli klukk-
an 14.00, ÍBK mætir Reykjavík-
urmeisturum Fylkis í Keflavík
klukkan 14.00, Skallagrímur mæt-
ir ÍBÍ í Borgarnesi klukkan 14.00,
en klukkan 15.00 mætast hins
vegar Þróttur og Selfoss á Nes-
kaupstað. Fimmti leikurinn fer
fram á mánudagskvöldið klukkan
20.00. Þá mætast á Melavellinum
lið Þróttar og Reynis.
1. deildar keppnin
í badminton
í DAG hefst 1. deildar-keppnin i
badminton. 6 lið taka þátt i
keppninni, þar af fjögur frá
TBR, 1 frá KR og 1 frá Akranesi.
Keppnin fer fram i TBR-húsinu
og hefst kl. 14.30.
Einkunnagjðfin
Lið Vikings:
Diðrik Ólafsson 6
Þórður Marelsson 5
Magnús Þorvaldsson 6
Helgi Helgason 5
Jóhannes Barðarson 5
Hörður Sigurðsson 5
Jóhann Þorvarðarson 4
Ómar Torfason 6
Lárus Guðmundsson 6
Aðalsteinn Aðalsteinsson 4
Heimir Karlsson 7
Ilafþór Helgason (vm) 7
Gunnlaugur Kristfinnsson (vm) 6
Lið FH:
Hreggviður Ágústsson 6
Magnús Stefánsson 5
Andrés Kristjánsson 5
Logi Ólafsson 5
Sigurþór Þórólfsson 5
Gunnar Bjarnason 5
Magnús Teitsson 6
Helgi Ragnarsson 4
Ásgeir Arnbjörnsson 4
Pálmi Jónsson 5
Tómas Pálsson 6
Viðar Ilalldórsson (vm) 6
Guðmundur Hilmarsson (vm) 5
Lið Fram:
Guðmundur Baldursson 6
Trausti Haraldsson 5
Hafþór Sveinjónsson 5
Marteinn Geirsson 6
Sverrir Einarsson 4
Sighvatur Bjarnason 6
Ágúst Hauksson 4
Halidór Arason 4
Gunnar Guðmundsson 4
Guðmundur Torfason 5
Pétur Ormslev 4
Ársæll Kristjánsson vm. 4
LiðUBK: .
Guðmundur Ásgeirsson 5
Tómas Tómasson 6
Uelgi Ilelgason 6
Ólafur Björnsson 7
Valdcmar Valdemarsson 7
Vignir Baldursson 6
Gísli Sigurðsson 5
Jóhann Grétarsson 7
Hákon Gunnarsson 7
Jón Einarsson 7
Ilelgi Bentsson 7
Sigurjón Kristjánsson vm. 5
Vaalerengen með
2 stiga forystu
VAALERENGEN hélt sinu striki
er fjórða umferðin i norsku
knattspyrnunni fór fram i fyrra-
kvöld. Liðið sigraði Hamarkam-
eraterne 2—1 i Hamar og hefur
þvi 2 stiga forystu i deiidinni.
Kristinn Björnsson gat ekki leik-
ið vegna fótbrots sem hann hlaut
nýlega eins og frá var greint i
Mbl. fyrir skömmu. En úrslit
leikja urðu sem hér segir:
Brann — Start 2—2
Bryne — Moss 0—0
Fredrikstad — Haugar 1—1
Hamkam — Vaalerengen 1—2
Lilleström — Viking 6—0
Lyn — Rosenborg 1—1
Óvæntustu úrslitin voru án
nokkurs vafa skellur Víkinganna
hans Tony Knapp, en ár og dagur
er síðan að Viking hefur fengið
aðra eins hýðingu. Vaalerengen
hefur 7 stig að fjórum umferðum
loknum, Lilleström, Moss, Ham-
kam, Rosenborg og Start hafa öll 5
stig. Viking hefur 4 stig, en önnur
félög þaðan af minna.
• Paal Jakobsen, lykilmaður
Vaalerengen.