Morgunblaðið - 16.08.1981, Page 1

Morgunblaðið - 16.08.1981, Page 1
Sunnudagur 16. ágúst Bls. 33—64 Þegar Lev Nikola- evitsj Tolstoj bað um hönd Sonju Behrs ár- ið 1862 var hann rösklega þrítugur að aldri og lífsreyndur maður. Hann hafði ferðazt vítt um, fylgzt með hernaðar- átökum í Krímstríð- inu og hafði skapað sér orð sem rithöf- undur — þótt enn ætti hann eftir að skrifa sín merkustu verk. Sonja var aftur á móti aðeins 18 ára, saklaus og óreynd. Hjónalíf þeirra sem stóð í 48 ár átti eftir að draga dám af þessu upphafi og hefði getað verið efni í skáldsögu eftir Tolstoj sjálfan. Anne Edwards hefur nýlega sent frá sér ævisögu Sonju Tolstoj, sem hún hef- ur byggt á bréfum og dagþókum, sem fram til þessa hafa hvergi birzt, og fleiri heim- ildum til að draga upp mynd af hjóna- bandi þeirra sem var sérkennilegt sam- bland ástríðu og innilegs kærleika og eitraðist síðar af af- brýði og hatri. Tolstoj kom til að heim- sækja fjölskyldu Sonju, Behrs-fjölskyíduna, í hvert skipti sem hann var í Moskvu, oft óvænt, en var jafnan velkominn gestur. Stundum kom hann síðdegis, í önnur skipti á kvöldin og hann eyddi jafnmikl- um tíma í að tala við börnin á heimilinu og foreldrana. Hann var mjög hrifinn af Behrs- börnunum og sagði, að þau hefðu i sér „neista" og auk þess iðandi lífsfjör og kæti. Þau sýndu honum öll ástúð og blíðu og löðuðu fram sams konar eigin- leika hjá honum. Tolstoj viðurkenndi fyrir vini sínum, að hann væri „tilbúinn" að kvænast og bætti við: „Ef Sonja væri 16 ára en ekki 14, myndi ég biðja hennar strax." Þegar þetta var grunaði engan í fjölskyldunni, að Tolstoj væri hrifinn af neinni dætranna. Hann var einfaldlega góður fjöl- skylduvinur, sem átti auðveldara með að ná tengslum við ungt fólk en margir á hans aldri. Árið 1858 var Sonja ung stúlka, draumlynd og óvenjulega falleg, með stór dökk augu og munnsvip sem vitnaði um heitar tilfinningar. Hún var auðvitað, þegar hér var komið sögu, bara barn og hegðaði sér samkvæmt því en Tolstoj hreifst æ meira af henni eftir því sem þau hittust oftar. Glaðværð sú sem var í öndvegi á Behrs-heimilinu var Tolstoj blátt áfram nauðsynleg. Konur skipuðu stóran sess í hugarheimi hans og þegar hann kom aftur til hins afskekkta seturs síns, Yasnaya Polyana, fylltist hann einmanakennd. Hann var sann- færður um að hann þyrfti á kvenmanni að halda, „ekki vegna tilfinninga, heldur hreinlega af heilsufarsástæðum", og hann tók upp samband við Axiniu Bazyk- ina, bóndastúlku, sem vann hjá honum, en eiginmaður hennar var þá í hernum. Axinia var „blátt áfram, hreinskiptin og ails ekki ólagleg, með stór skær augu og djúpa rödd, og hafði yfir sér ferskleika og fjör". Honum fannst flest í fari hennar vera aðlaðandi, og þó að honum fyndist það lítil- mótlegt að fleka hjú sitt til fylgilags við sig, var hann ekki nægilega sterkur til að standast freistinguna. Tókst nú með þeim ástarsamband og voru ýmsir felustaðir fundnir til að þetta spyrðist ekki út. „í dag úti í skógi. Ég er bjáni, ruddi. Dökkt hörund hennar og augu hennar. Ég er ástfangnari en ég hef nokkru sinni verið. Engin önnur hugsun kemst að hjá mér,“ skrifaði hann í dagbók sína 1858. Hann skrifaði að staðaldri í dagbók sína og fór þar ekki í felur með geðhrif sín og tilfinn- ingar. I júlí ól Axinia honum son, Timofei. Á nýársdag 1895 skrifar hann í dagbók sína: „Ég verð að gifta mig á þessu ári, ef ég ætla mér það á annað borð.“ En reyndar var það ekki fyrr en 1862, að hann bað um hönd Sonju, þá 34 ára gamall. Og bónorði hans var vel tekið. Sem nú Behrs-hjónin tóku beiðni hans játandi sam- stundis, átti Tolstoj í miklu sálarstríði. Átti hann að kvæn- ast henni, án þess að segja henni að hann væri ekki sá heilagi maður, sem hún taldi hann án efa vera. Átti hann að segja henni að hann hafði átt mök við ótal kvenmenn, að hann hefði í fjárhættuspili misst frá sér megnið af arfi sínum? Hann ákvað að hún YRÐI að vita allt. Til að vera nú alveg viss um að ekkert færi fram hjá henni, lét hann hana hafa dagbók sína til lestrar. Og morguninn eftir að hafa fengið jáyrði dr. Behrs, rétti hann Sonju bækurnar sem sögðu lífssögu hans. að virðist ekki hafa hvarflað að hinum vænt- anlega brúðguma hvaða áhrif þessi lesning myndi hafa á stúlkuna, 18 ára gamla. Um kvöldið fór Sonja til herbergja sinna að kvöldverði loknum og byrjaði að lesa. Hún var þrumu lostin. Hún vissi að vísu um spilafíkn hans, en nú viku áður en þau hugðust ganga í hjóna- band, uppgötvaði hún, að maður- inn sem hún elskaði, hafði haft mök við allar mögulegar kven- persónur, tatarastelpur og hór- ur, konur sem voru vinkonur móður hennar, meira að segja sín eigin hjú — og að hann hafði samvizkusamlega skráð allt hjá sér. Og meira að segja hafði eitt ævintýrið getið af sér barn! Þegar Tolstoj kom morguninn eftir tók Sonja á móti honum, ein. Það var ekki fyrr en hann sá grátbólgið andlit hennar, að honum skildist hvílíka regin- skyssu hann hafði gert. Og hversu mikla kvöld það hafði kostað hana að lesa um fortíð hans. Hann reyndi í fáti að útskýra fyrir henni, að hann hefði viljað að hún vissi allan sannleikann um sig, að honum hefði fundizt að milli þeirra mættu aldrei vera nein leynd- armál. Sem hann nú grátbað hana að sýna sér skilning, starði hann á hana í þvílíkri angist að vart verður með orðum lýst, enda var hann sannfærður um að hann hefði misst hana. Hún skynjaði kvöl hans og fylltist umhyggju í hans garð. „Það var kannski bezt þegar allt kemur til alls,“ sagði hún grátandi, „en það var hræðilegt, hræðilegt.” Fáeinum dögum áður en hjónavígslan fór fram, var húsið að fyllast af gestum og spenna og tilhlökkun lá í loftinu. Og eftir því sem fleiri og fleiri brúðargjafir voru sendar til Behrs-heimilisins, var næstum ekki þverfótað um gangana. Brúðguminn hafði keypt glæsi- legan svefnvagn, pantað mynda- töku af Sonju og látið taka mynd af sér og hafði gefið Sonju demantsdjásn. Þann 23. september, giftingar- daginn, kom Tolstoj óvænt snemma um morguninn. Hann var í miklu uppnámi og krafðist þess að fá að hitta Sonju. Þegar þjónarnir sögðu honum að það bryti í bága við alla siði, að brúðgumi fengi að sjá brúði sína fyrr en við altarið, ýtti hann þeim til hliðar og hraðaði sér til herbergis Sonju. Þessa nótt hafði hann legið andvaka og brotið heilann um það hvort það væri rétt af sér að kvænast þessari fallegu, full- komnu, saklausu stúlku og hann hafði komið til að segja henni, að enn hefði hún tíma ... það er enn hægt að hætta við þetta allt. Hann var hennar ekki verðugur. Samvizka hans bauð honum að benda henni á að endurskoða það skref sem hún var í þann veginn að stíga. Hún gat ekki elskað hann, ekki þegar hún vissi um allt það vonda og viðbjóðslega sem hann hafði gert, hún gat ekki elskað gamlan, ljótan ka.ll. Móðir Sonju. Lyubov Alex- andrövna, frétti af því að brúð- guminn hefði brotið allar hefðir og væri hjá brúði sinni. Hún hraðaði sér til herbergis hennar. Hún kom að dóttur sinni hágrát- andi. Tolstoj fór, en ekki fyrr en Sonja hafði fullvissað hann um, að hún iðraðist einskis og ætlaði engu að breyta. Vígslan átti að fara fram klukkan átta um kvöldið í Fæðingarkirkjunni. Klukkan sex byrjaði Tanja, syst- ir Sonju, og brúðarmeyjarnar að klæða brúðina i brúðarskartið, íburðarmikið og glæsilegt. Tanja, sem var eftirlætissystir Sonju, hjálpaði henni að setja upp hárið og slörið var síðan skreytt nýjum blómum. Kveikt var á kertum við íkon- ana í kirkjunni og kertaljósin endurköstuðu töfrandi birtu um kirkjuna hvar 300 gestir biðu komu brúðhjónanna! Eftir að Sonja og greifinn höfðu verið gefin saman, voru kórónurnar teknar af höfðum þeirra og presturinn óskaði þeim til hamingju og tók við kertun- um sem þau höfðu haldið á. SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.