Morgunblaðið - 16.08.1981, Blaðsíða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
ÁRLEGA er keppt um heimsmeistaratitilinn í Grand Prix Formúlu
1-kappakstri víöa í heiminum. í kappakstri sem þessum sameinast
gífurleg tækniþekking og reynsla þeirra ökumanna, sem hafa komist svo
langt aö taka þátt í honum. Blaðamaður Morgunblaösins var viöstaddur
HRAÐINN
Formúlu 1-kappakstur í Jarma á Spáni, sem er skammt frá Madrid, í lok
júnímánaöar. Hér á eftir fer í
grófum dráttum frásögn af því
sem þar var aö gerast.
Formúlu 1-kappakstur er sagö-
ur einn hættulegasti leikur, sem
maöurinn tekur þátt í. Hraðinn er
gífurlegur og fer jafnvel upp í
200—300 km/klst. og eykst hraö-
inn sífellt meö aukinni tækniþekk-
ingu. Segja kappakstursmenn, aö
miðaö viö þann hraöa, sem
hraöskreiðustu ökutækin í Form-
úlu 1-akstrinum ná, þá séu ekki til
brautir fyrir þann hraöa og eru
þeir mjög óánægöir meö þá
þróun mála.
Alþjóðaráð kappaksturs-
keppna hefur tekiö þaö ráö aö
banna svokallað „sliding skirt“
þetta keppnisáriö, sem leyfð voru
á bílunum í fyrra og geröi þeim
mögulegt aö aka hraöar sérstak-
lega í beygjum. Var þetta gert til
aö tryggja öryggi ökumannanna,
en kappaksturshetjurnar telja
þessa ráöstöfun skref afturábak,
því er ekki gott aö segja hvaö
verður á næsta ári.
Dæmi um
daudaslys
Enda þótt tækni og leikni sé
gífurleg, þá má lítið út af bera, svo
ekki verði stórslys jafnvel leiöa til
dauöa ökumannanna. Nokkur
dæmi eru um slíkt á undanförnum
árum. Skemmst er aö minnast
dauöa hins 35 ára gamla Patrick
Depailler. Á síöastliðnu ári varö
bilun í hjólabúnaöi bifreiöar hans í
keppni á Hochenheim-brautinni í
Vestur-Þýskalandi meö þeim af-
leiöingum aö bíll hans fór utan í
giröingu og Depailler lést skömmu
síðar vegna höfuömeiösla.
Brautin í iZVma
ein sú erfidasta
Formúlu 1-keppnin tekur 3 daga
hverju sinni. Fyrstu tvo dagana
það er aö segja föstudag og
laugardag fer tíminn í reynsluakst-
ur og athugun á búnaöi bílanna viö
þær aöstæöur, sem fyrir eru.
Brautin í Jarma þykir ein sú
erfiðasta sinnar tegundar, vegna
þess aö hún reynir mjög á líkam-
legt þrek ökumannanna. Hún er
tiltölulega stutt og bugðótt og geta
John Watson é fullri ferð.
ökumennirnir lítiö slappaö af á
beinum brautum. Auk þess hefur
hitinn, sem var mikill, áhrif á
aksturinn. Hitabylgja hefur gengiö
yfir Spán og annar eins hiti hefur
ekki verið þar í 40 ár.
Bestu tímarnir í reynsluakstrin-
um skera úr um þaö, hvaöa bílar
taka þátt í keppninni á sunnudeg-
inum. Aö þessu sinni voru það 30
bílar, sem kepptu en aöeins 24
bílar komast í úrslitakeppnina.
Einnig ráöa úrslit reynsluaksturs-
ins röö bílanna við ráslínu. Þaö
skiptir því miklu máli aö ná góöum
tíma og meiri möguleikar eru
halda forystunn; eö ekki‘'þarf
ZZ rara fram úr eins mörgum
bílum.
í reynsluakstrinum á föstudegin-
um varö Allan Jones (Williams
FW/7C) núverandi heimsmeistari
meö besta tímann. í ööru sæti
varö Carlos Reutermann (Williams
FW/7C) en hann er nú stigahæstur
þaö sem af er heimsmeistara-
keppninni í ár. Reutermann og
Jones eru í sama liði þaö er aö
segja TAG-Saudi-Leyland-liöinu,
sem er tvímælalaust sterkasta liöiö
í Formúlu 1-kappakstrinum í ár. í
þriöja sæti varö Jacques Laffite
Tafla yfir 11 stigaefstu kappakstursmennina í
heimsmeistarakeppninni í Formulu 1-kappakstri,
þaö sem af er keppni. stig
1. Carlos Reutermann 43
2. Nelson Piquet 35
3. Jaques Laffite 25
4. Allan Jones 24
5. Gilles Villeneuve 21
6. John Watson 20
7. Allan Prost 19
8. Riccardo Patrese 10
9. Eddie Cheever 10
10. Elio De Angelis 10
11. Hector Rebaque 10
Þegar er lokid 10 keppnum af 15, næsta keppni
verdur 16. ágúst í Austurríki.
(Talbot Ligier JS17), fjórði varö
Allan Prost (Renault RE30) og
fimmti John Watson (McLaren
MP4).
Á reynsluakstrinum á laugar-
deginum uröu þeir sömu aftur
efstir nema hvaö Laffite varö
fyrstur, Jones annar, Reutermann
þriöji, Watson fjóröi og fimmti varö
Prost.
Þaö var því nokkuö Ijóst hverjir
mundu blanda sér í efstu sætin í
aðalkeppninni á sunnudeginum,
en allt getur skeö í kappakstri.
Reglur brotnar
Eins og áöur segir eru Allan
Jones og Carlos Reutermann í
sama liöi, TAG-Saudi-Leyland-liö-
inu, þar sem Jones er fyrsti
ökumaöur en Reutermann er öku-
maður númer tvö. Þær reglur gilda
innan liöanna aö annar ökumaöur
á að aöstoöa fyrsta ökumann í
keppni til aö ná eins langt og
mögulegt er ef aöstæður bjóða
upp á slíkt og annar ökumaöur má
ekki keppa viö fyrsta ökumann í
sama liði eöa fara fram úr honum,
ef báðir eru fremstir. Því hefur þaö
komiö mjög á óvart í ár aö Carlos
Reutermann hefur brotiö þessar
reglur og þá um leiö þann samning
sem hann geröi viö liöiö í upphafi.
Nú er Reutermann stigahæstur í
heimsmeistarakeppninni og í
beinni samkeppni viö Allan Jones,
sem er fjórði og hefur þessi staöa
skapað ýmsa erfiöleika innan liös-
ins.
Blaöamaður Morgunblaðsins
raeðir viö heimsmeiatarann Allan
Jones. Ljósm. Mbl. Egill Ágústsaon.
Jaquos Laffite varö númer tvö á
Spáni, hann er þriðji í heims-
meistarakeppninni það sem af er
komið. Hór slappar hann af fyrir
keppni.
Carlos Reutermann, sem nú er
stigahæstur í heimsmeistara-
keppninni, er jafnan umkringdur
blaöamönnum sem spyrja um
keppnina milli hans og Allan
Jones. Ljósm. Mbl. Egill Ágústsson.
John Watson til hægri en hann varð
þriðji í Formúlu 1-kappakstrin”- j
Jarma á Spán* ~jj , ryr8fa 8æti á
-V.Vorstone á Bretlandi. Myndin var
tekin klukkutíma eftir sigur hans á
Spáni. Hjá honum situr fyrrverandi
heimsmeistari, James Hunt, en Hunt
keppti fyrir sama lið og Watson, það
er Marlboro McLaren-liðið, er hann
vann heimsmeistarakeppnina árið
1976. Ljósm. Mbl. Egill Ágústsson.
Blaöamaöur náöi tali af Carlos
Reutermann og spurði hann um
afstööu hans til umsagnar Allans
Jones þar sem Jones segist ekki
geta treyst Reutermann lengur
sem öðrum ökumanni.
„Þetta er alveg rétt hjá Jones,“
sagöi Reutermann, „hann ætti ekki
aö treysta mér. í Ríó þar sem
keppnin var á milli okkar tveggja
fór ég fram úr Jones, en áöur en
ég geröi þaö hugsaöi ég meö mér,
annaðhvort fer ég fram úr honum
núna eöa ég pakka saman mínu
dóti og held heim á búgaröinn
minn. Þetta var erfiö ákvöröun en
ég varö að taka hana. Ég hef verið
í Formúlu 1-kappakstri í 10 ár og
nú er annaö hvort aö hrökkva eöa
stökkva.“
Blaöamaöur náöi seinna tali af
Jones og bað hann aö segja álit
sitt á atburöinum í Ríó?
„Þetta atvik mun ekki endurtaka
sig,“ sagöi Jones, „því hef ég lofaö
sjálfum mér.“
Blaöamaöur spuröi Jones þá aö
því, hvort hann myndi ekki aö-
stoöa Reutermann í keppninni í ár
eins og Reutermann haföi hjálpaö
honum í fyrra?
„Þaö er andsk. ... vitleysa aö
Reutermann hafi hjálpaö mér því
ég var oft ergilegur yfir því hvaö
hann aöstoöaöi mig lítið."
Meö þessum oröum stikaöi
heimsmeistarinn í burtu.