Morgunblaðið - 16.08.1981, Page 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
HRAÐINN EYKSTSÍFELLT
art, James Hunt, sem báðir eru
hættir keppni, og John Watson,
sem sigraöi í keppninni í Silver-
stone þann 18. júlí síöastliöinn en
hann keppir fyrir Marlboro
McLaren-liðiö, og Carlos Reuter-
mann, aö það eru ekki þeningarnir
sem skipta sköpum. Heldur er það
hinn mikli áhugi, sem mennirnir
hafa á akstrinum sjálfum, keþpn-
inni, spennunni og þeim lífsstíl,
sem fylgir því að vera kaþþakst-
ursmaður. Áhuginn viröist sem-
sagt yfirskyggja hræðsluna og þá
áhættu, sem þessir menn setja sig
í á kappakstursþrautinni, ööruvísi
geta þeir ekki náö árangri, eins og
John Watson sagði.
Víkjum að sjálfri aðalkeppninni.
Þegar sunnudagurinn rann upp var
brennandi sólskin og hiti. Var
hitinn rúmar 40 gr. en komst uþþ í
50 gr. á brautinni. Hægt var aö
ímynda sér, hvernig ökumönnun-
um leið í sínum þröngu ökutækjum
í þykkum eldvarnarbúningum og
með hjálm á höfði. Segja má að
það jafngildi því að vera í þreföldu
föðurlandi að vera í slíkum akst-
ursbúningi. Áhorfendur þökkuöu
því Guði fyrir að geta haldiö sig í
skugga og geta drukkiö sitt vatn
eða vínglas.
Leiknir ökumenn
Jaques Laffite haföi haft besta
brautartímann, fór brautina á
13.754 sekúndum. Allan Jones
varð annar meö 14.024 sekúndur,
Reutermann þriöji með 14.342 og
John Watson meö 14.657 sekúnd-
ur. Næstir komu Allan Prost,
Giacomelli, Villeneuve, Andretti,
Piquet og svo koll af kolli.
Allt eru þetta mjög góðir öku-
menn. Villeneuve hafði til dæmis
unniö Monte Carlo-keþpnina hálf-
um mánuði áður, Mario Andretti
varð heimsmeistari árið 1978, og
Piquet er nú annar í heimsmeist-
arakeppninni.
„Heilinn klikkadi“
Merki var gefið og bílarnir þustu
af stað. Laffite fyrstur á Talbot
Lieger með Matra V 12-mótor.
Hann varð fyrir skakkaföllum strax
í upphafi og dróst því aöeins aftur
úr. Heimsmeistarinn Allan Jones á
Williams-bíl með Ford-mótor tók
þá forystuna og eftir 5 hringi var
hann fjórum sekúndum á undan
Reutermann, sem er á samskonar
bíl. En Laffite ætlaöi greinilega
ekki að láta erfiða byrjun eyði-
leggja fyrir sér og nálgaöist John
Watson á McLaren-bíl, sem er
með Cosworth DFV V8-mótor,
með auknum hraöa og komst fram
úr honum á 13. hringnum. Á 14.
hringnum geröist undrið, ekkert
sást til Allan Jones, sem hingað til
hafði haldið forystunni. Hann sagöi
eftir keþpnina: „Þaö var heilinn
sem klikkaöi. Þaö haföi verið skipt
um bremsukerfi í bílnum rétt fyrir
keppnina og það virkaöi ekki rétt.
Ég keyrði hratt í beygju og ætlaði
síðan að draga úr hraðanum meö
því að nota hemlana en hemlaöi of
fast þannig aö framhjólin læstust
föst, og bílinn stefndi beint áfram í
stað þess að beygja. Ég vissi af
þessari bilun og átti að haga
akstrinum eftir því.“
Jones hélt áfram kepþni og
barðist hetjulega til aö ná sinni
fyrri stöðu og komst í 7. sæti, en
þar við sat, því uþþ kom bilun í
gírkassa bifreiðar hans.
Sendiferöabíll eins og flytur öku-
tækin og tæknibúnað á miMi
aksturskeppna.
„Pytturinn" svokallaöi. Þar hafa
liðin bækistöö sína ó meðan ó
keppninni stendur.
Ljósm. Mbl. Egill Ágústsson.
Villeneuve á Ferrari, sem er með
Ferrari V6 túrbó-vél hafði verið í
sjöunda sæti á ráslínunni og var nú
kominn í fyrsta sætið og á hæla
honum kom Reutermann, Watson,
Laffite, Piquet, De Angelis, Andr-
etti, Mansell, Jones og Giacomelli.
Það gekk á ýmsu í keppninni.
Sjö ökumenn uröu aö hætta
keppni, fjórir vegna bilana, sem
upp komu í bílum þeirra, þrír
vegna þess að það urðu smáslys
hjá þeim, þeirra á meðal var
Piquet.
Villeneuve sigradi
Hér verður ekki allri keppninni
lýst heldur aðeins lyktum hennar.
Á 60. hringum var rööin þessi:
Villeneuve (Ferrari) var hyrstur,
annar var Laffite (Talbot Lieger)
þriðji Reutermann (Williams) og
John Watson (Marlboro McLaren)
fjórði og á eftir honum kom De
Angelis (Lotus). i þessari röð
hringsóluöu fyrstu bílarnir hring
eftir hring og beindist allur spenn-
ingurinn aö þeim. Allt í einu tókst
Það er lítið svigrúm í bílunum. Hér situr Alian Prost í fullum skrúða.
í hita leiksins.
John Watson (Marlboro McLaren)
aö skjótast fram úr Reutermann.
Laffite geröi líka tilraunir til aö
komast fram úr Villeneuve, hvattur
af samlöndum sínum, en án árang-
urs. Villeneuve tókst aö halda
forystunni.
Úrslitin í Jarma urðu því þau, aö
Villeneuve varð númer eitt á 46
mínútum 33,01 sek., Laffite númer
tvö á 46 mínútum 35,23 sekúnd-
um, John Watson númer þrjú, á 46
-
Nú bætum við síðum kjólum á útsöluna.
Glæsilegt úrval.
v. Laugalæk, sími 33755.