Morgunblaðið - 16.08.1981, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 16.08.1981, Qupperneq 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981 <^1980 Uni«»wl Prtu Synd'CQte (( SJ/VLFS ER HÖNP/N hollust." Ék kemst ekki út fyrr en eftir 10 mínútur. Ég á að IdK'd til sjáifur eftir mig? Með morgunkaffinu Ég sé ekki að þú getir verið dómbær um mitt ástand. la-knir. — Horfðu bara i spejíil! Fár bregður hinu betra, viti hann hið verra Bak verslunarhelgar keppast blöð við að lýsa skrílslátum ungs fólks á samkomustöðum úti í íslenskri náttúru. Hitt, sem vel er gert, liggur í láginni. Systur tvær, Anna 15 ára og Brynhildur 13 ára, fóru í útilegu með stöllum sínum hvor í sína átt. Báðar höfðu erindi sem erfiði, komu glaðar og hressar að helgi lokinni. Anna fór að Galtalæk. Á móts- stað fékk hún að inna af höndum einhver nytjastörf. Veitti það henni tvöfalda ánægju: lagði nokkuð sjálf af mörkum og minnkaði útgjöld hennar. Kom það í góða þágu, því að hvíti jakkinn hennar var víst heldur dýr miðað við sumarlaun. Hún sést ekki ætíð fyrir, séu falleg föt í boði. Brynhildur fór upp í Vatnaskóg. Fékk hún að róa út á vatnið og varúðar gætt í hvívetna. Síðustu nóttina í Vatnaskógi rigndi svo að illvært varð þeim stöllum í tjaldi sínu. Þeir Vatnaskógamenn hlupu undir bagga og skutu yfir þær skjólshúsi, þótt þröngt væri Svarf- aðardalurinn setinn. Þeir Vatnaskóga- og Galtalækj- armenn eiga miklar þakkir skild- ar. Kostnaði öllum var stillt í hóf, síður en svo að krakkarnir væru höfð að féþúfu. I Vatnaskógi var gestum öllum séð fyrir fæði við svo lágu verði að nesti að heiman hefði kostað sýnu meira. Sjálfur fór ég í þriggja daga ferð um Snæfellsnes. Einskis kynslóðabils gætti, börn frá for- skólaaldri til manna með heilan áratug ellilaunaaldurs að baki. Þótt obbinn væri íslendingar, voru þó fulltrúar þriggja erlendra þjóða með i förum. Ekki mátti milli sjá hvort nyti ferðarinnar betur, amman eða sonarsonur hennar 12 ára. Gist var tvær nætur í frábæru félagsheimili þeirra Helgfellinga. Standa þau þarna þrjú í hvirfingu, sístækk- andi samkvæmt kröfum tímans. Gengið var í fótspor Snorra goða upp á Helgafell. Engin launráð voru nú ráðin þar, en nýliðar báru fram í hljóði þessa einu ósk þegar upp var komið, enda höfðu þeir gætt þess dyggilega að líta ekki um öxl. Mikið liggur við, menn verða ekki bænheyrðir ef út af er brugðið. Af Helgafelli er dýrleg sýn yfir Þórsnes allt og langt út fyrir, vitandi af Þórsnesingum hinum fornu sitjandi að sumbli undir fótum sínum, en þeir dóu inn í fellið, eins og lesa má um í bókum. Ekki er úr vegi að glöggva sig á staðarnöfnum, óbreyttum frá því í öndverðu. Við rætur Helgafells sunnanvert er leiði Guðrúnar Ósvífursdóttur, hlaðið upp að vanda. Hefur svo verið eins lengi og elstu menn vita, kannski allar þessar tíu aldir. Póstbáturinn Baldur bar ferða- langa hratt út Hvammsfjarðar- röst, enda tvöfaldast ferð hans miðað við siglingu á kyrrsævi. Ofan af tindi Syðri-Dímonar- klakks mátti sjá spegilsléttan Ei- ríksvog við rætur klettsins. Baldur þessi er sá sjöundi, tvö hundruð tonn, Baldur fyrsti var 3 til 4 tonn, opinn róðrarbátur. I Berserkjahrauni var þræddur sá vegur er þeir bræður Halli og Leiknir ruddu yfir hraunið og allt að landamerkjagarði sem þeir hlóðu. Skyldi Halli hljóta að launum Ásdísi dóttur Víga-Styrs. Málum lyktaði samt svo að ráð- bani þeirra bræðra, Snorri goði, hlaut Ástríðar, en þeir bræður myrtir í baðinu heita og „kasaðir í dal þeim, er svá er djúpur, at engan hlut sér ór honum nema himin yfir sik; þat er við sjálfa götuna." Dysin er enn á sínum stað. Ferðafélagar gengu ofan í „dal þann djúpa" og gengu úr skugga um að Eyrbyggja skýrir rétt frá staðháttum öllum. (Á máli þeirra útvarpsmanna hefðu þeir Jön A. Gissurarson bræður „látist" að baði. Á dögun- um skýrði útvarpið frá að 70 manns hefði „látist" við Berlín- armúrinn.) Björn hinn fjölvísi Sigfússon hyggur að þeim berserkjum hafi verið búinn hvílustaður þannig að síður fengju þeir grandað Styr og Snorra með „hinu illa auga“. Reyndust þessi ráð Snorra hald- kvæm — eins og fleiri — að engin eftirmál fylgdu. Skotunum tveimur þótti fengur að sjá Hálfsterk við Stóralón og heyra söguna um hann, en með því að lyfta honum á stall fluttust strákar upp um nokkur launaþrep, hættu að vera hálfdrættingar og urðu fullgildir hásetar. Eitthvað áþekkt kunnu Skotar þessir úr sínum átthögum. í gamalli skólaskýrslu lýsir skólastjóri árshátíð í skóla sínum, en hún hafði tekist með ágætum: „Fannst ekki áfengislykt nema af tveimur." Ég er þess fullviss að ekki hefði fundist áfengislykt af einum, hvað þá tveimur, sem afbragð þótti í þeim merka skóla, þó eftir hefði verið hnusað. Þó kom hópurinn harðánægður heim, kannski vegna þess. Blaðamenn góðir. Gætuð þið ekki ritað meir um það sem gott er í fari unglinga, látið ósómann lönd og leið. Ekki veltast allir ungl- ingar blindfullir á hallærisplani. Hvorki neyta allir unglingar eit- urlyfja né heldur höndla með þau. Gamalt máltæki segir: „Það er illt að heita strákur og vera það ekki.“ Eða eru þið að fiska eftir stærra fyrirsagnaletri yfir næstu grein- ar? Jón Á. Gissurarson Um „Praxis“ og „klámhunda“: HÖGNI HREKKVÍSI „Siökkvið þið bara á útvarpinu“ Kæri Velvakandi! Við erum hér tvær sem langar til að fá birtar í Velvakanda nokkrar línur í sambandi við miðdegissöguna „Praxis". í Vel- vakanda þann sjöunda þessa mán- aðar var sett út á að klám fyrirfinnist í sögunni „Praxis". Við erum sammála því að það sé notað orðbragð í sögunni sem ekki getur talist „siðsamlegt". En hvað með það? I fyrrnefndri grein Velvakanda segir „klámhundar hafa alltaf verið til sem hafa gaman af þessu, en í útvarpi almenns hlustanda ...“ Við tvær lesum Vísi og önnur blöð daglega og höfum orðið varar við að t.d. eru birtar myndir af „sumarstúlkum Vísis" — ekki er hægt að segja að þær séu svo mjög siðsamlega klæddar allar miðað við að myndirnar af þeim birtast í dagblaði almenns lesanda. Eng- inn hefur hingað til kvartað yfir því í fjölmiðlunum. Ekki vitum við betur en að það sé reynt að raða niður efni í útvarpið svo að allir hafi gaman af einhverju í dagskránni. Er þá ekki jafn upplagt að svonefndir „klám- hundar" fái eitthvað að hlusta á einu sinni til tvisvar í viku eins og t.d. sinfóníuunnendur (þeir hljóta að vera fáir sem geta hlustað á sína þætti á næstum hverjum degi). Satt er það, að til eru þannig bækur og tímarit sem „klámhundar" geta haft sér til afþreyingar, — en það eru líka til plötur með sinfóníum. Ef einhver á svo bágt að hann vorkenni sjálfum sér ef hann getur ekki hlustað á alla útvarpsdagskrána og þurfi að kvarta í almenning út af því, þá teljum við slíkan mann sjálfselskan og eiginhagsmuna- segg. Við undirritaðar vinnum við ræstingu á elliheimilinu og hlust- um því oft á útvarpið, þar sem gamla fólkið hefur það oft opið — en syrpurnar eru satt að segja því miður oft það eina sem hlustandi er á. Hversu oft á dag haldið þið að við óskum þess að geta lokað eyrunum. Eilífar sinfóníur og dagskrárkynningar eru ekki fyrir okkar smekk, en hingað til höfum við ekki verið að kvarta út af þessu. Okkur finnst að fullorðið fólk ætti að geta virt það að hugsan- lega gætu aðrir en það haft gaman af að hlusta á þessa „klámhrjáðu" sögu „Praxis". Að lokum viljum við koma á framfæri til dagskrárstjóra að gjarnan mætti fækka sinfóníum og dagskrárkynningum í útvarp- inu en lengja í þess stað syrpurn- ar. Þær eru eiginlega það eina sem hlustandi er á og létta mörgum störfin. Við tvær og margir starfs- félagar okkar hafa reynslu af því. Við vonum innilega að þetta bréf birtist í Velvakanda því þeir sem við teljum í hópi sjálfselskra hafa áreiðanlega gott af því að lesa það. Og til ykkar sem eruð á móti sögum eins og „Praxis" — slökkvið þið bara á útvarpinu þegar slíkt efni er flutt. Það gerum við þegar okkur mislikar dagskráin og höfum ekki hingað til þurft að hlaupa kvartandi í fjölmiðla þess vegna. Tvær undir tvítugu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.