Morgunblaðið - 16.08.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981
61
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL 10—11
FRÁ MANUDEGI
"fr tt
Þessir hringdu . . .
Athugasemdir við bréf Jóns Kr.
Gunnarssonar
Kristín Eyfells hringdi og
vildi gera eftirfarandi athuga-
semdir við bréf Jóns Kr. Gunn-
'arssonar sem birtist í Velvak-
anda 14. þ.m. „Mér kom orðalag
Jóns í upphafi bréfsins mjög
spánskt fyrir sjónir en þar segir
hann, „Einhver Edda Bjarna-
dóttir finnur sig knúða að vera
með vangaveltur um örlög há-
hyrninga ..sagði Kristín. „Ég
tel að Jóni ætti að vera full
kunnugt um hver Edda er og sé
þetta því ekki annað en skens af
hans hálfu. En ef hann veit það
ekki, þá get ég upplýst hann um
að Edda er ein af forvígis-
mönnum í samtökunum Skuld er
berjast fyrir hvalavernd og hún
er eiginkonar Harðar ólafsson-
ar, sem er lögfræðingur Green-
peace-manna hér.
Ég bið Velvakanda fyrir þenn-
an pistil vegna þess að þau
hjónin fóru nýlega til skammrar
dvalar erlendis og getur Edda
því ekki svarað fyrir sig að svo
stöddu. Hún mun væntanlega
gefa Jóni viðeigandi svör þegar
hún kemur til landsins aftur.
Fyrir mitt leyti finnst mér bréf
Jóns andstyggilegt. Ekki hef ég
verið orðuð við hvalfriðun og
stend fyrir utan öll félagssamtök
í því máii, en að undanförnu hef
ég dálítið kynnt mér hvernig
hvalveiðar ganga fyrir sig og
ofbýður mér það alveg. Ég skil
ekki hvernig nokkur maður fær
sig til a bera í bætifláka fyrir
slíkt."
Þakkir til Frið-
riku fyrir bréf
um „Praxis“
3213—9728 hringdi og þakk-
aði Friðriku Guðmundsdóttur
fyrir bréf sem hún skrifaði um
útvarpssöguna „Praxis" í Vel-
vakanda 14. þ.m. „Ég er fyllilega
sammála því sem Friðrika segir
í bréfinu og skil ekki hvernig
forráðamönnum útvarps dettur í
hug að láta lesa svona óþverra-
sögu. Aumingja stúlkunni sem
þýðir þetta og les vorkenni ég af
heilum hug, því fyrir mér ber
það órækt vitni um brenglað
sálarástand. Mér er sagt að hún
sé barnakennari að atvinnu og
það þykir mér miður, því ég held
að börnin sæki varla neitt gott
til hennar. Ég vil svo þakka
Friðriku fyrir gott bréf — það er
nauðsynlegt að einhver taki til
máls, en allt of margir hafa setið
þegjandi undir óþverranum."
„Praxis“ góð
saga, vel þýdd
og vel lesin
Rannveig hringdi og kvaðst
vera alveg agndofa yfir þeirri
óánægju sem sumir útvarps-
hlustendur hefðu látið í Ijós með
útvarpssöguna „Praxis". „Það
eina sem ég er óánægð með er að
hún skyldi vera lesin á þessum
tíma, því fyrir bragðið missti ég
af nokkrum lestrum. Ég er
öryrki og þess vegna mikið
heima við og það koma margir
að heimsækja mig. Allt það fólk
hefur lýst ánægju sinni með
þessa sögu og hafði gaman af að
heyra hana lesna. Þá langar mig
til að þakka Dagnýju Kristjáns-
dóttur fyrir lesturinn. Hún les
að mínu mati alveg sérstaklega
vel, og þó ég hafi ekki haft
tækifæri til að skoða bókina held
ég að ég geti fullyrt að hún muni
vera alveg sérstaklega vei þýdd.
Ég vil svo að lokum þakka
Dagnýju fyrir framtakið — að
þýða þessa bók og 1»-' ’nana
fyrir <*V»; \ utvarpi.“
Pabbi! Komum á berjamó
Hljóðlega og markvisst hefur
náttúran unnið að kappi. — Miklu
verki þarf að ljúka af fyrir vetur.
Við höfum séð berjavísana
stækka og grænka og taka á sig
dökkan lit. Langt er síðan við
fórum að taka eftir bláa litnum á
driti fugla. — Farfuglarnir eru
farnir að hlaða sig upp af vítamín-
um fyrir ferðina löngu og ströngu.
Og refirnir, sem haldið var að
lifðu á veiðum og dýrahræum,
voru sestir að krásunum, því að í
tvo mánuði á haustin eru berin
þeirra aðalfæða og í einn mánuð á
vorin, þegar þau koma undan snjó,
en þetta hafa rannsóknir á refum
á Ströndum leitt í ljós.
Við mennirnir kunnum líka að
meta þessar gjafir. Og að fara á
berjamó hefur um langan aldur
verið fjölskylduhátíð hjá okkur
íslendingum, og hver man ekki
sjálfan sig sem barn leggjast
þreytt og sælt til svefns með
dansandi berin fyrir augunum.
Ólíkt fuglum og refum getum
við geymt berin til vetrarins, sem
saft eða sultu og einnig fryst þau.
Berjahratinu skulum við ekki
henda á haug, því að þó örfáum
takist að koma sér upp kríuvarpi
og nokkrum með elju og þraut-
seigju að koma sér upp æðarvarpi,
geta aliir komið sér uppi berja-
Þessa skemmtilegu teikningu sendi Sigurður Velvakanda með bréfinu
en hún er eftir hann sjálfan.
0^ SIG6A V/QGA g iiLVtmt
ijfjji KARNABÆR
W Glæsibæ — Laugavegi 66 M Austurstræti ii.
Þessi
föt
— og ýmis önnur
getur þú fengiö meö 15%
afslætti
aöeins
út þennan mánuö
PANELKROSSVIÐUR: Nokkrar fallegar geröir
voru aö koma frá Hollandi.
SAIMA-PARKET: Nýja birkiparketið frá Finnlandi,
mjög sérstætt og fallegt.
FANERAMI: Furugólf frá Svíþjóö, tvær geröir.
MIFA: Pílárar og tilheyrandi efni í stigahandrið.
PRINT: Harðplastið viöurkennda í miklu litaúrvali.
Vinsamlegast komiö og kynnið ykkur ofanritaðar
vörur ásamt mörgu fleiru sem viö bjóðum í verslun
okkar.
PALL ÞORGEIRSSON & CO
Ármúla 27 — Símar 34000 og 86100.
lyngi.
Við pressum berin, setjum saft-
ina á flöskur, en berjahratið í
poka, sem við förum svo með við
fyrsta tækifæri út um landið
okkar og dreifum því, þar sem sér
í mold innan um grjótið. Eða þá að
við förum upp á eitthvert uppblás-
ið holtið, sem tekur með þakklæti
við fræjunum úr hendi okkar og
skrýðist með árunum grænni
lyngkápu, mönnum og dýrum lofts
og láðs til augnayndis og nytja.
Berin eru öllum jákvæð — jákvæð
eins og sólin.
I Sigurður Þorkelsson
Vó GLUQM LOtKíP'
tymú/iwMmt vú
6ITöR EKK/ vm%r<
UE/NM^ YÍ/bKOm^]
AV VIÉKÍ<\U /&r
QóvfAW! N
mNTíNK/WU-
^waNuf \imi e$
V/KlR ^oi Á bÖLU
^ÍT5ÍÖ66MN/
VÁ L\T0VÍ V/y
^SSbl Á\u Á*
bOLObWTTb
N/Z^AQKA