Morgunblaðið - 16.08.1981, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.08.1981, Qupperneq 30
02 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1981 Ileim aö Hólum Undanfarna áratugi hef- ur tíökast að halda hátíð að Hólum um 17. helgi sumars. Hátíðahöld þessi hófust þegar verið var að safna fé til þess að reisa turn þann sem nú stendur við Hóla- dómkirkju, minnisvarðann um Jón biskup Arason. Minnisvarðinn var vígður 7. nóvember 1950. Undanfarin ár hefur Hólafélagið haft veg og vanda að hátíðahaldi að Hólum, en félagið var stofn- að í ágústmánuði 1964. Formaður þess er séra Arni Sigurðsson. Hlutverk fé- iagsins er að vinna að efl- ingu Hólastaðar á sem víð- tækustu sviði. Höfuðáhersla skal lögð á endurreisn bisk- upsstóls að Hólum, en stóll- inn var lagður niður árið 1801. Ennfremur keppir fé- lagið að því að reistur verið kristilegur skóli á staðnum með það aðalmarkmið að efla þjóðræk'ni. íslensk fræöi, félagsþroska og kristilegt uppeldi. Skóla- hugmynd þessi fékk byr undir báða vængi þegar Guðrún Þ. Björnsdóttir frá Veðramóti stofnaði sjóð í þesu skyni árið 1969. Ekki hillir þó enn undir byggingu þessa skóla, en Hólafélagið hefur undanfarin sumur staðið fyrir starfrækslu leikmannaskóla að Hólum fyrir ýmsa starfsmenn kirkjunnar úr röðum leik- manna. Hefur þessu skóla- haldi verið sýndur mikill áhugi. Biskupsstóll að Hólum Hiklaust má telja Hóla höfuðstað Norðurlands allt frá því að Jón biskup Ög- mundsson settist þar að sem fyrsti biskup Hólastift- is 1106 og allt þar til stóllinn var lagður niður sem fyrr segir 1801. Þegar í tíð Jóns biskups Ögmunds- sonar var settur á stofn skóli að Hólum og er haft fyrir satt, að hann hafi í engu til sparað að reka skólann með reisn og fá til hans sem hæfasta kennara frá útlöndum, þar eð fárra eða engra var völ heima. Skólinn var mikið sóttur og vekur athygli að konur sóttu einnig til hans. Er einnar sérstaklega getið, Ingunnar Arnórsdóttur af Ásbirningaætt. Hún varð svo vel að sér í latínu, að hún kenndi hana mörgum. Fræg er einnig sagan af Þóroddi Gamalíelssyni dómkirkjusmið, er lærði latínu við að heyra hana kennda klerkum og varð hann hinn mesti íþrótta- maður í þeirri list. Ekki er hægt að telja alla þá merku biskupa sem stól- inn hafa setið, en fáir munu hafa markað dýpri og var- anlegri spor með setu sinni þar en Guðbrandur biskup Þorláksson. Prentsmiðja hans og bókaútgáfa henni tengd er einstætt menning- arafrek og ber þar að sjálf- sögðu hæst útgáfa Biblíu þeirrar sem við hann er kennd og kom út árið 1584. Má telja einstætt að fámenn eyþjóð skuli eignast alla Biblíuna á eigin tungu með svo veglegum hætti þetta skömmu eftir siðbót. Auk hins trúarlega gildis sem þetta hefur haft hefur þessi útgáfa vegið þungt þegar um er að ræða varðveislu tungunnar. Kirkjuþing samþykkti ár- ið 1964 að landinu skyldi skipt í þrjú biskupsdæmi og er þá gert ráð fyrir að biskup yfir Norðurlandi sitji á Hólum. Enn er allt óráðið um lyktir þessarar hugmyndar, en hitt er víst að fyrr eða síðar fá norð- lendingar sinn biskup að nýju enda hefur sú skipan mála verið áréttuð með áliti starfsháttanefndar Þjóð- kirkjunnar. Ekki er vafi á að það yrði Hólum mikil lyftistöng að fá biskup að staðnum. Hólahátíð Eitt aðalmarkmið Hólafé- lagsins allt frá stofnun þess hefur verið að standa fyrir árlegum Hóladegi í 17. viku sumars, svo sem fyrr var getið. í sambandi við árlega Hólahátíð hefur hátíðar- guðsþjónusta farið fram í dómkirkjunni og hátíðar- samkoma að lokinni guðs- þjónustu. Hafa kirkjukórar víða að af Norðurlandi ann- ast kirkjusöng, ásamt lista- mönnum er sungið hafa við samkomuna eða flutt tón- verk og andleg ljóð. Erindi hafa jafnan verið flutt um hin margvíslegustu kirkju- leg efni. Hóladagurinn hefur jafn- an verið fjölsóttur hvað- anæva að af landinu. Að þessu sinni er Hóla- hátíðin haldin í dag, 16. ágúst. Hátíðin hefst með guðsþjónustu í dómkirkj- unni, þar sem biskup ís- lands hr. Sigurbjörn Ein- arsson predikar, og prófast- ur þeirra Skagfirðinga, séra Gunnar Gíslason í Glaum- bæ þjónar fyrir altari ásamt staðarpresti, séra Sighvati B. Emilssyni, séra Bolla Gústavssyni í Laufási og séra Hjálmari Jónssyni á Sauðárkróki. Kirkjukórinn á Sauðárkróki syngur, undir stjórn Jóns Björnssonar. Við guðsþjónustuna verður flutt stólvers eftir Eyþór Stefánsson. Á hátíðarsamkomunni síðar um daginn flytur Jón- as Þórisson kristniboði há- tíðarræðu í tilefni kristni- boðsárs, en ávörp flytja þeir séra Árni Sigurðsson for- maður Hólafélagsins og séra Pétur Sigurgeirsson, auk annarra dagskrárliða. Sérstök hátíðasamkoma verður fyrir börn. Heim að Hólum Uppbygging Hólastaðar sem kirkjulegrar miðstöðv- ar fyrir Norðurland bíður framtíðarinnar. Þar er fyrir menntasetur fyrir bændur. Þess er að vænta að reisn staðarins eigi enn eftir að vaxa og er það ekki aðeins hlutverk norðlendinga einna heldur ógoldin skuld þjóðarinnar allrar við þá sem héldu uppi reisn stað- arins fyrr á öldum og veittu þaðan straumum trúar og lærdóms til þjóðarinnar allrar. Fjdrsjóður Guðspjöllin í dag fjalla m.a. um fjársjóð og um ráðsmennsku. Jesús talaði oft um það, að við ættum að gæta vel þeirra gæða sem við höfum hlotið úr hendi Guðs. Líf okkar og öll gæði lífsins er nokkuð sem við þiggjum sem gjöf frá skaparanum eilífa, gjöf sem okkur ber að ávaxta og gæta. Því miður vantar mikið á, að við mannanna börn höfum gætt gjafa Guðs eins og ber. Mengun í náttúru og í mannlífi ber þess glögg merki, að margt hefur farið úrskeiðis, Það verður því aldrei of oft ítrekað og prédikað, að við tökum okkur á í þessum efnurn. En þegar Jesús talar um fjársjóð í texa dagsins, þá á hann við meira en þau gæði sem við hljótum hér og nú. Hann á við fjársjóð sem skiptir máli í lífi og dauða. I því sambandi segir hann: „Þar sem hjarta þitt er, þar mun og hjarta þitt vera.“ Spurningin er því, hvað viljum við gera að fjársjóði lífs okkar? Hvað er þess virði, að það geti staðið undir nafni? — Sumir eiga ef til vill auðvelt með að svara þessu. Nefna þá gjarnan atvinnu, fjölskyldu, holl og góð áhugamál og annað eftir því. Þetta allt er að sjálfsögðu mjög gott og þess virði að tala um það sem fjársjóð. — En Jesús Kristur hafði ákveðið svar við þessari spurningu, sem enn er í gildi: „Safnið yður fjársjóðum á himni"! Að eiga fjársjóð á himni er að eiga trú á Guð og þann sem hann sendi, Jesúm Krist. Sá, sem á lifandi trú á Guð, hann hefur eignast markmið í lífinu, hjarta hans þráir að slá í takt við hjarta Guðs. Hann hefur eignast fjársjóð sem er dýrmætari en allt í þessu lífi. Það var ekki út í hött að Jesús sagði: „Eitt er nauðsynlegt." Þrátt fyrir allt gott, nytsamlegt og nauðsynlegt, þá er aðeins eitt sem skiptir máli þegar allt kemur til alls, samfélagið við Guð. Guðssamfélagið er æðst, best og nauðsynlegast hverjum manni. Maðurinn er skapaður til samfélags við Guð og fyrr hefur hann ekki öðlast fjársjóðinn eina. Fjársjóður himinsins er svo ríkur af gæðum, að hann nægir okkur alít lífið hér á jörðu og í hinu eilífa ríki Guðs. Biblíulestur vikuna 16.—22. ágúst Sunnudagur 16. ágúst Lúk. 16,1—9 Mánudagur 17. ágúst I. Kor. 10, 1-13 Þriðjudagur 18. ágúst Lúk. 12, 32-48 Miðvikudagur 19. ágúst II. Tím. 4, 5-8 Fimmtudagur 20. ágúst Lúk. 16,10-17 Föstudagur 21. ágúst I. Tím. 1,12-17 Laugardagur 22. ágúst I. Mós. 41,1-43

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.