Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981
Hluti þátttakenda talinn frá
vinstri: Hreggviður Jónsson,
formaður SKI, Brynja ólafs-
dóttir, EkíII RoKnvaldsson,
Garðar Sigurðsson. Guð-
mundur Kristjánsson. Rann-
veÍK Heljíadóttir, Einar
Ólafsson, Sigurlaug Guð-
jónsdóttir. María Jóhanns-
dóttir ok þjálfari SKÍ, Björn
Þór Ólafsson.
Á—
skíðum
í Siglufjarðarskarði
/
-jr.
Guðrún Ólöf Pálsdóttir. Islandsmeistari í gön«u kvenna 1981, bæði Magnús Eiríksson á fullri ferð, en hann er íslandsmeistari karla I
í 5 km og 7,5 km, en eiginmaður hennar er Magnús Eiríksson. 15 og 30 km og Bikarmeistari SKÍ 1981.
yps." * *■ , u m ~ / ■** ~ «
Eftir haðið
Sunnuplan. en þaðan eiga margir góðar minningar frá síldarárunum.
í hugum margra er Siglufjörð-
ur tengdur síldinni og skíðum.
Nú fyrir verzlunarmannahelgina
var fríður hópur kominn þangað
til að taka þátt í skíðagöngu í
æfingabúðum Skíðasambands
íslands. Dvaldi hópurinn að
Hóli, þar sem Siglfirðingar hafa
komið upp myndarlegri íþrótta-
miðstöð með gistirými, en var í
fæði á Hótel Höfn. Það er svo, að
á þessum árstíma skyldu menn
halda að frekar væri von síldar
til Siglufjarðar en skíðafólks. Nú
er öldin önnur, ekki finnst þar
sporður af síld á einu einasta
plani, sem áður voru iðandi af
mannlífi og fjöri á sumrum,
enda flest horfin eða að hverfa.
En fram á Hóli er því meira líf í
tuskunum, enda margir knáir
kappar, sem iða í skinninu eftir
að komast á skíði í blíðu og hita
uppi í Skarði, sem er ekki nema
rúmlega þriggja km akstur frá
Hóli, í kringum átta hundruð
metra hæð. Þjálfari SKÍ, Björn
Þór Ólafsson, stjórnar liðinu af
festu og skiptir hverjum degi í
tvær annir og er farið á skíði í
þeirri síðari, en brautin lögð með
troðara, svo færi er hörku gott. í
hinni fyrri er gengið á fjöll eða
gerðar ýmsar tækniæfingar og
farið yfir æfingaáætlun ársins. I
Skarðinu er nú minni fönn en
vanalega á þessum árstíma, en
ekki kemur það að sök fyrir
skíðagöngu, þegar hægt er að
leggja braut með troðara og væri
möguleiki að æfa þarna allt árið,
ef menn hefðu hug á slíku. Það
er kæti í mönnum, þegar þeir
stíga á skíðin, léttklæddir, og
bruna áfram eftir snjóbreiðunni,
svo í fljótu bragði mætti ætla, að
gengið væri á ljósum sandi á
einhverri sólarströndinni þarna
úti í heimi, fremur en í fjalla-
skarði á norðurhjara veraldar.
Þjálfarinn tekur hvern þátttak-
anda og leiðbeinir honum með
tækni og svitinn drýpur af
hverjum og einum í hitamókinu.
Hér sannast, að einn dagur á
skíðum hér til fjalla er eins og
vika á sólarströnd. Um kvöldið
eru sumir sólbrunnir og rauðir
sem karfar, en það gerir ekkert
til. Æft er af kappi og milli
æfinga er jafnvel farið í Hólsá, í
stað þess að fara í bað í sundlaug
staðarins, en kalt er það. Greini-
legt er, að sumir skíðamannanna
hafa æft vel í sumar og stefna á
að vinna frekari afrek, enda HM
í Ósló í febrúar næstkomandi og
aðeins rúm tvö ár í næstu
Ólympíuleika, svo ekki er ráð
nema í tíma sé tekið.
Hreggviður Jónsson