Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.08.1981, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 Samgöngumálin og Akraneshöfn Eftir Karl Benediktsson Það er margur ör á annarra fé. Þess fær Akraneshöfn að gjalda. Árið 1974 kom hingað til Akraness m/s Akraborg, talin eign Skalla- gríms hf., 681 tonn að stærð, 8 ára gömul, er skyldi leysa af hólmi 300 tonna skip með sama nafni eftir 16 ára farsæla þjónustu. Það kom i fljótt í ljós að á þessu skipi myndi verða mikið tap þrátt fyrir mikinn ríkisstyrk. Þess vegna var sest á rökstóla og rætt um leiðir til að bæta reksturinn. Árið 1975 var byggð hér hin svokallaða ferjubryggja fyrir um 100 milljónir króna svo bílar gætu ekið að og frá borði, og aðstaða í Reykjavík fyrir um 17—20 millj. kr. að sagt var. í framkvæmdirnar hér á Akranesi lét hafnarsjóður milli 25—30 millj. kr. og þótti flestum nóg, en þar með var hafnarsjóður ekki laus. Þá kom til kasta eins af alþing- ismönnum kjördæmisins, sem þá fór með ráðuneyti samgöngumála, sem breytti gjaldskrá hafnarinnar á þann veg að ekki mætti taka vörugjöld af vörum sem fluttar væru með ferjuskipum og stór- skerti þar með einn aðaltekjustofn hafnarinnar í vöru- og skipagjöld- um. Þessi aðferð átti að örva vöru- bílaeigendur til að fara með skip- inu eins og líka varð raunin. Það hefur farið ört vaxandi og aldrei meira en nú sl. tvö ár. Þessar myndir sem hér fylgja voru teknar nú fyrir stuttu, þær tala sínu máli og sýna það sem er svo að segja daglega fyrir augum Akurnesinga. Þá var flutt ein stærsta sendingin, um 100 tonn af frystum loðnuhrognum til afskip- unar í Hafnarfirði. Um sama leyti voru flutt á nokkrum dögum nærri 400 tonn af skreið nú um miðjan ágúst, rúm- lega 100 tonn til afskipunar í m/s Hvalvík í Hafnarfirði og fleiri hafna sem fá þá trúlega vöru- gjöldin sem Akraneshöfn missir við afskipun. Árið 1980 var fluttur mikill meirihluti allra sjávarafurða, að undanskildum freðfiski og fisk- mjöli, sem hefur þó verið flutt í verulegum mæli til Reykjavíkur. Þá hafa verið fluttar hér um höfnina alls slags vörur og tæki í stórum stíl til og frá ýmsum stöðum út um land svo sem áburður, járn og timbur og alls slags byggingarvörur sem þúsund- um tonna skiptir. Á því sem hér hefur verið sagt geta menn séð hvað alvarlegt mál er hér á ferðinni fyrir höfnina. Ég efast um að ráðherra og og alþingismaður kjördæmisins, sem þá var, ásamt þeim mönnum sem að þessari dæmalausu aðferð stóðu, hafi gert sér grein fyrir þeim afleiðingum sem þessi aðferð gæti haft fyrir Akraneshöfn sem nú hefur komið í ljós með stórtapi í vöru- og skipagjöldum. Þegar að er gáð virðist ráðherra hafa hugsað meira um ríkiskass- ann enda honum kunnugri en hafnarsjóði Akraneshafnar. Það er ekki hægt að segja að stórmannlega hafi verið að verki staðið að ráðast svo harkalega að einu byggðarlagi sem hefur, sök- um legu sinnar gagnvart samgöngumálum þjóðarinnar, verið gert að láta af hendi jafnvel milljóna tugi til styrktar vonlaus- um rekstri. Á þessu ári eru liðin 50 ár frá því byrjað var á hafnarfram- kvæmdum hér á Akranesi og bíða mörg aðkallandi verkefni. Má þar nefna aðstöðu fyrir smábáta, dýpkun innan bátabryggju vegna stækkandi skipa og fleira, ásamt viðhaldi sem er í lágmarki svo ekki sé meira sagt sökum fjár- skorts. Veitir þess vegna ekki af þeim tekjum sem höfnin með réttu á, hefðu þær ekki með vanhugsuð- um aðgerðum verið af henni tekn- ar. Þessi vinnubrögð og aðfarir „Á þessu ári eru liðin 50 ár frá því byrjað var á hafnar- framkvæmdum hér á Akranesi og bíða mörg aðkallandi verk- efni, má þar nefna aðstöðu fyrir smá- báta, dýpkun innan bátabryggju vegna stækkandi skipa og fleira, ásamt viðhaldi, sem er í lágmarki, að ekki sé meira sagt, sökum fjárskorts. Veitir þess vegna ekki af þeim tekjum, sem höfnin með réttu á og hafa með vanhugsuð- um aðgerðum verið af henni teknar.44 hafa bæjaryfirvöld lagt blessun sína yfir þó merkilegt sé og telja að Akurnesingar megi vel við una, þar sem þeir losna við afgreiðslu skipa að miklu leyti sem skapaði áður drjúgar tekjur til handa verkamönnum, en fá í staðinn einhverja dýrustu þjónustu sem þekkist hér á landi, þar sem kostar 5500 gkr. farið Akranes— Reykjavík, 11 sjómílur eða 550 gkr. á sjómílu svo dæmi sé nefnt. En af hádekki Akraborgar við ferjubryggju geta menn virt fyrir sér viðlegupláss flutningaskipa, þar sem áður mátti sjá mikið athafnalíf við afgreiðslu flutn- ingaskipa, oft fleiri en eitt í einu. En nú vegna áðurnefndra aðgerða er höfnin sem eyðimörk dögum eða jafnvel vikum saman, með stórskemmdan sjóvarnargarð Karl Benediktsson. hennar í baksýn. Mun kosta mikið fé að bæta hana. Er þegar unnið að því vegna öryggis fyrir fiski- skip sem í höfnina koma, þar á meðal Akraborg, til að hún geti athafnað sig meðal annars við þá iðju sem áður getur. Skyldi mönnum ekki þykja vel að málum unnið frá hendi ráðamanna bæj- arins? Það er mikil ábyrgð sem hvílir á þeim mönnum sem komast í þá aðstöðu að geta beitt valdi sínu. Þá veltur á miklu að horft sé lengra en til liðandi stundar og gætt sé réttlætis svo ekki hljótist af fjárhagslegt tjón eins og átt hefur sér stað og áður getur fyrir Akraneshöfn, rökin sem færð voru fyrir þessum verknaði voru bættar samgöngur. Samgöngubætur eru nauðsynlegar og eiga fullan rétt á sér, sé af viti unnið, en þær á ekki að byggja upp með því að einn aðili sé píndur með hugsunarlaus- ri valdbeitingu til að láta af hendi stórfé til samgöngumála þjóðar- innar, eins og hér hefur verið gert við Akraneshöfn með stórskerð- ingu á einum aðaltekjustofni hennar; slík vinnubrögð eru víta- verð þar sem skortir fé til nauð- synlegra framkvæmda. Ég vil ekki trúa því að ráðherra sem fer með sjávarútvegs- og samgöngumál leiðrétti ekki það ranglæti sem hér hefur verið gert að umtalsefni og bitnað hefur á lífæð okkar Akurnesinga, höfn- inni, með vaxandi þunga og valda mun byggðarlaginu stórfelldu tjóni að óbreyttu eins og nú horfir. Þess vegna og fyrir munn margra Akurnesinga skora ég á bæjarstjórn að hugsa meira um byggðalag okkar og fyrirtæki þess en láta öðrum eftir að sjá fyrir ferðalögum og flakki sem okkurer óviðkomandi. Það hossar ekki hátt í fjárhirslum bæjarins þó hægt sé að blása út og tíunda fluttan bílafjölda sem lítið skilur eftir annað en hundruð þúsunda króna árlegt viðhald á landkeyrslulyftu sem hafnarsjóður verður að greiða, sem af skiljanlegum ástæðum fer verst undan þungum vörubílum með kannski 16—18 tonna hlass sem færir eigendum 2—300 þúsund gkr. í flutnings- gjald og í kaupbæti frítt far fyrir bílstjóra og ættu þeir því að greiða ákveðið gjald fyrir þá aðstöðu sem þeim er sköpuð. Um þessi mál mætti margt meira segja og gefst kannski tækifæri til þess síðar. 19. ágúst, 1981. Erlendar baekur Jóhanna Kristjónsdóttir Solzhenitsyn: The Moral Vison No love eftir Edward Ericson ENDA þótt sovézki rithöfundur- inn Alexander Solzhenitsyn hafi fengið Nóbelsverðlaun í bók- menntum og margt verka hans verið þýtt á ótal tungumál hefur nú einhvern veginn æxlast svo, að litið hefur verið til hans með dálítið pólitískum svip, og stund- um hafa verið gerða úttektir á verkum hans með það ofar í huga en hitt að maðurinn Sol- zhenitsyn er fyrst og fremst skáld og rithöfundur. Hann fór tregur til Vesturlanda og hann hefur ekki farið í neina launkofa með þær sterku tilfinningar, sem hann ber til fósturjarðar sinnar og reyndar hefur hann ekki síður verið harðorður um það hversu Vesturlönd og íbúar þeirra séu að úrkynjast og spill- ing og fleira setji allt svipmót á líf fólks. Edward Ericson fjallar um það í bók sinni Solzhenitsyn: The Moral Vision, hvort réttlæt- anlegt sé að skrifa um Solzhen- itsyn og verk hans út frá póli- tískum forsendum eða láta póli- tík lita afstöðu sína til hans. í bókinni skrifar hann um verk Solzhenitsyns, siðfræði þeirra og almennan boðskap, stöðugt með þetta að leiðarljósi, að láta ekki pólitíkina rugla lesandann um of í ríminu. Meginkjarninn í öllu sem Sol- zhenitsyn hefur skrifað er að mati Ericsons sú skýlausa krafa hans til mannsins að bera ábyrgð á gerðum sínum og hann vísar því á bug, að maðurinn geti skotið sér undan gerðum sínum með fyrirslætti og ástæðum, sem margir taka góðar og gildar. Ericson byrjar með Nóbelsfyr- irlestri Solzhenitsyns en þar speglast sterk siðgæðisvitund hans berlega og þær afgerandi siðgæðiskröfur sem hann gerir til annarra. Auk þess tekur svo Ericson ýmsar eldri smásögur hans, leikrit hans: Kerti í vind- inum, þekktar bækur hans: Fyrsta hringinn, Krabbadeildina og Gúlageyjahafið. Edward Ericson er prófessor við Calvin College í Michigan. Hann segir á kápusíðu að hann hafi ekki hvað sízt við gerð þessarar bókar haft að leiðar- ljósi orð Solzhenitsyns: „Megin- verkefni rithöfundar er að velja ... eilífar spurningar um leynd- armál mannshjartans og sam- vizkunnar, stundina þegar lífið og dauðinn mætast, sigur mannsins á sorginni, lögmál sögunnar um mannkynið sem hafi orðið til í ómælisdjúpi og muni þá fyrst hætta að vera til, þegar sólin hættir aðskína." eftir Margery Allingham ÞÓTT titillinn gefi til kynna að hér séu ástamál a dagskrá cr það nú reyndar ekki nema að vissu marki. í þessari bók eru tvær langar smásögur eftir Margery Allingham og ef ætti að flokka þa-r væri sonnu na‘r að kalla þar sakamálasögur, forkunnarvel sagðar og sögu- þráðurinn í háðum heinlínis slíkur að vart verður hætt við bókina i miðjum klíðum. í fyrri sögunni segir frá Ann, ungum lækni út í sveit. Hún hefur að vísu ratað í ástarraun- ir, því að John Linnett nokkur hafði svikið hana vegna undur- fagurrar en líkast til fláráðrar leikkonu, Franciu Forde, í eina tíð. Ann sinnir sjúklingum sín- um af alúð og samvizkusemi og einn hefur þó sérstöðu, sérvitr- ingur að nafni Gatineau, sem hún telur framan af að sé í senn meinlaus og kostulegur. En síð- an kemur upp úr dúrnum að undarlegir og óhugnarlegir at- burðir fara að gerast og það reynist vera Gatineau sem spinnur þvílíkan vef, að engu munar að Ann festist í honum og fleiri til. Úr málunum greiðir höfundurinn svo af leikni, svo að allt fellur í ljúfa löð og Gatineau fær makleg málagjöld. lost Seinni sagan segir frá kenn- arahjónum í smábæ í Englandi, Victor og Elizabeth. Einhverra hluta vegna er hjónabandið ekki rétt gott og leikurinn æsist fyrir alvöru þegar Victor hverfur og kona hans skrökvar í kross að þorpsbúum í þeirri trú að hún sé að reyna að dylja bresti hjóna- bandsins. En það fer ekki betur en svo að gamall unnusti Eliza- bethar skýtur upp kollinum og Victor finnst myrtur. Eins og álykta má eru hér reyfaralegir söguþræðir. Samt aldrei svo að fari út í að verða þynnka. Til þess er Margery Allingham líka of góður höfund- ur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.