Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 42

Morgunblaðið - 25.08.1981, Page 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 Skipað í Ol-nefnd Á VORFUNDI Sambandsráðs íþróttasamhands íslands 1981, var KrnKÍð frá skipan nýrrar Ólympíunefndar íslands, er und- irbúa skal »g sjá um þátttöku íslendinga á næstu Ólympíuleik- um sem verða árið 1984. Á fyrsta fundi hinnar nýskip- uðu Ölympíunefndar var Gísli Halldórsson kosinn formaður, Sveinn Björnsson varaformaður, Bragi Kristjánsson ritari, Gunn- laugur J. Briem gjaldkeri og Örn Eiðsson fundaritari. Þessir fimm menn mynda fram- kvæmdanefnd Ólympíunefndar ís- lands. Opna íslenska meistaramótiö í golfi: Sigurður sigraði Hannes i Þeir Sigurður Pétursson og Hannes Eyvindsson léku til úr- slita á opna íslenska meistara- mótinu i golfi sem fram fór um helgina. Sigurður sigraði Hannes 3—2, eftir spennandi keppni. f forkeppninni sigraði Magnús Jónsson GR. lék á 152 höggum. Eiríkur Þ. Jónsson varð annar. urslitum lék á 154 höggum. í fjögurra manna úrslitum sigraði Sigurður Pétursson Stefán Unnarsson 2— 1 og llannes Eyvindsson sigraði Tryggva Traustason 4—3. Sig- urður og Ilannes léku því til úrslita. Mjög slæmt veður var á meðan á keppninni stóð. Qrjiggur IBI gegn NU MÁ næsta öruggt teljast að lið ísafjarðar leiki i 1. deild á næsta ári. Liðið sigraði Völsunga á laugardag með tveimur mörk- um gegn engu. Leikur liðanna var þokkalega vel leikinn og hauð oft uppá ágæta knatt- spyrnu. Þrátt fyrir ágæt mark- ta‘kifæri tókst ísfirðingum ekki að skora fyrr en á 42. minútu. Gunnar Pétursson skoraði eftir að hafa fengið boltann eftir langt sigur Völsungi útspark markvarðar fsafjarðar. Var vel að þessu marki staðið hjá Gunnari. Strax i upphafi siðari hálfleiksins skoraði svo Örnólfur Oddsson síðara mark fBf. Þrátt fyrir nokkur opin marktækifæri tókst ísfirðingum ekki að bæta við fleiri mörkum. Liðið hefur nú hlotið 23 stig i 2. deild eftir 15 leiki. Skorað 24 mörk en fengið á sig 12. Góður árangur hjá fsa- fjarðarliðinu. Jafntefli í rokleiknum ÞRÓTTUR og Skallagrímur gerðu jafntefli. 1 — 1. i 2. deild á Laugardalsvellinum á laugar- dag. Leikur liðanna fór fram við afar sla-mar aðsta>ður. Og alveg var á mörkunum að hægt væri að leika knattspyrnu svo mikið var rokið. En leikmenn luku leiknum þrátt fyrir þessar erfiðu aðsta-ð- ur. Baldur Hannesson kom Þrótti yfir í leiknum á 30. mínútu fyrri hálfleiksins. Baldur einlék lag- lega i gegn um vörn Skallagrims og skoraði laglcga. Það var svo ekki fyrr en á 88. minútu leiksins sem Bergþór Magnússon jafnaði metin fyrir Skallagrim. Það mun- aði þvi litlu að Þróttur næði í hæði stigin. Með þessu jafntefli minnka möguleikar Þróttar verulega á sa-ti í 1. deild á næsta ári. Lið Þróttar hefur hlotið 18 stig að loknum 15 leikjum. |, " \ • Brynjólfur Hilmarsson er i stöðugri framför. Ljósm. ÞR. Gott afrek Brynjólfs BRYNJÓLFUR Hilmarsson, millivegalengdahlaupari úr UÍA, sem búsettur hefur verið i Svi- þjóð um árabil, setti fyrir skömmu nýtt unglingamet i 1500 metra hlaupi. Hljóp Brynjólfur á 3:49,77 minútum og varð fjórði á héraðsmóti á Slottsskogsvallen i Gautaborg. Eldra metið átti Jón Diðriksson UMSB. 3:53,9 minút- ur, sett i Osló i júlíbyrjun 1975. Brynjólfur er 20 ára og á fram- tíðina fyrir sér. Staðaní 2. deild ÚRSLIT i leikjum i 2. deild um helgina, 15. umferð: Þróttur N. — ÍBK 0-1 Selfoss — Haukar 1—4 Þróttur R. — Skalla-Grímur 1 — 1 ÍBÍ - Völsungur 2-0 Reynir — Fylkir 1—0 (Leikur flautaður af vegna veð- urs.) Staðan í 2. deild er þessi: ÍBK 15 11 2 2 28- 8 24 ÍBÍ 15 10 3 2 24- 12 23 Þróttur R. 15 6 6 3 16- 9 18 Reynir 14 5 5 4 15-13 15 Vöísungur 15 5 5 5 19—19 15 Fylkir 14 5 3 6 13-14 13 Skalla-Gr. 15 4 4 7 16-18 12 Þróttur N. 15 3 4 8 13-21 10 Selfoss 15 3 3 9 8-21 9 Haukar 15 2 5 8 17-34 9 Fylkismenn fögnuðu sem sigurvegarar er dómarinn flautaði leikinn af í rokinu - þá var staöan 1—0 fyrir Reyni Sandgeröi HANN varð endasleppur leikur Reynis og Fylkis í 2. deild i Sandgerði á Laugardaginn, þar sem dómari leiksins Úlfar Stein- dórsson lét undan kröfum og hótunum þjálfara Fylkis og flaut- aði leikinn af þegar aðeins 17. mínútur voru liðnar af siðari hálfleiknum. Að sögn vegna veð- urs. Það skal að vísu viðurkennt að veður til að sýna goða knatt- spyrnu var afleitt því að allhvass suðaustan vindur var með skúr- um. en maður hélt að íslendingar væru ýmsu vanir í þeim efnum að minnsta kosti var lokið leik hér í na-sta nágrenni Njarðvíkur. í undanúrslitum 3. deildar og landsleik á Laugardalsvelli en háðir þeir leikir fóru fram á sama tíma. Um hinn stutta leik er víst best að hafa sem fæst orð. Leikmönnum gekk frekar illa að halda knettinum niðri. En Reynis- mönnum þó sýnu betur. Skoruðu þeir eina mark leiksins. Var þar að verki Sigurður Guðnason með skalla eftir aukaspyrnu á 26. mínútu. Sárafá marktækifæri önnur voru í hálfleiknum. Enginn opin tækifæri. Reynismenn voru virkari aðil- inn í síðari hálfleiknum. Til dæm- is á þriðju mínútu er varnarmaður Fylkis var sekúndu á undan Jóni Guðmanni að hreinsa frá á mark- línu. En er 5 til 6 mínútur voru liðnar af hálfleiknum kom þjálfari Fylkis út að hliöarlínu og kallaði til dómarans að tala við sig. Er dómarinn gerði það krafðist þjálf- arinn að leikurinn yrði flautaður af. Dómarinn sinnti því ekki fyrr en á 17. mínútu. En fram að því hafði þjálfari Fylkis haldið áfram hrópum sínum. Á 17. mínútu hafði verið dæmd rangstaða á Reyn- ismann og er Fylkismenn hugðust taka hana, flautaði dómarinn og benti línuvörðum sínum að koma og stormaði út af vellinum. Stóðu Reynismenn undrandi eftir en Fylkismenn fögnuðu ákaft sem sigurvegarar. Jón Júliusson Asgeir lék með Bayern ÞRJÚ lið eru nú efst og jöfn i v-þýsku 1. deildinni í knatt- spyrnu. Bayern. Bochum, og Stuttgart. Liðin hafa leikið þrjá leiki og sigrað i þeim öllum. Bayern ér með bestu markatöl- una. hefur skorað 11 mörk en fengið á sig 4. Bochum hefur komið nokkuð á óvart. Liðið hefur skorað 8 mörk en fengið aðeins á sig 1 mark. Bayern sigraði Werder Bremen um helgina, 3—1. Staðan í hálfleik var jöfn, 1—1. Dieter Hoeness skoraði tvö mörk og Rummenigge eitt. Ásgeir Sigurvinsson lék sinn fyrsta leik með liðinu og kom vel frá leiknum. Ásgeiri var skipt útaf á 67. mínútu. Hann er óðum að ná sér eftir slæm meiðsli í vor. 45 þúsund áhorfendur sáu leikinn sem fram fór á Ólympíuleikvang- inum í Múnchen. Bochum sigraði FC Köln, 3—1. Bochum tók foryst- una í leiknum á 10. mínútu og átti Köln ekkert svar við góðum leik liðsins. Blau skoraði fyrsta mark- ið, Oswald annað og Abel innsigl- aði sigur liðsins á 62. mínútu leiksins. Eina mark Köln skoraði Klaus Allofs. Stuttgart sigraði Eintracht Braunschweig 2—0. Eintracht Frankfurt sigraði Núrnberg 3—1, Borussia Dort- mund gerði jafntefli við lið Ham- borg, 2—2. Borussia náði foryst- unni í leiknum og komst í 2—0. Fyrra markið skoraði Burgsmúll- er á 23. mínútu og Russemann bætti marki við á 45. mínútu. Hamborg tókst svo að jafna metin í síðari hálfleiknum. Daninn Bastrup skoraði fallegt mark á 49. mínútu og Hartwig jafnaði á 75. mínútu. Atli Eðvaldsson lék ekki með liðinu að þessu sinni. Ar- menia Bielefeld gerði jafntefli við Fortuna Dússeldorf, 1—1. Bo- russia Mönchengladbach og Karls- ruhe gerðu jafntefli, 2—2. Duis- burg sigraði Kaiserlautern 3—1 og Leverkusen sigraði Darmstad 3— 2. Dýrmæt stig til Hauka IIAUKAR berjast nú kröftuglega fyrir sæti sínu i 2. deild. Liðið hefur sótt sig nokkuð i siðustu leikjum sínum og náð sér í dýrmæt stig. Um siðustu helgi sigruðu Ilaukar lið Selfoss með fjórum mörkum gegn einu á Selfossi. Staðan í hálfleik var 1—0, fyrir Hauka. Kristján Kristjánsson náði að skora þrennu í leiknum. Hann skoraði fyrsta mark leiksins og siðan tvö i siðari hálfleiknum. Loftur Eyj- ólfsson skoraði eitt mark. Mark Selfyssinga skoraði Ámundi Sig- mundsson. Lið Hauka og Sel- fyssinga eru nú jöfn að stigum á botninum i 2. deild. Bæði liðin hafa hlotið 9 stig. Þróttur Nes- kaupsstað hefur hlotið 10 stig. Baráttan á botninum verður því hörð og óvist er hvaða lið falla niður. IslanflsmðHö 2. flelia l .. . ............ ....^ Svipmyndir úr landsleiknum • Fyrsta markið í leiknum, sem Árni Sveinsson skoraði. Eftir langt skot utan af velli hafnar boltinn i netinu. • Marteinn fyrirliði Geirsson skorar þriðja markið úr vitaspyrnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.