Morgunblaðið - 16.10.1981, Síða 3

Morgunblaðið - 16.10.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 3 Nú þarf enginn að smyrja lengur með hördu Smjörvi - nýtt viðbit frá Osta- og smjörsölunni OSTA- OG smjörsalan hefur sent frá sér nýtt viðbit sem selt verður í verslunum næstu daga. Nefnist það „Smjörvi“ og er að 4/5 hlutum smjör en ’/5 hluta óhert sojaolía. Smjörvinn er framleiddur í Mjólk- ursamsölu KEA á Akureyri, og hafa sérfræðingar frá sænska mjólkuriðnaðinum aðstoðað við að koma þessari framleiðslu af stað hérlendis. Bragðgæði eru mjög svipuð og í smjöri en auk þess er Smjörvinn símjúkur og auðsmyrj- anlegur beint úr ísskápnum. Smjörvinn verðurseldur í 330 g öskjum og hefur verðið verið ákveðið 20,50 í smásölu. Sænsku mjólkursamtökin settu árið 1969 á markaðinn nýtt viðbit sem þeir kölluðu „Bregott" og hefur það notið sívaxandi vinsælda meðal neytenda, og hefur framleiðsla verið tekin upp í allmörgum löndum öðrum með góðum árangri. Hér á landi hefur nú verið hafin framleiðsla á samskonar smjöri - afurð, og á framleiðslan sér langan aðdraganda, m.a. vegna umfjöllunar bændasamtakanna um málið, en á aðalfundi Stétt- arsambands bænda 1979 var ein- róma samþykkt að hvetja til þessarar framleiðslu og óskað eftir því við stjórnvöld að veitt yrði leyfi til framleiðslunnar. Með breytingum á lögum nr. 32/1933, sem samþykktar voru af Alþingi í maí 1980, opnuðust möguleikar til framleiðslu á þessari nýju afurð sem nú kemur í verslanir. Á myndinni má sjá Harry Neij frá Landsambandi sænskra mjólkurbúa með nýja viðbitið „Smjörva" sem á sænsku hefur verið nefnt „bregott'*. Eins og áður sagði er Smjörvi blanda af óhertri sojaolíu og rjóma. Fituinnihald er 80% en það er það sama og í smjöri og smjörlíki. Fitan í Smjörva er V5 jurtaolia og 4/s mjólkurfita. Jurt- afitan er vítamínbætt og er inni- hald A og D vítamína það sama vetur og sumar. Aðferð við framleiðslu á Smjörva var þróuð af sérfræð- ingum á vegum Landsambands sænskra mjólkurbúa (SMR). Ákveðinn skammtur af rjóma og sojaolíu er blandað í strokk, en síðan er strokkað eins og þegar verið er að framleiða smjör. Einn af helstu kostunum við Smjörvann er að hann er sí- mjúkur og auðsmyrjanlegur beint úr ísskápnum, og heldur hann þessum eiginleikum á öll- um árstímum. Fyrsti bfllinn úr leik í rallinu FYRSTI bíllinn er strax úr leik I Tomma-rallinu, sem hefst klukkan 18 í kvöld. Er það Escort 2000 bifreið Haf- steins Aðalsteinssonar og Birgis V. Halldórssonar. Þetta er ný bif- reið, sem talið var að myndi veita Renault-bifreið bræðranna Ómars og Jóns Ragnarssona mikla keppni. I gær kom í ljós bilun í vélinni og reyndist vélin við nán- ari skoðun vera ónýt. í Mbl. í gær var mynd af þessari bifreið. Sjá nánar um Tomma-rallið á bls. 19. Eyrarbakki: Hitaveitan í fyrsta húsið HITAVEITA Eyrar, sem er sameign- arfélag Eyrarbakkahrepps og Stokkseyrarhrepps, tók formlega til starfa í gær, með því að heitu vatni var hleypt á eitt hús á Eyrarbakka, en það var bamaskólahúsið. Þór Hagalín sveitarstjóri á Eyr- arbakka sagði í samtali við Morg- unblaðið, að næstu daga yrði hald- ið áfram að hleypa vatni á næstu hús við skólann og reyndar á allt kauptúnið fljótlega en búið væri að leggja dreifikerfið. Þá væri unnið við lagningu dreifikerfisins á Stokkseyri og þar er reiknað með að vatni verði hleypt á í næsta mánuði. Vatnið sem Hitaveita Eyrar notar er keypt af Hitaveitu Sel- foss og að sögn Þórs er kostnaður við framkvæmdir væntanlega kominn í um 18 milljónir króna. Sagði hann að þessi dagur teldist til meiri háttar hátíðisdaga, þó svo að dýrt væri fyrir húseigendur að tengja hús sín við hitaveituna í byrjun, en það væri ódýrt þegar horft væri til framtíðarinnar. Nú eru 30 hús tilbúin til teng- ingar á Eyrarbakka og verið er að ljúka við frágang á heimtaug í alls 190 hús af um 195 húsum á Eyr- arbakka. Líkin flutt vestur um haf LÍK Bandaríkjamannanna, sem fundust á Mýrdalsjökli um síðustu helgi, átti að flytja frá Keflavíkur flugvelli til Bandaríkjanna í nótt. Fyrirhuguð var stutt minn- ingarathöfn á Keflavíkurflugvelli áður en líkin yrðu sett um borð í flugvél, sem færi með þau til Dover í Delawerríki, þar sem rannsókn fer fram. ;***»*» %»»**» „Þrjú sterk rök fyrir #UNIFL0 5BH y*»a IS tsso '9*-: mm i _ k utmHi 2ZSS!t!f/k*<A' wwmwB I tlMlmwwwU ns#'V V* nmn **- UNIFL0+ IfÍ MOTOR 01 *««* 8R*»tOSTOF •CUt KIOTOSStX) PSEMfUM mhoic wcroasjc Náöu i bækling um nýju UNIFLO+ á næstu ESSO stöö. Nýja UNIFLO+ smurolían er þaul- prófað sköpunarverk vísindamanna ESSO. Hún hefur að geyma ný bæti- efni sem létta gang vélarinnar og auka því endinguna til muna. Auk þess sem sparnaðarþátturinn er verulega hag- kvæmur. Rökin eru öll með nýju UNIFLO+ því hún tryggir: 1. Léttari gangsetningu í kuldum 2. Minni eldsneytiseyðslu 3. Minni smurolíueyðslu ..og þau fjórðu! 4. Minna mótorslit „Ef bílar gætu talað bæðu þeir um nýju UNIFLO+“ Fæst á öllum bensín- og smurstöðvum ESSO. Komdu við og taktu bílinn með þér! Olíufélagið hf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.