Morgunblaðið - 16.10.1981, Side 10

Morgunblaðið - 16.10.1981, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 Observermaðurinn Aern- out van Lynden, sem dvaldist tvo mánuði meðal ast að ljúka sem sigurveg- arar Andrei Gromyko vantaði ekki sjálfs- trau.stið í fyrra þegar hann kvaðst ekki efa að það hefði verið öldungis rétt ákvörðun að senda sovéska herinn inn í Afghanistan á sínum tíma. „Öllum má vera ljóst,“ lýsti utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna yfir og skorti þá ekki bjartsýnina, „að allar tilraunir í þá átt að breyta núverandi stöðu í Afghanistan eru út í hött, alveg vonlausar." En þrátt fyrir að eyðileggingarmáttur sovésku þyrlanna, sem stundum er líkt við vængjaða fallbyssubáta, sé gífurleg- ur, láta Mujahidin-skæruliðarnir alls engan bilbug á sér finna. Baráttuþrek þeirra hefur reyndar aldrei verið meira. Hins vegar leikur lítill vafi á því að Sovétríkin hafi illa misreiknað sig þegar þau sendu herinn yfir landamærin til þess að styrkja stjórnina í Kabúl því sú stjórn naut sannarlega lítilla vinsælda meðal landslýðs. Það má jafnvel halda því fram að innrás Sovétríkjanna hafi frekar orðið til að flýta fyrir upplausn marxísku stjórnarinnar en hitt. Nú eru um tuttugu mánuðir frá inn- rásinni í Afghanistan og afghanski her- inn, sem taldi þá áttatíu þúsund manns, hefur minnkað niður í tuttugu þúsund; liðhlaup er svona geigvænlegt. Sovét- menn hafa því í æ ríkari mæli mátt grípa til sinna eigin manna og það leikur eng- inn vafi á, að mannfall meðal þeirra fer vaxandi. Sovéskir hermenn hafa sumpart einn- ig tekið við lögreglustörfum af Afghön- um sem aftur takmarkar sjálfkrafa um- svif sovéska hersins í Afghanistan. I röðum þeirra tuttugu þúsunda, sem enn eru í afghanska hernum má finna fjöldann allan af liðsforingjum og óbreyttum hermönnum sem halda nán- um tengslum við þessa svokölluðu óvini sína. Meðan ég dvaldist hjá Mujahidin- skæruliðunum rétt utan við Kabúl, hitti ég tuttugu og átta þjónandi liðsforingja sem unnu að því að lauma upplýsingum til andspyrnuhreyfingarinnar eða að smygla til skæruliðanna vopnum. Það voru þessir liðsforingjar sem komu því í kring að hægt var að lauma mér inn í Kabúl. Embættismenn, sem störfuðu leynilega innan andspyrnu- hreyfingarinnar, skutu yfir mig skjóls- Skæruliðaflokkur gerir áhlaup á sovéska herstöð í grennd við Jalalabad. afganskra skæruliða, held- ur því fram að Sovétmenn hafí hér efnt til styrjaldar sem beim muni aldrei tak- Sovétmenn gæta Kabul meöal annars með þyrlum sem kalla mætti fljúgandi fallbyssubáta. Afgönskum skæruliðum vex ásmegin húsi. Þetta sýnir vel að stjórnin getur ekki treyst á embættismenn sína frekar en hermennina. Fréttaritarar, sem voru þarna á ferð í fyrra, sögðu að Sovétmenn hefðu öll yfir- ráð yfir-borgum og bæjum og að allar samgönguæðar væru undir þeirra stjórn. Ég varð annars vísari. Mujahidin- skæruliðarnir gátu athafnað sig að vild nærri öllum helstu höfuðstöðvum sov- éska hersins. Og flestar tilraunir Sov- étmanna til að bola þeim í burtu, runnu út í sandinn. Það kom skýrast í ljós í Pagham- hæðunum rétt utan við höfuðborgina Kabúl sem teljast verður sterkasta vígi marxísku stjórnarinnar. Þær sjö vikur, sem ég dvaldi í landinu, misheppnuðust að minnsta kosti fimm meiriháttar her- farir Sovétmanna gegn skæruliðunum. Aftur á móti héldu Mujahidin-skærulið- arnir uppi stöðugum næturárásum hve- nær sem hlé gafst til þess. Fyrsta skiptið, sem ég sá uppreisnar- mennina að verki, var í Thesin-dal þegar ég var á leið inn í Afghanistan. Flokkur sjötíu manna eða þar um bil sat fyrir sovéskri bílalest á veginum milli Kabúl og Jalaba. Þetta var áhrifarík sjón. Skæruliðarn- ir voru flestir búnir Kalashnikov-riffl- um, eða AK-47 eins og þessi sjálfvirki riffill er venjulega nefndur. Mun betra vopn en úreltu Lee Enfield-rifflarnir sem þeir urðu að gera sér að góðu í fyrra. En það sem meira er, skæruliðarnir höfðu fimm sovéskar skriðdrekavarnarbyssur undir höndum. Það þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Skæruliðarnir grönduðu snarlega tveimur brynvörðum mann- flutningabílum og tveimur fullhlöðnum vörubílum að auki. Þessi fyrirsát, sem ég varð vitni að, og skærur af minna tagi, sem ég sá á slétt- unum norður af Kabúl, sýna að ef upp- reisnarmennirnir fá í hendur fullkominn vopnabúnað, geta þeir haft í fullu tré við sovéska innrásarliðið, eða svo gott sem. En hvaðan fá skæruliðarnir vopnin? Ég sá fjöldann allan af Kalashnikov- rifflum og skriðdrekavarnarbyssum, margar með kínverskar eða egypskar áletranir. En eftir öllum sólarmerkjum að dæma höfðu sovésku vopnin, sem skæruliðarnir réðu yfir, annaðhvort ver- ið tekin herskildi eða þá að liðhlaupar höfðu komið með þau með sér. Bandaríski blaðamaðurinn Carl Bernstein ritar í blaðagrein að CIA sé að reyna að samræma aðstoð fimm þjóða til skæruliðanna. Eftir því sem Bernstein ritar, hafa skæruliðarnir mesta þörf fyrir SAM-7-loftvarnareldflaugar. Þetta er örugglega satt. Á ferðalagi mínu um þau landsvæði, sem telja verður að skæruliðar ráði yfir, gat ég ekki séð þess nein merki að þeir hefðu skotpalla fyrir eldflaugar. En eldflaugarnar eru einu vopnin sem mega sín gegn herþyrl- um Sovétmanna. Thesin-þorp ætti að vera næg sönnun fyrir eyðileggingarmætti þyrlanna. I árás átta þyrla sem stóð í sex tíma voru tuttugu og tveir þorpsbúar vegnir og þrjátíu og fimm skildir eftir í sárum sín- um, en þorpið hafði ekki fleiri en tvö hundruð íbúa. Þessi loftárás var hefnd- araðgerð Sovétmanna fyrir árásina á bílalestina. Fæst þorp í fjallaskörðunum hafa sloppið við loftárásir herþyrlanna og skiljanlega svíður þorpsbúa undan. Þeir eru fullir beiskju og sársauka yfir því að enginn skuli vilja rétta þeim hjálpar- hönd með því að senda þeim vopn sem bíta á þessi dauðans tækniundur. Hernaðarsérfræðingar á Vesturlönd- um eru sammála um að ef skæruliðum bærust SA M-7-loftvarnareldf laugar myndi staðan gerbreytast í Afghanistan. Þeir tala út frá þeirri reynslu sem fékkst í Víetnam á sínum tíma. En jafnvel þótt Mujahidin-skærulið- arnir kæmust yfir SAM-7-loftvarnar- eldflaugar yrði hernaðarstaða þeirra aldrei svo sterk að þeim tækist að yfir- buga sovéska herinn, en það er jafnvíst að sovéski herinn gæti ekki heldur geng- ið á milli bols og höfuð, á skæruliðunum. Þá yrði aðeins um eina leið að velja fyrir sovéska ráðamenn, að leita fyrir sér um friðarviðræður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.