Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 13 Það eiga sér fleiri undraland en Lísa Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson naumast gert. Það er mjög rétt, sem Kristján segir í lokin því að svo er um flesta, ef ekki alla, sem iðka svipaðan málunarmáta. Það er líkast því sem það þurfi vissar ytri aðstæður til að ríma við innri kenndir, og þarmeð hreyfa við sköpunargleði slíkra. Það má geta nærri, að líf lista- manns af svo sjálfstæðri gerð og Kristjáns hefur á köflum ekki verið neinn dans á rósum enda fer mikil orka og kraftur í það hjá slíkum, að ná endum saman í fjármálum frá ári til árs. Það er þannig mjög at- hyglisvert, að Kristján hættir að sýna reglulega er hann eignast fyrsta húsnæði sitt um ævina og fer að mála glaðbeittur í eigin vinnustofu. Getur nú loks fyrst og fremst einbeitt sér að málverkinu og ausið á fullu af orkubrunni sín- um yfir það margræða og krefjandi svið. Þetta síðasta tímabil hefur og bersýnilega verið hið frjóasta á öll- um ferli hans og hann stendur í stórræðum í list sinni í dag. - O - Það er frískleg og stórfalleg sýn- ing, sem Listasafn Islands býður upp á og sýnir þróunarferil Krist- jáns Davíðssonar og hér gefst ein- stætt tækifæri til að setja sig inn í listhugsun eins umbúðalausasta myndlistarmanns, sem þessi þjóð hefur alið. Væntanlega fjölmennir fólk á þessa sýningu því að það mun verða bið á að hliðstæð sýning verði sett upp. — Þá er að þakka aðstandend- unum fyrir framtakið, ágæta upp- hengingu, veglega sýningarskrá og eitt bezta veggspjald (plakat) sem hér hefur sést. Bragi Asgeirsson Heimir Már: Sólin sest og sólin kemur upp. Myndir: Philippe Kichard. Bókaútgáfan Ax, Daðastaðir 1981. Þess er getið að Heimir Már hafi áður sent frá sér bókina Dropi í hafið (1980). Bókum sínum velur hann yfirlætislausa titla. Ekkert er sjálfsagðara en það sem felst í heiti nýju bókarinnar: Sólin sest og sólin kemur upp. Ljóð Heimis Más eru einföld, hreinleg ef svo má komast að orði. Ekki er þar með sagt að fátt búi að baki myndanna sem Heimir Már dregur upp. Fyrsta ljóðið, í morg- unsárið, segir frá meðvitundar- lausum mönnum í hlýjum rúmum og fugli sem mennirnir héldu að svæfi. En fuglinn er síður en svo meðvitundarlaus þar sem hann „leikur listflug" sitt í fjörunni. Á krossgötum er dálítið ljóð sem lumar á lífsspeki og nokkrum þroska hjá ungu skáldi: Þú stendur ringlaður á krossgötum og veist ekki hvert þú átt að fara einn segir hingað annar segir þangað. Svo eygirðu sólargeisa réttir úr bakinu heldur af stað og veist að þú ferð í ranga átt. JJLjóð Heimis Más eru einföld, hreinleg ef svo má komast að orði. Ekki er þar með sagt að fátt búi að baki mynd- anna sem Heimir Már dregur upp^^ Að hætti ungra skálda fjalla mörg ljóðanna um ástina og einn- ig vináttuna. „Djammhelgar koma og fara“ stendur í Þú. Söknuður- inn tekur við. ---- Það eiga sér fleiri undraland en Lísa nefnist síðasta ljóðið í bók- inni. „Hleyptu mér inn/ í undra- landið/ og leyfðu mér/ að gleyma/ þessum súra heimi/ staðreynda og vonbrigða" er upphaf ljóðsins. Það er að sönnu skemmtilegra að búa í heimi Lísu. Engu að síður endar ljóðið á ósk um að finna aftur súra heiminn: „og hleyptu mér aftur út.“ Sólin sest og sólin kemur upp er geðþekk skáldskapartilraun ungs manns. Bókina prýða myndir eftir Philippe Richard, best þykir mér myndin á bls. 19 af draumkenndri stúlku í íslensku landslagi. Mynd- in á bls. 29 er aftur a móti af því tagi rissmynda sem leyna ekki viðvaningshættinum. ÞÐR HJÁ PHIUPS GERA MEIRA EN AÐ HANNA NÝ KERFI. ÞEIR KONA AF STAD BYLTINGUM! Nýtt myndsegulband Philips hefur nú fullhannað nýtt myndseguldbandskerfi, sem margir álíta vera gjörbyltingu á þessu sviði. Philips 2000 er kerfi, sem býður upp á kosti, sem aðrir hafa ekki: - Myndkassettu, sem spila má báðu- megin - 8 klukkustunda sýningar/upptöku- tíma Upphitaðir upptökuhausar, sem aðeins þekkjast á stærstu tækjum í upptökusölum (studiotækjum) varna sliti á segulbandinu, auk þess sem svónefndir fljótandi hausar gera stillingu þeirra óþarfa. Þannig er hægt að taka upp á eitt tæki og sýna í öðrum ántruflana. 30% afsláttur Þar eð eigendum myndsegul- bandstækja með Philips V2000 kerfinu hefur fjölgað mjög að undanförnu, hafa Heimilistæki hf. hafið útleigu myndefnis á Philips kassettum. Fyrir- tækið hefur tryggt sér leigurétt á úrvali skemmti-, menningar-, lista- og fræðsluefnis, og fjölbreytnin eykst stöðugt eftir því sem fleiri notfæra sér leiguna. Það eru ekki aðeins eigendur Philips myndsegulbandstækja sem geta leigt kassettur hjá Heimilistækjum, heldur einnig eigendur tækja frá þeim framleiðendum sem samið hafa við Philips um notkun á V2000 kerfinu. Aftur á móti fá eigendur Philips myndsegulbandstækja frá Heimils- tækjum hf. 30% afslátt á leigugjaldinu. Sextán daga upptökutími Einn af höfuðkostum nýja Philips myndsegulbandskerfisins er upp- tökutíminn. Philips 2000 með nýju 8 klst. myndkasettunni, gefur kost á innstillingu á5 mismunandi sjónvarpsþætti á 16 daga tímabili. Nýja kassettan hefur pláss fyrir átta klukkustundir af efni, 4 klst. á hvorri hlið. Þannig getur þú komið fyrir t.d. fjórum 2ja klst. kvikmyndum á einni spólu eða fjórum knattspymu- leikjum og einni bíómynd. Þeir hjá Philips gera meira en að hanna ný myndsegulbandskerfi. Þeir koma af stað byltingum. Þess vegna hafa margir af þekktustu framleiðend- um myndsegulbanda, eins og t.d. B og O, ITT, Pye, Luxor og Gmndig gert samninga við Philips um notkun þessa nýja kerfis í sinni eigin framleiðslu. Hagstætt verd og góð þjónusta Philips VR 2020 myndsegulbandið er á mjög hagstæðu verði um þessar mundir og hver klst. á kassettum í V2000 kerfinu kostar aðeins um 50% af verði hverrar klst. á kassettum fyrir önnur kerfi. En Philips V2000 kerfið er ekki bara ódýrt - Philips V2000 er rétta kerfið. Heimilistæki hafa nýlega stórbætt alla þjónustu sína, því búið er að opna stórglæsilega verslun í Sætúni og þar er einnig til húsa fullkomnasta radíó- verkstæði landsins og íhluta- og vara- hlutaverstlun sem ekki á sinn líka á íslandi. heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — Sætúni 8. PHIUPS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.