Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 15 Khomeini^ vill heilaþvo írani Beirút, 15. okt. AP. KHOMEINI erkiklcrkur hvatti í dag til heilaþvottar til að þurrka Guinnes úti- lokar lffs- hættuleg afrek New York, 15. október. AF. FOLK hefur sofið á nöglum, gleypt eld og sverð og jafnvel hámad í sig reiðhjól og trjágróður í yfir aldar fjórðung í þeim tilgangi einum að komast í frægustu heimsmetabók veraldar. Nú hafa ritstjórar Guinn- ess heimsmetabókarinnar ákveðið að birta ekki framar skrá yfir hcimsmet í lífshættulegum grein- um. Ekki verður framar birtur stafur um sverðgleypa, reið- hjólaætur eða þá sem hreiðra um sig á nagladýnum í bókinni. „Sjónvarpið sér fólki fyrir alveg nægilega mikilli vitleysu þótt við séum ekki að bæta ofan á það,“ sagði Norris McWhirter, annar stofnenda bókarinnar og rit- stjóri hennar. „Allir hlutir hafa sín takmörk," sagði hann. „Fólk getur gert hvað sem það vill en við ætlum ekki að halda skrá yf- ir það. Afreka þess getur verið getið í minningargreinum en við tökum það ekki lengur að okkur." út vestræna hugsun í íran. Jafn- framt sagði stjórn hans að íhlut- un Bandaríkjanna í Egyptalandi mundi „styrkja vilja eins millj- arðar Múhameðstrúarmanna um víða veröld í baráttunni gegn kúgurunum“. Teheran-útvarpið kvað Kho- meini hafa sagt Ali-Akbar Parvaresh, menntamálaráð- herra og öðrum embættis- mönnum: „Heila verður að þvo og leysa verður þá af hólmi með heila, sem er sjálfum sér nógur“, til þess að íranska þjóðin „skilji að við erum allt það sem skiptir máli og engu minni en aðrir,“ sagði Khomeini. „Við verðum að byrja á börn- unum og tilgangur okkar ætti að vera sá að umbreyta vestrænni manneskju í islamska. Við fáum tryggingu fyrir því að þá geti enginn greitt okkur högg. Ef við verðum sjálfstæðir í hugsunar- hætti, hvernig geta þeir ráðizt gegn okkur? Þeir geta aðeins ráðizt á okkur innan frá, eins og þeir hafa gert.“ Khomeini átti við þriggja mánaða sprengju- og morðher- ferð vinstrisinnaðra stjórnar- andstæðinga. Tékkneska lögreglan misþyrmir andófskonu London, 15. október. AF. ANDÓFSMENN í London sökuðu tékknesku lögregluna í dag um að hafa misþyrmt tékkneskri andófs- konu í Prag og sögðu það aðeins síðasta atvikið í röð fjölda ofbeldis- verka í Tékkóslóvakíu á síðustu þremur mánuðum. Palach, fréttastofa tékkneskra andófsmanna í London, sagði að þrír óeinkennisklæddir lögreglu- menn hefðu ráðist inn á heimili Zina Freund sem er 26 ára gömul snemma á þriðjudagsmorgun. ERLENT Hún sagði að konan hefði orðið fyrir miklu áfalli og hlotið heila- hristing. Fréttastofan sagði að árásar- mennirnir hefðu hótað stúlkunni, bundið fyrir augu hennar og munn, barið höfði hennar við vegginn, nauðgað henni og sagt: „Við drepum þig næst. Ef þú vilt lifa skaltu hafa það hugfast. Eng- inn mundi rannsaka dauða þinn og eftir á yrði sagt að þú hefðir framið sjálfsmorð og hengt þig.“ Arásarmennirnir skáru á símalín- ur þegar þeir fóru og höfðu seg- ulband á brott með sér. Freund er talsmaður Charter 77 hreyfingarinnar í Prag. Frétta- stofan fullyrti að árásin hefði ver- ið gerð vegna ótta yfirvalda við að barátta Samstöðu eigi eftir að berast yfir landamærin frá Pól- landi og grafa undan stöðu komm- únistastjórnarinnar í Tékkósló- vakíu. BERLINGSKE TIDENDE -- , --- " -—| 233. Argaag. ar. 206.3 sdctioMr 38 ridcr . Kr. 3,00 TirvU* átm 13. oklober 19*1 . Ug« 42 OYKRIÍI.Ik Skl. Lukas Slifteisens fremtid G7T>akok>(Wk atdelinf «k«l mrn hmSe^iy*n4n ateT IMil Tilkamp 'mod masse- ded i Iran manfp henrettea uden torudcftwuU •fíxé-ing JuposlavLsk samvittig- bedsfange Daa «-lric» ér Nt- Unge kom- munister vil terrorisere skolerne Skole- •‘•nvtUlcbedafknco JtiC—lari— - blev u- iutuit I ltn og Ktomt Klaus Pagh opgiver ABC-Teatret Specialister i terror og kæ Af Jem Thomitn Tienestemænd Friðarhreyfíngin á mála hjá KGB? UPPÁKOMUR, öngþveiti, ótti, áhlaup, sviðsetning — þannig á að skipuleggja nýstárlegar aðgerðir hinnar nýju „friðarhreyfingar“ í Evrópu í dönskum skólum. Að- gerðirnar hafa það markmið að koma á framfæri ákveðnum skoð- unum, sem útlistaðar eru í nýút- kominni „Hugmyndaskrá friðar hreyfingarinnar". Útgefandi er /Eskulýðsfylking danskra komm- únista. Stóraukin umsvif kommún- ista og hinnar nýju friðarhreyf- ingar hafa vakið mikla athygli í Danmörku að undanförnu, og seg- ir Beriingske Tidende t.d. frá því sl. þriðjudag, að þess hafi nú verið krafizt að Kjeld Olesen, utanrík- isráðherra, og Ole Espersen, dómsmálaráðherra, láti fara fram rannsókn á fjármálum friðarhreyf- ingarinnar í Danmörku, einkum og sér í lagi með tilliti til staðhæf- ingar Stanislav Levtjenko, fyrrum majórs í sovézku leyniþjónustunni KGB, að fjármunir þeir sem frið- arhreyfingin í ýmsum Evrópuríkj- um hafi til umráða séu komnir frá KGB. Hafi hin sovézka leyniþjón- usta þannig bein áhrif á starfsemi hreyfingarinnar. Levtjenko, sem í þessari viku fékk hæli sem pólitískur flótta- maður í Bandaríkjunum, heldur því fram að Sovétstjórnin hafi á takteinum sérstaka áætlun, sem unnin hafi verið í herbúðum KGB og GRU, um hvernig koma skuli í veg fyrir það með áróðri og upplognum fregnum að al- menningur í þessum löndum láti það viðgangast að meðaldrægum eldflaugum verði komið þar fyrir, en það er liður í endurnýj- un vopnabúnaðar NATO. Sem dæmi um þessa skipu- lögðu blekkingarstarfsemi Sov- étstjórnarinnar, sem fram fer á vegum hinnar nýju friðarhreyf- ingar, nefnir Berlingske Tidende að nýlega hafi v-þýzku blaði bor- izt falsað bréf. Átti Joseph Luns að hafa ritað Alexander Haig bréfið, sem hafði að geyma ugg- vænleg ummæli varðandi her- mál. Ætlun sendenda var greini- lega sú að bréfið yrði birt og skyti lesendum skelk í bringu, en við athugum kom í ljós að það var runnið undan rifjum for- ystumanna í einni friðar- hreyfingunni. Hægri stefiia boð- uð á norska þinginu Osló, 15. október. AF. NORSKA stjórnin kynnti stefnu sína í norska þinginu í dag og lagði Bókmenntaverðlaun Nóbels: Ritsmíðar Canettis minna helst á Kafka Stokkhólmi, Krankfurt, London, 15. október. AF. ELIAS Canetti hlaut bókmennta- verðlaun Nóbels í ár, að því er til- kynnt var f dag. Hann er 76 ára og búsettur í London en er fæddur í Búlgaríu og skrifar á þýsku. Verð- launanefndin nefndi endurminn- ingar Canettis, Die Gerettete Zunge, sem voru gefnar út 1977, sérstaklega og kallaði þær „hápunkt rithöfunda- ferils Canettis.“ Verðlaunin eru 1 milljón sænskra króna. Aðdáendur Canettis hafa lengi beðið eftir að hann hlyti verðlaun- in. Ritstíll hans á þýsku þykir sérlega góður en hann þykir oft ekki njóta sín fyllilega í þýðing- um. Gagnrýnendur hafa oft líkt honum við þýska rithöfundinn Franz Kafka. Canetti hlaut fyrst viðurkenningu fyrir bók sína Die Blendung sem kom út 1936. Canetti fluttist til Vínar með fjölskyldu sinni ungur að árum. Þar lagði hann stund á náttúru- fræði og þýskar þókmenntir. Hann er Gyðingur og flúði Aust- urríki 1938 eftir að herliði Hitlers var fagnað þar. Múgæsingin sem hann horfði uppá í Vín hafði mikil áhrif á hann og hann lýsir henni í bókinni Masse und Macht sem kom út 1960. Talsmaður útgáfufyrirtækisins Hanser í Frankfurt sem gefur bækur Canettis út vildi ekki segja hvar hann er nú staddur. Hann sagði að Canetti væri mjög feim- inn og vildi komast hjá umstang- inu sem fylgir Nóbelsverðlaunun- um en hann myndi þó taka við þeim þegar verðlaunin verða af- hent í Stokkhólmi. Canetti er kvæntur og á dóttur sem býr í Sviss. Hanser útgáfufyrirtækið hefur gefið út um 17 af verkum Canettis. Mörg þeirra hafa verið þýdd og seld í Bandaríkjunum, Frakklandi, Póllandi, ísrael, Japan og á Norð- urlöndunum. Hann var mjög iðinn til skamms tíma en hefur ekki sent neitt frá sér nýlega. Þótt hann tali ekki búlgörsku nýtur Canetti mikilla vinsælda í föður- landi sínu. höfuðáherslu á efnahags- og örygg- ismál. Stjórnin boðaði efnahagsum- bætur sem eiga að sporna gegn verð- bólgu og auka framleiðni og sam- keppni í landinu. Hún vill lækka skatta og draga úr ríkisafskiptum. Káre Willoch sem tók við em- bætti forsætisráðherra á miðviku- dag lagði áherslu á að minni olíu- tekjur á næsta ári og samdráttur í framleiðslu, gætu haft áhrif á framkvæmd stefnu stjórnarinnar. Stjórnin sagðist ætla að halda nánu samstarfi við aðrar þjóðir í Atlantshafsbandalaginu áfram. „Stjórnin mun stuðla að spennu- slökun, vopnatakmörkun og jafnri afvopnun í gegnum NATO. Það er mjög mikilvægt að draga úr kjarnorkuvopnum og fækka í her- liðum í Evrópu. NATO og Varsj- árbandalagið geta rætt hugmynd- ina um kjarnorkulaust svæði í samningaviðræðum sínum um takmörkun kjarnorkuvopna," sagði stjórnin. I stefnu stjórnarinnar er lögð áhersla á að Noregur verði að hafa full yfirráð yfir landgrunni lands- ins. Stefnt er að betra og auknu samstarfi við Efnahagsbandalag Evrópu, reynt verður að hækka elli- og öryrkjalífeyri og stjórnin mun leggja til að einokun ríkisins á útvarpi og sjónvarpi verði hætt. Belyavski, Petrosian og Timman í efsta sæti Tilburg, llollandi, 15. október. AF. ALEKSANDER Belyavsky vann Tony Miles á Interpol- is skákmótinu í Tilburg á miðvikudag og hefur nú hlotið jafn marga vinninga og landi hans Tigran Petr osian og Hollendingurinn Jan Timman, eða 6,5 stig. Belyavsky teflir við Timman í dag og Petrosi- an við Boris Spasski. Spasski hefur hlotið 5 stig og er í 7. sæti á mótinu ásamt Garry Kasparov.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.