Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.10.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 Yfirmenn tollgæzlu væru stórsmyglarar og þjófar - ef áburður Ólafs Ragnars Grfmssonar á vid rök að styðjast sagði Friðrik Sophusson m.a. í utandagskrárumræðum YFIRMENN tollgæzlu hafa í ára- radir verið á eftir þessum manni og ég hef haft tsekifæri til að fylgjast náið með því máli. Eina ástæðan sem ég sé til þessa er sú, að hann hefur verið áhugasamari en vinnufé- lagar hans um að upplýsa um smygl. Ég fer fram á að um lcið og fram fer opinber rannsókn á máli þessu, að kannað verði hvort rétt sé að yfir menn leiti uppi tilefni til að bola úr starfi þeim tollvörðum sem eru áhugasamari en aðrir,“ sagði Olafur Ragnar Grímsson m.a. í umræðum utan dagskrár í sameinuðu Alþingi í gær, en Albert Guðmundsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í tiiefni af ummælum tollgæzlustjóra Kristins Ólafssonar, tollstjóra Björns Hermannssonar, í dagblöð- um vegna kröfu um brottvikningu Matthíasar Andréssonar úr starfi við Tollvörugeymsluna. Albert Guðmundsson kvaddi sér hljóðs og gerði að umræðuefni ummæli tollstjóra og tollgæzlu- stjóra í Tímanum 13. og 15. okt. og krafðist þess, að æðsti yfirmaður þeirra, fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds, sæi til þess að um leið og opinber rannsókn færi fram á máli umrædds tollvarðar færi einnig fram rannsókn á þessum ummælum eða að ráðherra sæi til þess að þeir drægju ummæli sín til baka. Sagði hann ummæli toll- stjóra gefa tilefni til þess að ætla að Tollvörugeymsla hefði reynt að múta umræddum tollverði með launagreiðslum, en svo væri alls ekki. Tollvörugeymslan hefðr ein- göngu orðið að greiða tollverðin- um aukalega fyrir þá yfirvinnu sem hann hafði orðið að inna af hendi. Albert sagðist fagna því að lausn væri fengin á málinu hvað framtíðina varðar, en krafðist könnunar af hendi ráðherra hvað ummæli þessi varðar. Ragnar Arnalds varaði Albert á þá lund, að vandamálið varðandi framtíðina hvað þetta varðaði væri leyst, en eftir stæðu vanda- mál varðandi fortíðina og væru umrædd ummæli hluti af því. Hann sagði Matthías Andrésson tollvörð hafa fullyrt, að hann hefði lent í ónáð hjá yfirmönnum sínum fyrir að gera upptækt smygl sem ekki hefði mátt taka, og tollstjóri því ákveðið að láta fara fram opinbera rannsókn á því máli. Varðandi ummæli toll- gæzlustjóra og tollstjórn sagðist „ÉG FAGNA því að þetta er komið á yfirborðið og að þessi samskipti verða þá rannsökuð. Vegna ummæla Ólafs Ragnars Grímssonar, alþing- ismanns, á Alþingi í gær um að hann hafi kynnt sér þetta mál undanfarin ár og að honum sé kunnugt um að við höfum verið á hælunum á Matthíasi á undarlegum forsendum, vil ég upplýsa að Ólafur Ragnar Grímsson hefur aldrei talað eitt orð við mig. Þetta eru einhliða upplýs- ingar sem hann byggir málfutning sinn á,“ sagði Björn Hermannsson, ráðherra telja, að viðkomandi embættismenn ættu að standa sjálfir við sín orð. Næstur tók til máls Ólafur Ragnar Grímsson, formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins, og þakkaði Albert fyrir að hafa vak- ið máls á þessu. Hann sagðist hafa haft aðstöðu til að fylgjast með máli Matthíasar tollvarðar í langan tíma og hefði hann kannað framgöngu yfirmanna hans í máli þessu. Hann sagðist telja, af þeim kynnum sínum, að ástæða þessara árása væri fyrst og fremst sú að Matthías hefði verið of áhuga- samur í starfi sínu. Taldi hann ummæli Björns Hermannssonar, tollstjóri, er Mbl. spurði hann álits á málinu. Þá sagði Björn einnig: „Ég tel það skipta mestu máli hvort það er rétt eða ósatt sem ég segi í dagblaðinu Tímanum í dag, um að maðurinn hafi þegið þarna laun. Ég hef aldrei gefið það í skyn eins og Albert Guðmundsson, alþingis- maður, virðist túlka þetta, að hér hafi verið um mútugreiðslur að ræða. Þetta eru laun sem hann þiggur frá þeim aðila sem hann á að líta eftir og hann tekur fram- hjá sínu embætti." sem óskað hefði eftir að Matthíasi yrði vikið úr starfi, sýna og sanna að svo væri. Greiðslur til Matthí- asar væru ekki ástæða þessa, enda engar leynigreiðslur. Þá krafðist Ólafur þess að sam- hliða þeirri opinberu rannsókn sem fram ætti að fara yrði mál þetta kannað ofan í kjölinn. Yfir- menn tollgæzlu hefðu í áraraðir verið á eftir þessum manni og eina ástæðan sú, að hann væri áhugasamari en vinnufélagar hans um að upplýsa smygl. Hann væri því ekkert hissa á ummælum þessara yfirmanna. Þau væru í stíl við önnur vinnubrögð, sem Ólafur kvaðast þekkja gjörla til, því Matthías tollvörður hefði leit- að ásjár hjá honum allt frá því hann settist fyrst inn á Alþingi. Albert Guðmundsson tók til máls á ný og endurtók kröfu sína um að ráðherra, sem æðsti yfir- maður umræddra embætt- ismanna, kannaði ummæli þeirra. Þetta væru ummæli sem ekki væri hægt að sitja undir. Hann sagði Matthías hafa gegnt starfi sínu mjög vel og samskipti starfs- manna Tollvörugeymslunnar og hans verið góð. Hann sagði hér á ferðinni embættismannahroka sem þjóðfélagið fyrirliti. Þessir menn væru þjónar fólksins en ekki yfirmenn þess og ættu þeir að haga sér í samræmi við það. Albert sagði í lokin: „Ef von er á einhverjum hefndaraðgerðum í garð Tollvörugeysmlunnar vegna máls þessa, þá lofa ég Alþingi því að ég skal skýra frá því.“ Friðrik Sophusson tók því næst til rriáls. Hann þakkaði Albert fyrir að gera þetta að umræðuefni og minnti á t því sambandi að sér- stök nefnd hefði átt að fjalla um tollkrít og fleira og harmaði að ekkert hefði heyrst frá henni. Björn Hermannsson tollstjóri: Ólafur Ragnar ekki talad eitt orð við mig Bréf tollgæzlustjóra til fjármálaráðherra: „Matthfas sé leystur frá störfum án frekari fyrirvara“ HÉR fer á eftir bréf tollgæslustjóra, Kristins Olafssonar, til fjármálaráð- herra, varðandi mál Matthíasar Andréssonar tollvarðar, sem starfaði við Tollvörugeymsluna, en hefur nú verið fluttur í embætti tollvarðar í Hafnar firði. í bréfinu fer tollgæslustjóri fram á að Matthíasi verði vikið frá störfum, án frekari fyrirvara, og rekur ástæður þeirrar kröfu: „A árinu 1977 var tollgæslu- mönnum tilkynnt, að óheimilt væri að vinna yfirvinnu í dag- vinnudeildum tollgæzlunnar nema verkefni gætu ekki beðið úrlausnar og í öllum tilvikum óheimilt umfram 1 klst. á dag pr. mann nema með samþykki við- komandi deildarstjóra. Tilkynn- ing þessi var ítrekuð á árinu 1978. Athugun, sem gerð var á yfir- vinnu uppgjörstímabilið 16. febr. 1979 til 15. mars s.á., leiddi í ljós að allir starfsmenn tollgæslunnar hefðu farið eftir áðurgreindum fyrirmælum um yfirvinnu nema einn, Matthías Andrésson. Kvaðst hann hafa unnið á tíma- bilinu 55,5 klst. þar sem hann hafði ekki aflað sér heimildar viðkomandi deildarstjóra fyrir þeim 35,5 klst., sem hann hafði unnið umfram 1 klst. á dag á nefndu tímabili eða umfram 20 klst., eins og áskilið var, þá var tímafjöldi Matthíasar lækkaður um 35,5 klst. í tilkynningu toll- gæslunnar um yfirvinnu til launadeildar fjármálaráðuneytis- ins og jafnframt var honum bannað að vinna yfirvinnu í Tollvörugeymslunni við Héðins- götu, þar sem vinnustaður hans var og er, nema samkvæmt beiðni yfirmanna hans hverju sinni, enda ekki á henni talin þörf, við þau talningarstörf, sem Matthías hafði þar og hefur með höndum. Sjá fskj. 1. Mál það, sem rakið e'r hér að framan, kom að nýju upp nú ný- verið, er tollgæslunni barst endurrit rannsóknar rannsókn- arlögreglu ríkisins á vöntun á dekkjum o.fl., sem vera átti í geymslu Hjólbarðasölunnar hjá Tollvörugeymslunni við Héðins- götu. Þar er skráð eftir forstjóra Tollvörugeymslunnar, hr. Helga Hjálmssyni, að Matthías Andr- ésson fái fasta aukavinnu hjá tollvörugeymslunni þ.e. vinnu frá því að dagvinnutíma hans ljúki þar til kl. 17.00 að Tollvöru- geymslan lokar. í tilefni þessara orða var forstjóra Tollvöru- geymslunnar skrifað og hann beðinn um að gefa tollgæslunni nánari upplýsingar um, hvenær Tollvörugeymslan hóf að greiða Matthíasi umræddar yfirvinnu- greiðslur og hver fjárhæð þeirra hefði síðan verið á mánuði. Sjá fskj. 2. í svari forstjórans kom fram, að Tollvörugeymslan hóf að greiða Matthíasi yfirvinnu fyrir tímabilið 15. febr. 1979 til 16. mars s.á., 35,5 klst., og fékk Matthías þar með greidda þá yf- irvinnu, sem getið er um hér að framan, að strikuð hafi verið út á sínum tíma vegna óhlýðni hans við fyrirmælum yfirmanna. Jafn- framt kom fram í svarbréfi for- stjórans, að Matthías hefði síðan fengið greidda yfirvinnu hjá Tollvörugeymslunni, og hefði hún numið allt að 80 klst. á mánuði. Sjá fskj. 3. Samkvæmt framansögðu er nú upplýst, að Matthías Andrésson hefur starfað fyrir Tollvöru- geymsluna í yfirvinnu í um tvö ár jafnframt því að hafa með hönd- um í dagvinnu eftirlit fyrir toll- gæsluna með því, að Tollvöru- geymslan og viðskiptamenn hennar fari að settum lögum. Má nærri geta, hvernig þessi tvö hlutverk fara saman. Ekki er um það kunnugt, hvort Matthías fór að boði 34. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, áð- ur en hann hóf störf sín fyrir Tollvörugeymsluna gegn varan- legu kaupi og tilkynnti ráðuneyt- inu, að hann hygðist taka við slíku starfi. Matthías hvorki leit- aði eftir né fékk samþykki yfir- boðara sinna hjá tollgæslunni fyrir því að starfa fyrir Tollvöru- geymsluna eins og boðið er í 10. gr. starfsreglna fyrir tollverði, þegar um er að ræða störf, sem ekki samrýmast tollvarðarstarf- inu. Fyrir öðru máli skal hér einnig gerð grein. Þann 10. júlí sl. var skriflega lagt fyrir Matthías að senda undirrituðum vikulega skriflega talningarskýrslu, sem skyldi greina frá nánar tilteknum atriðum varðandi talninguna. Sjá fskj. 4. Arangur af þessum fyrir- mælum var sá, að fyrst eftir að þau voru gefin bárust óreglulega frá Matthíasi nöfn á fyrirtækj- um, sem hann hafði talið hjá, en í engu hafði hann fyrirmælin um að skýra frá því, hvort allur lager viðkomandi fyrirtækis hafði ver- ið talinn eða hluti hans. Sjá fskj. 5. Eftir 4. nóvember tók svo fyrir allar upplýsingar frá Matthíasi, sem um hafði verið beðið varð- andi talningarvinnu hans í Toll- vörugeymslunni. Þau tvö mál, sem hér hafa ver- ið gerð að umtalsefni, fjalla um brot í opinberu starfi. Tel ég, að málavextir gefi ástæðu til þess, að Matthíasi Andréssyni verði vikið úr starfi hjá tollgæslunni, þar sem hann hefur áður hlotið áminningu fyrir brot í starfi. Var það 6. ágúst 1976. Þá var honum jafnframt kunngert, að frekari ávirðingar í starfi gætu varðað lausn úr starfi. Sjá fskj. 6. í sam- ræmi við stefnumótun ráðuneyt- isins, sjá fskj. 7, leyfi ég mér að leggja til við ráðuneytið, að það leysi Matthías frá störfum hjá tollgæslunni án frekari fyrirvara. Virðingarfyllst, K.Ó.“ Þá sagði Friðrik að í umræðum þessum hefði komið fram mjög al- varlegur áburður af hendi Olafs Ragnars Grímssonar. Mætti skilja á málflutningi hans, að ef menn væru of duglegir við að upp- lýsa um svik og smygl, væri þeim hegnt. Hér væri ekki aðeins um áburð á viðkomandi yfirmenn að ræða, sem hlytu samkvæmt þessu að vera stórsmyglarar og þjófar, heldur sæti öll tollvarðarstéttin undir ámælunum. Friðrik benti á að Ólafur Ragnar Grímsson væri formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins, þar sem fjármála- ráðherra, Ragnar Arnalds, æðsti yfirmaður yfirmanna tollgæzlu, ætti sæti og því hæg heimantökin til upplýsingamiðlunar þar í milli, sérstaklega þar sem Ólafur Ragn- ar hefði lýst því yfir að sér hefði verið kunnugt um þetta í árarað- ir. Friðrik spurði því fjármála- ráðherra, hvort hann ætlaði að láta fara fram opinbera rannsókn á þessum áburði og hvort hann væri sammála Ólafi Ragnari. „Ef hann er ekki sammála, þá ber honum að upplýsa það hér og nú. Hæstvirtur ráðherra getur ekki látið orðum þessum ósvarað," sagði hann. Guðmundur Þórarins tók undir orð Friðriks og sagði málflutning Ólafs Ragnars Grímssonar hafa kallað sig í ræðustól því hér væri um gífurlega alvarlegar ásakanir að ræða. Hann sagði: „Hvað er spilling ef þetta er ekki spilling, að æðstu yfirmenn þessa mála- flokks standa vörð um smygl í landinu." Þá sagði hann orð Ölafs svo alvarlegan hlut, að það hlyti að vera krafa að fram færi opin- ber rannsókn. Hér væri vegið að öllu embættismannakerfi lands- ins. Ragnar Arnalds tók á ný til máls og sagðist litlu einu vilja við bað bæta sem hann hefði sagt áð- ur. Hann sagði að krafist yrði opinberrar rannsóknar á málinu hvað varðaði umrædd ummæli yf- irmanna en meginregla íslenzks réttarfars væri sú að menn væru sjálfir ábyrgir orða sinna. (Hér greip Friðrik Sophusson fram í og spurði: „Líka Ólafur Ragnar?") Ráðherra sagði einnig að mál þetta yrði að sjálfsögðu kannað. Friðrik Sophusson tók þá aftur til máls og krafði ráðherra svara við spurningu sinni. Hann sagðist hafa spurt einnar spurningar og vildi frá svör við henni: „Ber að skoða þetta svar ráðherra svo að hann sé sammála Ólafi Ragnari Grímssyni, formanni þingflokks hans?“ spurði hann. Ólafur Ragnar Grímsson tók nú til máls og endurtók að hann hefði haft aðstöðu til að fylgjast með máli Matthíasar frá fyrstu tíð. Eini lærdómurinn sem hann hefði dregið af þeim kynnum væri. að Matthías hefði verið hindraður í starfi og honum haldið niðri í starfi þar sem hann hafði unnið of mikið. Þá hefði verið krafist brottvikningar hans úr starfi, sem væri eingöngu lokapunktur- inn í löngu máli. „Ég sagði og segi aftur," sagði Ólafur, „ef þetta er lýsandi dæmi þá er mikið að.“ Hann endurtók kröfu sína um að opinber rannsókn færi fram og hún látin ná yfir alla sögu þessa máls. Hann sagði í lokin að ef hans mat væri rangt, myndi hann sætta sig við það, en málið væri það alvarlegt, að nauðsynlegt væri að kanna það til hlítar. Ragnar Arnalds stóð upp á ný og sagðist gera það vegna fyrir- spurnar Friðriks Sophussonar. Hann sagði það liggja fyrir að málið væri flókið og margslungið og fyrir lægi að rannsókn yrði lát- in fara fram. Varðandi spurningu Friðriks sagði Ragnar: „Finnst mönnum viðurkvæmilegt að ég sem fjármálaráðherra lýsti skoð- un minni á þessu máli á þessu stigi?" Þá sagði Ragnar rétt að tollgæslustjóri hefði talið rétt að Matthíasi yrði vikið úr starfi. „Ráðuneytið taldi rétt að afgreiða málið þannig að maðurinn yrði fluttur til og er hann nú tollvörð- ur í Hafnarfirði." Einnig tóku til máls i umræðu þessari utan dagskrár þeir Árni Gunnarsson og Stefán Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.