Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981
Bróöir okkar,
GUDMUNDUR V. RAGNARSSON,
bóndi, Hrafnabjörgum, Arnarfiröi,
andaöist í Borgarspítalanum 9. okt. sl. Útförin fer fram frá Foss-
vogskirkju miövikudaginn 21. okt. kl. 13.30. Þeim, sem vildu minn-
ast hans, er bent á Slysavarnafélag Islands og minnlngarsjóö
systkinanna frá Hrafnabjörgum.
Systkinin.
t
Maöurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
STURLA AGNAR GUÐMUNDSSON,
skipstjóri. frá ísafirói,
sem lést 2. okt. sl., veröur jarösunginn frá Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 17. okt. kl. 2 e.h.
Hulda Agnarsdóttir,
Sígþrúður Agnarsdóttir,
Höskuldur Agnarsson,
Svava Agnarsdóttir,
Agnes A. Wílliamson,
Hjaltlína Agnarsdóttir,
Guðmundur Agnarsson,
Erna Agnarsdóttir,
Margrét A. Martinez,
Sigmundur Agnarsson,
Eyjólfur Agnarsson,
barnabörn og
Margrét Sigmundsdóttir,
Elísabet Halldórsdóttir,
Inga Ólafsdóttir,
Áslaug Sigurðardóttir,
Garöar Pétursson,
Jóhannes Bjarnason,
Jenný Jakobsdóttir,
Örlygur Þorvaldsson,
Leo R. Martinez,
Guörún E. Víglundsdóttir,
Sigríður Traustadóttir,
barnabarnabörn.
+
GUNNÞÓRA VIGFÚSDÓTTIR,
SKAFTAHLÍO 27,
veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. okt. kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigþór K. Jóhannsson,
Gunnþóra Freyja Jóhannsdóttir.
+
Þakka innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns
míns,
KÁRA HAUKS SIGURJÓNSSONAR,
Drápuhltð 38.
Sjöfn Jónasdóttir.
Bróöir minn,
ÁGÚST SVEINSSON
frá Vatnsnesi,
andaöist í Sjúkrahúsinu í Keflavík 15. október.
Elín G. Sveinsdóttir.
Faöir okkar,
PÁLL HALLBJORNSSON,
kaupmaöur, Leifsgötu 32,
andaöist í Borgarspítalanum aöfaranótt 15. október. Jaröarförin
auglýst síöar.
Börnin.
Móöir okkar,
UNNUR PÁLSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
Borgarheiði 18, Hverageröi,
lést i Landspitalanum miövikudaginn 14. október.
Garðar Sveinsson,
Ásdís Sveinsdóttir,
Aöalheiður Sveinsdóttir.
t
Móöursystir okkar,
ANNA THEÓDÓRSDÓTTIR MATHIESEN,
andaöist i sjúkrahúsi Vestmannaeyja fimmtudaginn 15. þ.m.
Sigurlaug Jónsdóttir,
Árni M. Jónsson.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og utför
sonar míns og bróöur okkar,
DANÍELS WILLARDS FISKE TRAUSTASONAR.
Kristín Valdimarsdóttir,
Halldóra Traustadóttir,
Steinunn Traustadóttir,
Þórunn Traustadóttir,
Valdimar Traustason,
Sæmundur Traustason.
Gunnþóra Vigfúsdótt-
ir — Minningarorð
Fædd 24. september 1908.
Dáin 9. október 1981.
I dag fer fram útför Gunnþóru
Vigfúsdóttur, Skaftahlíð 27 hér í
borg, en hún lézt að Vífilsstöðum
9.- október sl. eftir erfiða sjúk-
dómslegu.
Gunnþóra var fædd 24. sept-
ember 1908 á Brekku á Álftanesi,
dóttir Vigfúsar Sigurðssonar
trésmiðs og konu hans, Guðbjarg-
ar Árnadóttur. Vigfús var þing-
eyskur að ætt, sonur Sigurðar
Guðmundssonar bónda að Gils-
bakka i Öxarfirði og konu hans,
Þóru Bjarnadóttur Buch, bónda á
Fossi í Búrfellsheiði, Péturssonar,
Nikulássonar Buch. Guðbjörg
kona Vigfúsar og móðir Gunnþóru
var frá Eyrarbakka, Árnadóttir,
járnsmiðs þar og síðar í Reykja-
vík, Þorvarðssonar. Þau hjón
Vigfús og Guðbjörg bjuggu á
Brekku frá 1907 til 1912. Þá varð
sú breyting á högum Vigfúsar að
hann réðist sem aðstoðarmaður í
Grænlandsleiðangur Johann Peter
Kochs höfuðsmanns, er var dansk-
ur jöklafræðingur og mælinga-
maður. Vigfús hóf för sína fót-
gangandi frá Brekku til Akureyr-
ar, í marzlok 1912, en þaðan skyldi
förin hefjast um vorið. Er af því
mikil saga sem hér verður ekki
sögð. Guðbjörg fluttist með börn
þeirra þrjú, Tómas, Gunnþóru og
Ólaf, til Reykjavíkur og þar fædd-
ist fjórða barnið, Ánna, um
sumarið. Vigfús var í leiðangrin-
um í tæp tvö ár (1912—1913).
Árið 1915 réðist hann vitavörð-
ur að Reykjanesvita og þar voru
þau í tíu ár, eða til 1925. Þar fædd-
ust þeim hjónum fjögur börn til
viðbótar, Svanhildur, Sigurður
Árni, Auður Ingibjörg og Jóhann
Pétur Koch. Við Reykjanesvita og
í umhverfi hans lifði Gunnþóra
sín unglingsár.
Til Reykjavíkur fluttust þau ár-
ið 1925 og þar settist fjölskyldan
að og þar átti Gunnþóra heimili æ
síðan. Næstu tvö árin eftir kom-
una til Reykjavíkur vann Gunn-
þóra fyrir sér við eitt og annað
sem til féll. Haustið 1927, er hún
var nítján ára, ætlaði hún að fara
í Kvennaskólann í Reykjavík, en
þá veiktist hún og í þess stað lá
Íeið hennar að Vífilsstöðum og átti
hún þar ársdvöl. Var þá komin
lykkja á þá ævileið er ætluð hafði
verið og nú var um það að ræða að
endurheimta heilsuna á ný, og það
tókst þótt aldrei yrði hún heilsu-
sterk.
Árið 1930 réðist Gunnþóra á
ljósmyndastofu Hans Petersen, og
þar vann hún síðan í hartnær
hálfa öld, eða til 1979, þar af verk-
stjóri frá 1950 til 1969. óhætt er
að segja að hún ávann sér fyllsta
traust eigenda og vinsemd og virð-
ingu samstarfsmanna fyrir sam-
vizkusemi, lipurð og vönduð
vinnubrögð. Gunnþóra bjó um
langt árabil með Axel Clausen
verzlunarmanni.
Þær systur Gunnþóra og Anna
skildu aldrei samvistir og bjuggu
ætíð saman, nema hálft annað ár.
Anna fór til Kaupmannahafnar
sumarið 1939 að læra til sauma, en
að því hafði hún starfað. Hún kom
svo heim aftur haustið 1940 í ferð
Esju til Petsamo. — Síðar starf-
ræktu þær systur í nokkur ár
saumastofu í húsnæði Tómasar
bróður þeirra, byggingameistara á
Víðimel 57. Þar bjuggu þær systur
um langt skeið með börn sín tvö,
fósturson Gunnþóru og bróðurson
þeirra, Sigþór Jóhannsson, er kom
á heimili þeirra 1941 á fyrsta ári,
og dóttur Önnu, Gunnþóru Freyju
Jóhannsdóttur, fædd 1944. Og er
Kristrún dóttir Axels, er unnið
hafði hjá þeim á saumastofunni,
missti heilsuna og várð að fara á
Vífilsstaðahæli, tóku þær einka-
son þeirra hjóna, Kristján Her-
mannsson, 2 ára, f. 1947, og ólu
upp til fermingaraldurs. Það var
innilegt samband þeirra systra og
náin samstaða um uppeldi barn-
anna, en þau eru nú þaðan flutt og
hafa stofnað sín eigin heimili.
Það eru yfir fjörutíu ár síðan
fundum okkar Gunnþóru bar fyrst
saman, en það var í Góðtemplara-
reglunni er ég gekk í stúkuna
Verðandi nr. 9, en þar var hún fé-
lagi fyrir. Síðan lá leið okkar sam-
an í Verðandi og síðar í st. And-
vari nr. 265 í samvinnu með
bræðrum og systrum að félagslegu
hugsjónastarfi, allt þar til á
síðastliðnu vori að hún mætti á
fundi í stúkunni okkar, heima
stödd í leyfi frá Vífilsstöðum þar
sem hún var sjúklingur. Þá mátti
sjá að hverju dró, þótt enginn vissi
daginn né stundina sem hún yrði
leyst undan því sjúkdómsoki er þá
hafði þjáð hana meira en árlangt.
+
Alúöar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og vináttu viö
andlát og utför eiginmanns míns. fööur, stjúpfööur, tengdafööur
og afa,
JÓNS A.F. HJARTARSONAR,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyflæknisdeildar Fjórö-
ungssjúkrahúss Akureyrar.
Hjördís Jónsdóttir,
Hjörtur Jónsson,
Ingveldur Jónsdóttir,
Pálína Jónsdóttir,
Steinn Jónsson,
Birna Friöríksdóttir,
Guölaug Bjarnadóttir,
Jóhann Tryggvason,
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Þorleifur Ananíasson,
Hjálmar Björnsson,
Ásdfs Jónsdóttir,
Egill Jónsson
og barnabörn.
Þökkum auösýnda samúö vlö andtát og útför eiginmanns míns og
föður okkar,
DAGNÝS BJARNLEIFSSONAR,
skósmiös.
Steinunn Siguröardóttir,
Ólafía Dagnýsdóttir, Sigurður Dagnýsson,
Lilja Dagnýsdóttir, Hlynur Dagnýsson,
Björk Dagnýsdóttir, Vigfús Dagnýsson.
Myndastofa Hans Petersen hf.
veröur lokuð frá kl. 1 í dag vegna jarðarfarar.
GUNNÞÓRU VIGFÚSDÓTTUR
Gunnþóra var falleg stúlka og
vel gefin, listræn í hugsun og hög í
höndum. Það var gott að vinna
með henni. Hún var fórnfús og
hjálpsöm og ætíð boðin og búin að
láta í té tíma sinn eða fjármuni
fyrir stúkustarfið. I áratugi var
hún formaður sjúkrasjóðs stúk-
unnar og gegndi ýmsum embætt-
um í stúkunni. Hjálparstarf regl-
unnar átti hug hennar umfram
flest annað og því vildi hún ljá lið.
Þessi prúða og hægláta stúlka bar
með sér hlýlegan þokka er veitti
manni traust og væntumþykju.
Nú, þegar hún er horfin okkur
og á burtu kvödd, þökkum við
stúkusystkin hennar fyrir samver-
una og hinar björtu stundir sem
við varðveitum í hugum okkar
með þökk og virðingu. Og fólkinu
hennar öllu, systkinum, fóstur-
börnum og öðru skylduliði, flyt ég
einlæga kveðju og bið þess að
minningin um hana megi verða
þeim blessunarrík.
Indriði Indriðason
Gunnþóra Vigfúsdóttir, móð-
ursystir mín, sem í dag verður
jarðsett frá Dómkirkjunni í
Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspít-
ala þ. 9. október sl. eftir langa og
erfiða sjúkdómslegu. Hún var
fædd að Brekku á Álftanesi 24.
september 1908, næstelst 8 barna
hjónanna Vigfúsar Sigurðssonar,
Grænlandsfara, og Guðbjargar
Árnadóttur. Þau fluttu til Reykja-
víkur árið 1912, en afi tók við vita-
varðarstarfi á Reykjanesi árið
1915. Hann hafði það starf á hendi
i 10 ár. Má nærri geta, að eldri
börnin hafi tekið þátt í störfum
þeirra hjónanna. Afi var trésmið-
ur og þurfti oft að sækja vinnu
annað. Eldri börnin sinntu því vit-
anum á meðan. Hann gekk þá
fyrir lóðum og á 4 stunda fresti,
nótt sem dag, þurfti að draga þau
upp. Heimilisstörfin á þessu af-
skekkta, barnmarga heimili hafa
líka verið mörg og erfið, en allir
hafa hjálpast að.
Síðan flytja þau til Reykjavíkur
aftur, en Gunnþóra veiktist 19 ára
gömul og var nær samfellt rúm-
liggjandi í 3 ár. Þegar hún hafði
náð kröftum, hóf hún störf hjá
ljósmyndastofu Hans Petersen, en
eftir Alþingishátíðina 1930 vant-
aði starfsfólk við vinnslu ljós-
mynda. Hún átti eftir að verja
allri sinni starfsævi hjá fyrirtæk-
inu og mörg ár sem verkstjóri. Þar
átti hún góð ár, og reyndist Hans
Petersen og fjölskylda hans henni
mjög vel. Síðustu árin var heils-
unni mjög farið að hraka og segja
má, að viljinn hafi verið sterkari
en þrekið.
Gunnþóra hélt heimili með
móður minni, Önnu. Ekki voru
þær systur þó einar í heimili, því
fyrst áttu yngri- systkinin heimili
með þeim. Þegar þau fóru að
heiman smám saman, bættust
aðrir við. Þær tóku til fósturs
bróðurson sinn, Sigþór Jóhanns-
son, og ólu hann upp til fullorðins-
ára sem sinn eigin son. Síðan
bættist ég í hópinn og var Gunn-
þóra mér sem önnur móðir, en hjá
mér hét hún alltaf Nabba. Síðan
tóku þær 2ja ára gamlan dreng,
Kristján Hermannsson, sem átti
hjá okkur heimili fram að ferm-
ingu. Móðir hans átti við mikla
vanheilsu að stríða.
Þrátt fyrir langan vinnudag á
Ijósmyndastofunni og heima með
okkur börnunum, og síðustu árin
barnabörnunum, átti Nabba önn-
ur áhugamál. Ung gekk hún i Góð-
templararegluna og var síðan ein
af stofnendum stúkunnar And-
vara nr. 265 árið 1948. Hún starf-
aði þar af áhuga alla tið.
Nabba tók einnig þátt í öðrum
félagsstörfum, en ótalin er öll
hennar handavinna. Bar vinna
hennar heima og á vinnustað þess
merki, hve listræn hún var.
Eg vildi með þessum fáu línum
þakka fyrir að við nutum fegurra
og betra lífs með henni.
Guð blessi minningu hennar. Sé
hún góðum Guði falin.
Gunnþóra Freyja Jóhannsdóttir
Fædd 24. seplember 1908.
Dáin 9. október 1981.
Níunda þessa mánaðar lést að
Vífilsstöðum Gunnþóra Vigfús-