Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 235. tbl. 68. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaösins. Net öfga- manna meö Iran sem fyrirmynd - segir Mubarak ,V*w York, 20. október. Al'. IIOSNI Muharak forseti Egyptalands segir í viðtali sem birtist í The New York Times í dag að í kringum morð- ingja Sadats hafi verið „net" öfga- manna sem hafi gengið það til að endurtaka það sem gerðist í íran. Hafi stjórninni tekizt að koma höndum yfir 230 úr „netinu" og megi ætla að öllu fleiri séu samsærismennirnir ekki. Mubarak segir í viðtalinu að ör- yggissveitir stjórnarinnar séu sem óðast að svæla öfgamennina út úr grenjum þeirra. Rannsókn vegna morðsins á Sadat sé enn ekki lokið en ýmislegt hendi til að ekki einung- is hafi verið sótzt eftir lífi forsetans heldur og annarra stjórnmálaleið- toga sem viðstaddir voru hersýning- una örlagaríku fyrir hálfum mán- uði. Hosni Mubarak 35 líf- látnir í íran Hoirút. 20. októbvr. Al*. SKÝRT var frá því í Teheran í morgun, að síðasta sólarhring hefðu 35 andstæóingar byltingar- stjórnarinnar verið teknir af lífi. I»ar með hefur stjórnin opinber- lega viðurkennt að hafa tekið af lífi 1405 manns frá því að Bani- Sadr var flæmdur úr forsetaemb- ætti. Amnesty International full- yrðir hins vegar, að síðan hafi 1800 verið teknir af lífi og Bani- Sadr, sem dvelst í París, heldur því fram, að talan sé að nálgast 3000. Bani-Sadr skoraði í dag á „alla Irani að rísa upp gegn fjendum Islams og Irans sem nú stjórna með ógnum og glæpaverkum", en í hópi þeirra, sem teknir voru af lífi, var nánasti lögfræðilegi ráðgjafi forsetans fyrrverandi. Gífurlegar skemmdir urðu er öflug sprengja sprakk í gyðingahverfi í Antwerpen í gærmorgun. Tvær konur létu lífið og um 90 manns særðust. Sjá nánar frétt á bls. 15. ai* símamvnd Átök milli lögreglu og Sam- stöðumanna í Katowice Narsjá, 20. október. Al*. TIL ÁTAKA kom milli Samstöðu- manna og sérþjálfaðra lögreglu- sveita í Katowice í dag. Átökin stóðu skamma stund og er ekki vit- að til þess, að meiðsl hafi orðið, en rúður voru brotnar og lögreglubíl var velt. í kvöldfréttum sjónvarps- ins var sagt, að þrír menn hefðu verið handteknir í sambandi við átökin. Að sögn bæði Samstöðu og lögreglunnar var kyrrð komin á í Katowire í kvöld, en víða í landinu er mikil ólga og þess sjást lítil merki, að mark sé tekið á verkfalls- banninu sem Samstaða hefur Ijáð samþykki. Átökin í Katowice hófust er Ekki tekið mark á verk- fallsbanninu óeinkennisklæddir lögreglumenn reyndu að hefta dreifingu flugrita frá Samstöðu á aðalmarkaðstorgi borgarinnar á þeirri forsendu að þau flyttu boðskap er bryti í bága við stefnu stjórnarinnar í landinu og væri „and-sovézkur“. Kom til handalögmála er Samstöðu-menn vildu ekki una þessum afskiptum og dreif þá að mikinn mannfjölda. Að sögn Samstöðu-manna komu óðar á vettvang milli 20 og 30 lög- reglubílar, hlaðnir sérþjálfuðum lögreglumönnum með hjálma og skildi, og skökkuðu þeir leikinn á skammri stundu. Meðan á þessu stóð birtu 12 þús- und verkfallsmenn í Zyrardow, sem er skammt fyrir vestan Varsjá, harðort mótmælaskjal, þar sem skorað er á Jaruzelski, hinn nýja flokksleiðtoga, að bæta lífskjörin þannig að endi verði bundinn á verkföll. í skjalinu er tekið fram, að hér sé ekki um póli- tísl; mótmæli að ræða heldur beið- ni um hjálp til handa fólki sem skorti nauðþurftir. Stöðugt berast fregnir af nýjum mótmælum og verkfallshótunum. A miðvikudag er yfirvofandi klukkustundar verkfall um 180 þúsund verkamanna hjá um 700 fyrirtækjum í Zielona Gora, auk þess sem hótað hefur verið alls- herjarverkfalli á fimmtudag vegna brottvikningar Samstöðu- manna af samyrkjubúi einu í Suður-Póllandi. Þá hafa bændur í Bledow í Mið-Póllandi hótað að boða verkfall til að mótmæla spill- ingu í sambandi við kolasölu á svæðinu og i Konon í vesturhluta landsins og Legnica eru yfirvof- andi verkföll til að mótmæla mat- vælaskorti. Búist er við nýrri stjórn í Grikklandi á morgun \|»rnu. 20. oklóber. Al*. Sósíali.staleiðtoganum Andreas Papandreou, sem vann stórsigur í þingkosningunum um helgina, var í dag falin myndun nýrrar stjórnar, og er við því búizt, að hún taki við völd- um á miðvikudag. Er endir þar með bundinn á 35 ára hægri stjórn í Grikklandi, en Papandreou, sem hefur á að skipa drjúgum meirihluta í þinginu, ætlar að beita sér fyrir þjóðnýtingu í stórum stfl, auk þess sem hann hefur heitið margskonar félagslegum umbótum. I.ítið spyrst af því hverjir verði ráðherrar í nýju stjórninni. Ýmis blöð sem fylgja sósíalistaflokkn- um að málum spá því að Papan- dreou ætli sjálfur að fara með varnarmál, en frá því í herfor- ingjabyltingunni 1967 er talið að embætti varnarmálaráðherrans verði ekki ofmetið. Þegar öll atkvæði í kosningun- um voru komin til skila hafði PASOK, flokkur Papandreous, hlotið 48% atkvæða og 174 þing- sæti, Nýi lýðræðisflokkurinn, flokkur Rallis, fráfarandi forsæt- isráðherra, sem baðst lausnar í dag 35,9% og 113 sæti, en komm- únistar 10,6% og 13 sæti á þing- inu, þar sem 300 fulltrúar sitja í einni deild. Fálæti einkennir viðbrögð flestra ráðamanna á Vesturlönd- um við sigri Papandreous og er ljóst að þeir treysta því varlega að stefna hans í utanríkismálum reynist jafnhófsöm og hann vildi vera láta t kosningabaráttunni. Virt blöð á Vesturlöndum, svo sem The Times i Lundúnum og The New York Times, telja fyllstu ástæðu til að kvíða því hvað hin nýja stjórn sósíalista í Grikklandi kunni að taka sér fyrir hendur í utanríkis- og öryggismálum, og The Guardian segir að Papan- dreou skilji flestum stjórnmála- mönnunt betur að sitthvað sé stefna í kosningabaráttu og stefna ríkisstjórnar, og stórsveiflur Pap- andreous í kosningabaráttunni, þegar ra'tt hafi verið um utanrík- ismál og EBK geti vart talizt góðs viti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.