Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 3 Sven Stray utanríkisráðherra Norðmanna: Norðmenn gáfu of mikið eftir í samkomulaginu við íslendinga eyðingarvopna og ástands heims- mála. Hann svaraði því til, að hann liti á utanríkismál Noregs frá þessu sjónarmiði út frá veru Noregs í NATO og sagði Norð- menn túlka grundvallarskoðun út frá staðreyndinni, Helsingfoss- sáttmálanum, og því að Noregur væri í NATO. Spurningunni um, hvort hann teldi að takmarka ætti kjarnorkuvopn svaraði hann: „Það er mál sem samstarfsaðilar innan Samkomulagið undirritað í dag NATO verða að taka upp innan NATO.“ Sven Stray sagði í lok fundar- ins, aðspurður um fjölgun frið- arhreyfinga í heiminum, t.d. í Þýzkalandi, að honum kæmi slíkt ekki á óvart. Yfirgangur Rússa, og nefndi hann þar sérstaklega sem dæmi innrás Rússa í Afganistan, hefði valdið því að almenningur í heiminum væri hræddur. Hræðsl- an skapaði viðbrögð sem þessi. Krá blaðamanni Mbl. í Osló, Fríðu l'roppó. „VIÐ LÍTIIM með tilhlökkun til komu forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, og einnig til veru utanríkisráðherra Islands, Ólafs Jó- hannessonar, hér í Noregi,“ sagði Sven Stray, utanríkisráðherra Nor egs, í upphafi fréttamannafundar með íslenzkum fréttamönnum hér í Osló í gær. En forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir ásamt föruneyti kemur í sína fyrstu opinberu heim- sókn hingað í dag. Utanríkisráðherrann sagðist aðspurður á fundinum um Jan Mayen-samkomulagið telja, að Norðmenn hefðu gefið til muna meira eftir hvað varðar niðurstöð- urnar í samkomulaginu en íslend- ingar. „Ef litið væri á það sem eðlilega lausn að miðlínan réði,“ eins og hann orðaði það. Hann sagðist þó fagna niðurstöðunni eins og Norðmenn gerðu yfir höf- uð og því að samkomulag hefði náðst. Utanríkisráðherrar land- anna munu rita undir samninginn um Jan Mayen á morgun, fimmtu- dag. Aðspurður sagði Sven Stray einnig á fundinum, að vel mætti hugsa sér meiri samstöðu í milli Noregs og Islands á sviði orku- og iðnaðarmála, og vel gæti komið til aukinn áhugi Norðmanna á því sviði. En hann hefði verið spurður að því hvort hugsanlega gæti kom- ið til aukinnar samvinnu, t.d. í vöruskiptum á olíu og rafmagni milli landanna. Hann sagði þó að Norðmenn vildu ekki „þrýsta á“ Island á þessu sviði. Og einnig að „hræðsla í gamla daga“ hvað varð- aði áhrif stórra iðnfyrirtækja væri ástæðulaus. Nokkuð var komið í umræðum á fundinum inn á ófriðarblikur í heiminum og hinn nýi utanríkis- ráðherra Noregs, sem aðeins hefur verið í embætti í þrjá daga, var spurður um afstöðu sína til ger- 1. des.-nefnd stúdenta: Kosningum lýkur í dag í 0/EKKVÖLI)l hófust í iláskóla Islands kosningar iil I. des.- nefndar og er einnig kosið í dag í Félagsstofnun stúdenta frá kl. 9.00 til kl. 18.00. Þrír listar eru í framboði, A- listi Vöku, sem býður fram undir kjörorðinu: Eru menntamenn of margir?, B-listi Félags vinstri manna, sem hefur að yfirskrift: Kjarnorkuvígbúnaður: Helstefna eða lífsstefna? og D-listi SALT, sem býður fram undir kjörorð- inu: Maður — manngildi. Félag umbótasinnaðra stúdenta býður ekki fram í þessum kosningum. Farþegaskip milli íslands og útlanda: Hentugt skip hefur ekki fundizt ATHUGANIR hafa staðið yfir um nokkurt skeið á vegum Kimskipafé- lagsins, Hafskips og Færeyska skipafélagsins á því, hvort hag- kvæmt reyndist að reka skipaferju yfir sumarmánuðina sameiginlega af félögunum. Yrði hún aðallega í siglingum milli íslands, Færeyja, Skotlands og Noregs. Að sögn Harðar Sigurgestsson- ar, forstjóra Eimskipafélags ís- lands, virðist vera rekstrargrund- völlur fyrir svona skipi 5—6 mán- uði á ári, en vandamálið væri hins vegar að finna hentugt skip til verkefnisins. „Til þessa höfum við skoðað nokkur skip, sem ekki hafa hentað til flutninganna. Það er nauðsyn- legt, að niðurstaða fáist í það mál mjög bráðlega, svo hægt sé að undirbúa málið með nægilegum fyrirvara, og satt bezt að segja er- um við orðnir talsvert svartsýnir á að finna skip,“ sagði Hörður Sig- urgestsson ennfremur. » Ef bílar gætu talað bæðu !£run,#'lUNIFL0 smurolíuna + UNIFL0+ÍUN,FL0 IOTOR OLIE wœ* a«-4ENOSTOP •CKE WOTO«SUO Náöu í bækling um nýju UNIFLO+ á næstu ESSO stöö. áá Þessi nýja UNIFLO+ smurolía gerir betur en að fullnægja ströngustu gæðakröfum sem framleiðendur bensínbíla gera til slíkrar olíu. Hún hefur að geyma ný þaulprófuð bæti- efni sem draga stórlega úr núnings- mótstöðu vélarinnar. Ef þú ferð síðan reglulega með bílinn í smurningu ertu vel settur því nýja UNIFLO+ tryggir: • Léttari gangsetningu í kuldum • Minni eldsneytiseyðslu • Minni smurolíueyðslu • Minna mótorslit Bjóddu bílnum þínum upp á nýju UNIFLO+ á næstu bensín- eða smur- stöð ESSO. - Það gerir honum gott. OHufétagið hf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.