Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTOBER 1981 12 Aldarminning: Séra Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur í dag, 21. okt., eru 100 ár liðin frá fæðingu séra Bjarna Jónsson- ar, dómkirkjuprests og vígslubisk- ups, en hann var fæddur hér í Reykjavík, 21. okt. 1881, voru for- eldrar hans þau hjónin Jón Odds- son, tómthúsmaður í Reykjavík og Ólöf Hafliðadóttir, er bjuggu í Mýrarholti í Vesturbænum. Föð- urætt séra Bjarna var úr Kjósinni, en móðurættin frá Engey. Reykja- vík var þá lítill bær, miðað við það sem síðar varð, og margir torfbæir þar enn við lýði, þar á meðal Mýr- arholt. Minntist séra Bjarni oft á það síðar, að þegar hann hafði tekið inntökupróf í Lærða skólann 1896, hafi staðið í skólaskýrslunni, að hann væri fæddur í Mýrarholti „við Reýkjavík", eins og það var orðað, en Mýrarholt stóð í Vestur- bænum, þar sem síðar mættust Nýlendugata og Bakkastígur. Húsakynni voru ekki háreist, og fátækt var mikil meðal alþýðu- fólks í Reykjavík á þeim árum. Nokkuð mun foreldrum sr. Bjarna hafa fundist þau færast í fang, að ætla sér að senda son sinn í Lærða skólann, þar sem efnin voru lítil eða engin, en voru þó eindregið hvött til þess, einkum af Morten Hansen skólast.j. barna- skólans, og fyrir tilstilli hans og annarra góðra manna tók hann að læra til inntökuprófs í Latínuskól- ann, og þar með voru örlög hans að nokkru leyti ráðin. Sóttist hon- um námið strax vel, en þegar hann var í 3. bekk missti hann föður sinn, en hann varð bráðkvaddur á Vesturgötunni, er hann var á heimleið frá vinnu. Stúdentsprófi lauk séra Bjarni 1902 og hélt svo til náms í guð- fræði við Kaupmannahafnarhá- skóla og bjó á Garði (Regensen) en íslenskir stúdentar nutu þar sér- stakra fríðinda um garðsvist, en það hjálpaði til þess, að margir fátækir stúdentar gátu stundað nám við Hafnarháskóla, sem ann- ars hefði orðið það ókleift. En garðstyrkurinn var felldur niður með sambandslögunum 1918. Séra Bjarni lauk kandidatsprófi í guðfræði við Hafnarháskóla 1907, en tafðist einn vetur frá námi, vegna fjárskorts og stund- aði þann vetur kennslustörf hér í Reykjavík. Oft minntist hann námsára sinna í Kaupmannahöfn með hlýj- um huga og fór lofsamlegum orð- um um kennara sína og um þá, sem greiddu götu hans á námsár- unum eða höfðu sérstök áhrif á líf hans og lífsviðhorf. Einn kunnasti prestur Kaup- mannahafnar á þessum árum var séra Olfert Richard. Hann þótti frábær ræðuskörungur og var um þessar mundir framkvæmdastj. KFUM í Kaupmannahöfn. Greiddi þessi merki prestur götu þessa ís- lenska stúdents á margan hátt og mun hafa haft meiri áhrif á líf hans en nokkur annar maður. Naut sr. Bjarni þar góðs af vináttu sinni við sr. Friðrik Friðriksson, en hann og sr. Richard voru alda- vinir. Þegar séra Bjarni kom heim frá námi í Kaupmannahöfn gerð- ist hann um 3ja ára skeið kennari og skólastjóri á Isafirði, og mun um skeið hafa hvarflað að honum að helga sig kennslustörfum, og margir mundu lengi kennslu hans frá þeim árum. Dómkirkjupresturinn En 1910 urðu straumhvörf í lífi hans, því 26. febr. það ár var hann kjörinn 2. prestur við Dómkirkj- una í Reykjavík og var vígður 26. júní sama ár. Þar var ekki tjaldað til einnar nætur, því við Dóm- kirkjuna var hann síðan prestur í 41 ár, eða lengur en nokkur annar prestur á undan honum, og þó að hann segði formlega af sér emb- ætti 1951, hélt hann raunverulega áfram að vera „presturinn" í með- vitund fólksins og margir leituðu til hans, eins og áður, til einstakra prestsverka. Prestsstarf séra Bjarna í Reykjavík var ótrúlega um- fangsmikið, og fór síst minnkandi með árunum íbúum í Reykjavík fjölgaði ört um hans daga, og vandamálin urðu mörg á vegi hans. Margir muna enn þegar spánska veikin geisaði hér í Reykjavík 1918, og margvíslega erfiðleika hernámsáranna. Lengi voru prestarnir í Reykjavík aðeins þrír, og þeir höfðu allir meira en nóg að gera. Hann hafði unnið fleiri prestsverk en nokkur annar prestur á íslandi. Það var næstum ótrúlegt, hvað sr. Bjarni gat kom- ist yfir að vinna og það var ekki alltaf langur tími til undirbún- ings, þegar hann þurfti að flytja ræður stundum oft á dag. Sjaldan mun hann hafa neitað, þegar til hans var leitað um prestsþjón- ustu. Séra Bjarni var áhrifamikill prédikari. Hann hafði sinn sér- staka stíl í ræðuflutningi, eins og áhrifamiklir prédikarar hafa jafn- an haft. Þessvegna var hann eng- um líkur. Ræður hans voru bornar uppi af trúarhita og sannfær- ingarkrafti, samlíkingar hans komu mönnum stundum á óvart, og festust því gjarnan í minni þeirra og enginn þurfti að kvarta yfir því að ekki heyrðist til hans í kirkjunni, þótt engir væru hátal- arar. Hann var vel að sér í Biblí- unni, sögu og bókmenntum, stefn- um og straumum í andlegum mál- um, og hafði ritningargreinar á hraðbergi. Hann vitnaði óspart í Ijóð og líkingar í ræðum sínum, svo að ýmsum þótti hann jafnvel óþarflega eyðslusamur á gott ræðuefni í prédikunum sínum, og þegar vinir hans bentu honum vinsamlega á þetta, brosti hann og sagði: „Mér leggst alltaf eitthvað til.“ Og sannleikurinn var sá, hann varð aldrei þurrausinn. Hann var vel að sér í guðfræði og fylgdist vel með trúarstefnum samtíðar sinnar, sjálfur fylgdi hann hinum eldri trúarstefnum, en var víðsýnn og umburðarlyndur og átti vini og aðdáendur í hópi þeirra, sem ekki fylgdu sömu trú- arskoðunum og hann. Séra Bjarna voru falin mörg trúnaðarstörf í kirkjunni, meðan hann var dómkirkjuprestur. Hann var prófastur í Kjalarnespróf- astsdæmi og dómprófastur í Reykjavík, eftir að prestakallinu þar var skipt, og Reykjavík varð sérstakt prófastsdæmi. Þá var hann vígslubiskup í Skálholtsbisk- upsdæmi hinu forna, í stjórn Hins íslenska Biblíufélags, og um ára- raðir formaður KFUM í Reykja- vík, og vann mikið fyrir þann fé- lagsskap, og mat hann mikils, fangelsisprestur í Reykjavík með- an hann var dómkirkjuprestur og lengi, eftir að hann lét af embætti. Þá var hann prófdómari við guðfræðideild háskólans frá stofn- un hans 1911 og til 1962 eða um 52ja ára skeið. Lengst af þeim tíma var ríkjandi þar guðfræði- stefna, sem sr. Bjarna var ekki, að öllu leyti, að skapi, en aldrei heyrðist annað en að hann dæmdi verkefni stúdentanna af sanngirni og af víðsýni og vart myndi hann hafa verið svo lengi við þetta starf, ef honum hefði ekki verið það geðfellt. Ég held að honum hafi verið það ánægjuefni að fylgj- ast með hinum ungu mönnum, sem útskrifuðust úr guðfræði- deildinni. Ég held að séra Bjarni hafi ekki látið ólíkar trúarskoðanir fara mjög í taugarnar á sér, þótt hann héldi fast við sín sjónarmið. Hann tók sjaldan mikinn þátt í'trúmála- deilum og allra síst.ef þær báru einhvern keim af ofstæki eða skorti á umburðarlyndi. Meðal bestu vina sr. Bjarna voru án efa þeir sr. Friðrik Friðriksson og Dr. Jón Helgason, biskup, en þó voru þeir harla ólíkir í trúarskoðunum sínum og guðfræði. Séra Bjarni var ekki aðeins þjóðkunnur prédikari og guðfræð- ingur, heldur var hann mikill sálusorgari. Reynsla hans í prests- starfinu var víðtækari en flestra annarra. Hann kom oft fram á há- tíðlegum og stórum augnablikum í sögu þjóðarinnar og það reyndi oft mikið á hann, þegar sorg og reynsla varð á vegi manna, þá þótti gott að hafa hann hjá sér, njóta fyrirbæna hans, huggunar og styrks frá honum. Hann kunni manna best, að gleðjast með glöð- um og hryggjast með hryggum. Hann var ríkur af samúð, og gleð- in var alltaf í för með honum. Hvar, sem hann kom og hvar sem hann fór, vakti hann virðingu og traust. Styrk sinn sótti hann í trúna, í samfélagið við Guð og frelsarann. „Ég trúi, þess vegna tala ég,“ sagði hann oft. „Lífið- er mér Kristur" var t.d. nafn á bækl- ingi með nokkrum ræðum, sem vinir hans gáfu út. I raun og veru var þetta yfirskrift lífs hans. Það fór því ekki hjá því, að áhrif hans yrðu mikil og það meiri en hann sjálfur gerði sér Ijóst og það meðal þeirra, sem ekki áttu, að öllu leyti, samleið með honum í guðfræðileg- um efnum. Trúarskoðanir breyt- ast frá einni kynslóð til annarrar, en einn er sá, sem aldrei breytist, hann sem er alfa og omega, upp- hafið og endirinn. Madurinn og samborgarinn Séra Bjarni var óefað einn þekktasti Reykvíkingur hér í borginni um sína daga. Hann átti heima í miðborginni, í Lækjargötu 12 B eða við „breiða veginn", eins og hann sjálfur orðaði það, eftir að Lækjargatan hafði verið breikkuð. Oft var hann á ferli í miðbænum, svo að segja allir borgarbúar þekktu hann í sjón, og hann þurfti mörgum að heilsa. Sjálfur var hann fæddur Reykvík- ingur, „Reykjavíkurbarn" og Vest- urbæingar voru stoltir af því, að hann skyldi vera úr þeirra bæj- arhverfi. Honum þótti vænt um Vesturbæinn og mundi vel eftir því, að hann var frá Mýrarholti. Honum þótti vænt um Reykjavík og alla Reykvíkinga, og þær fram- farir, sem höfðu orðið hér um hans daga. Honum þótti vænt um þann sóma, sem Dómkirkjusöfn- uðurinn hafði sýnt honum og konu hans við ýmis tækifæri. Hann gladdist er háskólinn gerði hann að heiðursdoktor í guðfræði og ekki síður þegar borgarstjórn Reykjavíkur gerði hann að fyrst heiðursborgara borgarinnar, er hann var áttræður, 21. okt. 1961. Allur þessi sómi og viðurkenning gladdi hjarta hans, en þó kannski mest sá hlýhugur og vinsemd, sem hinn almenni borgari í Reykjavík sýndi honum alla tíð. í daglegu iífi hans fór saman gleði og alvara, hann var manna skemmtilegastur í viðræðum, fyndinn og gamansamur, en blátt áfram í öllum lífsháttum. Sem ræðumaður i samkvæmum átti hann fáa eða enga sér líka, til skiptis sló hann á alvarlega og létta strengi, og tók þá öllum fram. Orð hans og fyndin tilsvör munu lengi lifa í minni samtíð- armanna hans, og ef hann sagði góðan „brandara" gleymdist hann ekki. Flins og kunnugt er var heimili séra Bjarna í Lækjargötu 12 B, ekki langt frá Dómkirkjunni. Náið samband var milli heimilisins og kirkjunnar, í raun og veru var heimilið hans önnur kirkja, því þar fóru fram flestar hjónavígslur og margar skírnir, eins og þá tíðk- aðist; þá rifjast upp sá þáttur, sem frú Aslaug Ágústsdóttir, kona sr. Bjarna, átti í starfi hans fyrr og síðar. Séra Bjarni og frú Áslaug voru gefin saman í hjónaband 15. júlí 1913, og höfðu því verið gift í 52 ár, er sr. Bjarni lést 19. nóv. 1965. Hjónaband þeirra var far- sælt. Frú Áslaug studdi mann sinn með ráðum og dáð, var með honum í starfinu, gerði kirkju- legar athafnir hans hátíðlegri með ágætum píanóleik sínum söng og sinni hlýlegu framkomu. Hún átti því sinn mikla og góða þátt í vin- sældum hans og velgengni í starf- inu. Séra Bjarni gat því með sanni sagt, hvernig prestskona ætti að vera og það gerði hann oft á sinn skemmtilega og gamansama hátt. Þegar frú Áslaug nú á efri árum minnist þessara liðnu ára vaknar þakklæti hennar fyrir sambúðarár þeirra, samstarf og heimilislíf, og í hugum barna þeirra, Ágústs, Ólafar og Önnu, geymast einnig hinar fegurstu minningar, um for- eldra þeirra, og æskuheimili í Lækjargötu. Það var vissulega sorg í hugum margra Reykvík- inga, þegar Lækjargata 12 brann til kaldra kola, 10. mars 1967. Með húsinu brunnu þar margir per- sónulegir munir, myndir, bækur og skjöl fjölskyldunnar, frá liðn- um árum, sem ekki varð bætt. Nú þegar liðin eru 100 ár frá fæðingu séra Bjarna Jónssonar, vígslubiskups, þessa vinsæla borg- ara Reykjavíkur, rifjast eðlilega upp margar minningar um þennan merka mann og kirkjuhöfðingja, sem hér er ekki unnt að rekja. Hið umfangsmikla prestsstarf séra Bjarna hér í Reykjavík, varð til þess, að honum gafst minni tími til ritstarfa og til ferðalaga en æskilegt hefði verið. Þó birtust oft, frá hans hendi, greinar í blöð- um og tímaritum, um kristin- dómsmál og viðtöl við hann um æskuár hans og starf hér í Reykjavík, og frá ferðum þeirra hjóna erlendis, sem allt var fróð- legt og skemmtilegt. Munu margir sakna þess, að hann skyldi ekki skrifa meira um æskuár sín hér í Reykjavík, um menn og málefni, sem komu við sögu í samtíð hans. Hann hafði fylgst með þróun borgarinnar á langri ævi og hann var bæði glaður og stoltur yfir því, að vera „Reykjavíkurbarn". Oft mun þess hafa verið farið á leit við hann, að hann ritaði endurminningar sínar og varla hefði hann skort útgefanda, en hann mun jafnan hafa eytt slíkum tilmælum. Ég kynntist séra Bjarna Jóns- syni fljótlega eftir að ég kom til Reykjavíkur 1923 og var, að nokkru leyti heimilismaður hjá frú Önnu Benediktsson, tengda- móður hans, í 7 vetur, og svo féll það í minn hlut að verða eftirmað- ur hans við Dómkirkjuna 1951. Að verða eftirmaður hans var að mörgu leyti vandasamt, en það var líka hvetjandi og uppörvandi. Mér þótti alltaf uppörvandi að hafa hann í kirkju hjá mér, jafnvel þótt hann kynni að hafa haft sitthvað við mig að athuga. Það skyggði ekki á vináttu okkar. Á þessum 100 ára minningar- degi séra Bjarna verður mörgum þeim, sem ganga fram hjá Dóm- kirkjunni hugsað til hans og fjöl- skyldu hans með virðingu og þakklæti, og þeir, sem starfað hafa við Dómkirkjuna vilja gjarn- an að þaðan berist hlýjar hugsanir til þessa merka manns. Við Dóm- kirkjuna eru, eins og kunnugt er, 3 minnisvarðar, einn um Hallgrím Pétursson, annar um Jón Vídalín, og sá þriðji og síðasti um séra Bjarna. Þótt þessir menn væru ólíkir og lifðu á ólíkum tímum, settu þeir allir svip á samtíð sína og eitt höfðu þeir allir sameigin- legt, þeir voru orðsins þjónar, áhrifamenn í kristnilífi samtíðar sinnar og báru brennandi blys trú- arinnar fyrir þjóð sinni um sína daga. Þess vegna getum við sagt í dag með höfundi Hebreabréfsins: „Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað. Virðið fyrir yður hvernig ævi þeirra lauk og líkið síðan eftir trú þeirra." (Hebr. 13.7) Óskar J. Þorláksson Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri í Reykjavík, afhendir sr. Bjarna Jónssyni skjal þess efnis, að hann hefi verið gerður að heiðursborgara Reykjavíkur á áttræðisafmæli hans, 21. okt. 1961. Borgarstjóri ávarpaði þennan fyrsta heiðursborgara Reykjavíkur, en sr. Bjarni Jónsson svaraði. Myndina tók OI.K.M., Ijósm. Mbl., á heimili sr. Bjarna og frú Áslaugar, sem einnig er á myndinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.