Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 7 Þakkir Ég þakka af alúð öllum þeim fjölmörgu vinum og ætt- ingjum, sem heimsóttu mig og glöddu á áttræðisafmæli mínu 11. október sl. Guð blessi ykkur öll. Krístjana Guðjónsdóttir, Hjallavegi 2. Kærar kveðjur sendum við öllum þeim fjölmörgu sem ausýndu okkur vináttu og kærleikshug 3. október. Við þökkum heimsóknir, heillaóskir, góðar gjafir og blóma- haf. Drottinn blessi ykkur öll. Rósa B. Blöndals, Ingólfur Ástmarsson, Mosfelli. Spónaplötur af ýmsum geröum og þykktum 10-12—16—19—22 millimetra Mjög hagstætt verð. W Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 .„ lo^aW° Folaldakjöt ’/2 skrokkar °^tö aðeins 28 kr. kg. Tilbúið í frystinn. Folaldahakk .......................33 kr. kg. Folaldasnitzel....... .............95 kr. kg. Folaldafillet .....................98 kr. kg. Folaldagullasch...... .............89 kr. kg. Folaldabuffsteik ..................91 kr. kg. Reykt folaldakjöt .................28 kr. kg. Saltaö folaldakjöt .................25kr.kg. Laugalæk 2. simi 3 50 20 IÐNAOARRAÐHERRA A BLAOAMANNAFUNDI UM ALVERIO Er atvinnuöryggið að bresta? Landflótti, burtflutningur fólks umfram aöflutta, sem sagt hefur til sín um nokkurt árabil, hefur veriö talinn til dulins atvinnuleysis hér á landi. Rekstrarleg staöa fyrirtækja í sjávarútvegi, bæöi útgeröar og frystiiðnaðar, sem nú sæta verulegum taprekstri og vaxandi skulda- söfnun, þykja benda til meiri óvissu á íslenzkum vinnumarkaöi en veriö hefur um árabil. Sama máli gegnir um útflutningsiönaö. Bygg- ingariðnaöur á i sýnilegri vök aö verjast, eftir aö ríkisvaldiö hjó aö rótum hins almenna veölánakerfis. Og ríkisvaldiö sefur værum svefni á öllum áformum um stórvirkjanir og nýja stóriðju, sem ýmsir telja nauösynlegan undanfara sambærilegra lífskjara hér á landi og ná- grannar búa viö. Samdráttur á báðar hendur Krjsliidnaðurinn í land- inu er talinn húa við 7,6% rekstrarhalla — áður en nýtt fiskverð hefur verið ákveðið, en sú ákvörðun hefur dregizt úr hömlu. Út- gerðin, og þá fyrst og fremst hinir nýju togarar, sem eru í mestum skulda- fjötrum, er rekin með bull- andi tapi og vaxandi skuldasöfnun. Allar grein- ar íslenzks útflutningsidn- aðar horfa fram á vaxandi rekstrarerfiðleika að óbreyttri þróun í innlend- um tilkostnaði, sem vaxið hefur um a.m.k. 50% á síð- ustu 12 mánuðum, og óbreyttri verðþróun á er lendum sölumörkuðum, hvar verð hefur staðið í stað og jafnvel lækkað í raun, s.s. í Kvrópu. Atvinnufyrirtæki í sjáv- arútvegi, sem eru grund- völlur að afkomu heilla byggðarlaga, eru á vonar völ. Útgerðarfélagið Jökull á Kaufarhöfn, sem fjölmið- lar gerðu sér mat úr fvrir skemmstu, er ekkert eins- dæmi, þó staða þess sé efa- lítið í verri kantinum. At- vinnuöryggi sjómanna og nskvinnslufólks er víða í strjálbýli, og raunar einnig hér á suðvesturhorninu, að nálgast sama farið. Kast- Ijósi fjölmiðla var og nýver ið beint að rekstrarlegri stöðu iðnaðardeilda SÍS á Akureyri, en þar er at- vinnuöryggi hundruða starfsmanna talið í veru- lcgri hættu. Níðhöggur Alþýðubandalagsins og rík- isstjórnarinnar hefur og nagað rætur byggingarið- naðarins í landinu, bæði með ónógri og umdcildri lóðaúthlutun í Kcykjavík og þó öllu fremur með stór skerðingu hins almenna veðlánakerfis. Talsmenn ríkisvaldsins hafa einkum og sérílagi hreykt sér af atvinnuör yggi, sem þeim er tamt á tungu. I*etta atvinnuöryggi var til staðar löngu áður en þeir settust á valdastóla, en hefur veikzt mjög, svo ekki sé sterkar að orði kveðið, í tíð núverandi sofenda í stjórnarráðinu. Kekstrar leg staða flestra atvinnu- greina okkar er í kaldakoli, að óbreyttum aðstæðum, og rekstraröryggi atvinnu- veganna er nákvæmlega sama fyrirbærið og at- vinnuöryggi almennings. iH'ssi neikvæða þróun ger izt við á flesta grein hag- stæð ytri skilyrði. Hér á við sem forðum var sagt: „Móðuharðindi af manna- völdum"! Stórvirkjanir — stóriðja Tugþúsundir vinnufúsra handa ba-tast við á íslenzk- an vinnumarkað næstu 20 árin. Ef búa á þjóðinni I framtíðaratvinnuöryggi sem og sambaTÍIeg lífskjör — um auknar þjóðartekjur — og nágrannar búa við er óhjákvæmilcgt að nýta inn- lenda orkugjafa í mun rík- ari ma'li en nú er gert, m.a. með tilkomu nýrrar stór iðju. Kkkert er hættulegra ís- lenzkri framtíðarbyggð en það ef íslendingar dragast lífskjaralega meir en þegar er aftur úr nágrannaþjóð- um. Slíkt yki á þegar of mikinn landflótta. I>að þarf því hvorutveggja að gerast: treysta rekstrargrundvöll hinna hefðbundnu atvinnu vega okkar og setja nýjar stoðir undir efnahag og af- komu þjóðar og þegna með stórvirkjunum — og nýjum orkuiðnaði, sem gerir þess- ar stórv irkjanir arðsamar, tryKgir orkuafsetningu þeirra. Við aukum ekki á annan hátt verðma-tasköp- un í þjóðarbúskapnunt og þjoðartekjur til að rísa undir hatnandi lífskjörum í landinu. Alþýðubandalaginu. sem illu heilli var falin forysta þcssara mála í núverandi ríkisstjórn (hvað vóru al- varleg pólitísk mistök), hef- ur tckizt að tefja þessa framþróun um allnokkur dýrkeypt ár. Alþýðubanda- lagið var og er helzta hindrun þjóðarinnar á vegi hcnnar til nauðsynlcgs orkuiðnaðar. I>að var glapræði að troða þessari hindrun í öndvegi iðnað- arráðuncytisins. Af því súp- um við seyðið, því miður, lcngur en vera hefði þurft, ef framsýni og framtak hefði varðað veg okkar í þessum efnum. Dregid verdi úr umferöar- hættu í gamla Vesturbænum MORGÚNBLAÐINÚ hafa borist eft- irfarandi samþvkktir aðalfunda Kor eldrafélags Vesturbæjarskóla og For eldra- og kennarafélags sama skóla, þar sem lýst er áhyggjum vegna ís- kyggilegs ástands í umferðarmálum og þess krafizt að dregið verði úr umferðarhættu í gamla Vesturbæn- um: Aðalfundur Foreldra- og kenn- arafélags Vesturbæjarskóla, hald- inn 1. okt. 1981, skorar á borgarráð að beita sér tafarlaust fyrir því, að gerðar verði ráðstafanir til að draga úr umferðarhættu í gamla Vesturbænum. Foreldra- og kenn- arafélag Vesturbæjarskóla og Ibúasamtök Vesturbæjar hafa oftsinnis farið þess á leit við borgaryfirvöld, að umferðaröryggi barna verði tryggt, svo sem tíðkast i nýrri hverfum borgarinnar. Foreldra- og kennarafélag Vest- urbæjarskó'a telur þetta vera slíkt alvörumál, að ekki verði lengur un- að við aðgerðarleysi borgaryfir- valda. Aðalfundur foreldrafélags Vest- urbæjarskóla, haldinn 4.11. 1980, lýsir yfir áhyggjum sínum vegna þess ískyggilega ástands, er rikir í umferðarmálum hverfisins. Bendir fundurinn á, að mikil og hröð gegnumumferð liggur þvert á skólaleiðir fjölda barna í hverfinu og skapar stöðuga ögrun við líf og heilsu nemenda skólans. Skorar fundurinn á borgaryfir- völd að gera gangskör að því að takmarka umferð um hverfið og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að draga úr ökuhraða þeirra, sem um hverfið aka. Væntir fundurinn þess, að þess- ari málaleitan verði vel tekið og komi til framkvæmda þegar á þessu hausti. Við seljum vörubflana Skúlagötu 40, sími 19181 og 15014.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.