Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 29 gæsir og jafnvel álftir sjást þar á vorum. — En þangað renna líka fleiri hýru auga. Á sumardagsmorg- uninn fyrsta, einn hinn fegursta er ég minnist, varð mér snemma gengið milli húsa. Vor var í lofti og fugla- kliður. Þá gullu við skot, hvert á eft- ir öðru. Niður við tjarnir stóð bíll, og menn sáust á hlaupum. Kunnur sæmdarmaður á Akur- eyri, er hér hafði nýskeð komið í hópi góðra gesta, reyndist eiga bíl- inn. Nú var sonur hans á ferð með félögum sínum að heilsa sumri á sinn hátt. — Oftar hefur þurft að stugga við skyttum á vordögum, jafnvel á sjálfri hvitasunnunni. Skaut rjúpu medan beð- ið var erindisloka Fyrr á árum gekk fullorðið fé á síðhaustum og framan af vetri á Vaðlaheiði, meðan tíð var hagstæð, og hélt sig þar á kunnugum stöðum. En þegar rjúpnatíminn hófst, tryllt- ist það oft og hljóp saman í hópa, er runnu sitt á hvað. Ef veður spilltist snögglega, gat sú hætta verið yfir- vofandi, að féð fyndist ekki. Eitt sinn, er áhlaup gerði, var hringt til mín innan af Svalbarðaströnd og til- kynnt, að ær minar hefðu skyndilega komið þar inn á tún undan mikilli styggð. Sé trjágróður við bæi og rjúpur þar ekki hvekktar, halda þær sig þar gjarna öðru hverju allt árið. Hér í bæjarbrekkunni hafa þær orðið svo gæfar, að börn hafa strokið þeim á eggjum og þær leitað heim á tröppur og jafnvel inn í kjallara úr hausthél- unni. Þær eru heimilisprýði og gleði- gjafi. En ég minnist þess, að eitt sinn kom skytta og kvaddi dyra. Meðan hún beið erindisloka á var- inhellunni skaut hún rjúpu, sem sat frammi í trjágarðinum. Nauðsyn soltinni þjóð Framangreind reynsla nægir til að sýna, að um alvörumál er að ræða. Enginn ætti að fá byssuleyfi, nema hafa áður hlotið tilskilda fræðslu og þjálfun, rétt eins og sá sem lærir á bíl. Ljóst er t.d., að margir gera sér alls ekki grein fyrir hvaða hætta getur stafað af langdrægum riffli, ef kúla snertir vatn eða skotið er yfir blindhæð, eins og dæmin sannav Meginatriðið verður þó alltaf við- horfið til annarra manna og eigin sjálfsvirðingar, til laga og reglu- gerða og til landsins sjálfs og lífríkis þess. Fuglaveiðar voru nauðsyn soltinni og fátækri þjóð, en eru það naumast lengur, nema þá sem eyðing vargs. Sumir vilja kalla skotveiðar sport, og eru þær meira að segja gylltar fyrir mönnum í fjölmiðlum. Er það viðeigandi heiti á atferli, sem hefur að megininntaki að drepa — drepa? — Þrá mannsins eftir samkennd við landið verður ekki fullnægt með morðtól í höndum." Undrumst gáleysið Steinunn og Auður skrifa. „Velvakandi. Við vonum að þú sért vakandi núna, Velvakandi, því okkur langar til að koma á framfæri eftirfarandi athugasemd: Síð- astliðið sunnudagskvöld áttum við tvær galvaskar ungar stúlk- ur leið um Síðumúlann. Tók þá skyndilega að snjóa en eins og allir vita skipast veður löngum fljótt í lofti á íslandi. Leituðum við þá skjóls undan „stórhríð- inni“ undir skyggni nokkru í Þessir hringdu . . Alls staðar eru börn Helga Guðjónsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Nú eru mjög víða að rísa upp svokölluð foreldrafélög. Dæmi eru um að í kjölfarið komi kröf- ur til yfirvalda um að banna umferð um ákveðnar götur eða setja takmarkanir á hana á ein- hvern hátt. Hvernig færi nú ef öll foreldrafélög krefðust þess að þessar og hinar göturnar yrðu lokaðar fyrir umferð vegna barnanna í hverfinu. Það yrði ekki til annars en þess að auka á öngþveitið annars staðar, og alls staðar eru börn sem þurfa að komast yfir götur. Haltu bara áfram Kristín Sigurðardóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að taka undir það, sem Jón úr Vör segir í grein í Lesbók Morgunblaðsins fyrir skemmstu, um ógæfu- mennina sem eru að leita á stúlkubörn. Hversu oft heyrum við ekki um það í fréttum að búið sé að yfirheyra viðkomandi menn og þeim síðan sleppt. Sem sagt ekkert gert úr málinu og vantar bara að sagt sé við þá: Haltu bara áfram. En þetta er mikið alvörumál að mínu mati og óafsakanlegt að taka það ein- hverjum vettlingatökum. Kallar fram all- an óhugnaðinn H.Kj. hringdi og sagði: — Mér líkar ekki miðdegissagan sem nú er lesin. Mér finnst hún kalla fram í huga mínn allan þann óhugnað sem ég hef séð í öllum þessum stríðsmyndum í gegn- um árin. Auðvitað má segja sem svo, að ekkert eigi að vera hæg- ara en ég loki fyrir tækið, en á móti má benda á, að þeir eru margir sem ekki eiga margra kosta völ í dægrastyttingu. Síðumúlanum, þar sem m.a. Heilbrigðiseftirlit ríkisins er til húsa. Þessi bygging er við Síðu- múla 13. Tókum við þá eftir því að útidyrnar lágu aðeins að stöf- um þó að smekklásinn væri á og var greinilegt að hurðin átti að vera lokuð og læst. Þess vegna réðumst við til inngöngu eftir nokkra umhugsun. Enginn virtist vera í húsinu „því hvergi var ljós í gluggum nema kveikt var í anddyrinu. Eftir nokkurn tíma þóttumst við svo til vissar um að enginn væri í húsinu nema við tvær. Skrifuðum við þá stutta orð- sendingu og skildum hana eftir handa starfsmönnum. Við viljum taka það fram að við erum ekki að mótmæla neinu, eins og oft tíðkast í þess- um dálkum, en við undrumst yfir gáleysi sem þessu, því hvers kon- ar lýður hefði getað gengið þarna út og inn að vild. Okkur fannst við ekki að gera neitt sem óleyfilegt er, því okkur stóðu þarna allar dyr opnar. Vorum við einungis að athuga hvort ein- hver starfsmaður væri í bygg- ingunni. Með bréfi þessu vonumst við til þess að sá sem lyklavöldin hefur taki þetta mál til athugun- ar en biðjum jafnframt forláts ef við förum með rangt mál. Með þökk fyrir birtingu." & SIG6A N//GG* S \iLVt9Ali Ævar Kvaran hefur framsagnarnámskeið (fagur framburður, lipurt tungutak, upplestur) í byrjun nóvember. Uppl. í síma 32175 eftir kl. 20.30 daglega. nýjung: liraöréttir í hádeginu mánudaga tii föstudaga. HRAÐRÉTTASEÐILL riÆSTU VIRU: lljómaliii'ud skötusolssúpa Súpa fylf'ir med öllum réttum Glódarsteikt lambalæri með karrýsúsu og hrísgrjónum....kr. 110 Léttsaltaður t'rísakambur með piparrótarsósu ....... kr. 85 Gufusoðin heil rauðspretta með steiktu iceherf' salati.... kr. 72 Smjörsteiktur skötuselur með hnetujóf'úrtsósu ..... kr. 75 Grafinn fjallasilunt'ur með dillsósu . kr. 09 Shef's specia/“ Lundabrinf'a í kampavíni uf'enfíifer. kr. 85 Þjónustuf'jald ug söluskattur innifalið ARNARHÓLL Hverfisgötu 8—10, sími 18833. [ 07T ^IÝTI f yR/R ÓLL, SmMlQuíCs mm tf/TT: tG WKI Ptd iUSÁ \ Nmi MÖ4W5 tfYKKfWW, 3votö ýO 6m M\9 í/A/ri WH mahs Ktftf3KH/0UW 7KÓ OHAÐ Vf'ri WK/ flÁKFrifpPk AU& Kutö flTf (£[ & <bAtfr 5V0 A9 Ýú WLTf/f? W&0 VÍSAfs tfr tffO 9ÍMMSU AöKKöf? L\d- UNOV, ýf\ Kft10 5ÍM tf(6 Í6tf4- SToWWUtf. W fiMl Voffl 3T/N6A Offl'KiAVTA- utf tf/6!/ptoA otf éó om?/\^unóa^naS tf/K\9 Vl9 V/6, STT//VA vt/Tv/f wznmwv HAMBORG ÓDÝR HÓPFERÐ 30/10-3/11 Utvegum miöa á leik Hamburger Sportverein og Bay- ern Munchen (lið Asgeirs Sigurvinssonar), sem er laugardaginn 31.10. Örfá sæti laus. FERÐASKRIFSTOFAN SÍMAR 29830 og 29930. 'sfcMcft&GT.'srEm & Vftb\ '(t) tf(JN9/ri ^ mmc&b fc Yltf S/VíTTötf C 06 ÖQKöVt TOW- JKOtf/ y\, awu w, /.Atf6/9 víktí 05 $vo \ v óffA m 'vmm otf VuTrm *>->—WWIINiW A tff'f?J 'kV

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.