Morgunblaðið - 21.10.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981
Endurnýjun flugleyfis Flugleiða milli
Glasgow og Kaupmannahafnar:
Óskað verður eftir
viðræðum við Breta
„VIÐ framsendum umsókn Flug-
leida um upptöku viðræðna við Breta
til l'tanríkisráðuneytisins, sem hef-
ur falið sendiherra íslands í Bret-
landi, að taka málið upp,“ sagði
Sameiginlegt próf-
kjör á Akranesi
Stjórnmálaflokkarnir á
Akranesi hafa komist að
samkomulagi um að halda
sameiginlegt prófkjör vegna
sveitarstjórnarkosninganna
næsta vor. Prófkjörið fer
fram í janúar.
Fyrirkomulag prófkjörs-
ins er þannig, að þátttak-
endur fá afhenta kjörseðla
með nöfnum frambjóðenda
allra flokka, en aðeins er
heimilt að merkja við hjá
einum flokki. Slíkt prófkjör
hefur ekki áður verið reynt
hér á landi.
Birgir Guðjónssun, deildarstjóri í
samgönguráðuneytinu, í samtali við
\lbl., er hann var inntur eftir með-
höndlun ráðuneytisins á þeirri um-
sókn Flugleiða, að teknar yrðu upp
viðræður við Breta um, að félagið
fengi að nýju leyfi til flugs milli
Glasgow og Kaupmannahafnar, í
kjölfar þess, að British Airways, sem
fékk leyfið, hefur ákveðið að hætta
flugi þarna á milli.
Um nánari framvindu málsins
er mér ekki kunnugt, en svona mál
taka alltaf sinn tíma. Það þarf að
finna stað og stund til að ræðast
við og þetta getur tafizt um nokk-
urn tíma enn,“ sagði Birgir Guð-
jónsson.
Flugleiðir flugu á þessari leið
um árabil og kom það mjög vel út
fyrir félagið, að fylla upp í vélarn-
ar á leiðinni til Kaupmannahafnar
frá Glasgow. British Airways
gerði síðan tilka.ll til flugleiðar-
innar og ákveðið var að taka hana
af Flugleiðum. Það leið síðan ekki
eitt ár frá því, að British Airways
hóf flugið, þar til Ijóst var, að það
myndi ekki bera sig eitt og sér.
Jóhann efstur á
haustmóti TR
Kísilmálmverksmidja á Reyðarfirði
gæti hafið störf innan fjögurra ára
- kostnaður áætlaður 500 til 600 milljónir
„ÞAfí KKIT engar samningaviðræður í gangi við hugsan-
lega eignaraðila um uppbyggingu kísilmálmverksmiðju í
Reyðarfirði enda ekkert sem kallar á það, að um er
lenda sameignaraðila þurfí að vera. Verksmiðjan gæti
alveg eins verið að öllu leyti í íslcnzkri eigu, hvorki
markaðsmál, tækniþekking né hráefnismál kaila á það,
en síðan er það bara matsatriði hvort menn telja skyn-
samlegt af öðrum ástæðum að vera í samstarfi við ein-
hverja aðila og er seinni tíma ákvörðun. Fjármögnun er
lítið vandamál, því þetta er það lítið fyrirtæki og mun
kosta um 500 til 600 milljónir, sem er talsvert minna en
til dæmis Blönduvirkjun, og fjármögnun er því ekkert
vandamál,“ sagði Finnbogi Jónsson, formaður nefndar
um byggingu kísilmálmverksmiðju í Keyðarfírði, í sam-
tali við Morgunblaðið.
JÓHANN Hjartarson hefur forustu að
loknum 7 umferðum á Haustmóti Tafí-
félags Reykjavíkur. Jóhann hefur hlot-
ið 5 vinninga. Benedikt Jónasson er í
öðru sæti með 4' 2 vinning. Þeir Jóhann
og Benedikt gerðu jafntefli í frestaðri
skák í gærkvöldi.
Staðan á mótinu er nokkuð óljós
vegna biðskáka og frestaðra skáka
vegna veikinda keppenda. Þeir Elvar
Guðmundsson og Júlíus Friðjónsson
hafa hlotið 4 vinninga, Jón Þor-
steinsson og Jóhann Orn Sigurjóns-
son 3Vi. Þeir Sævar Bjarnason og
Arnór Björnsson hafa 3 vinninga og
eina frestaða skák, og auk þess á
Sævar 1 biðskák. Dan Hansson hefur
2'h vinning, 1 biðskák og 1 frestaða
skák. Sveinn Kristinsson hefur 2'/2
vinning og 1 frestaða skák. B-jörn Jó-
hannesson hefur 2 vinninga og 1
biðskák og lestina rekur Björn Sig-
urjónsson með 'k vinning og 1 frest-
aða skák.
Þremur skákum var frestað á
sunnudagskvöldið í 7. umferð. Úrslit
urðu: Júlíus vann Björn Jóhannes-
son, Jón Þorsteinsson vann Jóhann
Örn og þeir Sveinn og Elvar gerðu
jafntefli.
Hafnir landsins fá
tæplega 17% hækkun
GJALDSKRÁRNEFND ákvað á fundi
sínum fyrir skömmu að heimila höfn-
um landsins, sem eru tæplega 50 að
tölu, að hækka taxta sína um tæplega
17*.
Hafnirnar fengu í byrjun janúar
10'J hækkun á gjaldskrám eins og
reyndar allar aðrar opinberar stofn-
anir og fyrirtæki. Síðan fengu hafn-
irnar 8% hækkun í maí sl.
Síðan sóttu hafnirnar um hækkun
í ágústmánuði sl. og var þá ákveðið
að heimila þeim 8% hækkun. Við
það vildu hafnirnar ekki una og
töldu, að ekki hefði verið tekið tillit
til röksemda þeirra fyrir meiri
hækkun.
Á fundi sínum fyrir skömmu
ákvað svo Gjaldskrárnefnd, að heim-
ila höfnunum á nýjan leik að hækka
um 8%, þau sömu 8% og heimiluð
voru í ágústmánuði, að viðbætium
rúmlega 8%.
„Býð mig ekki fram
til varaformanns“
— segir Matthías Bjarnason
„ÍXi HEF tekið þá ákvörðun
að gefa ekki kost á mér til
varaformanns í Sjálfstæðis-
flokknum,“ sagði Matthías
Bjarnason alþingismaður, þeg-
ar Morgunblaðið spurði hann í
gær, hvort hann hefði tekið
ákvörðun um sitt framhoð.
„Það er alltaf erfitt að
taka slíka ákvörðun, sér-
staklega þegar maður hefur
ekki áhuga á starfinu sjálf-
ur,“ sagði Matthías ennfrem-
ur, þegar hann var spurður
hver væri ástæðan fyrir því
að hann byði sig ekki fram.
„Hinsvegar er það svo að
margir samstarfsmenn mín-
ir innan þingflokksins og
utan og ekki síst forystu-
menn út um allt land skor-
uðu á mig að bjóða mig fram.
Ég met traust þeirra mikils,
en engu að síður hef ég tekið
þá ákvörðun að bjóða mig
ekki fram,“ sagði Matthías
að lokum.
„Hins vegar eru í gangi viðræð-
ur við ýmsa aðila í þessu sam-
bandi. í sambandi við hráefnisöfl-
un hefur verið haft samband við
fjölmarga aðila, það sama er að
segja hvað varðar tækniþekking-
una en í seinni tíð höfum við aðal-
lega hallazt að tveimur aðilum,
sem við teljum líklegasta til sam-
starfs. Þeir eru norska fyrirtækið
Elkem og þýzka fyrirtækið Bem-
ag, sem helzt er talið koma til
greina varðandi kaup á ofnum. I
sambandi við markaðsmál hefur
einnig verið haft samband við
fjöldamarga aðila, sem eru hugs-
anlegir kaupendur að þessari vöru
og áhuga hafa á því að selja hana
og undirtektir hafa verið mjög
jákvæðar.
Þá er unnið að þessu verkefni
samkvæmt verkáætlun, sem gerð
var síðastliðið vor. Jarðvegskönn-
unum er lokið, landmælingu og
kortagerð og rannsóknum á hafn-
araðstöðu. I samræmi við það er
unnið að frumáætlunum um höfn
og aðra þætti, sem tengjast að-
stöðunni á staðnum. Þá er unnið
að kostnaðaráætlun við byggingu
verksmiðjunnar í samvinnu við
þessi tvö fyrirtæki, sem tilboð í
ofnana munu koma frá, og svo er
unnið að stofnkostnaðaráætlun að
öðru leyti og Almenna verkfræði-
stofan er þar okkar aðalráðgjafi,
en hún hefur töluverða reynslu af
byggingu Grundartangaverk-
smiðjunnar. Inni í stofnkostnað-
aráætluninni munu verða allar
nauðsynlegar teikningar af verk-
smiðjunni. Við fáum teikningar
frá þessum tveimur fyrirtækjum,
en engar útlitsteikningar eru til
enn. Miðað er við að verksmiðjan
gæti komizt í gagnið seint á árinu
1984 eða snemma á árinu 1985 og
það verður að segjast að þetta
virðist vera mjög vænlegur kostur
miðað við þá þekkingu, sem við
höfum í dag, og miðað við aðra
valkosti í orkufrekum iðnaði,“
sagði Finnbogi.
„Demantar vandmeðfar-
in fjárfestingarleiðu
- segir Óskar Kjartansson gullsmiður
AUGLÝSING, sem birtist í Morgunblaðinu í gær og aftur í dag þar sem
fjárfestingardemantar eru boðnir til sölu, vakti forvitni okkar. Af því tilefni
höfðum við samband við Oskar Kjartansson gullsmið og spurðum hann út í
demantafjárfestingu sem þessa.
„Hér er um vandmeðfarna fjár-
festingarleið að ræða og er hún síð-
ur á færi hins almenna borgara,
sem enga þekkingu hefur á dem-
öntum, eðli þeirra og gerð,“ sagði
Óskar.
„Þegar þessi fjárfestingarleið er
farin er það mikið atriði að geta
treyst viðkomandi fyrirtæki. Eg er
ekki að segja að þetta fyrirtæki,
sem auglýsir starfsemi sína í
Morgunblaðinu, sé ekki gott og gilt.
Eg verð þó að segja frá reynslu
minni af fyrirtæki, sem auglýsti
demantafjárfestingu í sumar í
Morgunblaðinu undir nafninu
Diamandfinans. Ég óskaði eftir
upplýsingum frá þessu fyrirtæki
bréflega. Ég fékk sendan myndar-
legan upplýsingabækling og í með-
fylgjandi bréfi var mér tjáð að
sölumaður frá fyrirtækinu kæmi
til íslands í ágúst og myndi þá hafa
samband við mig. Ég hef ekkert
heyrt frá þessu fyrirtæki síðan.
Eg hef velt þeirri spurningu fyrir
mér, af hverju Diamandfinans, sem
auglýsti starfgemi sína hér í
sumar, hefur ekki haldið áfram að
athuga markaðsmöguleika sína hér
á landi og hvers vegna nýtt sam-
bærilegt fyrirtæki að nafni Diam-
anthuset er allt í einu komið með
heilsíðuauglýsingu í Morgunblað-
inu.
Ég er á leið til Antwerpen um
Þegar fjárfest er í demanti er hann
afhcntur í innsiglaðri öskju.
næstu mánaðamót, til að afla nán-
ari upplýsinga um fjárfestingar-
demanta. Þegar ég kem til baka
ætti ég að vera orðinn stórum fróð-
ari um viðskipti sem þessi og gæti
þá gefið betri upplýsingar um þau,“
sagði Óskar.
„Nokkur íslensk gullsmíðafyrir-
tæki ættu að geta boðið almenningi
sömu möguleika á að fjárfesta í
demöntum og erlend fyrirtæki, og
þar eð slík fyrirtæki væru innlend,
þá væri auðveldara að eiga við-
skipti við þau.
Þeir sem hyggja á demanta-
fjárfestingu verða að athuga að
það þarf að greiða um það bil 25%
söluskatt af öllum þeim demöntum,
sem koma inn í landið. Annað um-
hugsunaratriði er, hvað gera tolla-
og skattayfirvöld, þegar viðkom-
andi aðilar ætla síðan að selja dem-
antana úr landi?
Það er að ýmsu að hyggja í þessu
sambandi og ég held að fólk ætti
ekki að flana að neinu þangað til
góðar og öruggar upplýsingar um
fjárfestingarleið sem þessa eru
fengnar," sagði Óskar Kjartansson
gullsmiður.