Morgunblaðið - 21.10.1981, Page 16

Morgunblaðið - 21.10.1981, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTOBER 1981 17 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakið. Stjórnarskipti í Grikklandi If.vrsta sinn frá því að Grikkland hlaut sjálfstæði hafa jafnað- armenn og sósíalistar hreinan meirihluta í þingi landsins, í kjölfar sigurs þeirra í kosningunum á sunnudag verða einnig stjórnarskipti og vinstri stjórn tekur við völdum undir forsæti Andreas Papandreus, leiðtoga sósíalistasambandsins, PASOK. Frá stríðslokum hafa verið miklar sviptingar í grískum stjórnmál- um, þjóðin hefur kynnst því, hvað gerist, er lýðræðislegir stjórnar- hættir víkja fyrir herforingjastjórn, og hún hefur ákveðið að af- nema konungsveldi og kjósa sér forseta með mikil völd að franskri fyrirmynd. Konstantín Karamanlis, núverandi forseta Grikk- lands, hefur með íhaldssamri festu tekist að leiða grísku þjóðina frá niðurlægingu herforingjaáranna til þeirrar stöðu, sem nú hef- ur skapast, þegar flokkur Karamanlis tapar kosningum eftir sjö ára stjórn og við tekur meirihluti sundurleits hóps jafnaðarmanna og sósíalista í víðtæku kosningabandalagi. Utan Grikklands er það helst blásið upp, að hinir nýju stjórn- arherrar ætli sér að takmarka þátttöku lands síns í hernaðarlegu samstarfi Atlantshafsbandalagsins og endurskoða ef ekki sllta tengslin við Efnahagsbandalag Evrópu. Af fréttum frá Grikklandi er augljóst, að þessi mál hafa ekki vegið þyngst í hugum kjósenda þar, þeir vildu breytingu, nýja menn og nýja stefnu, þar sem grískir hagsmunir og breytingar eru höfð að leiðarljósi. Allir helstu áhrifamenn í forystuliði Andreas Papandreus eru mennta- menn, sem stundað hafa nám í Bandaríkjunum, eins og hinn nýi forsætisráðherra, eða í Norður-Evrópu. Það stangast á við mennt- un þessara manna og tengsl út fyrir Grikkland, ef þeir ætla að berjast fyrir því einu að rjúfa samskipti Grikkja við ríkin í Evrópu og Atlantshafsríkin. Auðvitað munu þeir vega og meta allar hliðar mála, ekki síst stöðu sína gagnvart Tyrkjum — yrði það Grikk- landi til hagsbóta að höggva á samvinnuna innan Atlantshafs- bandalagsins eða slíta tengslin við Efnahagsbandalagið? Láti menn skynsemina ráða, hlýtur svarið við þessari spurningu að vera neikvætt. Öllum kemur saman um, að stefna Papandreus og baráttumál í kosningabaráttunni eru næsta óljós, hann sló um sig með breiðum yfirlýsingum en lét hjá líða að útfæra þær í smáatriðum. Þess vegna verður af enn meiri athygli fylgst með því, hvað hann gerir, eftir að hann hefur náð völdunum í sínar hendur. Sjálfsgagnrýni eða ... ? Þegar lesin eru ummæli ýmissa forkólfa Alþýðubandalagsins innan verkalýðshreyfingarinnar á þingi Verkamannasam- bandsins, hlýtur mönnum að detta það fyrst í hug, hvort runnið sé upp tímabil sjálfsgagnrýni hjá hinum þrautþjálfuðu baráttu- mönnum, sem aldrei hafa viljað láta það spyrjast, að þeir tækju ekki að sér að berjast fyrir ýtrustu kröfum. Meira að segja gekk Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, í ræðustól og lýsti því yfir, að hann og aðrir verkalýðsforingjar hefðu haft rangt fyrir sér, þegar þeir efndu til verkfallanna miklu 1955. Miðað við forsög- una má segja, að það marki þáttaskil í verkalýðsbaráttu og við- horfi til hennar, að Eðvarð Sigurðsson lýsi því yfir, að 1955 hefði sama kjarabót náðst fram án verkfalla, ef kröfugerðin hefði verið sanngjarnari í upphafi. En í sömu ræðu komst Eðvarð Sigurðsson svo að orði, að sögn stjórnarmálgagnsins, Tímans: „Auðvitað höf- um við skiptar skoðanir á ríkisstjórninni, en hljótum þó að taka mark á því hvað að okkur snýr. En ef við ætlum að berja of skarpt að dyrum með kaupkröfur, þá riðlast öll pólitík í landinu og þá er enginn efi á því að við fáum aðra ríkisstjórn." Sjálfsgagnrýni Eðvarðs Sigurðssonar er kannski bara sett fram nú, af því að hann vill standa við bakið á ráðherrum Alþýðubanda- lagsins, ráðherrahollustan má sín meira en málstaður verka- lýðshreyfingarinnar. „Allt eins mætti álíta að þessi kröfugerð sé samin í einhverju ráðuneytinu," hefur Tíminn eftir Guðmundi Sæmundssyni frá Akureyri um tillögurnar, sem Eðvarð Sigurðs- son studdi. Tortryggnin magnast innan verkalýðshreyfingarinnar. Menn eiga ekki að venjast því þar, að forystumenn eins og Eðvarð Sigurðsson og Guðmundur J. Guðmundsson standi upp og játi, að þeir hafi haft rangt fyrir sér með því að krefjast of mikils fyrir umbjóðendur sína. Aðrir hafa um langt árabil reynt að leiða þeim fyrir sjónir, að of há kröfugerð leiddi til verðbólgu og stofnaði atvinnulífinu í voða. Hvers vegna viðurkenna þeir þessar röksemd- ir fyrst nú, þegar af því leiðir, að fulltrúar meira en 40% félags- manna í Alþýðusambandinu klofna í tvær jafnstórar fylkingar? Fyrsta opinbera heimsókn forseta Islands til Noregs: „Vopn hennar eru glettni, kvenleg klókindi og mannlegt og hlýtt viðmót“ Frá blaðamanni Mbl. Fríðu Proppé í Osló. „FYRSTI kvenforseti íslands er baráttuglaður en þarf þó hvorki á sverði né boga að halda. Yopn hennar eru glettni, kvenleg klókindi og mannlegt og hlýtt viðmót,“ segir m.a. í forsíðuviðtali við forseta íslands, Vigdísi Finn- bogadóttur, í norska stórblaðinu Aftenposten sl. laugardag, en Vigdís Finn- bogádóttir kemur í sína fyrstu opinberu heimsókn í dag til Noregs. Heimsókn forsetans hefur vakið eftirtekt fjölmiðla sem almenn- ings hér í Noregi og hafa blöð, sjónvarp og útvarp sagt frá heim- sókninni, og hún verið tengd í um- ræðunni um samskipti Noregs og íslands. Það má sjá, svo dæmi sé tekið, í verslunargluggum við aðalgötuna hér í Osló skreytingar með ís- lenzka fánanum og myndir af Vigdísi Finnbogadóttur. I sjón- varpinu hér var í gærkvöldi sýnd- ur síðari hluti finnskrar sjón- varpskvikmyndar sem fjallaði um ísland — atvinnuhætti, menningu o.fl. Forseti íslands kemur til Forne- bu-flugvallar í dag kl. 11.30 með flugvél frá Flugleiðum. Er flugvél Flugleiða með forsetann kemur að norsku landamærunum, munu or- ustuflugvélar úr norska flughern- um koma til móts við hana og fylgja henni til Fornebu. A flug- vellinum taka konungur, krón- prins og krónprinsessa í mót for- setanum. Einnig verða mættir á flugvellinum forsetar stórþings- ins, forsætisráðherra og aðrir ráðherrar, forseti hæstaréttar, sendiherrar Islands í Noregi og Noregs á Islandi o.fl. Frá Fornebu-flugvelli verður ekið til hallarinnar í Osló, þar sem forseti íslands og Noregskonungur munu skiptast á gjöfum. Þá verð- ur hádegisverður í höllinni og síð- ari hluta dagsins mun forseti ís- lands heimsækja Akershus, þar sem hún leggur blómsveig við þjóðarminnisvarða um þá sem féllu í stríðinu. Síðari hluta dags- ins mun forseti íslands taka á móti forstöðumönnum sendiráða í Osló og í kvöld verður veizla í höll- inni á vegum konungsfjölskyld- unnar. Arekstur Berglindar og Charm: Eimskip þegar búið að fá sitt „ÞAÐ ER rétt, ad við óskudum eftir aðstoð utanríkisráðuneytisins við að fá nánari upplýsingar frá skipaút- gerð (;harm,“ sagði Hörður Sigur gestsson, forstjóri Eimskipafélags Islands, í samtali við Mbl., er hann var inntur eftir því hvort félagið hefði óskað eftir þeirri aðstoð, þar sem illa gekk að komast í samband við útgerðina. „Samkvæmt dönskum lögum er hins vegar ekki skylt að halda sjó- próf í svona málum, en hins vegar óskaði dómforseti hér eftir þess- um upplýsingum og því er þetta gert,“ sagði Hörður ennfremur. Hörður sagði, að það hefði í sjálfu sér engin áhrif fyrir Eim- skipafélagið hvort þessar upplýs- ingar fengjust. Málið væri raunar komið í höfn, hvað félagið varðaði. Það væri búið að fá sínar greiðslur frá tryggingarfélaginu fyrir skip- ið. Niels-Henning 0rsted Pedersen og Philip Catherine á blaðamannafundi gær. Ljósm.: Kmilía Niels-Henning og P. Catherine: Aukatónleikar á morg- un — uppselt í kvöld UPPSELT er á tónleika þeirra Niels-Henning 0rsted Pedersen og Philip Catherine í Háskólabíói í kvöld. En ósóttar pantanir verða seldar við innganginn. Vegna hinnar miklu aðsóknar hefur verið ákveðið að þeir félagar leiki einnig annað kvöld og þá í Súlnasal Hótel Sögu. Þar verða miðar seldir við inngang- inn og húsið opnað klukkan 21.00. Tónleikarnir í Háskólabíói í kvöld eru fyrstu dúó-hljómleikar þessara þekktu jassleikara og að sögn Niels-Henning munu þeir flytja eitthvað af eldra efni, en þó leika mest af efni sem þeir hafa ekki leikið saman áður. 1982 ár aldraðra: Samátak í öldninarmáhim Pétur Sigurðsson (S) mælti í gær í Sameinuðu þingi fyrir tillögu 19 sjálfstæðismanna um ár aldraðra. Tillagan kveður á um að Alþingi álykti að tileinka árið 1982 málefn- um aldraðra. Alþingi kjósi 7 manna nefnd til að vinna að framgangi þeirra og skal hún hafa samvinnu við stjórnskipaða nefnd, er nú vinn- ur að frumvarpsgerð um heilbrigðis- og vistunarmál fyrir aldraða. Skal nefndin vinna að því að meta þörf brýnna átaka og úrbóta auk framtíð- arverkefna, bæði staðlægra og á landsmælikvarða. Stefnt skal að því að ljúka sem flestum verkefnum á ári aldraðra og lagður grundvöllur að þeim sem lengri tíma taka. Sérstaklega skal lögð áherzla á samvinnu og þátttöku þeirra aðila og samtaka sem vinna að menningar- og mannúðarmálum. I samræmi við ályktun þessa skal hin þingkjörna nefnd skipa undirnefndir til starfa innan landshluta, kjördæma, heilsugæzlustöðva eða einstakra sveitarfélaga. Samátak í brýnu nauðsynjamáli Pétur Sigurðsson (S) minnti á samþykkt Allsherjarþings Sam- einuðu þjóðanna um heimsráð- stefnu um ellimál á árinu 1982. Hann minnti og á að ellíheimilíð Grund yrði 60 ára á næsta ári, Ás í Hveragerði 30 ára og Hrafnista í Reykjavík 25 ára. Það færi því vel á því að helga árið 1982 samátaki almennings, félagasamtaka og opinberra aðila til að sinna einu mest aðkallandi nauðsynjamáli líðandi stundar: úrbótum í öldrun- armálum. Hann minnti á að stór átök hefðu verið gerð á gengnum árum. Pétur Sigurðsson Þar bæri fyrst að nefna einstakt framtak Gísla Sigurbjörnssonar, bæði með Grund í Reykjavík og Ás í Hveragerði, auk framkvæmda fé- lagasamtaka síðar. Þróunin í þjóð- félaginu hefði engu að síður orðið sú, að óvíða væru stærri verk óunnin en á þessum vettvangi, þ.e. í heilbrigðis- og vistunarmálum aldraðra. Ræðumaður kvað Magnús H. Magnússon, fyrrv. félagsmálaráð- herra, hafa látið semja frum- varpsbálk um þennan þátt öldrun- armála. Honum hefði ekki unnizt tími til að flytja frumvarpið. Það hafi hinsvegar ekki fundið náð fyrir augum núverandi félags- málaráðherra. Hefði sá falið ráðu- neytisstjóra sínum að semja nýtt Alexander Stefánsson frumvarp, sem ekki hefði heldur verið í náðinni. Loks hefði hann falið jábræðrum samninguna og hefði það frumvarp verið flutt á liðnu þingi. Það hefði hinsvegar ekki fallið að skoðunum þing- manna og því verið vísað til ríkis- stjórnarinnar til endurskoðunar, en einn þáttur þó verið tekinn út og lögfestur: framkvæmdasjóður aldraðra. Nú væri enn ein nefndin setzt að samningu frumvarps — og vildu flutningsmenn þessarar þingsályktunar, að hin þingkjörna nefnd, sem að væri stefnt, hefði náið samráð við hana um fram- kvæmdina að ári aldraðra, ef úr yrði. Þá upplýsti Pétur að í dag, mið- vikudag, yrði stofnað Öldrunarráð Islands, sem sameina eigi innan Helgi Seljan sinna vébanda alla þá aðila, sem þegar vinna að málefnum aldr- aðra, og ljá þeim frekara lið. Það ætti að samræma framtíðarstefnu og markmið og vinna að samátök- um til að færa öldrunarmál til hins betri vegar. Sjálfsagt væri að Öldrunarráðið kæmi inn í fram- kvæmdina að ári aldraðra. Þingflokkur Fram- sóknar sammála Alexander Htefánsson (F) sagði þingflokk Framsóknar hafa fjall- að um þessa tillögu að þingsálykt- un og myndi hann styðja hana, en flokkurinn hefði tilnefnt starfs- hóp til að fjalla um málefni aldr- aðra. Þá fjallaði hann um Öldrun- arráðið, sem stofna ætti í dag, og kvað Samband íslenzkra sveitarfé- laga vera virkan aðila að stofnun þess. Alexander kvað þingflokkinn hinsvegar ekki hafa verið sam- mála frumvarpi félagsmálaráð- herra á sl. þingi, sem vísað var til ríkisstjórnar, en nú væri unnið að nýrri frumvarpsgerð. Jákvæd afstaða í Alþýðubandalagi Helgi Seljan (Abl.) kvaðst taka undir öll meginsjónarmið í þing- sályktunartillögu sjálfstæð- ismanna. Hann þakkaði og Pétri ágæta framsögu og gat þess, að Pétur hefði öðrum þingmönnum betur hugleitt og kynnt sér mál- efni aldraðra. Þó mikið hefði áunnizt á þessum vettvangi væri enn meira ógert og því þörf sam- ræmingar og samátaks. Hinsvegar sagði Helgi spursmál, hvort þörf væri á þingkjörinni nefnd, hvort hin stjórnskipaða nefnd, sem nú vinnur að frumvarpsgerð, gæti ekki jafnframt verið fram- kvæmdaaðili eða stjórnstöð fyrir ár aldraðra. Pétur Sigurðsson (S) taldi verk- efni nefndarinnar, sem fjalla þyrfti um viðamikla málaflokka, frumvarpsgerðina, húsnæðisþátt, tryggingarþátt o.fl., svo viðamikil, að ekki væri á hana bætandi um- sjón með ári aldraðra, nema sem samstarfsaðila að því máli. Helgi Seljan (Abl.) mælti og fyrir þingsályktunartillögu um könnun á nýtingu bújarða í þágu aldraðra, m.a. á hugmynd um dvalarheimili þar sem búandfólk, sem flytja þarf af bújörðum sínum vegna aldurs eða heilsubrests, gæti haft smábúskap, sameiginlega eða út af fyrir sig með nauðsynlegri að- stoð og aðhlynningu. Tillaga sjálfstædismanna fær góðar undirtektir á Alþingi Óhemjuleg vindbára sem lenti á okkur — segir skipstjórinn á Reyni AK 18 „ÞETTA var alveg óhemjuleg vindbára, sem skall inn á dekkið, og allt fylltist um leið og þegar bátnum fór að halla, lentu netin út tyrir. Báturinn náði ekki að hreinsa sig, heldur lagðist á hlið- ina og þegar það gekk ekki að rétta hann við, var ekki um annað að ræða en fara í bátana. Ætli það hafi ekki liðið svona tíu, fimmtán mínúlur frá því ég kallaði út og þar til Reynir sökk,“ sagði Örn Þorbjörnsson, skipstjóri á Reyni AK 18, sem sökk út af Reyðarfirði í fyrra- kvöld, í samtali við Mbl. i gær. Skipbrotsmennirnir af Reyni voru þá að leggja af stað frá Neskaupstað heim til Hafnar í Hornafirði. „Við vorum með fullfermi,“ sagði Örn. „Höfðum hætt að draga fjórum tímum áður og vorum í þrjá tíma að gera sjó- klárt. Þá settum við 30 tonn af dekkinu niður og það á ekki neitt að hafa gerzt í lestinni hjá okkur, þótt maður viti auðvitað að fríborðið þarf ekki að vera mikið, þegar svona kemur fyrir. En ég held miklu fremur að það hafi verið samverkandi ytri að- stæður, sem settu bátinn á hlið- ina.“ Örn sagði tvo mánuði síðan hann og Ágúst bróðir hans keyptu Reyni frá Akranesi til Hafnar. Reynir AK 100 Flugleiðir: Stoftiar atvinnu fjölda núver- andi starfsmanna í hættu inn á Evrópu verði Arnarflugi veitt áætlunarleyfi „NIÐURSTADAN hlýtur að vera sú, að mjög illa ráðið sé, ad fjölga íslenzk- um flugfélögum í áætlunarflugi milli landa, sérstaklega inn á Evrópumarkað- inn,“ segir m.a. í niðurlagi greinargerðar Flugleiða vegna umsóknar Arnar flugs um áætlunarleyfi til VesturÞýzkalands, Frakklands og Sviss, sem send hefur verið samgönguráðuneytinu, Ferðamálaráði og Flugráði. — Slíkt hefur í för með sér tvö- földun á sölu og annarri starfsemi vegna flugs og getur ekki haft annað í för með sér en aukna heildaróhagkvæmni flugrekstrar- ins. Flugrekstrarleyfi Flugleiða og tilnefningar félagsins til áætlun- arflugs innanlands og milli landa eru í fullu gildi til ársloka 1984. Verði Arnarflugi nú veitt leyfi til áætlunarflugs til Frakklands, Þýzkalands og/eða Sviss hlýtur það að verða að mestu leyti á kostnað Flugleiða og hlýtur að stofna atvinnu fjölda núverandi starfsmanna í hættu. í mörgum atvinnugreinum á ís- landi hefur fyrirtækjum verið veitt ákveðin sérstaða í ljósi smæðar markaðarins, og má m.a. nefna ýmsa útflutningsatvinnu- vegi, landbúnað og iðnaðarfram- leiðslu. í ljósi þess hve markaður- inn er lítill, afkastageta flugvél- anna mikil og flugrekstur geysi- lega fjármagnsfrekur, hlýtur það að vera eðlilegt að íslendingar fylgi fordæmi flestra annarra Evrópuþjóða og láti sér nægja eitt áætlunarflugfélag á millilanda- leiðum. Annað fyrirkomulag hlýt- ur að verða til þess að draga úr heildarhagkvæmni, og þar með rýra möguleika til hagstæðra far- gjalda og uppbyggingu flugflotans með nýjum tækjum, segir að síð- ustu í niðurstöðum greinargerðar Flugleiða. Ætlum ekki að slást um mark- aðinn heldur að stækka hann segir Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs „VID GETl'M alls ekki verið sammála þeim skýringum Flugleiðamanna, að með því að veita okkur áætlunarleyfi inn á Evrópu, sé verið að vega að atvinnuöryggi starfsmanna Flugleiða, því markaðurinn beri ekki nema eitt flugfélag," sagði Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri á blaðamanna- fundi, þar sem hann, ásamt nokkrum forsvarsmönnum fyrirtækisins, kynnti greinargerð sem tekin hefur verið saman vegna beiðni fyrirtækisins um áætlunarleyfi milli Islands og Frankfurt og Hamborgar í VesturÞýzkalandi, Parísar í Frakklandi og Ziirich í Sviss. Að okkar mati hefur Mið-Evr- ópumarkaðurinn alls ekki náð há- marksstærð sinni og er í raun að mestu óplægður akur fyrir okkur Islendinga. Þá sjáum við þess eng- in merki, að ekki sé hægt að stækka hann verulega. Við teljum það bráðnauðsyn- legt, að neytendur hafi valkost og íslenzkar ferðaskrifstofur geti náð sem hagkvæmustum samningum fyrir viðskiptaaðila sína,“ sagði Gunnar Þorvaldsson ennfremur. Á fundinum kom ennfremur fram, að Arnarflugsmenn hafi að sjálfsögðu engan áhuga á því að gera starfsbræður sína atvinnu- lausa. Hins vegar sé heilbrigð samkeppni Flugleiðamönnum ör- ugglega til góðs. Það hafi enginn gott af því að sitja einn að mark- aðinum. Það kom ennfremur fram á fundinum, að fjölgun ferðamanna frá Sviss fyrstu níu mánuði ársins hafi verið 33,6%, en þrjú flugfélög hafa séð um þessa flutninga, Flugleiðir, Arnarflug og svissn- eska leiguflugfélagið CTA. í grein- argerð Arnarflugs um þetta segir, að af röksemdum Flugleiða gegn því að Arnarflug fái leyfi til áætl- unarflugs mætti draga þá ályktun, að þrátt fvrir fjölgun ferðamanna frá Sviss hafi þeirra farþegum fækkað, þar sem tvö flugfélóg fljúga beint leiguflug til Islands. En staðreyndin er önnur. Sam- kvæmt þeirra upplýsingum hefur Flugleiðafarþegum frá Sviss fjölg- að um 64,5% fyrstu sjö mánuði ársins. Þetta styður þá skoðun Arnarflugsmanna, að með aukinni landkynningu og sölustarfsemi aukist flutningar allra. Það er ekki ætlunin að slást um „kök- una“, heldur stækka hana. Hlut- fall svissneskra ferðamanna til Is- lands er nú orðið um 1 af hverjum 2000 íbúum. í þessu sambandi má geta þess, að þetta hlutfall er 1 af hverjum 7000 íbúum frá Vestur-Þýzkalandi og 1 af hverjum 13000 íbúum frá Frakklandi. „Það er því auðsjáan- lega um stóran óplægðan akur að ræða,“ sagði Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.