Morgunblaðið - 21.10.1981, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1981
Bflvelta á
Laufásvegi
BÍLVELTA varð á gatnamótum Laufásvegar og Njarðargötu skömmu eftir
klukkan 18 í gær. Trabant-bifreið, sem ekið var vestur Njarðargötu, lenti í
árekstri við bifreið, sem ekið var suður Laufásveg og skipti engum togum að
Trabant-bifreiðin valt. Stöðvunarskylda er á Laufásveginum.
Hvorki ökumaður né farþegi í Trabant-bifreiðinni slösuðust.
Erá slysstað á Laufásveginum.
Mynd Mbl. Júlíus.
Hæstiréttur:
Dómur fallinn vegna
meiðyrða f spíramálinu
í HÆSTARÉTTI var kveðinn upp
dómur síðastliðinn mánudag í meið-
yrðamáii því, sem þeir Kristján Pét-
ursson, deildarstjóri, og Haukur Guð-
mundsson, fyrrverandi rannsóknarlög-
reglumaður, höfðuðu á hendur Þórarni
bórarinssyni, ritstjóra og ábyrgðar
manni Tímans, til ómerkingar ummæla
og greiðslu miskabóta vegna meiðyrða,
sem þeir töldu sig hafa orðið fyrir sem
opinberir starfsmenn. Hæstiréttur
dæmdi, að dómur héraðsdóms skyldi
óraskaður, þó þannig að fyrirsögnin
„Dýrlingur eða James Bond Islands"
skyldi ekki ómerkt. Þá var Þórarni
gert að greiða 2.500 krónur í máls-
kostnað fyrir Hæstarétti.
Þeir Kristján og Haukur höfðuðu
meiðyrðamál þetta á hendur Þórarni
vegna greinar, sem birtist í Tíman-
um, merkt stöfunum sp, og fjallaði
um rannsóknaraðferðir þeirra í
svokölluðu spíramáli, sem frægt var
á sínum tíma. Grein þessi reyndist
rituð af einum þeirra manna, sem
viðriðinn var málið, og samin af
honum ásamt einum af blaða-
mönnum Tímans.
Kristján og Haukur kröfðust þess
á sínum tíma, að ríkissaksóknari
höfðaði mál á hendur ábyrgðar-
manni Tímans vegna meiðyrða um
opinbera starfsmenn í starfi. Kveð-
inn var upp dómur í því máli í Saka-
dómi þann 20/12 1978, sem hljóðaði
svo: „Akærði, Þórarinn Gunnleifur
Jóhann Þórarinsson, greiði 25 þús-
und króna sekt til ríkissjóðs. Ákærði
greiði kostnað sakarinnar.“
Kristján og Haukur höfðu áður
höfðað mál fyrir Bæjarþingi Reykja-
víkur á hendur Þórarni til ómerk-
Spurt um
kawasaki
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ sendi í
gær fyrirspurn tii Alþjóða heilbrigðis-
stofnunarinnar í Genf um sjúkdóminn
kawasaki, en eins og skýrt var frá í
Mbl. í gær, hefur barnasjúkdómur
þessi skotið rótum á íslandi í fyrsta
sinn í ár.
„Við erum að kanna þetta. Við
fáum vikulegt fréttabréf frá Alþjóða
heilbrigðisstofnuninni, en það er
ekkert sem bendir til að farsótt af
þessari tegund geisi í heiminum í
dag,“ sagði Ólafur Ólafsson land-
læknir í samtali við Mhl. í gær.
ingar á tilteknum ummælum í grein-
inni, svo og til greiðslu miskabóta og
málskostnaðar og féll dómur um það
mál 26/2 1979. Þar voru ummælin
dæmd ómerk. Þórarinn var dæmdur
til að greiða Kristjáni 190 þúsund
gkrónur í miskabætur með 13%
ársvöxtum frá 1. janúar 1977 til
greiðsludags og Hauki 90 þúsund
gkrónur með 13% ársvöxtum frá
sama tíma til greiðsludags og auk
þess málskostnað.
Þórarinn áfrýjaði til Hæstaréttar
og var málið þingfest 2. apríl 1979 og
gerð sú krafa að hinum áfrýjaða
dómi yrði hnekkt og þeir Kristján og
Haukur dæmdir til að greiða máls-
kostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.
Dómur féll svo í Hæstarétti á
mánudag, þar sem hinn áfrýjaði
dómur var staðfestur og Þórarni
gert að greiða 2.500 krónur í máls-
kostnað. Þess ber þó að geta, að
Hæstiréttur synjaði um ómerkingu á
ummælunum „Dýrlingur og James
Bond Islands“ vegna þess, að ekki
var fullnægt réttarfarsskilyrðum til
að ómerkja ummælin.
Lögmaður þeirra Kristjáns og
Hauks var Jón E. Ragnarsson, hrl.,
en lögmaður Þórarins var Jóhannes
L.L. Helgason, hrl.
Formaður BÍ á þingi
blaðamannasambands
„austurblokkarinnar“
EORMAÐUR Blaðamannafélags íslands , Ómar Valdimarsson, situr nú
þing annars alþjóðasambands blaðamanna (IOJ), sem er félag blaða-
manna “austurblokkarinnar“. Félagar í hinu alþjóðasambandinu (IFJ),
sem er samband blaðamanna á vesturlöndum, hafa til þessa lítil sam-
skipti viljað hafa við „austurb!okkarsambandið“, enda hafa þeir talið sig
eiga litla samleið með því. Þetta mun í fyrsta skipti, sem formaður
Blaðamannafélags íslands situr þing þessara samtaka og í tilefni þess
innti Morgunblaðið þá Sæmund Guðvinsson, varaformann BÍ, og Kára
Jónasson, fyrrverandi formann, álits á þessu máli og fara svör þeirra hér
á eftir.
Sæmundur Guðvinsson,
varaformaður BÍ:
Mikilvægt að íslenzkir
blaðamenn kynnist starfs-
skilyrðum austantjalds
„ÉG TEL það ákaflega mikiisvert
að íslenzkir blaðamenn fái tæki-
færi til að kynnast starfsskilyrðum
blaðamanna í Alþjóða blaða-
mannasambandi „austurblokkar-
innar“ til að læra að meta það
starfsfrelsi, sem við búum við hér
heima. Þess vegna finnst mér ekk-
ert athugavert við það að Ómar
Valdimarsson, formaður Blaða-
mannafélags íslands, hafi þegið
boð um að sitja þing Alþjóða hlaða-
mannasambands „austurblokkar
innar“,“ sagði Sæmundur Guðvins-
son, varaformaður Blaðamannafé-
lags íslands, er Morgunblaðið innti
hann álits á ferð Omars til Rúss-
lands.
„Það var samþykkt á stjórn-
arfundi í Blaðamannafélagi Is-
lands að Ómar færi þessa ferð og
okkur í stjórninni fannst það
bæði sjálfsagt og eðlilegt að
hann gæti með því bæði kynnzt
vinnuskilyrðum blaðamanna
austantjalds og kynnt sjónarmið
okkar og frelsi. Með þessu teljum
við alls ekki að Blaðamannafélag
Islands sé að viðurkenna þetta
blaðamannasamband. Þó að Geir
Hallgrímsson fari í heimsókn til
Sovétríkjanna jafngildir það ekki
því að hann sé að samþykkja
stjórnarfar þar og ég sé enga
ástæðu til þess að minni spá-
menn fari ekki þangað í boðs- og
kynnisferðir," sagði Sæmundur.
Kári Jónasson, fyrrverandi formaður BÍ:
Teljum okkur eiga litla
samleið með austur-
blokkarsambandinu
„ÞEGAR ég var formaður BÍ hafði
ekki borizt til okkar boð um þátt-
töku á þessu þingi. Tvenn alþjóða-
samtök blaðamanna eru starfandi í
heiminum í dag. Við erum í vest-
ræna sambandinu (IFJ) og hefur
það höfuðstöðvar sínar í Briissel. A
síðasta þingi þess voru áheyrnar-
fulltrúar frá hinu sambandinu
(IOJ) og það hefur höfuðstöðvar
sínar í Prag í Tékkóslóvakíu. Við,
sem störfum hjá frjálsum fjölmiðl-
um í hinum vestræna heimi, teljum
að við eigum ekki nema að mjög
litlu leyti samleið með þeim, sem
eru í hinu sambandinu," sagði Kári
Jónasson, fyrrverandi formaður
Blaðamannafélags íslands.
„Það eru lítil samskipti við það
og þetta mun vera, eftir því sem
ég bezt veit, í fyrsta skipti sem
formaður BÍ sækir slíka ráð-
stefnu. Eg vona að hann kynnist
því af eigin raun hve ófrjálsir
blaðamenn í kommúnistalöndun-
um eru og treysti Ómari full-
komlega til að skýra okkur frá
því, þegar heim kemur, við hvaða
aðstæður kollegar okkar í þeim
ríkjum starfa," sagði Kári.
Söngvarinn
Gary Numan
væntanlegur
BREZKI söngvarinn Gary Numan er
væntanlegur hingað til lands 26.
október nk. til að kynna nýjustu
plötu sína, „Dance“. Söngvarinn
kemur hingað til lands á vegum
Steinar hf.
Óli H. Þórðarson:
Mjög fátítt að bjarga þurfi fólki úr
bílum, ef það hefur notað bílbelti
í TILEFNI fréttar á þriðju síðu Morg-
unblaðsins í gær, vildi ég gjarnan gera
athugasemd.
Fyrirsögn fréttarinnar, „Óvíst að við
hefðum bjargast hefðum við verið með
bílbelti", er, þrátt fyrir að hún sem slík
sé ekki fullyrðing af hálfu þess unga
fólks sem þarna átti hlut að máli, jafn-
mikil einfnldun eins og að segja að þau
teldu fullvíst að þau hefðu bjargast ef
þau hefðu notað bílbeltin.
Það eru nefnilega tvær hliðar á
öllum málum. Ég hef rætt við fólkið,
og þau viðtöl hafa sannfært mig um
að ekkert er hægt að fullyrða um
þessi mál. Ókumaðurinn komst að
vísu strax út úr bílnum, og e.t.v.
hefði það tekið hann 2—3 sekúndur
að losa beltið. Hann slapp án telj-
andi meiðsla. Öðru máli gegnir hins
vegar um stúlkuna sem var farþegi í
framsæti. Við áreksturinn hefur hún
að öllum líkindum slasast illa á fæti
við að lenda undir mælaborðinu, auk
þess sem hún fékk höfuðhögg sem
leitt hefur til meðvitundarleysis.
Það er álit mitt að hún hefði verið
mun betur sett í bílbelti. Þá hefði
hún ekki misst meðvitund, og getað
komist af eigin rammleik út úr bíln-
um, væntanlega ósködduð.
En eins og ég sagði í upphafi, þá er
útilokað að fulíyrða neitt um atburð
sem þennan. Að sögn lögreglumanna
hér á landi, er afar sjaldgæft að
kvikni í bílum við árekstur, og kem-
ur það heim og saman við erlendar
rannsóknir á umferðarslysum. í
dönskum hagskýrslum, svo tekið sé
dæmi, er greint frá 36 slysum þar
sem meiðsli á mönnum hafa orðið
vegna bruna í bílum. Af þeim leiddu
14 til dauða. Aðeins 3 þessara 36 ein-
staklinga höfðu notað bílbelti í slys-
inu.
Að lokum vil ég óska þessu unga
fólki til hamingju með að ekki fór
verr en raun ber vitni. Því miður
geta ekki allir sagt sömu sögu.
Kristjáni Vilhelmssyni vagnstjóra
hjá Landleiðum óska ég einnig hins
sama. Hann er svo sannarlega gæfu-
maður ,að hafa gert rétta hluti á
réttum tíma.
Mig langar til þess að biðja fólk að
hugleiða það sem eftir Kötlu Rann-
versdóttur er haft í nefndri frétt.
„Annars heldur maður alltaf að
svona lagað komi aldrei fyrir mann
sjálfan, en finnst kannski ekki óeðli-
legt að það geti komið fyrir einhvern
annan.“ Oli H. Þórðarson,
frkvstj. Ilmferðarráðs.
Útifundur f Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
NEMENDUR í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti munu í dag halda útifund
klukkan 11 fyrir framan skólann.
Á fundinum verða ræddar reglur
þær sem menntamálaráðuneytið
sendi áfangaskólunum að fara eft-
ir, en í þeim er kveðið á um starfs-
hætti áfangaskólanna á landinu.
Nemendur og kennarar halda ræð-
ur og talsmenn nemenda úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
Ármúlaskóla taka einnig til máls.
Fulltrúa frá menntamálaráðu-
neytinu verður boðið að fylgjast
með.