Morgunblaðið - 09.12.1981, Síða 11
nokkurn niðurskurð á fjárlögum
og skattahækkanir og gæti stuðlað
að hallalausum fjárlögum árið
1984.
Trú kaupsýslu- og þingmanna á
efnahagsstefnu Reagans hefur
minnkað vegna niðursveiflunnar í
hagkerfinu og auknum halla, á
fjárlögum. Margt hefur breyst síð-
an fyrir fjórum mánuðum þegar
þingmenn repúblikana tóku hönd-
um saman og studdu framboðs-
hliðarstefnu Reagans. Þeir vonuðu
að verulegar skattalækkanir
myndu leysa efnahagsvandann og
Reagan myndi ná því takmarki
sínu að leiðrétta hallann á fjárlög-
um en auka þó útgjöld til varn-
armála.
Flestir efnahagsráðgjafa Reag-
ans eru nú sammála um að hann
verði einnig að skera niður útgjöld
til varnarmála. Einn ráðherra
hans hefur sagt, að allir séu sam-
mála um það í ríkisstjórninni
nema Alexander Haig utanríkis-
ráðherra og Caspar Weinberger
varnarmálaráðherra og svo Reag-
an sjálfur.
Viðtal við Stockman, sem birtist
nýlega í timaritinu Atlantic
Monthly, gerði stjórn Reagans lít-
ið gagn í efnahagsmálum. Stock-
man sagði að ilia væri staðið að
niðurskurði á fjárlögum og mikil
sóun á fjármunum ætti sér stað í
varnarmálaráðuneytinu og það
þyrfti að leiðrétta. Hann sagði
ennfremur að skattalækkanir
Reagans hefðu fyrst og fremst
verið lagðar til til að lækka tekju-
skatta hinna vel efnuðu.
Orð Stockmans og deilur ráð-
gjafa Reagans um bestu leiðina til
að lækka lánsvexti, auka eftir-
spurn, fjárfestingu og framleiðslu,
hafa dregið úr áliti almennings á
efnahagsstefnu Reagans. Flestir
eru sammála um að á næstu mán-
uðum komi í ljós hversu áhrifarík
hún er. Ef hagvöxtur eykst á
næsta ári getur Reagan þakkað
stefnu sinni það og mun væntan-
lega njóta þess í þinginu. En ef
efnahagsvandinn leysist ekki og
atvinnuleysi eykst, lánsvextir
lækka lítið og fjárfesting stendur í
stað getur Reagan átt í erfiðleik-
um með að fá efnahagstillögur
sínar samþykktar í þinginu og
þarf jafnvel að beygja sig fyrir
vilja þingmanna sem eru á önd-
verðum meiði við hann.
.......1
Urðu að
nauðlenda
er nautið
brjálaðist
Moskvu, 7. desember. Al*.
MOSKVU-útvarpið skýrði frá því
í dag, að flugmenn sovézkrar
flutningaflugvélar hefðu orðið að
nauðlenda flugvél sinni í síðustu
viku er kynbótanaut fór hamför
um um borð í flugvélinni eftir því
tókst að brjótasl úr út flutn-
ingabás.
Nautið braut sér leið fram í
klefa flugmanna og lét þar illa.
Flugstjóranum leist ekki á
hinn óbðna gest, rauk upp úr
sæti sínu til að hindra að boli
stangaði ekki í stjórntækin og
tæki yfir stjórn flugvélarinnar.
Flugstjórninn átti um stund
í hnoði við bola en tókst um
síðir að ná taki á hring á nefi
nautsins og snúa það niður til
hlýðni. Meðan á ati flugstjór-
ans og nautsins stóð sneri að-
stoðarflugmaðurinn flugvél-
inni af leið, lýsti yfir neyðar-
ástandi um borð og var heimil-
uð nauðlending, en óljóst er af
fregn útvarpsins hvort hún var
framkvæmd á flugvelli eða
utan vallar.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981
11
Hljómplata með söng Jó-
hanns Konráðssonar og
Kristins Þorsteinssonar
Ljósm. Sv.l*.
Jóhann og Kristinn. Milli þeirra stendur Pálmi Stefánsson forstjóri Tónaút-
gáfunnar.
KOMIN er út hjá Tónaútgáfunni á
Akurcyri ný hljómplata með söng
Samþykkt FFSÍ:
Tilraunatank-
urinn rísi á lóð
Sjómannaskólans
NOKKUÐ var fjallað um væntan-
lega byggingu veiðarfæratanks á
þingi FFSÍ og var samþykkt að
skora á stjórnvöld að tilrauna-
tanknum yrði komið fyrir sem
fyrst og honum valinn staður á lóð
Sjómannaskólans. Þá ítrekaði
þingið samþykktir frá fyrri þing-
um um að fjárveitingar til tækja-
kaupa og tækjakennslu til handa
sjómannaskólanum verði stór-
auknar.
þeirra Jóhanns Konráðssonar og
Kristins Þorsteinssonar.
Á A-hlið plötunnar syngja þeir
félagar saman níu lög við undir-
leik Guðrúnar Kristinsdóttur.
Þessi lög voru hljóðrituð hjá
Ríkisútvarpinu árið 1964. Þarna er
meðal annars að finna lögin „Upp
á himins bláum boga“ og „Hríslan
og lækurinn" sem mjög vinsæl
voru hvar sem þeir félagar komu
fram á mannamótum.
Á B hlið plötunnar syngur Jó-
hann átta lög við undirleik Fritz
Weisshappel. Nokkur þessara laga
voru hljóðrituð árið 1947, en önnur
eitthvað síðar. Fyrir þrjátíu og
fjórum árum var upptökutækni
allt önnur en nú til dags. Þá var
sungið og spilað beint inn á þar til
gerðar lakkplötur, enda var þá
ekki búið að finna upp segulband-
ið.
Eftir að farið var að nota seg-
ulbönd var söngur Jóhanns tekinn
uppá spólur af plötunum. Meðal
þeirra laga sem Jóhann Konráðs;
son syngur á þessari plötu eru: „I
fjarlægð“, „Lindin“ og „Gígjan".
Díesd BATAVELAR
Viö bjóöum BMW Dieselvélar í bátinn. BMW vélarnar eru léttar og gangþýðar, enda
framleiddar af BMW í V-Þýskalandi, einum þekktasta og vandaðasta vélarframleiðanda í
heimi. BMW gæðin eru heimskunn.
Kynntu þér BMW bátavélarnar.
Gæðin koma ekkert á
Stærðir á Dieselvélum:
Gerö: Din HP Þyngd m/gír
D 7 6 HP 68 kg.
D 12 10 HP 109 kg.
D 35 30 HP 240 kg.
D 50 45 HP 294 kg.
D 150 136 HP 430 kg.
óvart, en það gerir
veröiö, sem er mjög
hagstætt.
BMW í
bátinn.
Vélar &Taeki hf.
TRYGGVAGATA 10 BOX 397
RHYKJAVlK SlMAR: 21288 - 21460
Gerð O 150 er með skutdrifi og hentar
mjög vel fyrir hraðskreiöa báta.
Hið góða kynningarverð gild-
ir til áramóta, en þá veröur
12% hækkun.
P0LAR0ID 1000
SUPERC0L0R
Verö frá kr. 494 meö filmu.
Ein mest selda
myndavél í heimi
Með öðrum myndavélum tekur þú bara
og tekur, en með POLAROID færöu
myndirnar á augabragði!
POLAROID er ekki aðeins hrókur alls
fagnaöar, því POLAROID býöur einnig
mikiö úrval fullkominna myndavéla sem
einfalda verkefnin í atvinnulífinu.
POLAROID filmur og vélar færðu í flest-
um Ijósmyndavöruverslunum og mörgum
öörum verslunum um land allt.
Einkaumboö fyrir POLAROID:
LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK SIMI 85811