Morgunblaðið - 09.12.1981, Side 24

Morgunblaðið - 09.12.1981, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Lægð í skipasmíði í nýútkomnu fréttabréfí Eimskipafélags íslands er frá því skýrt, að enn ein lægð blasi við skipasmíðaiðnaði í heiminum. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru gerðir samningar um 23,3 stór flutningaskip að meðaltali á mánuði, en síðastliðna fjóra mánuði féll þessi tala niður í 5,5. Síðan segir: „Söluverð stórflutningaskipa hefur síðan lækkað að undan- förnu. Markaðssérfræðingar búast við, að langur tími líði þar til úr rætist. Má nefna dæmi, að sölu- verð skipa af „Panamax“-stærð „Er atvinnu- lífið böl þjóðarinnar? (( í ræðu sinni á fundi Félags ísl. iðnrekenda sl. föstudag vék Haukur Kggertsson, forstjóri Plastprents, að tollum á rannsóknartækjum í þágu iðnaðar og sagði frá reynslu fvrir tækis síns í þeim efnum. Ilann sagði m.a. „Við í Plastprent ætluðum sjálf- ir að kaupa hin allra nauðsynleg- ustu tæki. Gerðum fyrirspurn til fjármálaráðuneytisins um að- flutningsgjöld. Nei, engin mis- kunn — 67% gjöld. Þetta var ekki í reglugerðinni. Tækin voru að sjálfsögðu ekki keypt og við verð- um að nota puttana til að prófa okkar vörur. Við fengum smá tæki í sumar, báðum ekki um undan- þágu gjalda en þau voru 145% og nú vil ég enn spyrja: Er atvinnu- lífið böl þjóðarinnar, eða er þjóðin fjandsamleg atvinnulífinu?" (um 60000 GWT) hefur lækkað um 40% frá ársbyrjun 1981, en 30% lækkun varð á smærri skipum (Lake-size). Danska skipafélagið Mercandia hefur samið um smíði á nýjum ekjuskipum hjá skipasmíðastöð- inni í Frederikshavn. Haft er eftir forstjóra félagsins, að allur skipa- floti félagsins verði ekjuskip. Seg- ist hann ekki verða í neinum vand- ræðum með verkefni fyrir 7000 GWT ekjuskip, sem nú eru í smíð- um og er dýrasta skip sem Merc- andia hefur látið smíða til þessa.“ Framkvæmdastjórar Heklu hf. Talið frá vinstri: Sigfús Sigfússon, Árni Bjarnason, Gunnar Petersen, Ingimundur Sigfússon forstjóri, Agnar Friðriksson, Sverrir Sigfússon, Ian C. James ráðgjafi. Endurskípulagníng á rekstri Heklu hf. Síðustu misseri hefur verið unnið að endurskipulagningu á rekstri Heklu hf. í kjölfar sameiningar fyrirtækisins og P. Stefánssonar hf., sem kom til framkvæmda um áramótin 1979—1980. Þessi fyrirtæki eru í eign sömu aðila og hagkvæmast var talið að sameina reksturinn og nýta þannig betur mannafla, aðstöðu og fjármuni. Sameiningin leiddi til þess að gera þurfti skipulagsbreytingar á rekstri og stjórn Heklu hf., sem unnið hefur verið að um skeið og hafa forráðamenn Heklu notið aðstoðar brezks ráðgjafa í þeim efnum. Þær eru nú komnar til framkvæmda og þykir reynslan af þeim góð. Lánskjaravfsitala hækkar umfram kauptaxta Brezki ráðgjafinn, sem Hekla hf. hefur haft í þjónustu sinni, heitiri Ian C. James, sem starfar nú fyrir British Executive Service Overseas, en lengst af starfsævi sinni starfaði hann hjá Volvo Trucks U.K. Ltd., þar af lengi sem forstjóri þess fyrirtækis. Hinn brezki ráðgjafi kom hingað fyrir milligöngu Pálma Jónssonar, for- stjóra Hagkaups, en Hagkaup hef- ur sem kunnugt er fengið ráðgjafa frá sama aðila til endurskipulagn- ingar á rekstri þess fyrirtækis. Hefur Ian C. James komið til ís- lands nokkrum sinnum frá því í marz sl., er hann hóf störf í þágu Heklu hf. Kjarninn í þeim breytingum, sem nú eru komnar til fram- kvæmda í rekstri Heklu hf. er veruleg breyting á yfirstjórn fyrirtækisins. Flestir lykilmenn í fyrirtækinu hafa skipt um störf og tekið við nýjum starfssviðum. Við sameiningu fyrirtækjanna tveggja var bíladeí ldin undir stjórn í yfirliksræðu um þróun rekstrarskilyrða iðnaðar á yfirstandandi ári, sem Valur Valsson, framkværadastjóri Félags íslenskra iðnrekenda flutti á almennum félagsfundi iðnrekenda sl. föstudag. Skýrði hann m.a. frá því, að lánskjaravísi- talan hefði það sem af væri árinu hækkað töluvert meira en kauptaxtar framfærsluvísitölu og byggingavísitala. Valur Valsson sagði, að kauptaxtar fram að samningum hefðu hækkað um 25,6% á árinu, en lánskjaravísitalan um 41,7% til nóvemberloka. Á þessum sama tíma hefði framfærsluvísitalan hins vegar hækkað um 31% og byggingavísitalan hefði hækkað frá áramótum til október um tæplega 30%. tveggja framkvæmdastjóra, en hún hefur nú verið sameinuð und- ir einum framkvæmdastjóra, hins vegar hefur hjólbarðadeild, sem áður var hluti af bíladeild verið gerð að sjálfstæðri deild innan fyrirtækisins undir sérstökum framkvæmdastjóra, sem jafn- framt annast stjórn heimilis- tækjadeildar. I samtali við viðskiptasíðu Morgunblaðsins, sagði hinn brezki ráðgjafi að hann vildi einkum til- greina fjögur atriði, sem nauð- synleg væru hverju fyrirtæki, til að stjórnun þeirra gengi eðlilega fyrir sig. I fyrsta lagi væri þörf fyrir aga og virtist sér við fyrstu sýn, sem nokkuð skorti þar á í íslenzku þjóðlífi. í öðru lagi væri nauðsyn á öru upplýsingastreymi og þar skipti umfang ekki endilega höfuðmáli, heldur að upplýsingar væru til staðar þegar ákvörðun þyrfti að taka. í þriðja lagi ætti hverjum starfsmanni að vera fullkomlega ljóst, hvert hans starfssvið væri og hvaða ábyrgð hann bæri. Og í fjórða lagi sagði Ian C. James, að jafnan væri einhver til staðar sem gæti tekið nauðsynleg- ar ákvarðanir, þannig að aldrei kæmi til þess að fresta þyrfti ákvörðun eða draga ákvörðun vegna fjarvista. Einn þáttur í þeirri endurskipu- lagningu á rekstri Heklu hf., sem nú er unnið að, er að auka upplýs- ingastreymi til starfsmanna, þannig að þeir fái upplýsingar um afrakstur, sem er af störfum þeirra í sölu, rekstrarafkomu og fleiru. „Þegar á heildina er litið er til- gangurinn með þessum breyting- um að auka hagkvæmni í rekstri og bæta þjónustu fyrirtækisins,“ sagði Ingimundur Sigfússon, for- stjóri Heklu, í viðtali við við- skiptasíðu Morgunblaðsins. „Því fylgdi óhjákvæmilega mikil rösk- un að flytja allan starfsemi P. Stefánssonar hf. frá Hverfisgötu 103 á Laugaveg 172. Flytja þurfti alla lagera, og hagræða húsnæð- inu á Laugaveginum til að taka við auknum mannafla og nýrri starf- semi, auk samræmingar banka- viðskipta og viðskiptatengsla. Við teljum þá byrjunarörðugleika, sem af þessu leiddi, nú að baki, og erum þess albúnir að byggja frá nýjum grunni. Megináherzlan verður lögð á að auka þjónustu fyrirtækisins á öllum sviðum rekstursins, eftir því sem aðstæð- ur leyfa hverju sinni. Eins og að framan greinir, er Ingimundur Sigfússon forstjóri Heklu hf., en því starfi hefur hann gegnt frá árinu 1967. Fram- kvæmdastjóri fjármáladeildar er Agnar Friðriksson, en til starfs- sviðs deildarinnar heyra bókhald og tölvudeild, auk fjármála. Hann hóf störf hjá Heklu hf. árið 1977, en starfi framkvæmdastjóra fjár- máladeildar hefur hann gegnt frá 1. ágúst 1978. Þær breytingar, er áður er get- ið, varða nýja skiptingu starfs- sviða hinna þriggja framkvæmda- stjóra sölu- og þjónustudeilda fyrirtækisins svo og að Sigfús Sig- fússon verður framkvæmdastjóri Heklu og er starfssvið hans dag- legur rekstur og umsjón með starfsemi allra deilda fyrirtækis- ins. Sigfús Sigfússon var forstjóri P. Stefánssonar hf. frá árinu 1973 allt til sameiningar fyrirtækjanna tveggja fyrir tæpum tveimur ár- um. Sverrir Sigfússon hefur nú tekið við sem framkvæmdastjóri bíladeildar, en hann hefur starfað við Heklu frá árinu 1963. Fram- kvæmdastjóri Caterpillar-deildar verður Gunnar Petersen, sem starfað hefur við fyrirtækið frá árinu 1960, lengst af í þeirri deild. Árni Bjarnason verður fram- kvæmdastjóri hjólbarðadeildar og heimilistækjadeildar, en hann á að baki langan starfsferil í þágu fyrirtækisins, allt frá árinu 1944. Á þessu ári hefur orðið mikil aukning í starfsemi Heklu hf. Það sem af er árinu hefur heildarsalan aukist um 107% miðað við sama tíma í fyrra. Sala á bílum hefur aukist um 156%, sala á vinnuvél- um um 175,3% og er yfirstandandi ár eitt sölubezta ár í þungavinnu- vélum hjá fyrirtækinu. Á fyrstu tíu mánuðum þessa árs nam velta Heklu hf. um 17,8 milljörðum gkr. og eru starfsmenn fyrirtækisins 105. Svo til allur rekstur Heklu hf. er nú kominn í tölvu og er fyrirtækið með IBM-System 34. Auk þess að sinna þörfum fyrirtækisins er ýmsum öðrum fyrirtækjum veitt tölvuþjónusta hjá Heklu hf., eink- um hvað varðar gerð tollreikn- inga, verðútreikninga og úttekt- arbeiðna úr Tollvörugeymslu. Stjórnarformaður Heklu hf. er Rannveig Ingimundardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.