Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 Þorri hefst á föstudaginn Þorri byrjar á Tóstudaginn og hugsa matmenn eflaust gott til glódarinnar. Þorramatur er nú þegar á boðstólum í verzlunum og landsmenn munu blóta þorra af miklum krafti næstu vikurnar ef að líkum lætur. Myndin var tekin í Matardeild SS í gær. Ljósm. mw. 6l k. M»g. Hjúkrunarfræðingar við Borgarspftalann: Deilunni vísað til sáttasemjara HJUKRUNARFRÆÐINGAR vinna nú að mótun sérkrafna, en aðalkjara- samningur við ríkið var samþykktur í atkvæðagreiðslu RSRB á dögunum. Rætt verður um sérkröfurnar á félags- fundi hjúkrunarfræðinga í kvöld og þar mun vafalaust bera á góma afstöðu hjúkrunarfræðinga við Borgarspítal- ann, sem felldu aðalkjarasamning, sem gerður var við Reykjavikurborg og var svipaður og samningur BSRB og ríkisins. Hjúkrunarfræðingar hafa vísað deilunni um aðalkjarasamning vegna hjúkrunarfræðinga á Borg- arspítalanum til sáttasemjara og verður fyrsti fundur deiluaðila þar á mánudag. Hjúkrunarfræðingar hafa rætt verkfallsboðun fáist ekki farsæl lausn fljótlega á samningaviðræðum við borgina. Telja þeir verkfallsrétt ótvíræðan vegna aðalkjarasamnings, en gangi viðræður við viðsemjendur um sérkjarasamning erfiðlega hafa hjúkrunarfræðingar hugleitt sam- bærilegar aðgerðir og fóstrur og læknar á síðasta ári, þ.e. uppsðgn. Fundir Sjálfstæðisflokksins: Reykjavíkurfundur næstkomandi mánudag Sverrir Hermannsson talar á Kópavogsfundinum ALMENNUM fundi um atvinnumál í Reykjavík, sem vera átti nk. mánu- dag, hefur verið frestað til mánu- dags 25. janúar. l»á verður fundað í Sjálfstæðishúsinu (Valhöll) í Reykja- vík, kl. 8.30 síðdegis. Framsögu- menn verða Lárus Jónsson alþingis- maður, Davíð Sch. Thorsteinsson, iðnrekandi og Sigurður Oskarsson, formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðis- flokksins. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyltr. Þá hefur orðið breyting á fram- sögumönnum á atvinnumálafund- ínum í Kópavogi, sem haldinn verður á morgun, fimmtudag, kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu, Hamra- borg 1. Frummælendur verða: Sverrir Hermannsson, alþingis- maður og Geir Haarde, formaður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna. Á morgun, fimmtudag, verður einnig fundur að Hótel Varðborg, Akureyri, sem hefst kl. 20.30. Þar eru málshefjendur Geir Hall- grímsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, og Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokks- ins. Á morgun verður ennfremur fundur í Safnaðarheimilinu í Grundarfirði, sem hefst kl. 8.30. Þar tala Matthías Bjarnason fv. sjávarútvegsráðherra og Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna. 5 Sigurður E. Olason Þau tæknilegu mistök urðu hér í blaðinu í gær, að röng mynd birtist með afmælisgrein um Sigurð E. Ólason hæstaréttar- lögmann, hálfáttræðan. Af því tilefni sótti ljósmyndari blaðs- ins Sigurð heim og tók af hon- um þá mynd, sem hér birtist. Biðst blaðið afsökunar á mis- tökum þessum, en sem bragar- bót fá lesendur að sjá hvernig afmælisbarnið leit út í gær. Ók á umferðarvita OLVAÐUR ökumaður ók bifreið sinni á umferðarvita á gatnamótum Hverf- isgötu og Snorrabrautar um ellefuleyt- ið í gærmorgun. Maðurinn var á leið yfir gatnamótin austur Hverfisgötu, en ekki tókst betur til en svo, að hann lenti upp á umferðareyjunni við austanverð gatnamótin og á um- ferðarvitanum, sem brotnaði. Ökumanninn sakaði ekki, en bif- reiðin stórskemmdist. 626 / árgerð 1982 Vegna mjög hagstæðra innkaupa getum við boðið MAZDA 626 de luxe á ótrúlega hagstæðu verði, þrátt fyrir gengisbreytingar. Eftirfarandi búnaður fylgir bílunum: Metallic litur Útvarpsloftnet Litað gler I rúðum Quarts klukka Rúllubelti Niðurfellanlegt 60/40 aftursæti Plussáklæói á sætum Snúningshraðamælir 3 hraða rúðuþurrkur Halogen framljós Oryggisljós að aftan 60 A rafgeymir Stokkur milli framsæta m/kassettugeymslu Farangursgeymsla klædd I hólf og gólf Útispeglar beggja vegna Barnaöryggislæsingar 3 hraða miðstöð Og þar að auki í‘2000 gerðinrii: 5 gíra glrkassi Verð: Mazda 6261.6 Sedan de luxe kr. 114.870.00 Mazda 626 2.0 5gíra kr. 124.900.00 (gengisskráning 15/1/82) Pantið timanlega til að tryggja þetta lága verö. BÍLABORG HF Smiöshöfða 23, sími 812 99. Bestu bílakaupin!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.