Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982
IS-menn sáu aldrei hina
minnstu glætu gegn Fram
- og þeir síðarnefndu rufu 100 stiga múrinn
1S Og \
valsdeildarleik IS og Fram í Haga-
skólanum í gærkvöldi. öruggur sigur
Fram, sem rauf 100 stiga múrinn í
leiðinni. haó var sýnt þegar í upphafi
leiksins hvert stefndi, er Fram náði
strax forystu og liðið gat leyft sér að
slaka verulega á undir lokin án þess
að stofna sigrinum í hættu. Fengu
allir leikmenn Fram að spreyta sig
að þessu sinni. Lokatölur leiksins
Björk sigraði
• llm helgina fór fram bikarmót
FSÍ, en þá kepptu C-liðin. Keppend-
ur voru frá átta ára aldri. Urslit í
keppninni urðu sem hér segir: A-lið
Bjarkar 94,65 stig, B-lið Bjarkar
83,40 stig, Fylkir 73,55 stig, og
Gerpla hlaut 68,80 stig. Úrslit fyrir
A- og B-liðin verða í íþróttahúsi
Kennaraskólans 7. febrúar.
Fram:
ÍS
107:91
urðu 107—91 fyrir Fram, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 54—43.
Flest orð eru óþörf um gang
þessa leiks, Fram var allan tím-
ann yfir, bara misjafnlega mikið.
Undir lokin var staða Fram orðin
svo örugg, 92—64, að síðustu mín-
úturnar urðu hálfgerð vitleysa. En
þær nýttu ÍS-menn þó til þess að
minnka muninn verulega.
Hjá Fram fór Val Bracy ham-
förum um völlinn og það var al-
geng sjón í gærkvöldi að sjá hann
skokka skælbrosandi fram völlinn
með ÍS-vörnina á hælunum og
„troða“ með slíkum tilþrifum að
áhorfendur risu úr sætum og
klöppuðu honum lof í lófa. Símon
Knattspyrnupunktar
• Magnús Jónatansson, þjálf-
ari 1. deildar liðs ÍBÍ, mun á
næstunni halda utan til Eng-
lands og kynna sér þjálfun.
Mun Magnús dvelja mcðal
annars um tíma hjá Arsenal.
i>á mun lið ÍBÍ hafa í hyggju að
fara í æfingabúðir og keppnis-
ferð til Skotlands um páskana.
• Valsmenn hafa nú sett sig í
samband við markvörðinn
Árna Stefánsson og hafa mik-
inn áhuga á að fá hann í sínar
raðir. Eins og skýrt hefur verið
frá kemur Arni heim á næst-
unni eftir 4 ára dvöl í Svíþjóð.
3. dcildar lið Tindastóls hefur
gert Árna tilboð um að þjálfa
og leika og jafnframt útvega
honum atvinnu. En Valsmenn
eru líka inni í myndinni.
• Sigurður Haraidsson,
markvörður V’als í knattspyrnu
um langt árabil, hefur nú til-
kynnt félögum sínum að hann
hafi í hyggju að leggja skóna
endanlega á hilluna. l>á mun
vera alveg óvíst hvort Dýri
Guðmundsson, varnarmaður-
inn sterki, verður með Val á
næsta keppnistímabili. Hann
íhugar eins og Sigurður að
hætta keppni.
• bjálfarinn góðkunni Árni
Njálsson sér um að þjálfa
meistaraflokk Valsmanna þar
til Hilpert tekur'við liðinu. I>að
er að segja ef samningar ná
fram að ganga við Hilpert. En
þau mál munu skýrast á
fimmtudag er hann kemur til
landsins.
• Einar Árnason mun þjálfa 3.
deildar lið ÍK næsta sumar.
Margir liðtækir knattspyrnu-
menn leika með ÍK, og er mik-
ill hugur í mönnum að ná langt
á næsta keppnistímabili.
• Einn erlendur leikmaður
verður með Val næsta keppn-
istímabil. Skotinn John Main
sem kemur frá Sunderland
verður löglegur með Val 2.
apríl. Hann er sagður mjög
góður leikmaður.
— I>R.
Einn náði 12 réttum
Kr. 100.230.00 fyrir 12 rétta
í 19. leikviku Getrauna kom fram
einn seðiil með 12 réttum leikjum og
verður vinningur fyrir hann kr.
100.230.- en með 11 rétta voru 40
raðir og vinningur fyrir hverja röð
kr. 1.073.00.
Enn einu sinni varð Axel eftir-
litsmaður að grípa til teningsins,
þar sem aðeins 5 leikir af 12 á
seðlinum gátu farið fram. Vænt-
anlega fer þessum vetrarhörkum
senn að linna, þar sem ella er hætt
við að sum deildarfélögin verði
gjaldþrota, ef svona heldur áfram
til langframa.
Getrauna- spá MBL. -C a a km o s Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Cr. Palace — Bolton 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Luton — Ipswich 1 X X X X 2 1 4 1
Man. City — Coventry X 1 1 1 1 I 5 1 0
Norwich — Doncaster 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Tottenh. — Leeds 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Watford — West Ham 1 X X X X 2 1 4 1
Brentford — Fulham 2 X X X X X 0 5 2
Chester — Bristol Rov. 1 1 X 1 1 X 4 2 0
Chesterfield — Newport
Lincoln — Portsmouth X 1 1 1 1 X 4 2 0
Southend — Walsall X 1 1 1 X X 3 3 0
Wimbledon — Swindon
átti frekar erfitt uppdráttar að
þessu sinni, en Viðar Þorkelsson
og Þorvaldur Geirsson léku hins
vegar prýðilega og sama má segja
um Ómar Þráinsson þegar hann
var á annað borð inni á vellinum.
Pat Bock var nokkuð góður að
þessu sinni hjá IS, geysilega sterk-
ur leikmaður undir körfunni. Hins
vegar mætti hann vera í betri æf-
ingu. Gísli Gíslason og Árni Guð-
mundsson voru máttarstólpar að
vanda og Bjarni Gunnar drjúgur.
En það var bara ekki nóg.
Stig Fram: Val Bracy 35, Viðar
Þorkelsson 18, Símon Ólafsson 14,
Þorvaldur Geirsson 12, Ómar Þrá-
insson 10, Björn Magnússon 6,
Þórir Einarsson og Hörður Arn-
arson 4 hvor, Steinn Guðjónsson
og Guðbrandur Sigurðsson 2 hvor.
Stig ÍS: Árni Guðmundsson 22,
Pat Bock 21, Gísli Gíslason 19,
Bjarni Gunnar Sveinsson 18, Ingi
Stefánsson 9 og Jón Óskarsson 2.
— (58-
• Arni Guðmundsson var stiga-
hæstur í liði fS að þessu sinni.
STAÐAN
Staðan í úrvalsdeildinni er nú sem
hér segir: UMFN 12 10 2 1030—923 20
Fram 12 9 3 1017—923 18
Valur 12 7 5 978—942 14
KR 12 6 6 933—1003 12
ÍR 12 3 9 923—1026 6
fs 12 1 11 941—1065 2
Elnkunnagjöfln
LIÐ FRAM:
Viðar Þorkelsson
Símon Ölafsson
Þorvaldur Geirsson
Björn Magnússon
Þórir Einarsson
Omar Þráinsson
Steinn Guðjónsson
Hörður Arnarson
Guðbrandur Sigurðsson
LII) fS:
7 Bjarni Gunnar Sveinsson 6
6 Ingi Stefánsson 5
6 Árni Guðmundsson 7
5 Gísli Gíslason 7
5 Þórður Óskarsson 4
6 Jón Oskarsson 4
5 Sveinn Ólafsson 4
5
4
Ahangendur
vilja fá Pétur
ÁHANGENDAFÉLAG hollenska
knattspyrnuliðsins Feyenoord hefur
skilað mörgum undirskriftalistum til
aðalskrifstofu félagsins í Rotterdam,
þar sem það fer fram á það, að félag-
ið kaupi Pétur Pétursson aftur frá
Anderlecht, en Pétur stóð sem kunn-
ugt er snilldarlega hjá hollenska lið-
inu áður en hann meiddist illa og
gekk síðar til liðs við Anderlecht í
Belgíu. Þar hefur honum gengið upp
og ofan, ekki síður ofan, því illa hef-
ur gengið að vinna sér fast sæti í
liðinu.
Feyenoord
aftur
Á ýmsu hefur gengið hjá Feye-
noord síðan að Pétur hætti að
leika með félaginu. Framkvæmda-
stjórinn Peter Stephan var látinn
fara með nokkurri skömm og lið-
inu hefur gengið mjög illa miðað
við hvað búast má við af stórveldi
eins og Feyenoord. Má segja að
liðið rísi ekki upp fyrir að vera
meðallið í Hollandi og er af sem
áður var. Eftir því sem Mbl. kemst
næst, munu hátt á þriðja þúsund
manns hafa ritað nöfn sín á
ofangreinda undirskriftalista.
Meistaraflokkur ÍBK í körfubolta sem er í efsta sæti 1. dcildar.
ÍBK er taplaust
Keppni í 1. deild íslandsmótsins í
körfuknattleik er nú vel á veg kom-
in.
Meistaraflokkur ÍBK hefur ör
ugga forystu í deildinni, hefur leikið
sjö leiki og unnið þá alla. Enda er
það mál manna að liðið sé mjög
sterkt og hafi alla burði til þess að
spjara sig vel í úrvalsdeildinni á
næsta ári. En víst má telja að liðið
sigri með yfirburðum í 1. deild. Stað-
an í I. deild er nú þessi:
Keflavík 7 7 0 676:518 14
llaukar 8 4 4 681:719 8
Grindavík 7 2 5 590:601 4
Skallagrímur 8 2 6 680:789 4
Næsti leikur í 1. deild verður laug-
ardaginn 30. janúar, þá lcika í
Njarðvík (•rindavík og ÍBK kl.
14.00.
Liverpool
sló út
Barnsley
LIVERPOOL fékk að hafa fyrir
sigri sínum gegn Barnsley á útí-
velli í aukalcik liðanna ( fjórð-
ungsúrslitum deildarbikarkeppn-
innar í knattspyrnu sem fram fór
í gærkvöldi. Lokatölur urðu 3—1
fyrir Liverpool, en það var
heimaliðið sem náði forystunni á
16. mínútu. lan Evans átti þá
þrumuskot að marki Liverpool,
Grobbelaar varði, en hélt ekki
knettinum sem barst til Cotin
Walker og hann tvínónaði ekkert
við hlutina. Graeme Souness
jafnaði með hörkuskoti á 32.
mínútu. Síðari hálfleikurinn þótti
slakur, en þá skoruðu þeir Dave
Johnson og Ken Dalglish fyrir
Liverpool og innsigluðu sigurinn.
í 1. deild fór fram einn leik-
ur, Everton tók á móti Sout-
hampton. Everton hafði yfir-
burði í leiknum, en tókst ekki
að knýja fram sigur. Kevin
Kichardson skoraði fyrir Ev-
erton í fyrri hálfleik, en Steve
Moran jafnaði, 1—1, þegar
tvær minútur voru til leiks-
loka. Tveir leikir fóru einnig
fram í 2. deild. Charlton og
Luton skyldu jöfn, 0—0, á
heimavelli Charlton og Shef-
field Wednesday sótti Crystal
Palace heim og sigraði 2—1.
• Pétur l'étursson í búningi Feye-
noord. Nú vilja aðdáendur hans í
Hollandi fá hann aftur í liðið.
Danska liöiö fékk
skell gegn sterkum
Austur-Þjóðverjum
AUSTUR-þýska handknattleiks-
landsliðið sem lék hér tvo landsleiki
á dögunum, hélt síðan stystu leið til
Danmerkur og lék þar tvo landsleiki
gegn Dönum. Eins og menn muna,
unnu þeir þýsku báða leikina gegn
íslandi með aðeins tveggja marka
mun og máttu hafa ærlega fyrir hlut-
unum, sérstaklega í síðari leiknum.
Danir voru hins vegar engin
fyrirstaða, Austur-Þjóðverkar
sigruðu þá fyrst 24—16 og síðan
25—19. Var það mál dönsku blað-
anna, að ef ekki hefði komið til
snilldarmarkvarsla dönsku
markvarðanna, hefði útreiðin orð-
ið enn háðulegri. Koma úrslit
þessi heim og saman við getumun
þann er sást á íslensku og dönsku
liðunum um áramótin. Virðist lít-
ið hafa breyst til hins betra hjá
Dönum og er það miður, því það
styttist óþyrmilega í A-keppn-
ina ...