Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982
Karl efotur
í Brazilíu
- teflir tveggja skáka einvígi við
Zuniga frá Perú
„ÉCi VANN í dag Argentínu-
manninn Darcyi í 30 leikjum,
en seint í gærkvöldi lauk
skák minni við Saeed frá
Dubai með jafntefli eftir 105
leiki. Hann krafðist jafnteflis
þar sem maður hafði ekki
verið drepinn í 50 leikjum.
Ég átti vinningsleið, en
missti af henni,“ sagði Karl
I>orsteins, en í gær varð hann
í efsta sæti alþjóðlega ungl-
ingamótsins í Kio de Janeiro
í Brazilíu ásamt Zuniga frá
Perú.
Þeir hlutu 11 vinninga og urðu
jafnir og efstir og verða því að
heyja tveggja skáka einvígi sín á
milli. Þeir Saeed og D’Lugy, Band-
aríkjunum, sem voru eins og Karl
og Zuniga með 10 vinninga fyrir
síðustu umferð, gerðu jafntefli sín
á milli í lokaumferðinni, og höfn-
uðu í 3.-4. sæti með lO'/fe vinning.
Sigurvegari á mótinu hlýtur
500$, og annað sætið gefur 300$.
Keppendur, sem voru sérstaklega
valdir í þetta mót, fá fríar ferðir
og uppihald. Karl tefldi við Zuniga
í 2. umferð mótsins en tapaði þá,
en í samtali við Mbl. í gærkvöldi
kvaðst hann bjartsýnn á einvígið
við Perúmanninn.
Biðstaðan í skák Karls og Saeed
var:
Karl: hvítt
Saeed: svart.
41.— Hxh3, 42. e5 — He3+, 43. Kd6
— Ke8, 44. Bf6+
Þarna telur Karl, að vænlegra
hefði verið að leika He7+.
44. — h5, 45. H7+ — Kf8, 46. Bg7+
— Kg8, 47. Be5 — Ha3, 48. Hb7 —
h4, 49. Ke7 — Kh7, 50. Bf4 — g5.
Og Saeed hafði bjargað sér og
Karl náði ekki að knýja fram sigur
þrátt fyrir 105 leiki.
Guðmundur vann
í 19 leikjum
GUÐMIJNDIIR Sigurjónsson,
stórmeistari, vann öruggan sigur á
llölz, Austurríki, í 8. umferð svæða-
mótsins í Kandcrs í Danmörku í
gær. Guðmundur yfirspilaði and-
stæðing sinn og vann í 19 leikjum. í
7. umferð vann Guðmundur Huss
frá Sviss.
Borik, V-Þýzkalandi, hefur hlot-
ið 5'/4 vinning í B-riðli, Murey,
ísrael hefur 5 vinninga og biðskák
og Guðmundur er í þriðja sæti
með 5 vinninga.
Grunfeld, ísrael, og Helgi
Ólafsson gerðu jafntefli í 19 leikj-
um í gær og Jón L. Árnason átti
biðskák við Zuger frá Sviss. Jón
hafði erfiða stöðu, var skiptamun
undir. I 7. umferð vann Helgi Kag-
an, ísrael, og Jón L. gerði jafntefli
við Tiller, Noregi. Lobron hefur
forystu í A-riðli með 614 vinning,
Grunfeld hefur 5'k vinning, Helgi
hefur hlotið 4 vinninga og Jón L.
3'/i.
SIGURSKÁK
GUðMUNDAR
Hvítt: Guðmundur Sigurjóns-
son.
Svart: Hölz.
1. e4 — c5
2. Rf3 — Rc6
3. d4 — cxd4
4. Kxd4 — Rf6
5. Rc3 — d6
6. Bc4 — e6
7. Bb3 — a6
8. f4 — Be7
9. Be3 — Bd7
10. 0-0 — Hc8
11. f5 — e5
12. Re6 — fxe6
13. fxe6 — Ra5
14. Rd5 — Bxe6
15. Rxf6+ — Bxf6
16. Bxe6 — Rc4
17. Bcl — Db6+
18. Khl — Hc6
19. Hxf6 — gefið
l/okastaðan; staða Kölz er í rúst.
Úlfur Markússon, formaður Frama:
Á að fara að lögum og
reglugerðum eða upp-
hefja nýja Sturlungaöld?
„I>AÐ liggja fyrir 57 umsóknir um atvinnuleyfi leigubifreiðastjóra
og því er hinn almenni launþegi innan stéttarinnar mjög óánægður
með gang mála hvað varðar rekstur Steindórsstöðvarinnar og sölu
hennar með atvinnuleyfum. I»ví eru launþegarnir farnir að vinna í
þessu sjálfir og eru nú að safna undirskriftum til hvatningar þess að
Frami geri eitthvað í málinu.
Stjórn félagsins hefur hins vegar
kosið að gefa stjórnvöldum tíma til
þess að fara í málið, en það hefur
tekið lengri tíma en við bjuggumst
við og við erum furðu lostnir yfir
lögreglustjóraembættinu, að það
skuli ekki verða við tilmælum
æðsta manns landsins í samgöngu-
málum, samgönguráðherra Stein-
gríms Hermannssonar, því það er
auðvitað á ábyrgð embættis hans,
sem þess er óskað að rekstur stöðv-
arinnar verði stöðvaður," sagði
Ulfur Markússon, formaður
Frama, í samtali við Morgunblaðið.
„Það hefur komið í ljós í könnun
launþega innan stéttarinnar að all-
ar bifreiðir á Steindórsstöðinni eru
skráðar á nafn hennar, jafnframt
hafa þeir í höndum launaseðla frá
börnum Steindórs Einarssonar og
auk þess börnum þeirra og jafnvel
barnabörnum. Þannig virðast
sumar bifreiðirnar reknar af aðil-
um, sem aldrei hafa fengið leyfi til
rekstrar leigubifreiða. Leyfin frá
1956 voru gefin út á stöðina og leyf-
in frá 1973 á börn Steindórs og aðr-
ir höfðu ekki leyfi til að reka leigu-
bifreiðir við stöðina. Það er alveg
sama hvort þeir telja sig aka á at-
vinnuleyfum frá 1956 eða 1973, at-
vinnuleyfi má lögum samkvæmt
aldrei leigja eða selja, hvenær, sem
þau eru gefin út og það er einmitt
kjarni málsins hvort líða á skýlaus
lagabrot, samkvæmt lögum um
leigubíla, eður ei og hvort úthluta
eigi atvinnuleyfum eftir lögum og
reglugerðum eða að menn geti
keypt þau. Ég fæ því aldrei trúað
að þau lög, sem sett voru um tak-
mörkun leigubifreiða og ráðstöfun
atvinnuleyfa á hinu háa alþingi
1956, verði að engu gerð af þeim
aðilum er bera ábyrgð á því að lög-
um og reglugerðum þar að lútandi
verði framfylgt.
I eina skiptið, sem ég hef hugs-
anlega verið stórorður, mun vera
þegar ég sagði að bifreiðir stöðvar-
innar væru útkeyrðar bíldruslur,
en við það get ég staðið. Kristján
Steindórsson hefur keypt allt að 3
ára gamla bíla af leigubifreiða-
stjórum og gert þá út, jafnvel enn í
dag, og sumar af þessum bifreiðum
hefur hann nú endurselt. Það er því
Ijóst að ástand bifreiða, sem ekið
hefur verið á vöktum í 10 ár, getur
varla talizt gott.
Þá væri rétt að það kæmi fram
að Hafsteinn Sigurðsson, lögfræð-
ingur seljenda stöðvarinnar, hefur
sagzt ætla að höfða meiðyrðamál á
mig vegna þessara ummæla. Því
bæri að fagna, því þá þyrfti hann
að leggja hinn umdeilda kaup-
samning fram, en því hefur hann
neitað hingað til. Ég skora á þenn-
HVAÐ SEGJA ÞEIR
UM FISKVERÐIÐ
OG
SJÓMANNASAMNINGANA?
Kjartan Jóhannsson
formaður Alþýðuflokksins:
„Yfirlýsingagleði
ráðherra og
stefnuleysi
ríkisstjórnar-
innar hafa
kostað þjóðina
mikið“
„MENN geta lært af þessari sam-
ninga- og verkfallslotu, að með
óheppilegum yfirlýsingum og
ótímabærum afskiptum geta ráð-
herrar mjög spillt fyrir samningum
og tafið þá og sama er að segja
þcgar ríkisstjórn hefur ekki stefnu
og veit ekki hvað hún vill,“ sagði
Kjartan Jóhannsson, formaður Al-
þýðuflokksins, í samtali við Mbl.
„Það er ljóst,“ hélt hann
áfram, „að yfirlýsingagleði ráð-
herra og stefnuleysi ríkisstjórn-
arinnar hefur kostað þjóðina
mikið og þessi atriði drógu lausn
mála mjög á langinn og síðast en
ekki sízt sýnir þetta vel ástandið
sem ríkir á heimili þessarar rík-
isstjórnar."
Kolbeinn Friðbjarnarson,
Siglufirði:
„Einum hópi
sjómanna
frekar gert til
hæfis en öðrum“
SAMNINGAR sjómanna og út-
gerðarmanna voru samþykktir á
fundi í sjómannadeild Vöku á
Siglufirði á mánudag með 18 at-
kvæðum, en 22 sjómenn sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna. Á fundin-
um var eftirfarandi álytkun sanr
þykkt:
„Fundurinn mótmælir harð-
lega þeirri þróun í ákvörðunum
um fiskverð, að óslægður fiskur
hækki í endurtekin skipti mun
meira en slægður fiskur. Fund-
urinn telur, að á sama tíma og
aukin vöruvöndun og aukin gæði
á íslenzkri fiskframleiðslu sé
talin höfuðnauðsyn, til þess að
íslendingar haldi hlut sínum á
erlendum mörkuðum, séu slíkar
verðákvarðanir fordæmanlegar.
Fundurinn hvetur öll félög sjó-
manna, til þess að bindast sam-
tökum um að koma í veg fyrir að
slikar verðákvarðanir verði
endurteknar."
Kolbeinn Friðbjarnarson,
formaður Vöku á Siglufirði,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að það hefði verið ljóst á
sunnudag, að andstaðan gegn
samningunum væri einkum frá
togarasjómönnum og þá fyrst og
fremst vegna þess mismunar,
sem fæiist í ákvörðun um nýtt
fiskverð, annars vegar á slægð-
um fiski og hins vegar óslægð-
um. „Menn telja þetta ranga
stefnu og að einum hópi sjó-
manna sé frekar gert til hæfis en
öðrum, það er það sem veldur
óánægjunni", sagði Kolbeinn.
Kjartan Kristófersson
í Grindavík:
„Menn það
skynsamir að
þeir greiddu
atkvæði með
samningnum"
„Bátakjarasamningarnir voru
samþykktir hér með 47 atkvæðum
gegn 27,“ sagði Kjartan Kristó-
fersson formaður Sjómannafélags-
ins í Grindavík, þegar rætt var við
hann. „Hvað varðar togarann Guð-
stein, sem er gerður héðan út, þá
fannst okkur óeðlilegt að greiða
atkvæði um kjör manna þar, þar
sem enginn í okkar félagi, er
skráður á togarann. Var stjórn- og
trúnaðarmannaráði félagsins falið
að ná niðurstöðu hvað varðar Guð-
stein."
Kjartan sagði að Grindavíkur-
bátar hefðu farið á sjó, þegar að
atkvæðagreiðslu lokinni.
„Menn hér í Grindavík voru
ekki ánægðir með allt í samning-
unum, en þeir eru það skynsamir
að greiða atkvæði með því sem
náðist. Menn þurfa að kunna að
hætta leik, er hæst stendur,"
sagði Kjartan.
Sjómenn á Fáskrúðsfiröi:
Rangt að verð-
launa þá, sem koma
með lélegan
fisk að landi
SJOMENN á Fáskrúðsfirði sam-
þykktu samningana við LÍÚ á
fundi á sunnudag, en aðeins 2 sjó-
menn greiddu samningunum at-
kvæði. Hins vegar sátu 24 sjómenn
hjá á fundinum og létu þannig í
Ijós álit sitt á samningunum.
Þá var samþykkt ályktun á
fundinum og var megininntak
hennar sú, að sögn Vignis
Hjelm, formanns Sjómannafé-
lagsins á Fáskrúðsfirði, að sjó-
mönnum þar finnst rangt að
hækka í verði lélegan fisk og á
þann hátt sé verið að verðlauna
þá, sem koma að landi með lé-
legri vöru. Vignir sagði ennfrem-
ur, að fundurinn hefði talið, að
sjávarútvegsráðherra hefði skipt
sér of mikið af fiskverðsákvörð-
un og hefði hann tafið fyrir
lausn málsins.
an mann að leggja fram þennan
samning og á núverandi eigendur
Steindórsstöðvarinnar að birta
nöfn allra kaupendanna, 34, því að
þá sannast að örfáir þessara
manna hafa stundað leigubifreiða-
akstur svo nokkru nemi. Þá má
benda á það, að sá maður af stöð-
inni, sem spurður var að því í sjón-
varpi hvort hann hefði ekið lengi
og sagði að svo væri, hóf leigubif-
reiðaakstur í október síðastliðnum,
ók áður áætlunarbifreið. Það væri
því rétt að þeir legðu starfsaldurs-
lista fram, því þá kemur í Ijós hver
er að beita hvern gerræði, við þá,
eða þeir þá, sem talsverðan starfs-
tíma hafa að baki og bíða eftir at-
vinnuleyfum.
Stjórn Frama telur það skyldu
sína að vernda hagsmuni félags-
manna sinna, hún hefur alfarið
farið að lögum og reglugerðum um
þetta mál og hún telur sér það
skylt, þar sem hér liggja nú fyrir 57
umsóknir um atvinnuleyfi, að at-
vinnuleyfin, sem Kristján Stein-
dórsson og systkini hans hættu að
notfæra sér með því að selja stöð-
ina, áttu að koma inn og við mun-
um beita okkur fyrir því að þessir
launþegar, sem nú hefur verið
gengið framhjá fái þau atvinnu-
leyfi, sem þeim ber eftir starfsaldri
eins og segir í reglugerð. Á að fara
að lögum og reglum í þessu máli og
þessu þjóðfélagi eða á að hefja upp
einhverja Sturlungaöld, þar sem
menn taka sér völd eftir peninga-
magni eða á annan gerræðislegan
hátt eins og nú hefur verið gert?“
sagði Úlfur að lokum.