Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 31 Aldrei meiri yfirburðir hjá Ingemar Stenmark Skíðakóngurinn Ingemar Sten- mark virðist nú vera kominn í hörkugóða ædngu. Nú vinnur hann hverja keppnina af annarri og er sagóur skíða betur en nokkru sinni fyrr. Um síðustu helgi sigraði Sten- mark í svigi í heimsbikarkeppninni í Kitzbuhel í Austurríki með ótrúlega miklum yfirburðum. Stenmark var hcilum 3,16 sekúndum á undan næsta keppinaut sínum, Fhil Mahre frá Kandaríkjunum. Stenmark, sem ýmist er kallað- ur „undrabarnið", „súperstjarnan" eða „skíðakóngurinn", sýndi sam- kvæmt fréttaskeytum hreint ótrúlega fimi og færni er hann skíðaði niður hina mjög svo erfiðu svigbraut. Aðeins 36 af 109 kepp- endum tókst að komast niður brautina. Gamlir jaxlar sögðu að sjaldan eða aldrei hefði skíðamað- ur sýnt jafn mikla hæfileika. Stenmark er því álitinn verða yf- irburðasigurvegari í næstu svig- og stórsvigkeppni sem fram fer 27. janúar. Þegar fréttamenn inntu Sten- mark eftir því hvað hann hefði eiginlega gert yfir jólin og ára- mótin til þess að komast í svona góða æfingu sagði hann: „Ekkert sérstakt. Eg passaði mig bara á því að borða vel.“ Tími efstu manna í sviginu varð þessi: Stenmark 1:42,64 Mahre 1:45,80 Chiesa 1:46,76 Þá var keppt í bruni á laugar- dag og þar urðu efstir: Steve Podborski, Kanada 1:57,24 Franz Klammer, Austurr. 1:57,78 Ken Read, Kanada 1:58,00 Tony Burgler, Sviss 1:58,03 Röð efstu manna í heimsbikarn- um er þessi: Stig Phil Mahre, USA 217 Ingemar Stenmark, Svíþ. 134 Steve Podborski, Kanada 94 Andreas Wenzel, Liecht. 85 Ágætt hlaup hjá Joni í 3.000 m JÓN Diðriksson frjálsíþróttamaður úr IJMSB keppti um helgina innan- húss á meistaramóti Nord-Rhein- héraðsins, sem háð var í Diisseldorf. Varði Jón þar meistaratitil sinn í 3.000 metra hlaupi frá því árið áður, en að þessu sinni varð hann að láta í minni pokann fyrir nokkrum sterk- ustu langhlaupurum V-Þýzkalands. Hljóp Jón á 8:18,6 mínútum og varð fimmti. Karl Fleschen, bezti lang- hlaupari VesturÞýzkalands um langt árabil, sigraði á 8:06,0 mínút- um. „Það var mikil barátta í þessu h!aUpi íraman af. Eg hélt mig í fremstu röð og var þriðji eftir tvo kílómetra, og enn vorum við fimm í einum hnapp eftir 2,5 kílómetra, Ul-mót íslands í sundi llnglingameistaramót fslands verður haldið helgina 12.—14. febrú- ar 1982 í Sundhöll Reykjavíkur. Þátttökutilkynningar skulu berast fyrir 30. janúar á þar til gerðum tímavarðarkortum til mótanefndar SSÍ c/o Box 864, 121 Reykjavík, eða Guðfinns Ólafssonar, Gyðufelli 10, 109 Reykjavík. Niðurröðun í riðla fer fram á skrifstofu SSÍ 30. 1. kl. 15.00. en þá hófust miklir rykkir sem hinir þoldu betur en ég. Þetta var að öðru leyti nokkuð skemmtilegt hlaup,“ sagði Jón í spjalli við Mbl. Jón kvaðst mundu keppa í Dortmund tvær næstu helgar, í bæði skiptin í 1500 metra hlaupi. Þess má geta að tími Jóns í Duss- eldorf er rúmri sekúndu betri en hann náði bezt utanhúss í fyrra- sumar. LEÐURSÓFASETT Á ÁKLÆÐAVERÐUM mnm BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK HÖLLIN SÍMAR: 91-81199-81410 Ný sending komin í númerum 35—45 meö loö- fóöri og ófóöraöir Pantanir óskast sóttar sem fyrst Verö 35—37 kr. 288,- 38 — 42 kr. 324,- 43_45 kr. 353,- Innimarkaðurinn Veltusundi 1, sími 21212. Skókjallarinn, Barónsstíg 18, sími 23566. aage sími 18519 og 23566. Póstsendum samdægurs. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK o ÞL AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUG- LYSIR í MORGUNBLAPIM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.