Morgunblaðið - 20.01.1982, Side 12

Morgunblaðið - 20.01.1982, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 Séð yfir Siglufjörð. Sigl- firðingar eru ekki sáttir við að flutt sé skrifstofu- hald Síldarverksmiðja Ríkisins úr bænum þeirra og til Reykjavík- ur, og hafa nú sent fjóra menn suður til að greina ráðamönnum frá sjón- armiðum sínum vegna flutninganna. „Áfall fyrir bæjarfélagið“ - segir Björn Jónasson í bæjarstjórn BÆJARSTJÓRN Sifdufjarðar hef- ur samþykkt með öllum samhljóða atkvæðum að senda fjóra menn til Reykjavíkur til viðræðna við þing- menn Norðurlandskjördæmis vestra og sjávarútvegsráðherra vegna ákvörðunar stjórnar Síld- arverksmiðja ríkisins um að flytja hluta skrifstofuhalds SR frá Siglu- firði til Reykjavíkur. Mikill hiti er nú í mönnum á Siglufirði vegna ákvörðunarinnar um þennan flutning, en Siglufjörð- ur var áður miðstöð Síldarverk- smiðjanna, sem eru nú orðnar sex, víðsvegar um land. Á síðustu árum hafa ýmsir þættir skrifstofunnar flust til Reykjavíkur. í samtali við Morgunblaðið sagði Björn Jónas- son, sparisjóðsstjóri á Siglufirði, en hann á einnig sæti í bæjarstjórn, að flutningnum hafi á sínum tíma ver- ið mótmælt harðlega af bæjar- stjórninni. Sagði hann að á sama tíma og verið væri að tala um byggðastefnu á þinginu og áherslu á aukinn framgang hennar, þá væri verið að flytja til borgarinnar skrifstofuhald sem vel getur verið á Siglufirði. „Þetta er áfall fyrir bæjarfélagið að flytja skrifstofuna suður," sagði Björn. Sagði hann að þetta væri líka spurning um hvort þingmenn ætluðu að láta stjórn SR og stjórn- völd gera grín að sér, því þeir aðilar hlustuðu ekki á það sem þingmenn væru að segja. „Það er mikill hiti hér í mönnum út af þessu. Þeir fyrir sunnan vilja fá allt til Reykja- víkur. Við höfum verksmiðjuna og allt annað vilja þeir fá suður. Vilja fá að sitja þar og fjarstýra. Því er borið við, að það sé svo mikill síma- kostnaður af að hafa skrifstofuna hér á Siglufirði, en við bara hlægj- um að því,“ sagði Björn að lokum. Björn Jónas,son sparisjóðsfitjóri Ingimundur Kinarsson, bæjarstjóri Siglufirði. „Vilj*um koma í veg fyrir að brotið o - segir Ingimundur Einarsson Sv d UKKUL bæjarstjóri „Bæjarráð hefur fregnað að samþykkt hafi verið á síðasta fundi stjórnar Síldarverksmiðju Ríkisins að flytja hluta skrifstofu- halds SR frá Siglufirði til Reykja- víkur. Bæjarráð vill harðlega mót- mæla þessari samþykkt stjórnar- innar og vísar í þessu sambandi til skýlauss ákvæðis 2. málsgreinar 4. gr. laga nr. 1 frá 1938.“ Svo hljóð- ar samþykkt bæjarráðs Siglu- fjarðar, sem hún gerði 20. nóv. sl. vegna ákvörðunar stjórnar SR að flytja skrifstofuhald SR suður til Reykjavíkur. í samtali við Mbl. sagði Ingi- mundur Einarsson, bæjarstjóri Siglufjarðar, að mikil óánægja ríkti á Siglufirði vegna þessa máls. Sagði hann að þeir á Siglu- firði vildu koma í veg fyrir að all- ur réttur yrði á þeim brotinn, því í þeim lögum sem vitnað er til í mótmælum bæjarráðs segir að yf- irstjórn verksmiðjanna séu í höndum verksmiðjustjórnar og hefur hún aðsetur og varnarþing á Siglufirði og skulu stjórnarnefnd- armenn hafa þar aðsetur. „Við teljum jafnframt," sagði Ingimundur, „að skrifstofuhaldið geti jafnvel verið hér og í Reykja- vík. Við viljum einnig benda á að þingmenn landsbyggðarinnar hafa lengi haft byggðasjónarmið í huga og er þetta bara hluti af því. Við hér á Siglufirði höfum ekki fengið viðeigandi skýringu á því hvers vegna flytja á skrifstofuna suður,“ sagði Ingimundur að lok- um. Umdæmisstjórar SVFÍ á ráðstefnu Meðfylgjandi myndir voru teknar helgina 16. og 17. janúar sl., er ráðstefna umdæmisstjóra allra 10 umdæma Slysavarnafélags íslands var haldin í Reykjavík. Við það tækifæri bauð Landhelgisgæslan umdæmisstjórunum að skoða þyrlurnar TF-RÁN og TF-GRO. Starfsmenn gæslunnar skýrðu og sýndu mönnum útbúnað og notkun þyrlanna, en þetta er liður í eflingu samstarfs þessara aðila í slysavarna- og björgunarmálum, segir í frétt frá SVFÍ. Ljósm. Mbl.: Emilía.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.