Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.01.1982, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 17 Útgefandl Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavik. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 100 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 6 kr. eintakiö. Veisluhöld Framsóknar Iforystugrein Tímans í gær hreykja áróðursmeistarar Framsóknar- flokksins sér yfir því, að það hafi orðið „endaslepp veislulok hjá Morgunblaðsmönnum“, úr því að fiskverð var ákveðið og niðurstaða fékkst í kjaradeilu sjómanna. Það segir sína sögu um það, hvaða augum framsóknarmenn líta á setu sína í stjórnarráðinu, að þeim skuli helst detta í hug veislur, þegar þúsundir verkafólks um allt land ganga atvinnulausar. I mannkynssögunni þykir það dæmi um hámark stjórn- leysis og spillingar, þegar Neró keisari Rómaborgar kaus að leika á fiðlu í veislum, á meðan Rórtl brann. Framsóknarmenn skyldu þó ekki hafa tekið sér Neró til fyrirmyndar á hinum síðustu og verstu dögum? Yfirlýsingar ýmissa ráðherra Framsóknarflokksins undanfarna daga gefa óneitanlega til kynna, að þeim sé flest annað í hugá en að móta frambúðarstefnu í samræmi við þau markmið, er þeir sjálfir boða. Þegar sjávarútvegsráðherra, Steingrímur Hermannsson, samdi um fisk- verð við fiskkaupendur fimmtudaginn 14. janúar var í þeim samningi að finna ákvæði um það, að verðbætur á laun 1. mars næstkomandi yrðu 7%. Taldi Steingrímur þessa tölu lykilatriði, svo að niðurtalningar- stefna framsóknarmanna gæti tekið mið af einhverju. Þegar sami sjáv- arútvegsráðherra samdi um fiskverð að nýju föstudaginn 15. janúar, var 7% verðbótatalan 1. mars fallin út úr samkomulaginu. Framsókn hafði ekki lengur neina viðmiðun fyrir niðurtalninguna. I staðinn fyrir ákvæði um verðbætur á laun 1. mars kom nýtt loforð frá Steingrími Hermannssyni inn í samkomulagið um fiskverð. í sam- komulaginu segir, að fyrir liggi „loforð sjávarútvegsráðherra um að kostnaðarauki vegna þessa, sem nemur nær 2% af tekjum, verði fisk- vinnslunni að fullu bættur með aðlögun gengis eða öðrum jafngildum hætti innan tveggja til þriggja vikna." Af þessu tilefni sá Steingrímur Hermannsson ástæðu til að gefa eftirfarandi yfirlýsingu hér í blaðinu í gær: „Það verður staðið við öll loforð sem ég gef.“ Er í sjálfu sér merkilegt, að ráðherra skuli telja nauðsynlegt að segja jafn sjálfsagðan hlut. Til að loforð formanns Framsóknarflokksins um gengisfellingu verði framkvæmt þarf til að koma vilji flokksbróður hans Tómasar Árnasonar, viðskiptaráðherra. Hann hafði þetta að segja um loforð sjávarútvegsráðherra við fiskverðsákvörðun: „Gengisbreytingar eiga að byKKÍa á efnahagslegum forsendum, en ekki samningum úti í bæ.“ Og Tómas Árnason hnykkti á skoðun sinni með því að segja, að Steingrímur Hermannsson hefði ekki minnst einu orði á gengismál við sig og ekki sagðist Tómas hafa lofað neinu um gengisfellingu. Þeir, sem utan Framsóknarflokksins eru, hljóta að lýsa undrun sinni yfir því, hvernig ráðamenn flokksins haga sér við hin pólitísku veislu- höld, sem þeir hafa efnt til í stjórnarráðinu. Steingrímur Hermannsson gengur þvert á yfirlýsingar Olafs Jóhannessonar um kostnaðarskiptingu við smíði flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Tómas Árnason talar fullur fyrirlitningar um loforð Steingríms Hermannssonar, sem eru þó for- senda þess, að samstaða náðist um fiskverð. Það er svo sannarlega ótímabært hjá Tímanum að tala um „endaslepp veislulok hjá Morgun- blaðsmönnum", framsóknarmenn hafa boðið þeim, eins og öllum öðrum landsmönnum, til þeirrar hrikalegu veislu, sem þeir standa nú fyrir. Samkeppnin við Kanada Inóvember síðastliðnum skýrði Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Iceland Products, dótturfyrirtækis SÍS í Bandaríkjunum, frá því hér í blað- inu, að Kanadamenn væru orðnir stærstu innflytjendur á frystum þorskflökum á Bandaríkjamarkaði, en fram til þessa hefðu íslendingar átt stærsta hlutdeild í þessum markaði. í kjölfar þessarar fréttar hefur skýrst nánar, hvernig háttað er samkeppnisstöðu okkar og Kanada- manna á þessum mikilvæga markaði. Er ljóst, að við eigum undir högg að sækja af ýmsum ástæðum, sem ekki skulu raktar hér. Hitt er einnig ljóst, að milli Bandaríkjanna og Kanada ríkir engin sérstök nágranna- vinátta, þegar viðskipti eru annars vegar, og væri fróðlegt, ef opinberir aðilar hér, sem fylgjast með viðskiptaviðræðum þjóða á milli, greindu frá því, hvort fisksölumál komi við sögu í ágreiningi milli Bandaríkja- manna og Kanadamanna um viðskipti. Þorstejnn Gíslason, framkvæmdastjóri Coldwater Seafood Corp., sölufyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum, fjallar um samkeppnina við Kanadamenn hér í blaðinu í gær. Hann bendir á það, að lengst af hafi Kanadamenn ekki getað keppt við okkur á bandaríska þorskmarkaðinum vegna ófullnægjandi gæða og lélegrar sölustarfsemi. Þorsteinn Gíslason leggur á það höfuðáherslu, að því aðeins geti íslendingar átt í fullu tré við Kanadamenn að „við stöndum vörð um vöruvöndun og kostum til þess eins og þarf. Takist það vel, þá heldur íslenski fiskurinn áfram að vera góð kaup fyrir alla vandláta kaupendur, þrátt fyrir hið hefðbundna hæsta verð.“ Þorsteinn Gíslason hefur mesta reynslu við sölu á íslenskum fiski í Bandaríkjunum, það er svo sannarlega ástæða til að gefa orðum hans gaum. Af þeim má ráða, að öflug sölustarfsemi Islendinga í Bandaríkjunum skili ekki árangri nema boðið sé upp á góða vöru. Vöruvöndunin mun duga okkur best í samkeppninni við Kanadamenn. Grein: Árni Johnsen Myndir: Ragnar Axelsson Geysir er lifandi vera - segir Sigurður Greipsson í Haukadal u Geysir f Haukadal þenur sig án afláts í gær, en eftir ad 50 metra súla eins og sést á baksídumyndinni hafði staðið í nokkurn tíma stóð súlan í þessari hæð í um það bil mínútu. „Stórkostlegasta gos sem ég hef séð í Geysi u - segir Kristbergur í Laug „l’etta er stórkostlegasta gos sem ég hef séð í Geysi og hef ég þó séð þau æði mörg síðan 1935 er ég sá Geysi gjósa fyrst einu af sínum tignarlegu stórgosum, en þetta var svo glæsi- legt gos að það hríslaðist um mann allan sælutilfinning og er ég þó á hálfum áttunda áratugnum, 50 metra hátt gos er ekkert smáræði,“ sagði Kristbergur Jónsson í Laug, næsti granni Geysis í Haukadal, í gær í samtali við Morgunblaðs- menn þegar fréttamenn frá Dagblaðinu og Vísi settu 40 kfló af sápu í Geysi með leyfl Geysisnefndar og hverinn tók svo hressilega við sér að hann svaraði eftir 5—10 mínútur með mjög kröftugu gosi. Viðstaddir gosið voru heimamennirnir Greipur Sigurðsson, Þórir Sigurðsson, sem ásamt aðstoðar- manni breytti affallsrauf í hvernum sl. haust eins og gert hafði verið árið 1935, og Bergur í Laug, Runólfur Þórarinsson fulltrúi í menntamálaráðuneytinu, en hann er formaður Geysisnefndar, var á staðnum til að fylgjast með, og menn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins sem vinna nú að rannsókn á jarðraski við Geysi samkvæmt beiðni Geysisnefndar og Menntamálaráðuneytisins. Geysir vakinn til lífs á ný Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær tóku nokkrir heima- menn í Haukadal sig til og dýpk- uðu um 20—30 sentimetra mest affallsrauf sem upphaflega var gerð árið 1935 undir stjórn dr. Trausta Einarssonar og Jóns bónda í Laug, en þá var Geysir vakinn til lífs eftir hlé á gosum um árabil. Var raufin dýpkuð eins og fyrr getur í haust og breikkuð nokkuð til þess að yfirborðsvatn i hvernum eigi greiðari leið úr skál- inni og aðstæður skapist fremur fyrir gos og Geysir gamli hefur aldeilis tekið við sér, því hann hef- ur tekið rokur daglega og þá stærstu í áratugi í gær þegar hann fékk 40 kg skammt af innfluttri brezkri sápu. Morgunblaðið ræddi við heimamenn um gang mála og tilþrif Geysis, en Runólfur Þórar- insson kvaðst ekki vilja tjá sig um málið á þessu stigi utan þess að honum hefði hnykkt óþægilega við er hann sá jarðraskið við Geysi fyrir skömmu. Skynsanileg ráð í stað áhættu Heimamenn kváðust undrandi á þeim hugmyndum sem fram hefðu komið hjá ráðuneytismönnum, að bora í háls Geysis, því fylgdi slík áhætta að ekki væri takandi á meðan nota mætti önnur og skyn- samlegri ráð til að lífga hverinn við og bentu þeir á að eftir að 40 metra hola var boruð í Strokk hafi hann gosið eins og hver annar gosbrunnur, en hins vegar hafi Geysir nú tekið upp fyrri háttu með þeirri reisn og stíl sem af honum var að vænta. Einn bónd- inn í Haukadal kvaðst alveg undr- andi á þessum stóru orðum sem Birgir Thorlacius hefði haft um heimamenn í Morgunblaðinu í gær, því hann þekkti Birgi aðeins að góðu og sérstakri prúð- mennsku, hann hefði einu sinni komið í Haukadal á gæsaskytterí en aðeins skotið aligæsir á næsta bæ. „Þórir á skilió þjódarheiður“ „Þórir á skilið þjóðarheiður fyrir að taka af skarið, brjóta skurnið, og gera það sem gera þurfti fyrir Geysi, til þess hrein- lega að bjarga því að hverinn eyði- legðist, það er mín meining," sagði Bergur í Laug í samtalinu við Morgunblaðið, „það varð að brjóta nokkuð af kísilhrúðri með þessari framkvæmd, það er mín meining, en ég tel að þessi framkvæmd hefði aldrei náðst í gegn um kerfið sem skilur ekki lífveru eins og Geysi, það meina ég, það eru skrítnir kallar í kerfinu, það er ekki hægt að mótmæla því ef mað- ur vill segja sannleikann. Þetta er tvímælalaust til bóta fyrir hver- inn, því það er svo mikið kísilhrúð- ur í hvernum að á 20 til 30 árum í þeirri kyrrð sem hrjáði hann, hefði hann fyllst upp og við teljum okkur menn til þess að vita hvern- ig á að hlú að þessum granna okkar sem við höfum búið með alla ævi. Geysir 1136 ára? Það var stórkostlegur hver hér skammt frá fyrr á öldum, hann hét Hvítimelur og hann hefur auð- vitað fyllzt í tímans rás eins og Geysir var á góðri leið með að gera ef ekkert hefði verið að gert. Þannig eru hér á svæðinu útaf- sofnaðir hverir og Trausti Einars- son segir einmitt að hver sem var hér fyrir sunnan Strokk hafi verið sá mesti hér um slóðir á sínum tíma. Nú, menn hafa velt fyrir sér aldri Geysis og Dr. Þorvaldur Thoroddsen reiknaði út aldur Geysis árið 1880 eða 1883. Hann gerði það eftir ákveðinni formúlu með því að setja hey í hverinn í einn sólarhring og reikna síðan aldurinn út eftir því hve mikið kísilhrúður settist á stráin á 24 klst. Honum reiknaðist til að Geysir væri þá 1035 ára gamall þannig að nú ætti hann að vera orðinn 1136 ára gamall. Geysi komið á fætur eftir erfiða legu „Við skulum hafa það í huga að Geysir er hreinasta gersemi og Þórir hefur nú komið honum á fætur eftir erfiða legu, þetta er eins og að rétta vini hjálparhönd. Þar fyrir utan þá hefur maður hreinlega lifnað við síðan Geysir fór að gjósa aftur í vetur, þetta er hreinasta dásemd." „í þessu svæði finn ég ræturnar af sjálfum mér“ Við ræddum einnig við Sigurð Greipsson, þá öldnu kempu, um málið: „Þetta svæði er manni svo kært að það eina sem maður hefur að markmiði er að persónuleiki Geysis fái að njóta sín og ég sé ekkert óeðlilegt við það að raufin sé gerð, hún var hreinsuð og dýpk- uð eilítið frá því sem var gert 1935 og mér hefur alltaf þótt raufin gera það gagn auk affallsins að hún sýnir vel jarðlögin sem eru í skálinni, hvernig þau eru samsett og uppbyggð. Ég sé ekki ástæðu til þess að hylja raufina, kísillinn er svo mikill og það er ekkert hróflað við sjálfri lífæðinni, holunni sjálfri. Mér þykir svo vænt um þetta svæði, þar finn ég ræturnar af sjálfum mér. Svo persónulegt er j það, þetta er lífæð þar sem ég þekki hverja holu og suðið í þeim og á kyrrum kvöldum sé ég reyk- inn og veit hvað hver er að gera. Þetta eru fjölbreytilegar holur og ein þeirra, Oþerrishola, spáir fyrir veðri. Mér hefur löngum þótt betra að treysta á hana en Veð- urstofuna. Óþerrishola hreyfir sig mikiö undir úrkomu og ef hún fór að hreyfa sig þegar fólk hér var í heyskap þótti vissara að flýta sér. Sá sem hefur séð sólstafi tindra í gegnum Geysi, myndager í ótrú- legustu formum, vill ekki á neinn hátt eyðileggja fyrir Geysi, en ef hægt er að bæta hann, hví skyldi það ekki gert. Þetta er listaverk sem þarf sína hreinsun eins og önnur listaverk, sem við viljum varðveita, þarna er á ferðinni hjartsláttur landsins og hví skyld- um við börn þess ekki hjálpa til ef hægt er eins og nútíma vísindi geta hjálpað mönnum og lengt lífdaga. Geysir er lifandi vera,“ sagði Sigurður Greipsson, sem lengst allra hefur fylgst með hegð- un Geysis. Nauðsyn að huga markvisst að rásinni Greipur Sigurðsson sagði að raufin væri gerð til þess að lækka yfirborðið í hverskálinni, lækka það til þess að fremur myndaðist meiri hiti í skálinni, en um 90 gráðu hiti er nauðsynlegur til þess að gos verði í hvernum og þegar sápa er sett í hverinn er það vegna þess að hún er hitaaukandi, ein- angrar hverinn og hjálpar til við gos. Greipur kvað duttlunga Geysis vera það skemmtilegasta við hverinn, en það væri storkost- legt að hann hefði nú verið endur- vakinn. Hann hafði einnig á orði að menn hlytu að vera sammála um að nauðsynlegt væri að opna fyrir afrennsli úr hverskálinni, en ef raufin truflaði fegurðarskyn manna mætti koma þar fyrir röri t.d. og setja síðan hverahrúður í raufina, því það tæki Geysi ekki marga mánuði að mynda kísilhúð þar yfir á ný, að öðru leyti væru ugglaust til ýmsir möguleikar í þessum efnum ef að væri gáð, en hann kvaðst ekkert sjá athugavert við raufina, enda hefði hún verið með þessu móti síðan 1935 án þess að menn væru -að amast við -og nú hefði hún verið dýpkuð eilítið eins og nauðsynlegt var talið af heima- mönnum. Greipur sagðist halda að sá hávaði sem hefði nú orðið vegna þessa máls væri ef til vill fyrst og fremst vegna þess að menn væru ekki ánægðir með það hverjum ætti að þakka fram- kvæmdina, því allir sem til þekktu vissu að hún var nauðsynleg, sagði Greipur. Hann kvaðst telja það ljóst að með vissu árabili væri nauðsynlegt að huga að rásinni, því kísilúrfellingin væri svo mikil í hvernum og hann yrði að fá að gjósa til þess að pípan, sem er tal- in 20 m djúp, fengi að hreinsa sig á eðlilegan hátt og auk þess hefði hverskálin verið farin að molna vegna skorts á kísilmettuðu vatni yfir hverbarmana annað veifið. Rannsóknarlögreglumenn kanna verksummerki við Geysi, en mitt á milli mannsins til vinstri og yfirborðsins í hvernum sést hvít rönd þar sem yfirborðið var áður en raufin var dýpkuð um 20—30 sentimetra. Strokkur var einnig mataður með 20 kg af sápu og þessa mynd tók RAX þegar kúlan var að springa. *« Greipur bakkar frá hvernum eftir að hafa hent sápunni í hann. Kristbergur í Laug fagnar stóra gosinu. Sigurður Greipsson ásamt barnabarni Skálin í Geysi tæmdist algjörlega í gosinu. Sápan gerð klár fyrir hverinn. í fjarska stendur m.a. Runólfur Þórarinsson formaður Geysisnefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.