Morgunblaðið - 20.01.1982, Side 21

Morgunblaðið - 20.01.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1982 21 Guöbrandur Gests- son minningarorð Fæddur 19. nóvember 1908 Dáinn 16. desember 1981 Fáir komast langt gegn um lífið án þess að þola sorgir og ástvina- missi, og þá er það mikils virði að, eiga einhvern að, sem maður getur trúað fyrir tárum sínum. Þegar stormar lífs og stórviðri geisa, er styrkur í hverju strái, sem til næst, og lítil er sú þúst, sem ekki veitir nokkurt skjól þegar á móti blæs. Ef við leggjumst niður og lækk- um seglin, þá mæðir okkur minna í moldviðrinu, og við rísum þá hærra þegar upp er staðið. En þó er okkur styrkurinn mestur ef við stöndum saman og gætum þess vel að þar sé enginn skjóllítill fyrir, því öll erum við eitt, og ein heild, og engin keðja er sterkari en veik- asti hlekkurinn og því er okkur sú nauðsyn á höndum að hann bresti ekki fremur en hinir, og því tökum við höndum saman honum til styrktar. Þó að menn telji ekki raunir sín- ar úti fyrir hvers manns dyrum, þá er samhygð og gagnkvæmt traust það besta, sem á verður kosið, því á slíkum stundum er erfitt að standa einn, og kannski brestur okkur stundum þann næmieik, sem þarf til að sjá hvar sárast blæðir, því ekki bera það allir utan klæða. Guðbrandur Gestsson dó þann 16. desember 1981, og var jarð- sunginn 29. sama mán. Hann læt- ur eftir sig eiginkonu, Margréti Guðmundsdóttur, 2 dætur, þær Steinunni og Svanborgu, 1 son Jó- hann, og dótturson, Grétar Guð- brands Vilmundarson, sem þau hjónin tóku í fóstur og önnuðust sem eigin son. Einnig eru það barnabörn og barnabarnabörn, tengdadóttir og tengdasynir sem syrgja hann, það er stór hópur, þegar svo við það bætist að hann átti marga vini og venslafólk, og allt syrgir það þennan glaðlynda og gamansama ágætismann, sem alltaf fann broslegu hliðarnar á öllu, á hverju sem gekk. Hann hafði sérstakt lag á að segja svo frá að það kæmi mönnum í gott skap, jafnt þó að um hina alvar- legustu hluti væri að ræða. Þannig var það er ég eitt sinn kom í heimsókn á sjúkrahúsið þar, sem hann lá banaleguna, að hann sagði: „Jæja, þá er maður að taka lokasprettinn," og er ég andæfði þessu lítillega sagði hann: „0, blessaður þetta á allt fyrir okkur að liggja, þetta er bara smá flutn- ingur,“ og svo brosandi og léttur var hann er hann sagði þetta, að engu var líkara en að hann væri að fara í skemmtilegt ferðalag. Guðbrandur var vel greindur og hafði sínar sérstöku skoðanir á eilífðarmálunum, hann vissi að eftir brotthvarf af þessari jörð var annað líf, og þar myndi hann hitta sína fyrri vini og ættingja, og að þar yrði vænlegri leið til þroskans en í þessum táradal. Það er mikið lán að fá að kynn- ast slíkum manni, sem Guðbrand- ur var, það má svo margt af því læra, við þökkum í auðmýkt þann unað, sem hann að okkur rétti og minnumst hans með þeirri gleði, sem hann átti svo ríka og veitti af svo miklu örlæti. Og fleira var honum gott gefið: Hann var handlaginn og leiðbein- andi þeim sem minna kunnu fyrir sér, því það var líkast sem hann kynni hvert verk áður en hann hóf það, svo lagtækur var hann og verkséður. Okkur var það dýrmæt Guðs- gjöf að fá að kynnast Guðbrandi og eiga, þó ekki væru nema stutt viðtöl við hann, svo glaðsinna og skemmtinn sem hann var. Við biðjum Guð að styrkja þá, sem eftir hann lifa, og honum biðjum við allrar blessunar á braut eilífðar, við náðarskaut þess máttar, sem öllu ræður. Guð blessi minningu hans. Jón Þ. Haraldsson og fjölskylda. Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðst- ætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendi- bréfsformi. Þess skal einnig get- ið, af marggefnu tilefni, að frum- ort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. HITAMÆLAR & ©ei Vesturgötu 16, sími 13280. + Hér meö tilkynnist fyrir mina hönd og annarra vandamanna, aö hjartkær systir mín, SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR UNHALL andaöist á sjúkrahúsi í Bor&s í Svíþjóö þann 19. desember sl. Jaröarförin fór fram 29. sama mánaöar. Sólveig Jónsdóttir. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Tvítug stúlka meö stúdentspróf, af viöskipta- sviöi. óskar eftir atvinnu. Uppl. í síma 74267. Til sölu rumgóö 4ra herb. íbúö viö Blikabraut í mjög góöu ástandi. Nýleg 3ja herb. íbúö viö Nón- vöröu meö sór inngangi ásamt bílskúr. Njarövík 4ra herb. íbúö viö Reykjanesveg. Laus strax. 4ra herb. ibúð viö Hjallaveg. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik. Sími 1420. þjónusta x Ayt A ó Fótaaðgerðarstofan Bankastræti 11 Timapantanir frá 13.—16. sími 25820. íbúö óskast Öska eftir aö taka á leigu ein- staklingsíbúö eöa herb. meö sér snyrtingu og sér inngangi. Uppl. í síma 50956 eftir kl. 14. Síamskettlingar Hreinræktaöir til sölu. Upplýs- ingar i síma 38483 eftir kl. 17.30. Sólargeislinn Sjóöur til hjálpar blindum börn- um. Gjöfum og áheitum veitt móttaka i Ingólfsstræti 16. Blindravinafélag islands Glittnir 59821207 — 1 Frl. Atk. □ Helgafell 59822017 — VI. Rmr-20-1-20-20-Sar-Mt-Ht IOOF 7 = 16201208% = E.l. Kvenfólag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur spila- og skemmtikvöld á Hallveigarstööum á morgun fimmtudag kl. 20.30. Fríklrkju- fólk fjölmenniö og takiö meö ykkur gesti. Stjórnin Systrafélag Fíladelfíu Muniö fundinn í kvöld, miöviku- daginn 20. janúar kl. 20.30, aö Hátúni 2. Veriö allar velkomnar. Stjórnin. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Bænasamkomur á hverjum degi kl. 14.00 þessa viku. Fimmtudag kl. 20.30, almenn samkoma Ein- ar Gíslason talar. Velkomin. Kristniboðssambandiö Bænasamvera veröur í kristni- boöshúsinu Betania Laufásvegi 13. í kvöld miövikudag. kl. 20.30 Allur eru velkomnir. Hörgshlíö 12 Samkoma í kvöld, miðvikudag, kl. 8. IOGT Veröandi númer 9 fundur i kvöld kl. 20.30. Sigþórsminning. Æ.T. ISIEIHI IIPHIIIIIIIII Í.SAU’ ICtLANDIC ALPINE CLUB Myndasýning miövikud. 20. jan. kl. 20.30 að Hótel Loftleiðum (Ráöstefnusalur) Philippe Patay sýnir litskyggnur af klifri á ISLAND PEAK, 6189 m hátt fjall á Sherpa — Kumbu svæöinu undir Mount Everest, hæsta fjalli heims, og af fjall- göngu- og gönguferöum i Nepal. Aögangseyrir kr. 25 og veitingar í hlei. Allir velkomnir. Islenski Alpaklubburinn raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar Söluturn til sölu. Góö velta. Tilboö sendist augldeild Mbl. fyrir 23/1. merkt: „Söluturn — 8345“. Kjörbúð til sölu Af sérstökum ástæðum er vel staðsett kjör- búö í eigin húsnæöi í Austurbænum til sölu nú þegar. Verslunin er vel tækjum búin meö góöum innréttingum. Mánaðarvelta um V2 milljón. Miklir möguleikar á aukningu. Fyrirspurnir sendist augl.d. Mbl. fyrir 25. þ.m. merkt: „Verzlun — 8343“. Efnalaug Til sölu efnalaug í fullum rekstri á mjög góö- um stað í borginni. Tilboö sendist Mbl. fyrir hádegi 23/1 ’82 merkt: „Efnalaug — 8159“. |__________tilkynningar__________| Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir desembermán- uö 1982 hafi hann ekki verið greiddur í síö- asta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af van- greiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virk- an dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viöurlögin 4,5% til viööótar fyrir hvern byrjaöan mánuö, talið frá og meö 16. febrúar. Fjármálaráðuneytiö, 18. janúar 1982. fundir — mannfagnaöir Kvenfélögin Aldan, Bylgj- an, Hrönn og Keöjan halda sameiginlegan skemmtifund. fimmtu- daginn 21. janúar aö Borgartúni 18 kl. 20.30. Skemmtinefndir. Sólarkaffi Sólarkaffi ísfirðingafélagsins í Reykjavík verður í Súlnasal, Hótel Sögu, sunnudaginn 24. janúar kl. 20.30. Miðar veröa seldir og borö tekin frá að Hótel Sögu laugardaginn kl. 16—18 og sunnudag kl. 16—17. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.