Morgunblaðið - 02.02.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
5
Erkibiskup kaþólskra á
Norðurlöndum í heimsókn
Afhendir forseta
íslands trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra
Erkibiskup kaþólskra á Norður
löndum og sendiherra Vatíkansins á
íslandi, Luigi Bellotti, kom í heim-
sókn til Islands síðastliðinn laugar
dag. Erkibiskupinn dvelur hér fram á
fimmtudagsmorgun og á morgun,
miðvikudag, mun hann afhenda for
seta Islands trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra Vatíkansins á íslandi.
Á sunnudag messaði Bellotti
erkibiskup í Dómkirkju Krists kon-
ungs í Landakoti, ásamt dr. Hinrik
Frehen biskupi og Ágústi K. Eyj-
ólfssyni sóknarpresti. Var mikill
fjöldi fólks viðstaddur messuna og
flutti hann þar eftirfarandi ávarp:
„Yðar göfgi, virðulegu prestar,
virðulegu systur, kæru kristnu
systkin.
Það var mér mikil ánægja að
þÍ8KÍa vingjarnlegt og bróðurlegt
boð biskupsins yðar að koma
hingað í dómkirkju Reykjavíkur-
biskupsdæmis og syngja þar hátíð-
lega messu. Ég er innilega þakklát-
ur hans göfgi og einnig yður, sem
komin eru hingað til þess að biðja
með mér.
Þessi heilaga athöfn er upphaf
framkvæmda þess hlutverks míns
að vera fulltrúi hins heilaga föður
Jóhannesar Páls II á íslandi, og
mér er gleði að því að geta hitt
yður í dag og fært yður kveðjur og
óskir hins heilaga föður. Ég fagna
þessu tækifæri til að hefja starf
mitt með því að taka þátt í bænum
hins kaþólska samfélags í höfuð-
borg þessari. Og ég bið yður að
biðja þess með kærleiksríkum huga
að Guð hjálpi mér að gegna hlut-
verki mínu í þjónustu kirkju yðar
hér á íslandi, í sameiningu við hinn
æðsta hirði og heimskirkjuna.
Nærvera hans heilagleika meðal
vor lífgast æ meira, það er nærvera
friðar og kærleika.
Á þessari stundu upplifum vér
með sonarlegri hollustu og ástúð
þann fögnuð að vera tengd hinum
heilaga föður í hinum leyndar-
dómsfulla líkama Jesú Krists, sem
er kirkjan, og viljum tjá páfanum
þegnskap vorn, þakklæti og hlýðni.
Kæru bræður, ég flyt yður og
fjölskyldum yðar einlægar og heit-
ar óskir mínar um frið og öll gæði
af hálfu Drottins. Innilegum kveðj-
um mínum fylgir postulleg blessun,
sem ég færi yður fyrir hönd hins
elskaða páfa vors, Jóhannesar Páls
II sem merki um ríkulegar náðar-
gjafir af himnum."
Að messu lokinni heilsaði erki-
biskup söfnuðinum í Landakots-
skóla. Mælti hann fáein orð til
hvers og eins, og kirkjugestir rit-
uðu nöfn sín í gestabók, sem erki-
biskupi var síðan afhent til minn-
ingar um þessa heimsókn til safn-
aðarins.
Luigi Bellotti fæddist í Verona á
Ítalíu 17. marz 1914. Hann meðtók
prestvígslu 11. júní 1937 og var til-
nefndur nafnbiskup Vancariana í
Norður-Afríku 4. október 1964.
Hann var sendifulltrúi Vatíkansins
í Uruguay frá 2. september 1975,
þangað til hann tók við embættum
sínum á Norðurlöndum. Erkibisk-
upinn hefur aðsetur í Kaupmanna-
höfn.
I.jósm. Mbl.: ÓI.K.M.
Eftir mes.su í Landakoti, heilsaði erkibiskupinn upp á söfnuðinn í Landa-
kotsskóla. Á myndinni er dr. Hinrik Frehen biskup að ræða við ungan dreng.
Bellotti erkibiskup er fjær að ræða við systur safnaðarins.
Ritsafn Guómundar Danlelssonar
9i
Guðmundur Daníelsson, frásagnameistari í 48 ár.
Ritsafn Guðmundar Daníelssonar er 10 bækur. öll verkin eru frá
árunum 1948-1970 og sum þeirra hafa verið ófáanleg um hríð.
í ritsafninu eru skáldsögumar Blindingsleikur, Musteri óttans,
Hrafnhetta, Húsið, Turninn og teningurinn . Sonur minn Sinfjötli
og Spítalasaga, skáldverk utanflokka í bókmenntunum.
Einnig ferðasagan Á langferðaleiðum, veiðisagan Lands-
hornamenn - sönn saga í há-dúr og smásagnasafnið Tapað stríð.
Viðfangsefnin eru margvísleg og tekin fjölbreytilegum tökum, en
þróttmikill stíll og hröð og lifandi frásögn eru samkenni á öllum
verkum Guðmundar Daníelssonar.
Ritsafninu fylgir ellefta bindið með ritgerð dr. Eysteins
Sigurðssonar um verk Guðmundar; og skrá um útgáfur, ritdóma og
heimildir þeirra, sem Olafur Pálmason hefur tekið saman.
Góð bókmenntaverk í vönduðum búningi.
lögberg Bókaforlag
Þingholtsstræti3, simi: 21960